Alþýðublaðið - 08.05.1973, Page 3
CARGOLUX IHUGAR AB
TAKA f NOTKUN ÞOTU
Það hafa trúlega fæstir hug-
mynd um það að islenzkt flugfé-
lag haldi uppi reglubundnum
ferðum með pipar frá Samara i
Eþiópiu og með tómata og jarðar-
ber frá Marokkó til Luxem-
burgar.
En þetta er hluti fastra verk-
efna CARGOLUX INTER-
NTIONAL S.A. sem er sameign
Loftleiða, Luxair og sænska
skipafélagsins Salenia.
Félagiö er nú um þriggja ára
gamalt, og hefur velta þess og
umsvif aukizt mjög hröðum
skrefum, — og sem dæmi má
nefna, að árið 1971 voru flognar
5.480 flugstundir, en áriö 1972
voru flugstundirnar 10.520. Það
sem af er þessu ári er enn um að
ræða mikla aukningu.
Aðalflugleiðir félagsins eru til
og frá Austurlöndum f jær, þá sér-
staklega Hong Kong og Singa-
pore, og eru að jafnaði farnar
þangað þrjár ferðir i viku. Þar að
auki er farið reglulega einu sinni i
viku til Lusaka i Zambiu.
1 vetur hefur einnig, eins og
áður, verið flogið meö pipar
reglulega einu sinni i viku frá As-
mara i Eþiópiu og einnig var farið
þrisvar sinnum i viku með tómata
og jarðarber frá Marokkó til
Luxemborgar og var þessum vör-
um siðan dreift þaðan.
Nú eru starfandi hjá CARGO-
LUX ellefu flugáhafnir, sem eru
flestar islenzkar, en starfsmenn
CARGOLUX eru nú orðnir 55 alls.
Segja má að mjög mikill alþjóða-
bragur sé yfir þvi að starfsmenn
eru af átta þjóðernum og tala
a.m.k. niu tungumál.
( Stjórn CARGOLUX hefur nú i
athugun, að félagið taki i notkun
þotu af geröinni DC-8-61 nú i haust
eða á næsta ári. Einnig er verið
að athuga möguleika á að reisa
flugskýli i Luxemborg, til þess að
mögulegt sé að sjá um allt við-
hald á vélum CARGOLUX. Þá
yrðu ennfremur framkvæmdar
minnni skoðanir fyrir Loftleiöir
h.f., International Air Bahama og
jafnframt mundi Luxair beina
ákveðnum viðskiptum til þess
félags, sem sæi um rekstur flug-
skýlisins og viðhald flugvélanna i
Luxemborg.
GENGIÐ
VERÐUR Á
FLEYGI-
FERÐ
— Þaö er engin stefna I
sjálfu sér að viöhalda föstu
gengi, sagði Jóhannes Nordal
á fundi með blaðamönnum nú
á dögunum, þegar tilkynnt var
um gengishækkun Islenzku
krónunnar. Það virðist meira
að segja vera oröin stefna, að
gera tiðar breytingar á geng-
inu, ef marka má ummæli
seðlabankastjórans á ársfundi
bankans, en þar sagði hann
orðrétt:
„öll hnlga þessi rök að þvl,
aö við fylgjum fordæmi ann-
arra þjóða og tökum upp
sveigjanlegri stefnu I gengis
málum, meðörari breytingum
gengisskráningar bæði til
hækkunar og lækkunar, og
gerum gengið þannig að virk-
ari þætti I almennri stjórn
efnahagsmála.”
Það má þvi alveg eins búast
viö frekari breytingum I næstu
framtlð — upp eða niður — og
út.
Það má þvl alveg eins búa.st
við frekari breytingum I næstu
framtið — upp eða niður — og
útflytjendur og innfiytjendur
verða þvi ekki öfundsverðir af
hlutskipti sinu.
GOTT VÆRI
AÐ EIGA
HLUT í SEÐLA
BANKANUM
Það gæti verið gott að eiga
hlutabréf i Seðlabankanum
ef hægt væri. Þrátt fyrir að
rekstrarafkoma bankans hafi
versnaö að miklum mun á
árinu 1972 — eftir að greiddir
höfðu veriö vextir af eigin fé
og arður af stofnfé voru aðeins
eftir 5,7 m. kr. árið 1972 á móti
51 m. kr. árið 1971 — þá var
arðgreiðsla af stofnfé bankans
hækkuð úr 13% i 15%, en hún
rennur til Visindasjóðs. En
þrátt fyrir óhagstæða afkomu
var bankinn samt veitull til
liknar-og nauðsynjamála. Gaf
hann m.a. 5 millj. kr. i Land-
helgissjóð.
FJÖGUR FYRIRTÆKI FÁ 73.5 MILLJÓNIR
12 MILUÚNIR l)R IfiNÞRðUN
ARSJðÐI í NÝTT BAKARl
Fjögur fyrirtæki fengu nýverið
úthlutað lánum úr Iönþróunar-
sjóði, samtals kr. 73.5 milljónir.
Dósagerðin viö Borgartún fékk 24
milljónir, Skinnaverksmiðjan
Iðunn á Akureyri fékk 15 milljón-
ir. Ullarverksmiöjan Gefjun á
Akureyri fékk 22 milljónir og
Brauö h.f. i Kópavogi fékk 12.5
milljónir. Lán þessi eru veitt
samkvæmt ábendingum fram-
kvæmdastjórnar Iðnþróunar-
sjóðsins á Islandi, en eru siöan
samþykkt af yfirstjórn sjóðanna
á öllum Norðurlöndunum.
