Alþýðublaðið - 03.05.1973, Blaðsíða 11
William Terry
Hannie Caulder
holu nógu langa og djúpa til að
taka við likinu. Húsið var brunnið
til kaldra kola um það bil sem
Hannielyfti likinu af Jim Caulder
niður i gröfina. En við og við
blossaði logi upp úr hvitri öskunni
og sleikti um svartbrunna raftana
á meðan hún var að moka ofani
gröfina og slétta yfir. Hún gerði
engan kross til að merkja þessa
nýju gröf, né heldur las hún neitt
yfir moldunum.
t stað þess fleygði hún frá sér
skóflunni inn á milli ferskju-
trjánna og sneri sér undan. Or
djúpi hjarta sins fann hún nýja
táralind, sem rann óheft niður
vanga hennar þegar hún gekk út
úr grafreitnum, lokaði hliðinu
vandlega á eftir sér og gekk heim
að bænum. Þar horfði hún á
siðustu hvitu reykjarhnoörana
risa upp af sótugum stein og
viðarhaugnum, sem verið hafði
heimili hennar. En jafnvel hin
nýja táralind hlaut að þorna og
þegar hún hafði fellt sitt siðasta
tár, snerist hún á hæli og fór aftur
fyrir horn á hlöðunni þar sem stóð
stór og mikil regnvatnstunna.
Jim hafði farið sparlega með
innihald hennar, notaði isalt
vatnið sem minnst vegna mögu-
leikanna á þvi að þurrkarnir
drægjust á langinn.
Hannie lét ábreiðuna falla og
horfði niður eftir sér allri, gretti
KRILIÐ
£jne/míirMDUKiN/V j
5 YNDlR SRmHL FLOKKq EHN íiORG fíR 'CSKfíR J/E/í/
6
f Z
5r/?/i7p /A'/V R/Ffi S
\
'5LWPftl hlOr/um i GBST GJfíBl Á/V
L L/FrMg
REiÐ* T/TILL. 3 £/rvK S>r 8
KVRRÐ 'OV/lJ!
f
VAlVCrF ^Kt'CrCx Vjmm-r 7
'fí VEURH/ SKYLD/ GfíHfí- FLOTUR
9 //
LOKfí SfímHL / /0
LyKU-ORÐ - erx'NG-L.
sig ytir ljótum áverkunum, sem
Clemens bræðurnir höfðu skilið
eftir á hörundi hennar og voru nú
mjög áberandi á að lita i sterkri
sólarbirtunni. Svo hóf hún sig upp
á kassa, stakk sér niður i vatns-
tunnuna og tók að núa sig
tryllingslega með krepptum hnef-
um til að reyna að losa húð sina
og sál við ódauninn af mönnunum
þremur.
Hún fór ekki aftur upp úr
tunnunni fyrr en að klukkustundu
liðinni og þegar hún var komin
uppúr og tekin að núa sig þurra
með ábreiðunni, var hún allt i
einu orðin fögur á ný. Vatnið hafði
hreinsað af henni yfirborðs-
óhreinindin þótt það gæti ekki
þvegið hug hennar hreinan af
minningunni né afmáð merkin
eftir ruddaskap mannanna. Svalt
vatnið hressti hana svo dökk
augun brunnu af innri glóð og það
skipti engu þótt það væri glóð
haturs, sem lifgaði andlit hennar.
Hún ljómaði af yndisþokka, sem
var algerlega kvenlegur. Til-
finningin, sem nærði þennan
innri eld varð litilvægari en
hinni sjáanlegi árangur. Hún var
kona og hún var fögur.
Hún sveipaði ábreiðunni um
herðar sér og naut rakans af
henni sem varði hana gegn sólar-
hitanum, en að svo búnu gekk hún
fram fyrir hlöðuna og ýtti upp
annarri stóru hurðinni. Inni var
skuggsýnt og hún dokaði við unz
augu hennar höfðu vanizt dimm-
unni.
