Alþýðublaðið - 15.05.1973, Blaðsíða 9
Iþróttir 2
VERDUR ÁFRAM CEVNMRIAUSTURBÆNUM
ÞEIR
UNNU
Heykjavikurmeistarar Fram
1973. Efri röö frá vinstri: Sig-
uröur Friöriksson, formaöur
knattspyrnudeildar, Atli
Sveinsson, Þorbergur Atlason,
Jón Pétursson, Sigurbergur Sig-
steinsson, Ásgeir Eliasson,
Tóinas Kristjánsson, Gunnar
Guðmundsson og Guðmundur
Jónsson, þjálfari.
Fremri röð frá vinstri: Snorri
Hauksson, Erlendur Magnús-
son, Simon Kristjánsson,
Marteinn Geirsson, Agúst Guð-
mundsson, Ómar Arason, Egg-
ert Steingrimsson og Kjartan
Kjartansson.
Að neðan má sjá mynd frá
leiknum. Myndirnar tók
Smarsi.
FRAMARAR SAU TIL HSS til BIKARINN
Það er engum vafa undirorpið, að Framarar hafa fyllilega náð sér
upp úr þeim öldudai sem þeir hafa verið i frá upphafi keppnistima-
bilsfns. Þessi bati kom alveg á réttum tima. þannig að Frömurum
tókst að halda i Reykjavikurmeistaratitilinn sem þeir unnu i fyrra,
Það sem gerði útslagið var öruggur sigur yfir Vaismönnum á laugar-
daginn, 3:1.
Hávaðarok var á Melavellinum
á laugardaginn þegar liðin gengu
til leiks. Valsmenn léku undan
norðan strekkingnum i fyrri hálf-
leik, en þrátt fyrir það voru
Framarar fyrri til að skora og
það strax á 5. minútu. Guðgeir
Leifsson lék upp hægra megin, og
gaf hnitmiðaðan jarðarbolta fyrir
markið. Erlendur Magnússon lét
knöttinn fara fram hjá sér á kæn-
legan hátt, og Eggert Steingrims-
son hafði ekki mikið fyrir þvi að
senda knöttinn efst i markhornið,
enda vel staðsettur á markteigs-
horni.
Eftir þetta áfall strax i byrjun
voru Valsmennirnir lengi að ná
sér á strik, og var ekki laust við
að Framarar ættu heldur meira i
leiknum framanaf, þótt þeir
hefðu gegn golunni að sækja. Svo
kom að þvi að Valsmenn færu að
sækja, og hafði Þorbergur Atla-
son nóg að gera i markinu.
Hann bjargaði oft vel, en fékk
ekki við neitt ráðið er Valur jafn-
aði á 25. minútu. Boltinn þvældist
þá um i vitateig Fram, án
þess Framarar kæmu honum
burt. Þórir Jónsson náði að
skjóta, boltinn fór i varnarmann
Fram, breytti örlitið stefnu og
skoppaði i markið, án þess Þor-
bergur fengi vörnum við komið.
Við þetta mark hljóð kapp i Vals-
menn, og minútu seinna fékk
Hermannn Gunnarsson bezta
tækifæri leiksins. Hann komst inn
fyrir vörn Fram, og aðeins Þor-
bergur stóð i vegi fyrir markinu.
Skot Hermanns var fast og á-
kveðið, en sleikti stöngina utan-
verða.
Rétt eins og Valsmennirnir,
voru Framarar lengi að finna
taktinn undan golunni i siðari
hálfleik, og það voru Valsmenn
sem áttu fyrsta hættulega tæki-
færi hálfleiksins, en ekkert varð
úr. Brátt fóru Framarar að ná sér
á strik, og Sigurður Bragason
fékk nóg að gera.