Dósagerðin h.f.
Framkvæmdastjóri Dósa-
gerðarinnar h.f. sagði við Alþýöu-
blaðið i gær, að væntaniega flytti
verksmiðjan i nýtt og stórt hús,
að Vesturvör 16-20, sem verið er
aö ljúka við. Lánsféö á að nota til
kaupa á fullkomnum vélum til
dósagerðar, og er áætlað, aö nýja
verksmiðjan geti tekiö til starfa i
haust. Stækkun þessi á Dósagerð-
inni er gerð meö hliðsjón af aukn-
um útflutningi á niðurlagningar-
vörum og þeirri endurskipu-
lagningu á niðurlagningaiðnaðin-
um, sem nú stendur yfir.
Brauö h.f.
Að sögn Kristins Albertssonar,
framkvæmdastjóra Brauðs h.f. i
Kópavogi, er verið að innrétta
stóra og fullkomna brauð- og
kökugerö i Skeifunni 11, sem
verður búin vélum af nýjustu
gerð, — en þær eru þegar komnar
til landsins. I fyrstunni sagöi
Endurskipulagning á
fagmetisverksmiðjum
Kristinn, að fyrirtækið reki baka-
ri á báðum stöðunum, en siðar
verði starfsemi hætt á gamla
staðnum.
Sambandsverksmiðjurnar.
Iðunn og Gefjun á Akureyri fá
samanlagt 37 milljónir króna úr
sjóðnum, og aö sögn Axels Gisla-
sonar, aðstoðarframkvæmda-
stjóra, veröur þetta fé bæði lagt i
endurnýjun og kaup á nýjum vél-
um til þess að fullkomna fram-
leiðsluna og gera hana sam-
keppnisfærari.
Dýrasta f járfestingin hjá
Gefjun er nýtt og fullkomiö ullar-
blöndunarkerfi, sem kostar 14-15
milljónir króna. Einnig verða
keyptar vélar i sambandi við
ýmsar nýjungar i vefnaði, og loft-
ræstikerfi verksmiöjunnar verð-
ur endurnýjað.
Hjá skinnaverksmiðjunni
Iðunni verða 15 milljónirnar að
mestu notaöar til áframhaldandi
uppbyggingar og keyptar veröa
ýmsar smávélar til lagfæringar
og hagræðingar á framleiðslunni.
TIL STYRKTAR
FÖTLUÐUM
Sjálfsbjörg, landssambandi
fatlaðra, hefur borizt höfðingleg
gjöf vegna Vestmannaeyja-
gossins að upphæð kr. 500.000.00
frá Vanförefonden og Samfundet
og Hjemmet for Vanföre I Dan-
mörku.
Gjöfina afhentu formenn sam-
takanna, Viggo Kampmann, fyrr-
verandi forsætisráöherra, og
Frederik Knudsen, Siguröi
Bjarnasyni ambassador Islands i
Danmörku. I gjafabréfinu er
tekið fram að upphæöin skuli ekki
ganga inn I hina almennu dönsku
Vestmannaeyjasöfnun, heldur
verði henni varið eingöngu til
styrktar fötluðum Vestmannaey-
ingum.
Sölustofnun lagmetis hefur
samið við norskan verkfræðing
um að gera tæknilega úttekt á
verksmiðjum í lagmetisiðnaði í
þvi skyni að vinna að endurskipu-
lagningu verksmiðjanna, aukn-
ingu framleiöni og fá betri nýt-
ingu á byggingum og framleiðslu-
tækjum.
Þessi verkfræðingur var hér á
ferðinni fyrir skömmu og skoðaði
þá átta verksmiðjur. Hans er svo
aftur von hingað til lands I sumar,
og mun hann þá halda starfi sinu
áfram.
Frá þessu er skýrt I fréttatil-
kynningu frá stofnuninni i tilefni
annars fulltrúaráðsfundar stofn-
unarinnar, en hann var haldinn
nýlega.
1 tilkynningunni er einnig frá
þvi greint að auk tæknilegrar út-
tektar sé ráðgerð matvælaleg út-
tekt á lagmetisiðnaðinum. Hefur
verið gerður samningur við þekkt
danskt fyrirtæki, sem hefur sér-
hæft sig sem ráðgjafafyrirtæki i
matvælaframleiðslu, þ.e. gerð
uppskrifta, notkun krydds, sósu-
gerö svo og gerð vörunnar fyrir
hina einstöku markaði.
Fyrirhugað er að fyrirtæki
þetta athugi fyrst vörur þær, sem
framleiddar eru hérlendis og
vinni aö endurbótum á fram-
leiðslu þeirra. 1 öðru lagi er verk-
efni þessa fyrirtækis að þróa nýj-
ar tegundir úr hráefni okkar og
taka jafnvel nýtt hráefni inn i
framleiösluna. Þá mun fyrirtæki
þetta einnig verða ráðgefandi um
notkun og samræmingu umbúða
svo og útlit vörunnar.
AGÆTUR
ÁRANGUR
Ann Gray var greinilega á
rangri hillu, — eöa réttara
sagt: röngu megin við
myndavélina. Þvi hún
starfaði sem aðstoðar-
stúlka Ijósmyndara nokk-
urs í Englandi. Einn dag-
inn vantaði fyrirsætu, svo
Ann brá sér fram fyrir
linsuna. Með aldeilis
ágætum árangri.
o
Þriðjudagur 8. maí 1973