Uppi á einum veggnum hékk
byssubelti með fyrirferðarmikilli
marghleypu i hulstri. Það var
þakið ryklagi og þegar hún hafði
náð þvi niður dró hún upp skot-
vopnið, undrandi yfir þunga þess
og blés á það. Þetta var 69 mm
Springfield frá árinu 1818 gerð
handa Bandarikjaher. Á sinum
tima hafði hún verið illræmdasta
byssan með þeim mönnum sem
neyddust til að nota hana þvi hún
var erfið i vöfum og óáreiðanleg.
Aðeins eitt þúsund voru fram-
leiddarog flestar þeirra eyðilagð-
ar af hermönnunum, sem fengið
höfðu þær úthlutaðar. En faðir
Jims Caulder hafði geymt sina og
Jim erft hana, hengt hana upp i
hlöðunni og gleymt henni. Hún
var hlaðin og tilbúin til notkunar.
Hannie virti hana fyrir sér um
stund en kom henni svo aftur fyrir
i hulstrinu. Beltið var of langt um
grannt mitti hennar og hún varð
að nota isflein til að gera á það
nýtt gat. Þá hékk beltið þægilega
um lendar hennar með byssu-
hulstrið öðrum megin en stóran
hnif i sliðri hinum megin.'Hún
prófaði að gripa i skyndi til byss-
unnar en hún var þung og seig i
hendi hennar strax eftir að hún
hafði miðað henni. En hún virtist
gera sig ánægða með þetta.
Hún leysti af sér beltið og fletti
af sér ábreiðunni, spennti beltið
aftur um sig bera og batt reim-
arnar á byssuhulstrinu utanum
hægra lærið. Svo dró hún hnifinn
úr sliðrinu braut saman ábreið-
una og skar rifu i hana miðja. Sið-
an stakk hún höfðinu gegnum rif-
una og þá lá ábreiðan um axlir
hennar og brjóst á mexikanska
visu. Hún sliðraði hnifinn aftur,
dró gömul stigvél sem hún fann, á
fætur sér og hatt sem var jafnvel
ennþá eldri á höfuðið.
Þegar hún stikaði út úr hlöö-
unni strikkaði á rifunni i ábreið-
unni og jaðrarnir flöksuðust til
svo ef einhver hefði verið nærri
hefði hann séð grilla i fjaður-
magnaöan likamann undir. En
þarna voru engir áhorfendur
nærri. Landslagið var auðn og
hrjóstur og hið eina sem hreyfðist
var reykurinn frá kulnandi eldin-
um, sem eytt hafði sveitabýlinu
með öllu.
Hannie hafði engan hest og
lagði þvi af stað fótgangandi og
fylgdi slóðinni eftir Clemens-
bræðurna. Hún vissi að vonlaust
var að veita þeim eftirför. Enda
þótt hún næði þeim fyrir eitthvert
kraftaverk hefðu óvanar hendur
hennar og fornfálegt skotvopnið
sem hún bar á sér ekkert að gera
á móti mönnunum þremur sem
voru svo vel að sér i manndráps-
listinni. En þessi vitneskja hélt
ekki aftur af henni og þótt henni
sæktist leiðin seint i vaxandi
húminu mátti sjá i fari hennar
einbeittni og ákveðinn tilgang.
Sólin gekk til viðar, rauð og
heit, og i hennar stað kom fullt
tungl sem skein af heiðum himni
svo gisinn gróðurinn, sem setti
svip á hið hrjóstruga landslag
breytti um lit, úr grænu og brúnu i
blátt og blárautt og gul jörðin á
milli varð grá að lit. Skuggarnir
styttust, þéttust og skiptu um
stefnu og fjarlægðirnar brengluð-
ust er sjóndeildarhringurinn
færðist nær. Gangandi konan
varð hluti af þessari næturveröld
og stundum varð ganga hennar
slitrótt þegar hún nam staðar til
að hlusta eftir draugalegu skrjáfi
og þyt. En þótt hún héldi nú
áfram af meiri gætni, hreyfingar
hennar væru spenntari, athugaði
hún stöðugt af gaumgæfni jörðina
fyrir framan sig og hélt sér
dyggilega við slóðina eftir reið-
mennina þrjá.
