Alþýðublaðið - 24.01.1974, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 24.01.1974, Blaðsíða 1
GRINDAVIKURHOFN: VANDRÆÐI VEGNA HAFNARFRAMKVÆMDA Grindavíkurhöfn er að verða vandræðastaður vegna framkvæmda Vita- og hanfarmálastjórnar. Hefur ósinn inn i höfnina verið breikkaður og gengur sjór nú svo inn i höfnina, að ókyrrð er svo mikil, að til vandræða horfir. Er þetta sérstak- lega áberandi i sunnan og suð-vestan átt. Telja sjó- menn þetta til hinnar mestu óþurftar. Frá Grindavik róa á vertiðinni allt að 60 bátar. Þegar er vitað um 20 báta, sem róa þaðan á loðnu. Einn þeirra er Grindvikingur, sem þeg- ar hefur fengið um 1100 tonn af loðnu. Hart barist um þjónustu- o pláss í Breiö- holtsmjóddinni Gthlutun lóðar undir stórverslun og alhliða þjónustumiðstöð i „Mjóddinni” i Breiðholti I, hefur áður verið all- mikið rædd. Hafa ýmsir aðilar i viðskiptalifinu sótt fast að borgaryfir- völdum um að fá þessa aðstöðu. Kaupmanna- samtökin hafa farið þess á leit, að ákvörðun um byggingu þarna yrði sleg- ið á frest. Vitað er, að ekki eru allir á einu máli um þá meðferð málsins. Á fundi borgarráðs á þriðjudag lagði Björgvin Guðmundsson fram til- lögu um, að ieitað yrði álits Neytendasamtak- anna og Húsmæðrafélags Reykjavikur um málið, og var sú tillaga sam- þykkt einróma. ÞANNIG VAR EYJAFÉNU VARIÐ ► ► ► 3 Fimmtudagur 24. jan. 1Í74 55 ^ Það vantaði vélakostinn og svo vissi enginn launþegafjöldann „Orlofiö verður komið í lag fvrir sumarfrí 11 BliR FEKK EKKISVAR „Forsiðufrétt ykkar i Al- þýðublaðinu var nokkuð hvassyrt”, sagði Þorgeir Þorgeirsson, forstöðumað- ur Póstgiróstofunnar, er blaðið átti tal við hann i gær en hann kvaðst ekki geta neitað þvi, að margir örðugleikar hefðu komið upp. Fyrirsögn fréttarinnar var: „Orlofið er i tómri vit- leysu”, en i henni var sagt frá þvi, að kvörtunum og fyrirspurnum rigndi yfir verkalýðsfélög viðsvegar tt um land, vegna ófullnægj- andi framkvæmdar á ný- skipun á meðferð orlofs- mála, innheimtu orlofs og skilagrein til orlofsþega. Þorgeir sagði að „við nokkra erfiðleika hefði ver- ið við að etja „i byrjun þeirrar starfsemi, sem kom i hlut nóstgiróstofunn- ar að annast. Meðcíi annars sagði Þor- Borgarráð hafði i gær að engu kröfur BÚR um svör við þvi, hvort Bæjarútgerðin fái að byggja nýtt frystihús i Bakkaskemmu á Grandagarði og hvort útgerðin fái lóð á upp- fyllingu vestan Granda- garða. Málinu var að visu hreyft, en um það urðu engar umræður og fengust þvi engin svör hjá borgarráði um það, hvort það vill áfram togaraútgerð á vegum borgarinnar eða ekki, en úr þvi telur útgerðar- ráð REykjavikur skjót svör ein geta skorið. geir, að vegna ófullkom- inna upplýsinga um fjölda launagreiðenda og orlofs- þega, hefði ekki verið unnt að áætla þá með neinni ná- kvæmni. Enda hefði reynslan þegar sýnt, að or- lofsþegar væru milli 40 og 50 þúsund i stað rúmlega 30 þúsunda, sem áætlað var. Þá sagði Þorgeir, að vélakostur girókerfisins sem var notaður til undir- búningsvinnu fyrir skýrsluvélar rikisins hefði verið ónógur, og lengri bið