Alþýðublaðið - 26.09.1973, Síða 4

Alþýðublaðið - 26.09.1973, Síða 4
LOKAÐ vegna flutninga frá miðvikudegi 26. september. Við opnum aftur iaugardaginn 29. september í SUNDABORG Klettagörðum 5. Húsi HEILDAR II/F. Jafnframt breytist simanúmer okkar, og verður framvegis: 8 6 6 7 7 Ágúst Ármann h/f. Fræðslunámskeið fyrir verðandi foreldra hefst i Heilsuverndarstöð Reykjavikur miðvikudaginn 10. október. Á námskeiðinu verða 6 fræðslufundir og verða þeir á miðviku- dagskvöldum. Námskeiðinu fylgja einnig slökunaræfingar fyrir konur og verða þær á mánudögum, þrjú skipti alls. Mæðradeild heilsuverndarstöðvarinnar yeitir nánari upp- lýsingar og sér um innritun alla virka daga nema laugardaga kl. 16 — 17, i sima 22406. Námskeið þessi eru ókeypis og ætluð Reykvikingum og ibúum Seltjarnarness. Heilsuverndarstöð Reykjavikur. i Framtíðarstarf Stórt útflutningsfyrirtæki vill ráða ungan mann með samvinnuskólapróf eða hlið- stætt próf. Starfið er lifandi og fjölbreytt og gefur mikla framtiðarmöguleika fyrir áhuga- saman og duglegan mann. Tilboð sendist blaðinu fyrir 29/9 ’73 merkt , ,Framtiðarstarf ’ ’. Hafnfirðingar Litið inn og skoðið gólfteppin hjá okkur. Seglagerð Halldórs, Reykjavikurvegi 48, simi 53154. Alþýðublaðið vantar sendisveina fyrir og eftir hádegi. Durfa helst að hafa hjól. Upplýsingar á afgreiðslu blaðsins i sima 14900. alþýöu I n FTiTfil íþróttir 10 Meö þessu námskeiði veröur þvi bætt úr brýnni þörf, og er ekki að efa, að tækifærið er kær- komið, bæði fyrir íþróttakenn- ara almennt, og ekki siður fyrir þjálfara i hinum ýmsu greinum iþrótta, liðsstjóra og aðra, sem áhugasamir eru á þessu sviði. — Á námskeiðinu verður kennsla bæði verkleg og bókleg. Þar verður sýnikennsla, þar sem sýnd verða hjálpargögn, og kennd verður meöferð þeirra. Annars verður efni nám- skeiðsins aðallega þetta: Algengustu meiðsli i iþróttum, einkenni þeirra, skyndimeðferð — eftirmeðferð, undirbúningur fyrir keppni, notkun hjálpartækja, nudd, stutt þjálfunarfræði. Námskeiðið hefst i Reykjavik siðdegis á föstudag, þvi verður haldið áfram fyrir hádegi á laugardag og lýkur siðdegis þann dag. Á sunnudag verður námskeið á Akureyri. Kennsla fer yfirleitt fram á norsku, en Jón Asgeirsson verður til aðstoðar, og þýðir fyrir Svein Nilsson. Tilgangurinn með námskeið- inu er að gefa ábyrgðaraðilum iþróttahreyfingarinnar tækifæri til þess aðaflasér grundvallar- þekkingar i sambandi við iþróttaslys, svo þeir viti ná- kvæmlega hvernig þeir eiga að bregðast við, ef slys ber að höndum, og þeir viti þá hvað þeir eiga að gera, oghvað þeir eiga ekki að gera. Það er augljóst, að nauðsyn- legt er fyrir iþróttakennara, þjálfara, liðsstjóra, leiðbein- éndur og aðra þá, sem hafa bein afskipti af iþróttafólki á æfing- um, og i keppni, að þeir kunni að búa iþróttafölkið undir keppni, viti hvernig þeir geta dregið úr tiðni slysa, geti tekið tillit til meiðsla við gerð æfingatöflu, og séu reiðubúnir að gefa góð ráð. Það er ekki aðeins nauðsyn- legt fyrir þá sjálfa, heldur lika, og ekki siður fyrir iþróttafólkið. Þvi betri aðhlynningu, sem þaö fær, ef það verður fyrir óhöpp- um, þvi fyrr getur það náð full- um bata, og haldið áfram æfing- um og keppni. Auglýsingasíminn okkar er 8-66-60 Kaupfélögsstjóri Starf kaupfélagsstjóra við Kaupfélag Fáskrúðsfirðinga er laust til umsóknar. Umsóknir ásamt nauðsynlegum upplýs- ingum um menntun og fyrri störf, sendist Gunnari Grimssyni starfsmannastjóra Sambandsins, eða formanni félagsins Guðlaugi Sigurðssyni Fáskrúðsfirði, fyrir 6. október n.k. Stjórn Kaupfélags Fáskrúðsfirðinga. Lífeyrissjóður Austurlands Stjórn Lifeyrissjóðs Austurlands hefur ákveðið að veita sjóðsfélögum lán úr sjóðnum i október og nóvember n.k. Umsóknareyðublöð fást hjá formönnum aðildarfélaga sjóðsins og á skrifstofu sjóðsins að Egilsbraut 11 i Neskaupstað. Nauðsynlegt er. að umsóknareyðublöðin séu fullkomlega fyllt út og að umbeðin gögn fylgi. Umsóknir um lán skulu hafa borist til skrifstofu sjóðsins fyrir 15. október n.k. Stjórn Lifeyrissjóðs Austurlands. Verkakvennafélagið Framsókn heldur félagsfund fimmtudaginn 27. september i Alþýðuhúsinu við Hverfis- götu, kl. 20,30 s.d. Fundarefni: I. Félagsmál II. Kjaramál III. önnur mál. Félagskonur fjölmennið og mætið stund- vislega og sýnið skirteini við innganginn. Stjórnin. o Miðvikudagur 26. september 1973

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.