Alþýðublaðið - 17.10.1973, Síða 10
Laus staða
deildarstjóra við Norrænu menningar-
málaskrifstofuna i Kaupmannahöfn.
Staða deildarstjóra deildar þeirrar, er fer með almenn
menningarmál I Norrænu menningarmálaskrifstofunni
(Sekreteriatet for Nordisk Kulturelt Samarbejde) í Kaup-
mannahöfn er laus til umsóknar. Staöan verður veitt frá
I. janúar 1974 að telja.
Norræna menningarmálaskrifstofan starfar samkvæmt
samningi Noröurlandarikja um samstarf á sviði fræðslu-,
vísinda- og annarra menningarmáia, en samningur þessi
tók gildi 1. janúar 1972. -•
Deilarstjórinn verður ráöinn af Ráðherranefnd Norður-
landa, og verður meginhlutverk hans að annast, undir
yfirstjórn framkvæmdastjóra, skipulagningu og stjórn
starfa skrifstofunnar á þvl sviði, er undir deildina fellur.
Gert er ráö fyrir, að starfinu verði aö öðru jöfnu ráð-
stafaö með ráðningarsamningi til 2-4 ára i senn. Gerður
verður sérstakur samningur um launakjör og skipan
eftirlauna.
Umsóknir, ritaður á dönsku, norsku eða sænsku, með
upplýsingum um aldur, menntun og fyrri störf, skulu
stllaðar til Nordisk Ministerrád og sendar til
Sekreteriatet for Nordisk Kulturelt Samarbejde,
Snaregade 10, 1205 Köbenhavn K. Skulu umsóknir hafa
borist þangað eigi siör en 15. nóvember n.k. Nánari upp-
lýsingar um starfið má fá hjá framkvæmdastjóra Nor-
rænu menningarmálaskrifstofunnar, Magnús Kull (simi
(01) 114711, Kaupmannahöfn), eða Birgi Thorlacius,
ráöuneytisstjóra menntamálaráðuneytisins, Hverfisgötu
6, Reykjavik.
Vakin er athygli á, að framangreindur umsóknarfrestur
er ekki bindandi fyrir þann aöila, er ráðstafar starfinu,
þar sem samkomulag er um það — með hliðsjón af mis-
munandi tilhögun i Norðurlandarikjunum á ráðstöfun
opinberra starfa — að i stöðuna megi einnig ráða án form-
legrar umsóknar.
II. október 1973.
Karla og konur
vantar til vetrarstarfá i sveitum — svo og
unglinga.
Upplýsingar gefur Ráðningarskrifstofa
landbúnaðarins, simi 19-200.
jaZZBQLLetdSkÓLÍ BQPU
Dömur ath.:
Nokkrir morgun- og dag-
tímar lausir í líkamsrækt
og megrun. Líkamsrækt
og megrunaræf ingar
fyrir dömur á öllum
aldri.
Sauna-þjálfunartæki.
Uppl. í síma 83730.
JCIZZBaLLOttSkÓLÍ BÓPU
Skrifstofustarf
Verðlagsskrifstofan óskar að ráða
starfsmann, karl eða konu, til þess að ann-
ast endurskoðun verðútreikninga.
Laun samkvæmt 15. launaflokki starfs-
manna rikisins.
Verðlagsstjórinn
Styðjum landsliðið
Landsliðsmerki
Nefndin hefir látið útbúa
merki, „styrktarmerki lands-
liðs H.S.I.”, sem munu verða
seld um allt land, og er verð
merkjanna kr. 200,00. Sala þess-
ara merkja hefst á landsleikn-
um á sunnudaginn, og munu þau
verða seld á öllum landsleikj-
um, sem hér fara fram fram að
áramótum, en einnig verða þau
væntanlega til sölu i öllum
sportvöruverslunum I Reykja-
vík, og eins og áður er sagt, sem
vlðast um landið. Það er von
okkar, að sem flestir kaupi
þetta merki og beri, og leggi þar
með framrétta hönd til styrktar
landsliðsmönnum okkar og
handknattleiknum almennt. A
merkjum þessum stendur
.„H.S.I., H.M. ’73”, en það verð-
ur merki undankeppninnar, en
komist íslendingar áfram, en
við það miðast allar áætlanir
fjáröflunarnefndarinnar, mun
verða gefið út nýtt merki eftir
áramótin, sem á stendur
„H.S.I., H.M. ’74”.
Fyrirtæki
heita stuðningi
Nefndin mun annast útgáfu
leikskrár fyrir þá leiki í undan-
keppninni, sem haldnir verða
hér á landi, og hefir i þvi tilefni
leitað eða mun á næstu dögum
leita til ýmissa fyrirtækja um
styrktarlinur, en nú eins og svo
oft áður virðist, sem ýms fyrir-
tæki og stofnanir bregðist sér-
staklega vel við óskum okkar.
Er sú reyndin, að sum fyrir-tæki
hafa heitið stórum fjárfúlgum
til styrktar þessari starfsemi.
