Alþýðublaðið - 15.05.1973, Blaðsíða 11
William Terry
4
Hannie Caulder
Hávaðinn náði hámarki, meðan
hún stóð i gættinni og leit kringum
sig. Þarna var langt og beint bar-
borð, og á veggnum fyrir ofan það
brotnir speglar og mikill fjöldi
flaskna i hillum. Veitingastofan
var geysistór. Sex þjónar voru
fyrir innan borð og brynntu þeim
sem stóðu þar, og aðrir þjónar
með hvitar svuntur gengu um
KRILIÐ
flok/hm
_____+__________L— LU
5r/?/iu/n /T>U KÖ5T JPiKÐ eruiö &0RM BfU/N/ft SJM/ eft/R u £n7)
í
£bc,)P\ liLD/ni
RÚÐft CjLftV UR
VREG- //V L'/NA
FaRFA LE/T
\ ■ *
Tomu + 2E///S m m/NN /Ð PRíT) B//VD/
CrELT T/T/LL
SKERA \/?o/n-/ rumfí -j" 5
FÆW
f
/*
‘arbök P£M SföfKUH
beina i salnum. Hannie virtist
allir gestirnir i reykfylltum saln-
um undir áhrifum áfengis. Orlitil
dagsbirta lýsti upp salinn og
tröllaukinn kertastjaki hékk i
miðju sótsvörtu loftinu, illa úti-
leikinn eftir langa ferð og sundur-
skotinn af uppstökkum gestum.
Hannie skotraði dökkum
augunum um salinn og kom loks
auga á Thomas, en hann sat við
borð og spilaði póker við fjóra
menn. Gleraugun gerðu að verk-
um, að hann var næsta bliðlegur á
svip i samanburði við þá. Hannie
sá i fari þeirra þann hrottaskap,
sem hafði náð hámarki i Clemens
bræðrunum. Hún herti upp hug-
ann og gekk inn i salinn, og
vængjahurðirnar sveifluðust að
baki henni. Fáar konur voru
þarna inni, og er hún ruddi sér
leið á milli borðanna, fylgdu
menn henni með augunum, og úr
augnaráði hennar stafaði undrun,
þrá og ódulin girnd.
Drukkinn maður, sem hallaði
sér að barborðinu til stuðnings,
hafði hallað höfðinu aftur til að
sturta i sig viskisjúss. Hönd hans
staðnæmdist, þegar hann sá bak-
hluta Hannie sveiflast á milli
borðanna. Hann færði augnaráðið
upp eftir likama hennar. Herða-
sláin kipptist til og brjóst hennar
sást sem snöggvast. Hann flýtti
sér að ljúka úr glasinu, sneri sér
við og skellti glasinu á barborðið
og bað um annan drykk.
„Guð minn góður, sáuð þið
vaxtarlagið á þessum náunga?”
sagði hann furðu lostinn.
Enginn virti hann svars.
Thomas, sem einbeitti sér að
spilum sinum, fann einhverja
spennu i loftinu og leit upp. Hann
sá, hvar Hannie skáskaut sér á
milli borðanna á leið til hans.
Aðvörun var i augnaráði hans, er
augu þeirra mættust, og hann
yggldi sig. Hannie skeytti þvi
engu, en hélt sig frá borðinu, unz
spilinu var lokið. Þá gekk hún
ákveðnum skrefum að borðinu og
nam staðar við hlið hans.
,,Mér þykir fyrir þvi að trufla,”
sagði hún feimnislega. ,,Attu
aðrar buxur, sem þú gætir lánað
mér, Thomas? Þessar...”
Gjafarinn hafði verið að hlusta
á hana og horft kimileitur á
Thomas. En svipur hans ger-
breyttist, og rödd hans var
blönduð ótta og virðingu.
„Thomas Luther Price! Ég hef
verið að reyna að koma þér...”
Hann lauk aldrei setningunni.
Thomas ýtti harkalega við
Hannie, er gjafarinn nefndi nafn
hans, svo að hún kastaðist á
næsta borð. Borðið valt, og það,
sem á þvi var, flöskur, glös og
spil, kastaðist á gólfið. Hannie
lenti i miðri kösinni. Hjálpsamur
kúreki ætlaöi að aðstoða hana, og
hún varð að ýta honum frá sér. Er
hún féll við, sá hún, að einn spila-
mannanna reis upp og seildist til
byssu sinnar. En hlaup byssu
Thomasar nam þegar við borð-
brúnina. Hann skaut. Kúlan
markaði far eftir endilöngum
borðdúknum og hæföimanninn i
kviðarholið. Maðurinn missti
jafnvægið, og skot hljóp úr byssu
hans. Hann rak upp sársaukaóp.
þvi að skotið hæfði hann i fótinn.
Thomas batt endi á þjáningar
hans og skaut hann i hjartastað.
Er siðasti skothvellurinn var
hljóðnaður, sló þögn á viðstadda.
