Alþýðublaðið - 24.01.1974, Síða 5
útgefandi: Alþýðublaðsútgáfan hf. Ritstjóri og ábyrgðarmaður, Freysteinn
Jóhannsson. Stjórnmálaritstjóri, Sighvatur Björgvinsson. Fréttastjóri, Sigtryggur
Sigtryggsson. Aðsetur ritstjórnar, Skipholti 19, simi: 86666. Afgreiðsla: Hverfis-
götu 8-10, sími: 14900. Auglýsingar, Hverfisgötu 8-10, sími 86660. Blaðaprent hf.
Ábyrgar varnarmálatillögur
Alþýðubandalagið túlkar
ákvæði málefnasamnings rikis-
stjórnarinnar um varnarmálin
þannig, að þar sé þvi lofað, að
allt varnarlið verði látið
hverfa brott af landinu
á yfirstandandi kjörtlma-
bili. Um þessa túlkun Al-
þýðubandalagsins er á-
greiningur i stjórnarherbúð-
unum. Auk þess hafa bæði
forsætisráðherra og utanrikis-
ráðherra heitið þvi, að málið
verði lagt fyrir Alþingi til
endanlegrar afgreiðslu og nú
þegar hafa það margir þing-
menn úr hópi stjórnar-
stuðningsmanna lýst sig and-
viga kröfu Alþýðubandalagsins
um brottvisun varnarliðsins og
varnarlaust land að fyrirfram
er vitað, að þótt rikisstjórnin
legði fram tillögu á Alþingi um
uppsögn varnarsamningsins,
eins og kommúnistar vilja að
gcrt verði, þá yrði hún ekki
samþykkt.
Af þessu má auðsætt vera, að
hugmyndir kommúnista um
varnarlaust land ná ekki fram
að ganga. Fyrir þeim er hvorki
meirihluti á Alþingi eða meðal
þjóðarinnar svo þær eru ekki
raunhæfar lengur — hafi þær þá
einhverntima verið það, sem er
i meira lagi vafasamt.
Spurningin er þvi sú hvað
annað sé til ráða i sambandi við
þær athuganir á varnarmál-
unum, sem verið er nú að fjalla
um. Þar koma aðeins tvær
meginleiðir til greina. önnur er
sú að hafa allt með óbreyttum
hætti — þ.e.a.s. sama fyrir-
komulag á vörnum landsins og
verið hefur. Hin er sú, sem þing-
menn Alþýðuflokksins hafa bent
á, að taka varnarsamninginn
við Bandarikin til endur-
skoðunar með það fyrir augum
að takmarka frekar en nú á sér
stað veru raunverulegs erlends
herliðs ilandinu m.a. með þeim
hætti, að íslendingar taki að sér
ýmis störf á Keflavikurflug-
velli, sem ekki þarf hernaðar-
þjálfun til þess að sinna.
Ilugmynd Alþýðuflokksmanna
er sú, að þessi breyting á fyrir-
komulagi varnanna verði látin
gerast i áföngum þar sem fyrsti
áfanginn verði t.d. sá, að
islendingar taki að sér borgara-
lega yfirstjórn á vallarsvæðinu.
Næsti áfangi gæti hugsanlega
verið sá, að islendingar tækju
við björgunarflugi þvi, . sem
rekið er af Varnarliðinu sem nú
standa sakir. Þriðji áfanginn
gæti verið sá, að íslendingar
tækju við ratsjárstöðvum og að
einhverju leyti við eftirlitsflugi
þvi, sem rekið er með
óvopnuðum eftirlitsflugvélum.
Markmið Alþýðuflokksins með
tillögunum er sem sé það, að
leitast verði við með
samningum við bandarisk
stjórnvöld að ekki verði meira
um erlenda hermenn á tslandi,
en brýn nauðsyn beri til, án þess
þó að sú fyrirkomulagsbreyting
skerði á nokkurn hátt þátttöku
þjóðarinnar i varnarsamstarfi
vestrænna rikja ellcgar stefni i
hættu öryggi islands, eins og
segir i tillögu, sem þingflokkur
Alþýðuflokksins samþykkti þar
sem hann lýsir yfir stuðningi við
þá stefnu, sem felst i skjali þvi,
er samtökin „Varið land” beita
sér fyrir söfnun undirskrifta á.
