Alþýðublaðið - 15.05.1973, Blaðsíða 7

Alþýðublaðið - 15.05.1973, Blaðsíða 7
4STA VANDAMALID - ISSIÐ HÆTTULEGASTA prósent frá árinu 1969, og aukast þau enn. En nefndin er ekkert sérstak- lega ánægð með árangurinn. Sér- stök stofnun, sem Nixon forseti setti á fót til þess að berjast gegn eiturlyfjavandanum isamráði við aðrar stjórnarstofnanir hefur ekki skilað árangri að sögn nefndarinnar og nýjar lagasetn- ingar hafa reynzt enn ver. Metingurinn gagnrýndur Metingur á milli stofnana og skortur á samræmingu, til dæm- is, hafa mjög torveldað baráttuna gegn eiturlyfjavandanum, segir nefndin og á þar við ,,á stundum bitran árgreining” á milli tollyf- irvalda og stofnunarinnar, sem fjallar um deyfilyf og viðsjárverð eiturefni. Það er einmitt til þess að eyða slikum og þvilfkum metingi, sem nefndin gerir að tillögu sinni að stofnsett verði sérstök stjórndeild eiturlyfjamála, sem fái til með- ferðar öll stig og alla þætti vanda- málsins. Leggur nefndin til, að stjórndeild þessi eða sérstofnun verði byggð upp með svipuðum hætti og Atómorkunefndin (Atomic Energy Commission). Til þess að ráða megi bót á svip- uðum vandkvæðum innan ein- stakra rikja USA, gerir nefndin einnig að tillögu sinni, að i hverju riki verði samskonar undirstofn- anir settar á fót með sams konar verkefni og Túti þær allar alrikis- stjórndeild eiturlyfjamálanna. Þegar kemur svo að hinni nú þegar talsvert viðtæku fræðslu um eiturlyf og dreifingu upplýs- inga um eiturlyfjamál, þá segir nefndin fræðslu þessa i meginatr- iðum vera byggða á rangfærslu staðreynda. Ýmis „fræðslupró- gröm” um eiturlyfjamálin eru nú i gangi i Bandarikjunum, og vill nefndin ekki mæla með neinu þeirra. Leggur hún til, að fleiri slik ný „prógröm” séu ekki samin og send út fyrr en búið sé að endurskoða öll efnisatriðin og færa þau til visindalega réttari vegar. Stjórnvöld i Bandarikjun- um hafa uppástungu þessa nú til alvarlegrar athugunar. Hvað einstökum vana- og fikni- efnum viðvikur, þá er álit nefndarinnar i stórum dráttum á þessa lund: 1. Alkóhól sem er mest notaða fiknilyfið, er i beinum tengslum við fremd glæpa og lögbrot i akstri og umferð. 2. Heróin er mjög varasamt og veldur mjög sterkum ávana. Fólk, sem ,,er mjög veilt fyrir” laðast gjarna að þvi... Kostnaður- inn, sem neyzla lyfs þessa veldur samfélaginu, er miklu meiri, en ætla mætti af fjöldá notendanna... og réttlætir það þvi mjög öflugar aðgerðir til varnar af hálfu sam- félagsins. En núgildandi viðhorf i þessum efnum hneigist til þess að draga úr kostnaðarsömum að- gerðum af þessu tagi, sem ætla má að árangur geti borið 3. Ofneyzla svefnlyfja er senni- lega til muna meiri, en fólk held- ur — einkum og sér i lagi meðal húsmæðra, sem „eru orönar leið- ar á lifinu”. Nefndin telur, að einna helzt megi likja hinu falda vandamáli svefnlyfjaofneyzlunn- ar við hið falda vandamál of- neyzlu ópiums á 19. öldinni. Legg- ur nefndin þvi eindregið til, að læknar fari sér varlegar hér eftir en hingað til við að ávisa á svefn- lyf. Þótt svo megi virðast af ýmsum tillögum nefndarinnar er hún alls ekki skipuð sérstaklega róttæku fólki — siður en svo. Formaður nefndarinnar — Raymond P. Shafer, var áður rikisstjóri fyrir Repúblikana i Pennsylvaniu og var hann „miðjumaður” i flokkn- um. Varaformaðurinn, dr. Dana L. Farnsworth, var mjög upp á móti eiturlyfjaneyzlu þegar hann var formaður i heiibrigðisgæzlu- nefnd stúdenta við Harvard-há- skóla. Framkvæmdastjóri nefndarinnar, Michael R. Sonnenreich, er fyrrum starfs- maður eiturlyfjadeildar lögregl- unnar. Meðalaldur nefndar- manna er 55 ár og eini svertinginn i nefndinni Mitchell Ware, er lög- reglumaður að atvinnu. m fyrir einu ári. Meðal rikjanna, si sem nú hyggjast breyta eitur- r. lyfjalöggjöf sinni til samræmis n, við hugmyndir nefndarinnar, ar sagði hann vera Texas, en það ði riki hefur verið eitt af refsinga- sömustu og ströngustu- rikjum )g Bandarlkjanna við alla lög- a- brjóta. „t Texas er það minni a, glæpur að gelda mann, en að á- gefa honum mariuána”, sagði lu Shafer og vitnað þar i skýrslu in innanrlkisráðuneytisins um refsiákvæði varöandi ólöglega sölu og neyzlu á marijuana. Nú sitja 14 einstaklingar I ævilöngu fangelsi i Texas vegna eitur- lyfjabrota — 13 þeirra voru að- eins fundnir sekir um eigin neyzlu. A alrikisgrundvelli hafa tveir öldungadeildarþingmenn, sem sæti eiga i eiturlyfjanefndinni, nú hafið baráttu fyrir þvi, að öldungadeildin breyti alrikis- lögunum til samræmis við breytingar á eiturlyfjalögum hinna einstöku rikja. „Jafnvel þingmenn eru nú ekki lengur hræddir við að láta hcyra i sér um slika hluti á opin- berum vettvangi”, sagði Shafer. Ein af ástæðum þess, að til- lögur nefndarinnar hafa svo skjótt náð fram að ganga sagöi Shafer vera þá, að fólk almennt hefði veriö nefndinni sammála — lika Nixon forseti. „Fyrst framan af hafði fólk löngu ákveðið sig og fékkst ekki til að ræða málið”, sagði Shafer. „A þessu varð mikil breyting s.l. ár. Þá heyrði ég aldrei nei- kvæða rödd.” „Þetta merkir ekki, að hver og einn sé sammála öllu þvi, sem við höfum sagt. En I fyrsta sinn er fólk að reyna að lita hlut- lægt á málið. Sú tilhneiging er til góðs”. em árs til er- kil- ns i nar ess svo ir i ,og til •na Nú isl- •fið itið kií ; er itla ess inn ður ndi iru, að inu n i ður að isn- Dan til íen að )rir ■tri það /na ;in- nú :n KOMIÐ OG KYNNIZT HINU FJOLBREYTTA ÚRVALI TOYOTA BIFREIÐA SÝNINGARBÍLAR Á STAÐNUM TOYOTA — UMBOÐIÐ HF. HÖFÐATÚN 2 • SÍMI 25111 Þriðjudagur 15. maí 1973

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.