Ekkert heyrðist nema fótatak
Thomasar. Hannie reyndi að risa
á fætur án þess að opinbera
likama sinn um of. Thomas
beygði sig að likinu, greip i brjóst
Áskriftarsíminn er
86666
AUGLÝSING UM
INNKÖLLUN
25 KRÓNU PENINGASEÐLA
Samkvæmt reglugerð nr. 37 frá 2. febrúar 1973, sem sett
er með heimild í lögum nr. 22 frá 23. apríl 1968, hefur viðskiptaráðuneytið að tillögu
Seðlabanka íslands ákveðið innköllun allra 25 krónu peningaseðla.
Þessir peningaseðlar eru:
A
25 krónu seðill Landsbanka Islands, Seðla-
bankans, sem gefinn var út samkvæmt
heimild í lögum nr. 63 frá 21. júní 1957,
og settur í umferð hinn 7. maí 1960.
Lýsing aðaleinkenna seðilsins:
B
25 krónu seðill Seðlabanka islands, sem
gefinn var út samkvæmt heimild í lögum
nr. 10 frá 29. marz 1961, og settur í umferð
á árinu 1965.
Lýsing aðaleinkenna seðilsins:
25 aasEaEsatT: 25
jgK TU'míCUJjOfi l'l M M.
ii,,. CAoooooo
CAOOOOO?
STÆRÐ: 140x70 mm.
MYNDIR: Magnús Stephensen, lögmaður,
og ísafjörður (forhlið), Vest-
mannaeyjar (bakhlið).
AÐALLITUR: Fjólublár.
STÆRÐ: 140x70 mm.
MYNDIR: Magnús Stephensen, lögmaður,
og isafjörður (forhlið), Vest-
mannaeyjar (bakhlið).
AÐALLITUR: Fjólublár.
Frestur til að afhenda ofangreinda pen-
ingaseðla til innlausnar er 12 mánuðir frá
birtingu auglýsingar þessarar.
Allir bankar og sparisjóðir eru skyldugir
að taka við peningaseðlum þessum og
láta í staðinn peninga, sem ekki á að inn-
kalla, til loka frestsins, sem er hinn 14.
maí 1974.
Peningaseðlarnir, sem innkalla á, eru lög-
mætur gjaldmiðill í lögskiptum manna til
loka innköllunarfrestsins, en hætta að vera
það hinn 15. maí 1974.
Seðlabanka íslands er þó skylt að innleysa
ofangreinda peningaseðla eigi skemur en
í 12 mánuði eftir lok innköllunarfrestsins.
Reykjavík, 15. maí 1973.
SEÐLABANKI ÍSLANDS
Volkswageneigendur
Höfum fyrirliggjandi: Bretti — Hurðir —
Vélarlok — Geymslulok á Volkswagen i
allflestum litum. Skiptum á einum degi
með dagsfyrirvara fyrir ákveðið verð.
Reynið viðskiptin.
BUasprautun Garðars Sigmundssonar
Skipholti 25. Simar 19099 og 20988.
Tilboð óskast í
nokkrar fólksbifreiðar og Broncobifreið er
verða sýndar að Grensásvegi 9 þriðjudag-
inn 15. mai kl. 12—3. Tilboðin verða opnuð
i skrifstofu vorri kl. 5.
Sala Varnarliðseigna.
TILKYNNING
til söluskattsgreiðenda
Stöðvun atvinnurekstrar þeirra aðila, sem
skulda söluskatt fyrir mánuðina janúar,
febrúar og marz s.l., svo og nýálagðar
hækkanir á söluskatti eldri timabila, hefst
án frekari fyrirvara 21. þessa mán. hafi
skattinum þá eigi verið skilað ásamt
dráttarvöxtum.
Fjármálaráðuneytið
+
Skyndihjálparnámskeið
Námskeið i skyndihjálp verður haldið frá
og með 20. mai n.k. Kennsludagar verða 6,
tveir timar i senn á kvöldin. Kennslan er
ókeypis. Þátttaka tilkynnist i sima 26722
fyrir föstudagskvöld. Kennslustaðir verða
tveir, Breiðholtsskóli og Álftamýrarskóli.
Reykjavikurdeild Rauða kross íslands
Orðsending til bifreiðaeigenda
Vegna útgefinnar reglugerðar Dóms-
málaráðuneytisins frá 9. mai s.l. um
breytingu á tryggingartimabili ábyrgðar-
trygginga bifreiða úr 1. mai i 1. júni ár
hvert vill Hagtrygging h.f. benda við-
skiptavinum sinum á eftirfarandi:
Hagtrygging h.f. mun af hagkvæmnis-
ástæðum ekki senda út sérstaka inn-
heimtu vegna mánaðar iðgjalds fyrir
mai-mánuð, heldur innheimta það með
ábyrgðartryggingariðgjaldi timabilsins 1.
júni 1973 —31. mai 1974. Þeir bifreiðaeig-
endur sem óska eftir að greiða gjaldfallið
iðgjald fyrir mai-mánuð t.d. vegna bif-
reiðaskoðunar eru vinsamlegast beðnir að
hafa samband við aðalskrifstofu að Suður-
landsbraut 10 eða umboðsmenn okkar
utan Reykjavikur.
HAGTRYGGING H.F.
Suðurlandsbraut 10, Reykjavik,
simi 8-55-88
Þriðjudagur 15. maí 1973
o