Markið sem gerði út um leikinn
kom á 71. minútu. Eggert Stein-
grimsson tók hornspyrnu frá
hægri, og hitti nákvæmlega á höf-
uð Marteins Geirssonar sem kom
á fullri ferð inn i teiginn. Ekki
þurfti að spyrja að leikslokum,
knötturinn hafnaði með ógnarafli
i marki Vals. Og einni minútu
fyrir leikslok er Eggert enn á
feröinni með hornspyrnu, i þetta
skipti frá vinstri. Knötturinn
barst að stönginni fjær, þar stóð
Sigurbergur og skallaöi fyrir, og
Simon Kristjánsson stýrði knett-
inum i netið, og gulltryggði þar
með sigur Fram og tryggði sjál-
um sér markakóngstitil mótsins.
Framarar áttu sigurinn fylli-
lega skilinn i þessum leik, þeir
leku mun skipulegar en andstæð-
ingurinn. Þorbergur stóð sig
mjög vel i markinu, og i vörninni
var Jón Pétursson sem klettur i
miðvarðarstöðunni. Simon er at-
hyglisverður leikmaður, og þá
ekki siður Eggert Steingrimsson,
sem skoraði fyrsta markið, og
var maðurinn á bak við hin tvö.
Valsmenn hafa algjörlega
endurnýjað öftustu vörnina, og
virðist það ætla að gefa góða
raun. Athygli vakti Húsvikingur-
inn Gisli Haraldsson, sem lik nú
einn sinn fyrsta leik með Val.
Annars þurfa Valsmenn engu að
kviða, þegar þeir hafa endur-
heimt alla sina menn, og Her-
mann Gunnarsson verður komir n
i fulla þjálfun — ss.
Reykjavikurmótinu i knatt-
spyrnu lauk i gærkvöld. Siðasti
leikur mótsins var milli Þróttar
og Ármanns, og sigraði Þróttur
2:1.
Þessi tvö fyrstu og einu mörk
Þróttar skoraði Sverrir
Brynjólfsson i fyrri hálfleik, en
Bragi Jónsson skoraði mark Ar-
manns undir lokið.
Lokastaða Reykjavikurmótsins
varð þessi:
Fram
KR
Valur
Vikingur
IBV
Þróttur
Armann
—SS.
vitað) af velli. Við þessi ósköp
æstust bæði liðin upp, Vikingur til
aukinna dáða en IBV liðið hljóp
allt i rudda og skapvonzku sem
kom þvi i koll. Stefán Halldórsson
skoraði tvö mörk fyrir Viking og
Jóhannes Bárðarson bætti við i
3-1. Svo lagaðist skapið hjá Eyja-
mönnum og Leifur Leifsson gaf
voninni byr með góðu skalla-
marki. En timinn rann út á Eyja-
menn, og sigurinn var Vikings.
Leikurinn: Hálfleiðinlegur og
ekki sérlega vel leikinn en gefur
þó allavega t.vennt til kynna:
Stefán Halldórsson ætti að geta
orðið Vikingi góð stoð i marka-
skorun, og IBV er aftur byrjað að
skora mörk, enda ekki seinna
vænna. HJ.
Einu sinni er allt fyrst, einnig i knattspyrnunni. A sunnudaginn
tókst Vikingum ioksins að bera sigurorð af Vestmannaeyingum, cr
liðin mættust i Reykjavikurmótinu á Melaveilinum, fyrsti sigur Vik-
ings yfir ÍBV og þótti vist mörgum timi til kominn, enda hafa liöin
marga hildi háð i gegnum árin.
Sigur Vikings var i magrara
lagi, 3-2, og á siðustu 10 minútum
leiksins var liðið á brúninni með
að missa yfirburðastöðu, 3-1 niður
i jafntefli, en slikt hefðu verið ó-
sanngjarnt. IBV réði meiru um
gang leiksins i f.h. og tók forust-
una á 25. min. með marki Tómas-
ar Pálssonar (sá veit sko hvar
markið er). Ekki var langt liðið á
s.h. er til tiðinda dró. Bjarni
Gunnarsson braut gróflega á Ás-
geiri Sigurvinssyni sem svarið i
sama, hnefar á lofti og þung högg
féllu, en dómarinn rak báða (auð-
Lokastaða mótsins
ENN TðPUOU EYJAMENN
Þriöjudagur 15. maí 1973