Alþýðublaðið - 22.02.1974, Page 6
w
■v.íU:.
•í<S
vrt't
S1
iji-;,*.
í?,lv
ÍÉ
Pf
Wi
i'.v;?
'AÍÍ
gi|
f
ífe/
l!ví:
•;o:*s
?:ív;5
HVAÐ
MUN
ARH)
OSS?
Hrútsmerkið.
Frá kl. 1.07 hinn Zl mars til kl.
12.20 hinn 20. april.
Þau ykkar, sem fædd eruð i fyrsta
þriðjungi merkisins, munuð af og
til taka eftir vissri stöðnun, sem
angrar athafnasaman hrút i
hæsta máta, einkum þar sem allir
þeir, sem fæddir eru i þessu
merki, munu verða fyrir miklu
meiri uppörvun en nokkru sinni
fyrr. Nyjar hugmyndir koma
fram og langanir til nýrra
athafna þrýsta á og krefjast þess,
að tekið verði til óspilltra
málanna.
Þeim, sem fæddir eru i fyrsta
þriðjungi merkisins, verður hik-
laust að ráða það, að þegar þeir
verða varir við fyrstu hömlurnar,
taki þeir saman föggur sinar og
biði þar til þeir skynja, að létt
hefur á nýjan leik. Þar er sem sé
um að ræða afstöðu Satúrnusar til
sólarinnar i byrjun merkisins og
það verður ætið að forðast það, að
láta hana hafa hemjandi áhrif,
þar sem þau eru mjög viötæk og
langæ vegna þess að Satíirnus er
hnöttur, sem hreyfist hægt.
Hömlurnar koma i ljós á þann
veg, að ekkert nær sér á strik með
réttum hætti: samningar eru
sviknir og peningar, sem búist
var við á ákveðnum tima, koma
siðar, sem aftur getur valdið
verulegum óþægindum.
Siðasti þriðjungur merkisins er
á þvi spennulausa sviði, sem
kemur frá Satúrnusi. Þegar hér
er komið á hver og einn auðvelt
með að koma lifi sinu vel fyrir.
Nautsmerkið.
Frá 20. april kl. 12.20 til 21. mai kl.
11.37 eftir hádegi.
Þeir, sem fæddir eru i Nauts-
merkinu, geta verið ánægðir með
það, að i hönd fer mjög stöðugt ár,
einkum þeim til handa, sem
fæddir eru i fyrsta þriðjungi
merkisins. Hin mildari áhrif frá
bæði Satúrnusi og Júpiter færir
þeim hamingju, sem endast mun
langa hrið. Þetta snerlir einkum
samningsgerð, söngmenntun og
raunar einnig aðra menntun,
samstarf við ungt fólk eða
systkini viðkomandi og þvium-
likt. t sambandi við allt þetta
munuð þér veita athygli hinum
mildu og öruggu áhrifum auk
hamingjunnar, sem áður er
minnst á.
t byrjun ársins hefur Venus
einnig góð áhrif á merkið og þvi
kynni að vera möguleiki á löngu
og öruggu ástarsambandi.
Þeir, sem eru i Nautsmerkinu,
þurfa á þvi ári, sem i hönd fer, að
gæta sin á þvi, að hinn mikli stöð-
ugleiki fái ekki alltof mikil áhrif á
lif þeirra. Ef þeir, sem fæddir
eru i Nautsmerkinu, nola i
staðinn alla sina meðfæddu
diplómatisku hæfileika til
þess, að undirbúa vel framtið
sina, munu þeir verða mjög ham-
ingjusamirog komast langt á þvi
ári, sem nú er hafið. Þeir munu
verða heppnir með kaup á jarð-
næði og húsum, sem þeir ráðast i.
Skynsamlegt getur verið að leita
gæfunnar i happdrætti.
Þegar á allt er litið, mun hið
nýja ár verða jákvaitt þeim, sem
fæddir eru i Nautsmerkinu.
.'rt*. i.-r*
M
Hinar persónulegu stjörnuspár lesendunum til handa fyrir árið 1974 virðast vera þrungnar meiri spennu en nokkru sinni fyrr.
Hér getur hver og einn fundið sitt eigið stjörnumerki og gengið úr skugga um hvað stjörnuspámaðurinn hefur séð honum
til handa á árinu 1974.
Tviburamerkið.
Frá 21. mai kl. 11.37 til 21. júni kl.
7.38.