En hún tók að þreytast. Eld-
raunin á bænum viö Clemens-
bræðurna, áreynslan við að grafa
mann sinn og siðast hin langa
ganga olli henni þreytu sem virt-
ist ná inn i merg og bein. Hún
hafði varla bragðað mat i tvo sól-
arhringa og drukkið enn minna og
þegar hún sá framundan sér þétt-
Askriftarsíminn er
86666
ENDURN VJUN
Dregið verður mánudaginn 7. maí
Munið að endurnýja
Auglýsing um
skoðun bifreiða
í lögsagnarumdæmi
Reykjavíkur
Aðalskoðun bifreiða i lögsagnarumdæmi
Reykjavikur i mai 1973.
Miövikudaginn 2. mai R- 7601 — R- 7800
Fimmtudaginn 3. mai R- 7801 — R- 8000
Föstudaginn 4. mai R- 8001 — R- 8200
Mánudaginn 7. mai R- 8201 — R- 8400
Þriöjudaginn 8. mai R- 8401 — R- 8600
Miövikudaginn 9. mai R- 8601 — R- 8800
Fimmtudaginn 10. mai R- 8801 — R- 9000
Föstudaginn 11. mai R- 9001 — R- 9200
Mánudaginn 14. mai R- 9201 — R- 9400
Þriöjudaginn 15. mai R- 9401 — R- 9600
Miövikudaginn 16. mai R- 9601 — R- 9800
Fimmtudaeinn 17. mai R- 9801 — R-10000
Föstudaginn 18. mai R-10001 — R-10200
Mánudaginn 21. mai R-10201 — R-10400
Þriöjudaginn 22. mai R-10401 — R-10600
Miövikudaginn 23. mai R-10601 — R-10800
Fimmtudaginn 24. mai R-10801 — R-11000
Föstudaginn 25. mai R-11001 — R-11200
Mánudaginn 28. mai R-11201 — R-11400
Þriöjudaginn 29. mai R-11401 — R-11600
Miövikudaginn 30. mai R-11601 — R-11800
Bifreiöaeigendum ber að koma með bifreiöar sinar til bif-
reiðaeftirlitsins, Borgartúni 7, og veröur skoöun fram-
kvæmd þar alla virka daga kl. 8,45 til 16,30.
Bifreiðaeftirlitið er lokað á laugardögum.
Festivagnar, tengivagnar og farþegabyrgi skulu fylgja
bifreiöunum til skoöunar. Viö skoðun skulu ökumenn bif-
reiöanna leggja fram fullgild ökuskirteini. Sýna ber skil-
riki fyrir því, að bifreiöaskattur og vátrygging fyrir
hverja bifreiö sé i gildi. Þeir bifreiöaeigendur, sem hafa
viötæki i bifreiöum s:.num, skulu sýna kvittun fyrir
greiöslu afnotagjalda rikisútvarpsins fyrir árið 1973.
Athygli skal vakin á þvi, að skráningar-
númer skulu vera vel læsileg.
Vanræki einhver að koma bifreið sinni til
skoðunar á auglýstum tima, verður hann
látinn sæta sektum samkvæmt umferðar-
lögum og bifreiðin tekin úr umferð hvar
sem til hennar næst.
Þetta tilkynnist öllum, sem hlut eiga að
máli.
Lögreglustjórinn i Reykjavik,
30. april 1973.
ÚTBOÐ
Tilboð óskast i gatnagerð, lagnir og bygg-
ingu rotþróar i einbýlishúsahverfinu
Laufási i Bessastaðahreppi.
Útboðsgögn verða afhent i skrifstofu okk-
ar, gegn kr. 2000.00 skilatryggingu. — Til-
boðum skal skila i skrifstofu okkar, fyrir
kl. 11.00 f.h. þriðjudaginn 15. mai 1973.
Verkfræðistofa Sigurðar Thoroddsen s.f.
Ármúla 4, Reykjavik.
Frá Barnaskolum
Hafnarfjaröar
Þau börn sem fædd eru árið 1966 og ekki
hafa verið i 6 ára deildum barnaskólanna i
Hafnarfirði i vetur eiga að koma til inn-
ritunar i viðkomandi skóla föstudaginn 4.
mai frá kl. 15-16.
Fræðslustjórinn i Hafnarfirði
Fimmtudagur 3. maí 1973
©