Sú móttaka, sem við höfum
fengið hjá hinum ýmsu fyrir-
tækjum, sýnir ljóslega hversu
gifurlegum vinsældum hand-
knattleikur á að fagna hjá
landsmönnum og að það eru
ýmsir aðilar, sem vilja leggja
mikið af mörkum til þess að
gera handknattleiksmönnum
unnt að sýna góðan árangur i
keppni við erlendar þjóðir á
komandi árum, eins og áður.
Nefndin hefir ýmsar aðrar
áætlanir um fjáröflun á prjón-
unum, en mun að sinni einbeita
sér aö þeim leiðum, sem hér
hafa verið skýrðar, og er það
reyndar von nefndarinnar, að
svo vel takist til, að þessar fjár-
öflunarleiöir nægi, a.m.k. vilj-
um við biða átekta og sjá úrslit
forkeppninnar. Það þarf vart að
taka fram, að verði einhver af-
gangur, rennur hann af sjálf-
sögöu til áframhaldandi styrkt-
ar til landsliðsmanna, t.d. varð-
andi undirbúning undir keppni á
næstu Ólympiuleikum.
Stjórn H.S.I. tók þvi það ráð
að stofna til nýrrar nefndar,
sem hefir það verksvið að afla
tekna til greiðslu á vinnutapi
leikmanna, svo og að sjá um
leyfi fyrir leikmenn, og reyndar
i sumum tilfellum fararstjóra.
Nefnd þessa skipa þeir Birgir
Lúðviksson, Karl Benediktsson,
Olafur Thordersen og Sigurður
Jónsson. Það varð að sam-
komulagi milli nefndarinnar og
stjórnar H.S.I., að nefndin
starfaði algerlega sjálfstætt,
hún færi sinar eigin leiðir við
fjáröflun, án afskipta stjórnar-
innar, en nefndarmenn aftur á
móti ábyrgðust greiðslur á
vinnutapi vegna allra utanferða
fram yfir heimsmeistara-
keppni, samkvæmt þeim regl
um, sem stjórn H.S.l. hefir sett.
Aætlað er, að til þess að
standa straum af þessum
kostnaði, þurfi um það bil eina
milljón króna. Það þarf væntan-
lega ekki að taka það fram, að
nefndarmenn allir eru miklír
bjartsýnismenn.
Nú á næstu vikum og mánuð-
um munum við leita til almenn-
ings og fyrirtækja um aðstoð.
Við höfum þá bjargföstu trú, að
það sé mjög mikill fjöldi fólks,
sem hefir á þvi mikinn áhuga,
aö Islendingar geti áfram sent
út lið i einhverri grein Iþrótta,
lið sem sé þess umborið að
standa sig I keppni við þá bestu
og skipa sér I fremstu raðir. A
þvi er enginn vafi, að hand-
knattleiksmenn eru nú þeir
einu, sem til þess hafa nokkra
möguleika.
Þrátt fyrir góðan ásetning og
vilja okkar nefndarmanna er
okkur fullkomlega ljóst, að við
stöndum algerlega vanmáttugir
gagnvart þessu verkefni okkar,
ef ekki kemur nú til hjálpar
ykkar blaðamanna, ykkar sem
eruö tengiliöir milli iþróttanna
og fólksins. Við erum að visu
þess fullvissir, að þið komið
handknattleiksmönnum okkar
til hjálpar nú eins og endranær,
enda hafið þið meö áhuga ykkar
og skrifum um handknattleik
átt hvað mestan þátt i að gera
hann svo vinsælan, sem raun
ber vitni um.
Eins og áöur segir göngum við
aö þessu verkefni okkar með
mikilli bjartsýni, viö höfum trú
á þvi að bæði fyrirtæki og
almenningur syni velvilja og
áhuga, enda er ekki nokkur vafi
aö þvi, að ódýrasta og besta
fjárfesting vegna unglinga-
starfs og heilsuræktar, er
framlag til iþrótta.
Seinni hluti
Ávarp fjáröflunarnefndar
vegna landsliðssöfnunar
V ' ' W
tR-ingar I sókn gegn Vfkingi um daginn. í kvöid mæta íR-ingar KR i leik um 3. sætiö.
Leikið um 3. og 7. sæti
í kvöld eru fyrri úr-
slitaleikir Reykja-
vikurmótsins i hand-
knattleik. Þá verður
leikið um 3. og 7. sæti,
og hefst leikkvöldið
klukkan 20 i Laugar-
dalshöll.
Fyrri leikurinn verður milli
neðstu liðanna i hvorum riðli,
Fylkis og Armanns. Armenn-
ingar eru ekki alltof öruggir um
sigur I leiknum, þvi Fylkir er i
mikilli framför. Hver man ekki
leik liðanna i fyrra, þegar Fylk-
ir náði jafntefli?
1R og KR leika um 3. sætið i
mótinu strax á eftir. ÍR-ingar
hafa oft átt i brösum með KR,
og þvi eru úrslit þessa leiks afar
tvisýn.
Um 1. og 5. sætið verður leikið
eftir hálfan mánuð, 31. október.
Leika þá Valur og Fram, Vik-
ingur og Þróttur.
0
Miðvikudagur 17. október 1973