Rétt eins og hin stjörnumerkin,
Vatnsberinn og Vogarmerkið, lof-
ar Tviburamerkið einnig góðu um
árið, sem nú fer i hönd. Kemur nú
æ betur i ljós hin hagstæða geisl-
un frá Júpiter i Vatnsberanum.
Þar að auki nýtur siðasti þriðj-
ungur merkisins einnig mildandi
áhrifa frá Úranusi i Vogarmerk-
inu. Upp af þvi mun spretta mikill
fjöldi nýrra og næstum byltingar-
kenndra hugmynda, sem þér
munið hafa hug á að koma i fram-
kvæmd. Áhrif Úaranusar á hið
sibreytilega og órólega Tvibura-
merki munu verða að nokkru
leyti óstöðug, nú eins og siðustu
árin, þannig, að fram kemur þörf
til mikilla breytinga, hvort heldur
á vinnustöðum eða i atvinnulif-
inu. Þar sem allt mun þó fara vel
á endanum, er þessi hneigð ekki
hættuleg tilhneiging á þessu ári,
svo fremi, að þér notið heilbrigða
skynsemi yðar á raunsæjan hátt.
Sannast sagna eru neikvæð áhrif
Neptúnusar miklu hættulegri.
Aftur á móti geta þeir, sem
fæddir eru i fyrsta þriðjungi
merkisins, notið góðs af þeim inn-
blæstri, sem einnig Neptúnus get-
ur veitt, til þess að fá arð af fé
sinu, rétt eins og þeir, sem njóta
heillavænlegra áhrif frá
fæðingarstjörnuspánni, geta haft
með sér mikla heppni i spilum.al-
mennt séð.
Krabbinn.
k'rá 21. júni 7.38 til 23. júlikl. 6.31.
Þeir, sem fæddir eru i byrjun
krabbamerkisins, munu nú
merkja áhrifin frá nærveru
Satúrnusar i stjörnumerki sinu.
Þar sem þessi stjarna fer á u.þ.b.
tveim og hálfu ári i gegn um hvert
stjörnumerki, verður maður að
búa sig undir komu hennar með
nokkurra ára fyrirvara og áhrif
hennar á lif manns um tveggja og
hálfs árs skeið, það gerir maður
best með hægri en öruggri festu i
lifi sinu eða mikilli andspyrnu
gegn neikvæðum áhrifum. Allir
þeir, sem fæddir eru i fyrsta og
öðrum þriðjungi merkisins, munu
veita Satúrnusi athygii i ár. Jafn-
vel við mjög mildar kringum-
stæður mun hann hafa tilhneig-
ingu til þes að gefa öllum hlutum
miklu meiri alvörusvip. Hver og
einn mun beita sér i rikari mæli
að starfi sinu en áður, menn hafa
ákveðinn vilja til vissra hluta og
hægt en örugglega vinna menn
sig áixam og leitast við að tryggja
sem best heimili sinu og fyrir-
tæki. t margbreytilegum kring-
umstæöum mun Satúrnus hafa
áhrif til þunglyndis og áhyggna.
Sé manni ljóst, að hér er aðeins
um breytingaskeið að ræða, er að
sönnu auðveldara að sigrast
á þvi, heldur en ef maður áliti, að
þennig.muni það verða áfram. En
það er sem sagt ekki um það að
ræða. En vist getur það orðið
erfiður timi meðan hann stendur.
Þér þurfið sem sagt að tak« yður
saman i andlitinu. Þegar Satúrn-
us i Krabbamerkinu er i fullri
andstöðu við sitt drottinmerki
(Steingeitin) minnka nokkuð
áhrif hans.
Ljónið.
Frá 23. júli kl. 6.11 til 23. ágúst kl.
1.30.
Ljónið er vant að gera það, sem
það vill, en á hinu nýja ári hljóta
þeir sem fæddir eru i þessu
merki að hugsa sig um oftar en
einu sinni, áður en þeir gera það,
sem þeir vilja. Júpiter er i mikilli
andstöðu við merkið, einkum
þegar sólin kemur i Vatnsbera-,
Nauts- og Höggormsmerkið. Þeg-
ar liða tekur á árið hlýtur sérhver
Ljónsmaður að ganga mjög var-
lega til verks, þvi að ella gæti illa
farið. Erfiðleikar i hjónabands-
málum gætu hæglega komið fyr-
ir.
Sérstaklega jákvæð áhrif stafa
frá Neptúnusi i Bogamerkinu
fyrsta þriðjung merkisins. Getur
það leitt til mikillar hamingju og
góðs árangurs, ef þér farið skyn-
samlega að. Mars verður i Ljóns-
merkinu frá lokum júnimánaðar
til byrjunar júlimánáðar og mun
hafa i för með sér aukna þörf tii
viðskipta, en þá ber að leggja
áherslu á, að ihuga sérhverja að-
gerð mjög nákvæmlega.
