Alþýðublaðið - 07.11.1973, Side 2
ÞANNIt HÆRÐ Þll
STJÖRN Á LÍKAMANUM
Flest okkar eyða árunum i aö
bera likamsþunga miklu meiri,
en við þurfum. Við hlöðum
hjólakörfur m atvöruversl-
ananna með vörum án þess að
hugleiða, að við eigum eftir að
bera þær allar utan á okkur,
jafnvel þótt viö notum ekki fæt-
urna nema til þess að komast i
bílinn og úr. Mæður þurfa að
beygja sig eftir börnum sinum
hundrað sinnum á dag. Við
skálmum um og leggjum allt of
mikið á okkur og liks, þegar
hvildarstund gefst, þá erum við
oft of þreytt til þess aö njóta
hennar..
Þess vegna væri okkur hollt að
hugsa um likamsæfingarnar —
og nú er einmitt rétti timinn til
þeirra hluta.
Til eru m.a. tvö likams-
ræktarkerfi, sem leggja áherslu
á réttar likamshreyfingar:
A1 e xa n de r -a ð f er ð i n og
Mensendieck æfingarnar. Það
er rétt að geta þess, að bæði
þessi likamsræktarkerfi eru
búin til af fólki, sem ekki er
læknismenntað, en hugleiddi
likamsæfingarnar, sem við
gerum og sá hvar við gerum
rangt.
Formælendur beggja kerf-
anna staðhæfa, að æfingar sam-
kvæmt þeim haldi likamanum
ungum og stæltum og báðir eru
formælendurnir — Vida
Menzies, sem kennir Alex-
anders-aðferðina og Joanna
Lewis, sem kennir Mensendieck
— lifandi auglýsingar fyrir stað-
hæfingar sinar, en báðar kon-
urnar eru unglegar, grannar og
stæltar þótt komnar séu þær á
miðjan aldur.
Ekkert eitt kerfi er alls staðar
best. Hver og einn þarf að leita
uppi þaö likamsræktarkerfi,
sem best hentar honum. Sumir
vilja helst æfingar sem þeir geta
hlaupið i með hamagangi
miklum i kaffi- eða matar-
hléum. Aðrir vilja vakna
klukkan sex, fara i laugina eða
hlaupa um i garðinum. Báðir
hafa talsvert til sins máls.
Bæði kerfin — Alexander og
Mensendieck — fela i sér, að
sérhver likamshreyfing er
athuguð og endurbætt.
Alexanders-aöferðin var
fundin upp af Astraliumanni,
Matthiasi Alexander, sem
viöhafði hana til þess að endur-
reisa heilsu sina. Meðal nem-
enda hans voru þeir Bernard
Shaw og Aldous Huxley.
t»renn liðamót
Samkvæmt þessu kerfi er
áhuganum beint að þremur
mikilvægustu liðamótum
Hkamans: ökklum, hnjám og
mjöðmum. t>að stefnir að þvi,
segir Vida Menzies, sem nú
kennir Alexanders-aðferðina i
Lundúnum. ,,að ná likamlegu
jafnvægi. 1 rauninni felur
aðferðin það i sér.aðviökomandi
verður að læra upp á nýtt sér-
hverja likamshreyfingu og að
nota vel hver liðamót þannig að
llltima
FYRIR
HEIAAILIÐ:
Gluggatjöld
Gólfteppi
Húsgagnaáklæði
Veljið íslenzka gæðavöru
KJÖRGARÐI
Hafnarfjarðar Apótek
Opið öll kvöld til kl. 7
Laugardaga til kl. 2
Helgidaga kl. 2 til 4.
PAI!
S4LGAntOEKO
Sklpholt 29 — Sími 244fi6 I
likaminn sestööugt vel smurður
eins og góð bifreið á að vera.”
,,Likamsstelling fólks er tals-
vert undir þvi komin, hvort við-
komandi er opinskár eða inni-
lokaður”, segir Vida Menzies.
,,Einmanalegt fólk hverfur inn i
sjálft sig, það hleypir sér
saman og hengslast áfram og
gefur þannig til kynna með
Hkamsstöðunni, að það hafi ekki
áhuga á öðrum.”
t Englandi eru u.þ.b. 500
kennarar, sem kenna Alex-
ander-aðferöina. Miðstöö hreyf
ingarinnar er Society of
Teachers of the Alexander
Technique, 3 Albert Court,
Kensington Gore, London, S.W.
7, England og þangað skalt þú
skrifa ef þú hefur áhuga á að
vita meira um likamsræktar-
kerfi þetta — en bók um það
hefur nýlega verið gefin út af
Gollan'z-forlaginu i Englandi og
nefnist hún ,,Ten Alexander
Principles”.
Mensendieck var fyrst mynd-
höggvari, en henni rann til rifja
slæleg likamsbygging og
Hkamsstaða fyrirmyndanna.
Hún lærði liffærafræði og lauk
doktorsprófi. Likamsræktarað-
ferðir þær, sem hún fann upp,
hafa verið auknar og endur-
bættar með árunum og i Noregi
eru til skrifstofur og verk-
smiðjur, þar sem starfsfólkinu
er gefið stutt fri frá störfum
hvern dag til þess að iðka
Mensendieck-kerfið.
1 Englandi er það frú Joanna
Lewis, sem ásamt tveim nem-
endum sinum er nú að kynna
þetta kerfi fyrir landsmönnum.
