Alþýðublaðið - 17.10.1973, Qupperneq 12
Norðanáttin ætlar að
vera þrálát, og er búist
við, að hún verði áfram i
dag, og með vaxandi
frosti. I gær var að vísu
austlæg átt vestanlands,
og fylgdi henni mildara
veður, en búist er við að
lægð sú, sem henni olli,
eyðist, og hann snúist i
norðaustanátt í dag.
Viða var þriggja til
fjögurra stiga frost á
láglendi fyrir norðan i
gær, en mesti hiti á Vest-
urlandi var fimm stig á
Reykjanesi. Mesta frost
á hálendi var8—9 stig. I
Reykjavík var þriggja
stiga hiti í gær kl. 18.
KRÍLIÐ
V/nN UR | GLRIR HUNbU' SK/P ■ £ND /NCr
l
fíuÐ n KENNft TAuTaR' | STóR V.
r h'of/
WCjlflft.
£NT>■ 'fíTT
FÆOSK mvuji 9-sr Ite
1
L'/T* Sftmm.
fív/Tlfí 3ftft EFL/
MJOLL
ms/ \
l/OKKUt 5/ ‘Jl/Í, 1'JL 2*Z F/NS
l
INNLÁNSVIÐSKIPTILEIÐ
LÁNSVIÐSKIPTA
BUNAÐARBANKÍ
ÍSLANDS
KÓPAVOGS APÚTEK
Opiö öll kvöld til kl. 7
Laugardaga til kl. 2
Sunnudaga milli kl. 1 og 3
4*
^UPPBOÐI
Guðmundur Ágústsson
með silfurlampann
Fyrsta, annað og þriðja.
Og Guömundur hlaut silfur-
lampann, fyrstur kaupmanna
Tuttugu þúsund, kallaði
Guðmundur Ágústsson, kaup-
maður við Bústaðaveg, sem sat
einhvers staðar aftast i norðan-
verðum Súlnasalnum. Tuttugu
og fimm sagði einhver sunnan-
vert i salnum og Guðmundur
hækkaði þá þegar hátt og skýrt i
30 þúsund. Nokkurt hlé, og enn
áræddi einhver að hækka i 35, og
Guðmundur hækkaði þá þegar i
36.
Einhver nefndi 37, Guðmund-
ur 38, einhver 39, Guðmundur
40, einhver 41, Guðmundur
strax 43. Fyrsta annað og ...
fyrsta annað og þriðja, sagði
Hilmar Foss uppboðshaldari.
bar með hlaut Guðmundur
silfurlampann, fyrstur allra
kaupmanna.
47 hlutir voru á uppboðs-
skránni, og þrátt fyrir að marg
ir þeirra væru hinir eigulegustu
var greinilegt, að eftirvænting-
in, var mest um afdrif silfur
lampans.
Lampinn, sem gerður er af
Leifi Kalddal og hinn 19. i röð-
inni , er metinn á um 20 þúsund
krónur samkvæmt kostnaði.
Guðmundur, sem mættur var
. til leiks með syni sinum
Kristjáni, taldi sig þó hafa gert
hina bestu fjárfestingu, og
sagðist myndu hafa boðið mun
hærra, ef nauðsynlegt hefði
reynst. Ekki vildi hann þó nefna
neitt hámark.
,,Ég átti engan silfurlampa
fyrir”, sagði Guömundur. ,,Og
svo er þetta hinn fallegasti grip-
ur. Ég er hæstánægður með
þessi viðskipti”.
Fyrir klukkan fimm, var
strax orðið margt um manninn
við Sögu, en uppboð Sigurðar
Benediktssonar h/f hófst á slag-
inu fimm. Skömmu slðar var
salurinn orðinn yfirfullur af
fólki.
Mörg málverk voru á boðstólum
og buðu yfirleitt margir i hvert.
1 dýrari myndir hækkuðu boð-
in um allt að fimm þúsundum i
einu, og vart þótti viðeigandi að
hækka boð i þau um þúsund
krónur, hvað þá 500 krónur, sem
viröist vera smámynt á svona
samkomum.
Dýrasta málverkið, sem sleg-
ið hafði verið, þegar við fórum
var eftir Finn Jónsson, og fór á
80 þús. krónur, en stórviðburðir
eins og „Þorskastriðið” fóru
ekki nema á 27 þúsund.
Eftir að lampinn hafði veriö
sleginn, hægði heldur á boðum,
og virtist aðal spenningurinn lið
inn og margir fóru að týnast út.
Þó heyrðist einn kalla 40 þúsund
i eina mynd þegar við vorum á
leið niður stigann.—
fimm á förnum vegi
Þórir Einarsson dósent:
Já, nokkuð, aðallega til
gamans. Þettaeru félagslegir
viðburðir, sem eru þess virði,
að fylgjast með.
Torfi Bjarnarson fyrrv. iæknir.
Nei, ég hef einu sinni eða
tvisvar farið á uppboð áður, cg
mér finnst ég vera orðinn of
gamall til þess að taka þátt I
spennu leiksins.
Sigurður A. Magnússon rit-
stjóri.
Nei, þetta er i fyrsta sinn, og
ég hefði boðið i eitthvað hefði ég
átt peninga, og þá ekki sist i
lampann, ef mér hefði ofboðið of
lág boð i hann.
Kristinn Magnússon prentari:
Já oft, einkum til að fylgjast
með vaxandi verðmætum lista-
verka, sem eru á undan verð-
bólgunni. Þeir meistarar sem
heilla mig, eru allir frægir á
sinu sviði.
Sveinn Þormóðsson ljósm.
Já, alltaf þegar ég er sendur
til að taka myndir. Og hef mjög
gaman af, enda er skemmtilegt
fólk, sem sækir þessi uppboð.
Ég býð aldrei, enda hefði ég
ekki efni á þvi, þótt mig
langaði.-