Siðasti þriðjungur Ljónsmerks-
ins mun i byrjun ársins verða
undir mildandi áhrifum frá
Satúrnusi og allt árið undir mild-
andi áhrifum frá Úranusi. Þessi
tvenn mildandi áhrif munu draga
nokkuð úr andstöðu Júpiters og
Ljónsmenn ættu—undir hinum
hvetjandi áhrifum Úranusar
ásamt hinum staðföstu jákvæðu
áhrifum Satúrnusar að hafa við-
skipti um hönd, svo að þeir geti
með góðum hagnaði búið sig 1
undir framtiðina.
Jómfrúarmerkiö.
23. ágúst kl. 1,30 til 23. september
kl. 10,59.
Fyrsti og annar þriðjungur Jóm-
frúarmerkisins býr i ár við beina
andstöðu Júpiters i merki sinu.
Áður hefur verið fyrir hendi and-
staða frá Satúrnusi og þvi er hægt
að hugga yður með, að andstaðan
frá Júpiter er ekki jafn áhrifa-
mikil og andspyrna frá Satúrnusi.
Engu að siður gæti viðkvæm jóm-
frú talið það vera sér mikið
áhyggjuefni. Engu aðsiður er það
svo, að frá Satúrnusi koma nú
mildandi áhrif, sem I fremsta
máta munu hafa áhrif á yður til
góðs. Af þeim leiðir meiri ró i
huga, heppni i viðskiptum og
raunar hvaða starfi sem er. Og
þar sem þeir, sem fæddir eru i
Jómfrúarmerkinu, þarfnast yfir-
leitt meira sálarjafnvægis hljóta
þeir að fagna hinum mildandi
áhrifum frá Satúrnusi. Undir
þessum áhrifum munu þeir geta
gert framtið sina öruggari og
jafnframt stofnað til mjög varan-
legra sambands, þar á meðal
persónulegra. Þér munuð
veita hinum jákvæðu og hagstæðu
áhrifum eftirtekt, einkum þegar
sólin stendur i Steingeitinni,
Nautsmerkinu, Krabbanum eða
Höggorminum, og þá ber yður að
hafast að. Það skuluð þér gera
eftir rækilega ihugun og það
myndi verða mjög hættulegt að
fara að neyta eiturlyfja, úr þvi að
þessi áhrif eru fyrir hendi.
Vogamerkið.
Frá 23. septcmber kl. 10,59 til 23.
október kl. 8,12.
Þeir sem fæddir eru i Vogarmerk
inu, munu hefja árið undir mjög
mildandi áhrifum, semmunu vara
mest allt árið. Þegar sólin hefur
innreið sina i merkið verður Mars
einnig þar. Það mun veita þess-
um mönnum óvenjulegan kraft til
aðgerða og viðskipta. Einnig
verður Úranus allt árið i merk-
inu. Það leiðir til nýrra viðhorfa
og nýs aukins innblásturs, en
einnig til óskar um byltinga-
kenndar breytingar og uppbygg-
ingu nýrra mannlegra leiða.
Hvað kvenfólkið snertir er enn
um aukið ástarlif að ræða.
Allt fram til 7. mars verður
jafnt Merkúr, Venus, Júpiter sem
Satúrnus i þrihyrningsafstöðu til
merkisins, Neptúnus i sex-
hyrningsafstöðu og þrihyrnings-
afstaða Mars hefst, en allt hefur
þetta mjög mild áhrif i för með
sér. Þeir, sem fæddir eru i Voga-
merkinu, hljóta á öllum sviðum
að reyna að notfæra sér þessi
áhrif. Og þar sem þeir hafa
einnig og ennfremur Plútó i sinu
merki munu breytingar, nýjar
leiðir, ný atvinna og margt fleira
af þvi tagi, gerast i lifi margra
þeirra, sem fæddir eru i þessu
merki. Ef þér viljíð skipta um at-
vinnu og fá meira út úr framtið-
inni, er rétti timinn til þess að
gera það NÚ. Þegar á allt er litið
mun þetta nýja ár verða mjög
spennandi, hafa jákvæða þróun i
för með sér og veita mikið á öllum
sviðum. Þér munið einnig hafa
heppnina með yður i peningamál-
um og getið reiknað með tekjum
frá bæði starfi yðar og spila-
mennsku, einkum á þrem fyrstu
mánuðum ársins.