Tillögur þingflokks Alþýðu-
flokksins i varnarmálunum eru
þvi ekki tillögur, sem stefna að
þvi að veikja varnir tslands
ellegar skerða þátttöku landsins
i varnarsamstarfi vestrænna
þjóða. Tillögurnar eru þvert á
móti ábyrgar tillögur um nýtt
fyrirkomulag á varnar-
málunum, sem i senn fullnægja
óskum mikils meginþorra
íslendinga um að varnir lands-
ins séu tryggðar i samstarfi við
NATO-rikin og óskum lands-
manna um, að ekki sé meira um
erlenda hermenn i landinu, en
brýnustu nauðsyn ber til.
JAFNAÐARMENN FORYSTUAFLIÐ
Á VINSTRI
VÆNGNUM!
Eins og Alþýðublaðið hefur
skýrt frá hafa Fulltrúaráð Al-
þýðuflokksins i Reykjavik og SFV
I Reykjavik samþykkt hvort i sinu
lagi að efna til kosningabanda-
lags i næstu borgarstjórnar-
kosningum i Reykjavik. Sam-
þykktirnar voru gerðar sam-
hljóða fyrst á félagsfundi SFV og
slðar hjá Fulltrúaráði Alþýðu-
flokksins i Reykjavik þar sem
hafðar voru um málið tvær um-
ræður, en það rætt i stjórnum
flokksfélaga Alþýðuflokksins i
borginni i millitíðinni.
Siðdegis i fyrradag boðuðu svo
Alþýðuflokkurinn i Reykjavik og
SFV i Reykjavik til blaðamanna-
fundar, þar sem mættir voru
borgarfulltrúarnir Björgvin Guð-
mundsson (A) og Steinunn Finn-
bogadóttir (SFV), auk formanna
beggja flokkanna, Gylfa Þ. Gisla-
sonar og Hannibals Valdimars
sonar og framkvæmdastjóra
SFV, Halldórs S. Magnússonar.
1 upphafi fundarins greindi
Björgvin Guðmundsson frá þvi,
að kosningabandalag SFV og Al-
þýðuflokksins hefði nú endanlega
verið ákvarðað i báðum flokkun-
um og sagði frá með hvaða hætti
þær ákvarðanir hefðu verið teknar
Einnig greíndi Björgvin frá að-
draganda málsins, en upphaf
þess var samþykkt, sem gerð var
á kjördæmisþingi Alþýðuflokks-
ins I Reykjavik siðsumars, en þar
var samþykkt einróma að fela
stjórn fulltrúaráðsins að leita eft-
ir viðræðum við SVF I Reykjavik
um, hvort grundvöllur væri fyrir
sameiginlegu framboði þessara
tveggja flokka við komandi
borgarstjórnarkosningar.
Stjórn fulltrúaráðsins ritaði
stjórn SFV bréf, þar sem þessari
ósk var komið á framfæri, og fékk
stjórnin jákvætt svar frá SFV.
Strax á eítir hófust svo viðræðu
fundir milli stjórnar fulltrúaráðs-
ins og viðræðunefndar frá SFV og
var lokafundurinn haldinn 30.
desember s.l.
— Fljótlega kom i ljós, að eng-
inn ágreiningur var um málefni,
sagði Björgvin Guðmundsson,
og einnig náðist samkomulag um
skipan hins væntanlega fram-
boðslista þannig, að Alþýðu-
flokkurinn fengi allar oddatölur
hans en SFV allar jafnar tölur
hans.
Þetta samkomulag var svo
samþykkt af beggja hálfu og
lögðu þau Steinunn og Björgvin
Guðmundsson áherslu á, að sú
samþykkt hefði verið gerð ein-
róma hjá báðum aðilum.