orðið á nýjum, fullkomnum vélum, en ráð var fyrirgert. Hins vegar væru þessar vélar nú komnar til landsins og yrðu þær settar upp næstu daga og teknar i notkun. Með þvi skapaðist nauðsynleg samræming i hraða undirbúningsvinnu póstgiróþjónustunnar og annars vegar og skýrslu- véla rikisins og Reykja- vikurborgar hins vegar sem hefðu veitt mjög góða þjónustu frá byrjun. Þorgeir sagði að lokum, að skil launagreiðenda á orlofsfé væru yfirleitt eins og reglur mæla fyrir um, og að framkvæmd hinnar nýju tilhögunar orlofsmála hefði i stórum dráttum reynst vel, þegar frá væru taldir þeir örðugleikar, sem þegar er getið. MANN í HVERGI VIÐBOT SMEYKIR — Tilgangurinn með þessu sameiginfega framboði er að gera jafnaðarmenn að sterk- asta aflinu á vinstri vængnum i islenskri borgarpólitik og það hvort sem ihaldið held- ur sinum meirihluta eða ekki, sagði Björgvin Guðmundsson. Um niðurröðun á list- ann vildi Björgvin ekki ræða, sagði skoðana- könnum eða framboð meðal flokksbundinna Alþ.fl. manna i Reykja- vik ráða þvi „að veru- legu eða öllu leyti”. Um sameiginlegt framboð allra minni- hlutaflokkanna sagði Björgvin: — Þessari hugmynd var hreyft i haust en það kom strax i ljós, að enginn flokk- anna hafði áhuga á henni. — Við Sjálfstæðis- menn i borgarstjórn höfum ekki meiri áhyggjur af sameigin- legu framboði krata og hannibalista til borgar- stjórnar i vor en svo, að við höfum ekki einu sinni rætt það mál i al- vöru, sagði Birgir Is- leifur Gunnarsson — Það virðist enn bera það mikið á milli, sagði borgarstjóri, — að þótt flokkarnir geti komið sér saman um einhverskonar mál- efnasamning, þá er ekki allur vandinn leystur. Þaö þekkjum við frá málefnasamningi rikis- stjórnarinnar. Þá þykir mér einnig saga á bak viö þá staðreynd, að all- ir minnihlutaflokkarnir reyndu árangurslaust að bjóða fram i Reykja- vik i vor. Stúdíóin spretta upp Eftir helgina tekur til starfa annað hljóðstúdió- ið, sem rekið er af einka- aðilum hérlendis'. Er þar á ferðinni Hjörtur Blöndal, 23 ára gamall reykviskur hljóðfæraleik- ari, og er hann þessa dag- ana að ljúka við innrétt- ingar á húsnæði i Braut- arholti 20, þar sem heild- verslun Alberts Guðmundssonar var áð- ur. Fyrsta upptaka verð- ur gerð með hljómsveit- inni Hafrót, og gefur hljómsveitin plötuna út á eigin kostnað. Verði svo af fyrirhug- uðum stúdióum Pálma Stefánssonar á Akureyri. og Svavars Gests i Reykjavik, þá verða með vorinu starfandi ekki færi en fjögur stúdió i einkaeign hérlendis. Al- þýðublaðið skýrði frá gangi þessara mála á for- siðu s.l. þriðjudag. Stúdió Hjartar (fyrir- tækið verður siðar meir kallað Il.B.-hljómplötur) Hjörtur er með tvö stereo-segulbandstæki af gerðinni Teac, 6 rása Yamaha-hljóðblandara (mixer), Teac-magnara og einnig svokallað ,, Dolby-system" af sömu gerð. 1 gegnum Dolby- kerfiðer upptökum rennt, þegar þær eru fullgerðar Hjörtur hyggst endurnýja tækjakost sinn sem fyrst, fá sér bæði fullkomnari mixerog segulbandstæki. ► lljörtur við hljóð blend- inn

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.