Drekinn.
Frá 23. október kl. 8,12 til 22.
nóvember kl. 5,40.
Um þá, sem fæddir eru I Dreka-
merkinu, gildir það, að mest allt
árið verður Júpiter i þrihyrnings-
afstöðu til sólmerkis þeirra. Hin-
um jákvæðu áhrifum þessa mun-
uð þið taka eftir I sambandi við
hvorttveggja, öll lögleg viðskipti
sem og á hjónabandssviðinu. Þá
stendur Satúrnus einnig i mjög
jákvæðri afstöðu til merkisins, og
sú afstaða mildar hina meðfæddu
heift i m jög rikum mæli með þeim
stöðugleika,sem Satúrnus færir
merkinu frá Krabbamerkinu.
Þetta er tilvalið ár fyrir alla þá,
sem fæddir eru i Högggorms-
merkinu, til þess að taka að sér
ný störf, einkum mun fólk, sem
fætt er i fyrsta þriðjungi merkis-
ins, veita þessum jákvæðu áhrif-
um mikla athygli, er mun leiða
margt gott af sér. Þeir, sem ekki
fara i ný störf, heldur hallda
áfram i hinum fyrri, munu einnig
veita þvi athygli, að heppnin er nú
með þeim. Margir eiga nú von á
mikilli forfrömun til framtiðar.
Og sumir eiga nú von á mikilli
upphefð, sem þeir höfðu engan
veginn gert sér neinar vonir um.
A sviði hjónabands og ásta
gerist gott eitt, sem býður þeirra
á hinu nýja ári, sem fæddir eru i
Drekamerkinu.
Þetta er einnig árið, þegar þeir,
sem fæddir eru I Drekamerkinu
og hafa áhuga fyrir að fást við at-
huganir á andlegum efnum,
hefjast handa um það og komast
langt á þvi sviði.
Bogmaöurinn.
22. nóvember kl. 5,40 til 22.
desembcr kl. 6,57.
Þeir, sem eru i Bogamerkinu,
verða að búa sig undir, að margt
og misjafnt ryðjist til áhrifa i lifi
þeirra á hinu nýja ári. Fyrsti
þriðjungur merkisins er undir
áhrifum þess, að Neptúnus er
staðsettur i sjálfu merkinu, þar
við bætast áhrif frá Júpiter i
Vatnsberanum og frá Úranusi i
Vogamerkinu. Þetta merkir, að
hér blandast saman hið heim-
spekilega andrúmsloft i Fiskun-
um (Neptúnusi. ). Þetta getur tið-
um leitt til þess, að hinn oft ber-
skjaldaði Bogmaður lendi i
vangaveltum. En þeir, sem fædd-
ireru I þessu merki, komast ekki
hjá þvi á hinu nýja ári að taka af-
stöðu til margra undarlegra
hluta, sem verða á vegi þeirra og
gerast i lifi þeirra. Þeir munu
m.a. dragast af miklu afli að
austurlenskum visindum.
Margir þeir, sem fæddir eru i
Bogmerkinu, munu verða fyrir
þvi, að verða skyndilega ofsalega
ástfangnir. En fleiri i siðasta
þriðjungi merkisins munu verða
varir við sterkar óskir i brjóstum
sér um stofnun nýs hjónabands
eða breytingar á starfi og/eða
hjónabandi.
Öllum þeim, sem fæddir eru i
Bogmerkinu, iná segja það,
að velflest sem þeir taka sér fyrir
hendur á hinu nýja ári, mun
takast vel. öll viðhorf i kringum
merkið eru svo mild, að þeir hafa
ekkert að óttast.
Steingeitin.
22. desember kl. 6,57 til 20. janúar
kl. 11,47.
Margir þeirra, sem fæddir eru i
Stengeitinni, munu verða fyrir
miklum þrýstingi, einkum þeir,
sem fæddir eru fyrst og siðast i
merkinu. Þar er um að ræða
þrýsting frá Satúrnusi vegna and-
stöðunnar i Krabbamerkinu og
einnig þrýsting frá Úranusi i
tengslum við Vogarmerkið. En
þar sem þeir, sem fæddir eru i
þessu merki, eru gæddir afar
mikilli þolinmæði og næstum
óþrjótandi stöðugleika munu þeir
einnig allir reynast menn til þess
að bjóða mótstöðunni byrginn.
Samtimis þessu er hægt að segja,
að undir þessum kringumstæðum
biði þeirra mikill andlegur
þroski, sem er ómaksins virði að
afla sér.