Hvers vegna
kosningabandalag?
Þá greindi Björgvin Guð-
mundsson einnig frá ástæðum
þess, að af samþykktinni um
kosningabandalag hefði orðið.
— I fyrsta lagi, sagði hann, þá
standa nú yfir viðræður um sam-
einingu beggja þessara flokka á
landsmælikvarða. Flokksþing
flokkanna beggja hafa ákveðið að
stefna að slikri sameiningu og er
nú unnið að henni.
Enda þótt endanleg ákvörðun i
þvi máli liggi ekki enn fyrir þá er
það i fullu samræmi við þessar
sameiningartilraunir sem
Reykjavikurdeildir flokkanna
taka nú höndum saman i
kosningabandalagi án þess þó að
með þvi sé verið að afgreiða sam-
einingarmálið sjálft. Það mál er
enn i deiglunni og athugunum á
þvi verður haldið áfram i sam-
ræmi við yfirlýsta stefnu beggja
flokkanna.
I öðru lagi viljum við benda á,
að með sameiginlegu framboði
þessara tveggja flokka, sem báð-
ir kenna sig við lýðræðisjafnaðar-
stefnu, er gerð mikilvæg tilraun
til þess, að jafnaðarmenn verði i
næstu borgarstjórnarkosningum
forystuaflið á vinstri væng stjórn-
málanna i borgarmálum. Saman
fengu listar þessara tveggja
flokka 7.800 atkvæði i siðustu
borgarstjórnarkosningum og
hefði það atkvæðafylgi nægt til
þess, að sameiginlegur listi
þeirra hlyti 3 borgarfulltrúa
kjörna og yrði þannig forystuaðili
á vinstri vængnum.
Við teljum það skipta miklu
máli hvað aðili er i forystu fyrir
vinstri mönnum i borgarstjórn
hvort heldur Sjálfstæðisflokkur-
inn heldur meirihluta sinum eða
ekki. Það er skylda okkar, sem
teljum okkur vera jafnaðarmenn,
að reyna að tryggja það, að
jafnaðarstefnan sé það forystuafl
á vinstri vængnum og þá skyldu
okkar erum við að reyna að upp-
fylla með þvi að taka nú höndum
saman i komandi kosningum.
— Milli okkar er ekki
ágreiningur um málefni, sagði
Steinunn Finnb'ogadóttír. Milii
okkar hefur einmg teKist sam-
komulag um skipan sameiginlegs
framboðslista. Það er þvi eðlilegt
að sá kostur hafi nú verið valinn,
að flokkarnir gangi hlið við hlið tií
næstu kosninga hér i Reykjavik.
Báðir flokkarnir hafa ályktað um
nauðsyn þess að sameina
jafnaðarmenn á íslandi undir eitt
merki. Þá skyldu okkar erum við
nú að reyna að uppfylla.
Engin fyrirmæli ,,að
ofan”
Þá voru formenn flokkanna,
sem viðstaddir voru blaða-
mannafundinn, spurðir að þvi,
hvort það væri með vilja þeirra
og samþykki flokksstjórnanna,
sem af þessu kosningabandalagi
yrði.
Gylfi Þ. Gislason sagði það
vera með sinum fulla vilja og
stuðningi, sem til þessa kosninga-
bandalags væri stofnað. Taldi
hann það vera eðlilegan lið i þró-
un sameiningarmálsins, sem
fyrst kjördæmisþing og siðar
fundur i Fulltrúaráði Alþýðu-
flokksins i Reykjavik hefðu tekið
ákvörðun um.
— Um sameiningarmálið sjálft
er það hins vegar að segja, sagði
Gylfi Þ. Gislason, að i þessu
kosningabandalagi felst ekki af-
greiðsla á þvi. Það má er þannig
vaxið að eðlilegt er, þar sem ann-
ar flokkurinn er i stjórn en hinn
utan stjórnar, að endanleg
ákvörðun i þvi máli verði ekki
tekin fyrr en boðaðar hafa verið
kosningar til Alþingis hvenær svo
sem að þvi kann að koma. Þá
mun hvað Alþýðuflokkinn varðar
verða boðað til sérstaks flokks-
þings — reglulegs þings eða auka-
þings — til þess að afgreiða sam-
einingarmálið, sem er að sjálf-
sögðu um sameiningu flokkanna
á landsvisu.