Frú Lewis lenti á sinum tima i
umferðarslysi, sem skaddaði
hrygg hennar, og læknar ráð-
lögðu henni að búa sig undir lif
sem öryrki. bvi neitaði frúin og
hóf þess i stað likamsrækt eftir
fyrirmælum Mensendieck, og
nú er hún sem sagt aðalkennari
þessa kerfis i Lundunum —
heilsugóð, stælt og grönn eins og
ung stúlka.
Leiðbeiningar
Bókin hennar Bess Mensend-
ieck, ,,Look better, Feel
better”, sem út var gefin i Eng-
landi árið 1955 og er nú uppseld,
veitir okkur leiðbeiningar um,
hvort við notum alla vöðva
okkar og öll liðamót rétt, þegar
við hreyfum okkur. Þegar þú
t.d. lýtur höfði og reisir það,
notar þú þá hina réttu vöðva
aftan á hálsinum, sem til þess
eru ætlaðir að framkvæma þá
hreyfingu? Ef þú gerir þaö ekki,
þá færðu annað hvort undirhöku
eða mjög sveran háls, vegna
þess, að þá notar þú ranga
vöðva, sem aflaga háls þinn
með tfð og tíma. Þegar þú lyftir
handleggnum notarðu þá vöðv-
ana alveg úti á axlarendanum?
Ef þú gerir það ekki, þá
verðurðu siginaxla með timan-
um.
Þegar þú lýtur áfram, spenn-
irðu þá hina löngu kviövöðva. Ef
þú gerir það ekki, þá færðu
Istru.
Þegar þú situr, læturðu
þungann þá hvila á réttum staö
á sitjandanum? Ef þú gerir það
ekki, þá færðu bakþrautir.
Hefurðu sver læri? Ef svo er,
þá notarðu lærvöðvana senni-
lega of mikið — miklu meira, en
þú þarft.
Þegar þú stendur eða gengur,
hvar læturðu likamsþungann þá
hvila? Ef hann hvilir einhvers
staðar annars staðar en á tá-
berginu, nærri stórutánni, þá
verður likami þinn skakkur.
Bess Mensendieck stingur
upp á auðveldri æfingu til þess
að læra góða setstellingu, sem
ræður miklu um lögun og heilsu
Hkamans.
,,Við athugun á likamanum
kemur i ljós, að hann hefur
verið útbúinn með ,,set-
beinum”. Þessi set-bein eru
hinir sveigðu hryggir beinanna
hvorum megin við neöri jaðar
beinbogans, sem kölluð er
mjaðmagrind. Þessir tveir
sveigðu hryggir hafa áþekku
hlutverki að gegna og skiðin á
ruggustól. Bolurinn getur
ruggað fram og aftur á þessum
hryggjum og einnig er hægt að
láta hann staðnæmast á ákveðn-
um punkti og halda þar kyrru
fyrir — alveg eins og með
ruggustól.
Finndu setbein þín svona:
Sittu frammi á brún armlauss
og óbólstraðs stóls, t.d. eldhús-
kolls úr tré.
Hafðu fætur saman og iljar á
gólfi.
Haltu bakinu beinu.
Renndu vinstri hendinni,
lófinn upp, undir rasskinnina
vinstra megin, þ.e.a.s. milli
rasskinnarinnar og stólsins.
Settu hægri höndina á sama stað
hinum megin.
Hreyfðu fingurna uns þú
finnur beinhryggi þrýsta á þá.
Þessir beinhryggir eru set-
beinin.”
Sérhvert likamsræktarkerfi
vinnur með sinum hætti að þvi
að leysa spennu úr likanum og
þjálfa hann. Margar bækur eru
til um hin ólikustu kerfi, sem
hægt er að stunda þau eftir, en
ekkert er þó betra en að leita til
kennara i likamsþjálfun um
aðstoð og hjálp. Þeir hafa lært
hvernig best má nema hvert
kerfi fyrir sig og hvernig það
getur helst orðið að gagni.
Notaðu þér þekkingu þeirra.
MENSENDIECK (að ofan): Þessi æfing
styrkir bakið. Notaðu 2-3 púða, sem hver er
3-4 þumlungar á þykkt. Liggðu á grúfu meö
púðana undir mjöömunum og Hkamsbolinn
á gólfinu. Hvfldu enniö á höndunum. Þá á
mjaðmir þinar og mitti að bera hæst.
Spenntu nú vöðvana i sitjandanum. Haltu
þeim stifum og lyftu fótunum upp eins hátt
og þú getur — og haltu áfram að lyfta þeim
eilitið betur fjórum sinnum i röð. Siakaðu
svo á og hvildu þig. Endurtaktu æfinguna
þrisvar. llægt er að gera þessa æfingu meö
fætur sundur.
ALEXANDER (að neðan): Þessi æfing
losar þig við baksveigju, hvílir aumt bak og
losar um spennu. Notaðu bók, ca. 3/4 úr
þumlungi þykka, sem höfuðpúða. Sestu
siðan flötum beinum á gólfið. Hallaðu þér
hægt aftur á bak með beinan hrygginn, uns
höfuð þitt hvílir á bókinni. Gættu þess vel að
liggja bein. Leggðu hendur saman yfir
maganum. Beygðu hnén, en hafðu hæla i
gólfi. Hreyfðu mjaðmirnar svolítið upp á
við svo neðri hluti hryggjarins liggi við
gólfið. Haltu þessari stöðu i 20 min.
BLOMAHUSIÐ
simi 83070
Skipholti 37
Opið tu kl. 21.30.
Einnig laugardaga
og sunnudaga.
ÞAÐ B0RGAR SIG
AÐ VERZLA í KR0N
Söluumboð:
J. Þorláksson & Norðmann h.f.
O
Miðvikudagur 7. nóvember 1973.