Ef þér látið nú slag standa með
allt það efnislega, sem börn
Steingeitarinnar eru nú einu sinni
afar hneigð til og hallast að i rik-
um mæli, en taki i þess stað að
sinna i þeim mun rikari mæli
andlegum ihugunum og þeim
hliðum lifsins, sem þær opna
yður-ja, þá eru þeir vissu-
lega komnir langt áleiðis til þess
að yfirvinna mótstöðuna og snúa
öllu sjálfum sér i hag.
Oft gerist það, þegar fólk býr
við kringumstæður sem þessar,
að það leitar á vit hins leynilega
lokaða eða dulræna, félaga sem
sýsla með slikt. Það gæti orðið
þeim, sem fæddir eru i þessu
merki, jákvætt að gera það ein-
mitt nú, þvi að það mun færa
þeim hamingju og heppni.
Vatnsberinn
20. janúar kl. 11,47 til 19. febrúar
kl. 2,00.
Gleðjist nú, allir vatnsberar, þvi
að i ár getur ekki allt farið á verri
veg fyrir ykkur. Júpiter fer um
sólmerki ykkar og það eitt útaf
íyrir sig hefur i för með sér
heppni og hamingju. Þar að auki
kemur það til, að á vissum timum
verður Júpiter i þrihyrningsaf-
stöðu bæði til Úranusar og
Satúrnusar. Þeir, sem fæddir eru
i miðhluta og siðasta hluta
merkisins, geta búist við fram-
sókn nær hvarvetna i lifinu. Undir
þessum kringumstæðum er
næstum útilokað, að þeir geti
haldið rangt af stað eða farið vit-
laust að. En þetta lán leggur lika
skyldur á herðar ykkar. Það
krefst samúðar og viðsýni og til-
litssemi gagnvart öllum lifandi
verum.
Heppnin verður förunautur
yðar (allt eftir fæðingarstjörnu-
spá hvers og eins) i viðskiptum,
happdrættum, ástum, fasteigna-
viðskiptum og á mörgum öðrum
sviðum. Þér getið skipt um at-
vinnu, breytt um aðsetur, flutt
utan eða tekið yður eitthvað
annað alveg nýttt fyrir hendur.
Sumt þarf þó að varast, nefni-
lega þegar sólin stendur i Naut-
inu, Ljóninu eða Drekanum. Með-
an á þvi stendur skuluð þér sýna
mikla aðgæslu og halda fast um
hugmyndir og breytingar, þar
sem þessi áhrif geta hamið eða
komið i veg fvrir góð áform, um
nokkurt skeið.
Fiskarnir.
Frá 19. febrúar kl. 2,00 til 21.
mars kl. 1,07-
Fólk, sem fætt er i Fiskamerkinu,
býr við tvenn mjög misjöfn áhrif.
Þeir, sem fæddir eru i fyrri hluta
merkisins, taka eftir mjög já-
kvæðum stöðugleika-áhrifum frá
Júpiter i merkinu og frá þri-
hyrningsafstöðu Satúrnusar i
tengslum við siðasta hluta Tvi-
buranna og fyrsta hluta Krabba-
merkisins. Þeir, sem fæddir eru i
merkinu, hafa sem sé oftsinnis
mjög brýna nauðsyn fyrir mild-
andi áhrif. Umfram allt má ekki
láta eftir þörf til þess aö drekkja
sorgum sinum i áfengi eða lyfjum
pé heldur leitast við að fá svefn-
þörf sinni full.iægt með pillum
eða öðru þviumliku.
Hin áhrifin koma frá siðasta
hluta merkisins. þégar Satúrnus
er þannig settur, að hann eykur
þunglyndi og angur.
Sumir þeirra, sem fæddir eru i
Fiskamerkinu, hafa tilhneigingu
til þess að gefa eftir fyrir öðrum
og þvi kann það að heröa þá upp.
þegar ég segi þeim nú. að hér er
aðeins um timabundið ástand að
ræða. um mitt árið birtir til og þvi
ætti að vera auðvelt að halda út.
Leitið ekki huggunar i neinu
heimskulegu, það mun aðeins
gera hlutina erfiðari viðfangs og i
langflestum tilfellum mun það
aðeins leiða til þess, aö þér getið
ekki notfært yður léttinn , þegar
hann kemur til sögunnar.
•.-OjVv
‘VTji'
!0:
■É'ií
í's;i
*
o
Föstudagur 22. febrúar 1974
Föstudagur 22. febrúar 1974