Hannibal Valdimarsson lýsti
sig mjög ánægðan með það sam-
komulag um kosningabandalag,
sem tkist hefði i Reykjavik.
— Ég tel, að það samkomulag
sé byggt á eðlilegum sanngirnis-
reglum og vona ég að það mark-
mið náist, sem að er stefnt — að
listi jafnaðarmanna hljóti mest
fylgi framboðslista vinstri fiokk-
anna i borginni.
— Ég vil einnig taka það fram,
að kosningabandalag þetta er
ekki ákvarðað af stjórnum flokk-
anna heldur er það gert að vilja
flokksfélaganna i Reykjavík.
Þannig munu framboðsmálin við
komandi sveitarstjórnarkosning-
ar verða ráðin af flokksmönnun-
um i hverju sveitarfélagi fyrir sig
án afskipta flokksstjórna. Æski-
legt er auðvitað að þessir tveir
aðilar nái saman á sem flestum
stöðum, en þar ráða að sjálfsögðu
aðstæður á hverjum stað og vilji
flokksfólksins sjálfs.
Félagsmálastefnan á
oddinn
Þá voru borgarfulltrúarnir
spurðir að þvi, hvaða mál yrðu
liklega aðalbaráttumál fram-
bjóðandanna á hinum sameigin
lega lista jafnaðarmanna i kom-
andi borgarstjórnarkosningum.
Svöruðu þau þvi til, að málin,
;em fyrst og fremst myndu höfð á
oddinum, myndu vera i fyrsta
lagi félagslegar umbætur hvers
konar, þ.á m. aðgerðir i hús-
næðismálum, bætt aðbúð
aldraðra og langlegusjúklinga og
úrbætur i málefnum aldraðs,
sjúks fólks, sem hvergi ætti höfði
sinu að að halia. í öðru lagi væru
það atvinnumálin og þá sérstak-
lega efling félagslega rekinna
fyrirtækja eins og Bæjarútgerðar
Reykjavikur og i þriðja lagi bar-
átta fyrir auknu borgaralýðræði
— þ.á.m. fyrir atvinnulýðræði i
borgarrekstrinum.
Þá kom einnig fram hjá
borgarfulltrúunum, að á þvi kjör-
timabili borgarstjórnar Reykja-
vikur, sem nú er senn á enda,
hefði tekist ágætt samstarf milli
allra minnihlutaflokkanna i
borgarstjórn og viðræður stæðu
nú yfir á milli þeirra um sam-
stöðu i komandi kosningum — s.s.
eins og varðandi sameininlega
málefnaskrá til þess að leggja
fram i kosningabaráttunni og
starfa samkvæmt að kosningum
ioknum.
Sextugur er i dag Krist-
mundur Bjarnason, Eyrar-
götu 6, tsafirði.
Kristmundur hefur jafnan
verið dyggur fylgismaður
jafnaðarstefnunnar og
traustur liðsmaður Alþýðu-
flokksins. Hann mun i dag
dveljast á heimili dóttur
sinnar I Reykjavik.
Alþýðublaðið sendir Krist-
mundi og fjölskyldu hans
sinar einlægu árnaðaróskir
FLOKKSSTARFIÐ
Hafnfirðingar
BÆJARMÁLIN
Alþýðuflokksfélag Hafnarfjarðar boðar
tilfundar i dag fimmtudaginn24. janúar
kl. 20,30 i Alþýðuhúsinu.
Fundarefni:
Hörður Zóphaniasson, bæjarfulltrúi,
ræðir fjárhagsáætlunina.
Stjórnin.
Fimmtudagur 24. janúar 1974.
o