Alþýðublaðið - 14.09.1973, Page 2

Alþýðublaðið - 14.09.1973, Page 2
álnavöru markaður BÚTARNIR ERU KOMNIR Átnavörumarkaðurinn er að Hverfisgötu 44. Opið i Hádeginu ■m /j/ <S) ik HVERFISGÖTU -M Músikleikfimi Hefst 17. sept. Styrkjandi æfingar og slökun, fyrir konur. Timar kl. 5,30 og 6,15 i húsi Jóns Þorsteins- sonar. Kennari: Gigja Ilermannsdóttir. Uppl. og innritun i sima 13022. Volkswageneigendur Höfum fyrirliggjandi: Bretti — Hurðir — Vélarlok — Geymslulok á Volkswagen i allflestum litum. Skiptum á einum degi með dagsfyrirvara fyrir ákveðið verð. Reynið viðskiptin. Kilasprautun Garðars Sigmundssonar ■Skipholti 25. Simar 19099 og 20988. Frá Samvinnu- skólanum Bifröst Nemendur Samvinnuskólans Bifröst veturinn 1973-1974 mæti i skólann miðvikudaginn 19. september. Norðurleið h/f tryggir ferð frá Umferða- miðstöðinni kl. 14 (kl. 2) þann dag. Skólinn verður settur árdegis fimmtu- daginn 20. september. Skólastjórinn. Framburöurinn hefur verið veika hliðin a dönskukennurunum — og nú er verið að bæta úr því í Norræna húsinu Satt best aö segja hefur fram- burðurinn verið veika hliðin hjá dönskukennurum og er þetta námskeið haldið til þess að bæta úr því, sagöi Guðmunda Hall- dórsdóttir formaður Félags dönskukennara við blaðamenn i Norræna húsinu á fimmtudaginn. Nú undanfarið hefur staðið yfir námskeið fyrir dönskukennara i Norræna húsinu og hefur þar ver- ið lögð áhersla á framburðar- og samtalsæfingar. En i kjallara Norræna hússins hefur verið komið upp mjög góðri aðstöðu til framburðarkennslu. Þar hefur verið innréttað herbergi fyrir 7 nemendur og hefur hver þeirra sinn bás, þar sem hann getur hlustað á ýmsar talæfingar af segulbandi óg borið saman við sinn eigin framburð. Kennarinn hefur síðan aðstöðu til að fylgjast með hvernig gengur hjá hverjum nema, án þess að neminn verði þess var. Kennarar á þessu námskeiði eru Peter Rasmussen lektor i dönsku við Háskóla islands og Gunnar Hofdal, sem einnig kenn- ir við háskólann. Maj-Britt Imnander forstöðu- kona hússins sagði, að þetta væri skemmtilegasta starfsemin, sem farið hefði fram siðan hún tók við stjórn hússins. Seinna i vetur verður haldið annað námskeið fyrir dönsku- kennara með sams konar sniði, en nokkrir urðu frá að hverfa nú sökum plássleysis. Norrænir blaðamenn kynna sér (sland — á ráðstefnu sem Norræna félagið heldur í samvinnu við Blaðamannafélag íslands Norræna félagið efnir til nor- ræns blaðamannanámskeiðs i samvinnu við Blaðamannafélag Islands, og ber það nafnið Is- land i dag. Námskeiðið verður i Norræna húsinu 18.-21. þm. Boðið hefur verið 40 norrænum blaðamönn- um til námskeiðs þessa og koma 10 frá hverju landanna Dan- mörku, Noregi og Sviþjóð, 6 frá Finnlandi, 2 frá Alandseyjum, 1 frá Færeyjum og 2 frá Græn- landi. Alls sóttu 93 norrænir blaðamenn um þátttöku. Helstu efni, er tekin verða til meðferðar eru: Fjárhagsmál Islands, Jón Sigurðsson hag- rannsóknarstjóri flytur erindi og svarar spurningum. Barátta mannsins við náttúruhamfarir. Þorbjörn Sigurgeirsson, prófessor flytur erindi og svarar spurningum. Islenzk dagblöð fyrr og nú. Erindi flytja Vilhjálmur Þ. Gislason fv. útvarpsstjóri og Jónas Kristjánsson ritstjóri, og taka einnig þátt i umræðum um dagblöð og hlutverk þeirra. Siðan koma fulltrúar islensku stjórnmálaflokkanna, skýra frá stefnuskrám flokka sinna og sitja fyrir svörum um flokkana og sjónarmið þeirra á málefn- um dagsins. Auk þess verða heimsóttar vinnustöðvar og stofnanir s.s. fiskverkunar- stöðvar i Hafnarfirði og Grinda- vik, ullariðnaður hjá Alafossi, Reykjalundur Hitaveitan og Keflavikurflugvöllur. Forsætis- ráðherra, menntamálaráðherra og iðnaðarráðherra taka á móti þátttakendum i skrifstofum sin- um og svara spurningum um það, sem efst er á baugi hjá rikisstjórninni i dag. Einn dag er ráðgerð ferð til Vestmanna- eyja. Námskeiðinu lýkur með kvöldverðarboði blaðafulltrúa rikisstjórnarinnar. Norræni menningarmála- sjóðurinn styrkti þetta nám- skeið með 30.000.- dkr. og var það fé notað til þess að greiða ferðakostnað þátttakenda. Allir fundir verða i Norræna húsinu, en þátttakendur búa á Hótel Esju. Undirbúning námskeiðsins annasr: fh. Norræna félagsins, Hjálmar Ólafsson, konrektor, formaður undirbúningsnefndar, Vilhjálmur Þ. Gislason fv. út- varpsstjóri og Jónas Eysteins- son, framkv. stjóri Norræna félagsins. Fyrir hönd Blaða- mannafélags Islands Bjarni Sigtryggsson, formaður félags- ins. Reyna að flytja fisk flugleiðis inn á markaðssvæði í Evrópu Flugfélagið Iscargo i Reykjavik, er þessa dagana að kanna til hlit- ar hvort ekki sé mögu- leiki á að fljúga með nýjan fisk beint á Evrópumarkað. Nokkr- ar þess háttar ferðir voru farnar árið 1971, en siðan lagðist þetta fisk- flug niður. Blaðið hafði tal af Lárusi Gunn- arssyni, eins eiganda Iscargo, og sagði hann, að einkum væri við tvö vandamál að glima, sem ver- ið væri að reyna að leysa nú. Annars vegar er að fá nægilega mikið af nýjum fiski á skömmum tlma, og hins vegar er að safna honum saman og útbúa hann fyrir ferðina, en til þess þarf aðstöðu. Þetta voru þau atriði sem urðu til að stöðva fiskflugið 1971, en vélin þarf að fá 15 tonn til að ferð- in beri sig, og helst þarf hlassið að koma I hana á sama stað. Tækist að leysa þessi vanda- mál, sagði Lárus, að mikil fram- tið væri i þessari fisksölu, enda sagði hann að nú fengist jafnmik- ið fyrir kilóið af nýjum fiski með haus og öllu, á Evrópumarkaðn- um, eins og fyrir kilóið af fullunn- um og frystum fiski á Banda- rikjamarkaði. Föstudagur 14. september 1973

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.