Alþýðublaðið - 05.06.1974, Side 5
Útgefandi Blað hf.
Ritstjórar: Freysteinn Jóhannsson (áb)
Sighvatur Björgvinsson
Auglýsingastjóri: Fanney Kristjánsdóttir
Útbreiðslustjóri: Þráinn Þorleifsson
Aðsetur ritstjórnar: Skipholt 19, simi:
28800. Auglýsingar: Hverfisgötu 8-10:
simi 28660 og 14906.
Afgreiðsla: Hverfisgötu 8-10: simi 14900,
Blaðaprent hf.
Alþýðuflokknum er einum treystandi
Forystumenn Sjálfstæðisflokksins hafa upp-
lýst m.a. i sjónvarpi, að einhverjar viðræður
hafi farið fram milli þeirra og forsvarsmanna
Framsóknarflokksins um hugsanlegt samstarf
og jafnvel stjórnarmyndun á siðustu dögum
þingsins, sem Ólafur Jóhannesson siðar losaði
sig við. Þessar viðræður hafa þá farið fram eftir
að Ólafur Jóhannesson lagði fram á Alþingi til-
lögur sinar um ráðstafanir i efnahagsmálum
sem voru á þann veg, að forseti Alþýðusam-
bands Islands hvarf frá fylgi við stjórnina og
lýsti yfir vantrausti á hana.
Ef þessi saga er rétt um samræður forystu-
manna Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar-
flokksins á þessari stundu, þá hljóta þær m.a. að
hafa snúist um það, að reyna að ná samkomu-
lagi um einhver þau atriði i kaupránsaðgerðum
Ólafs, sem Alþýðusamband Islands hefur mót-
mælt. Einhverjir valdamenn i Sjálfstæðis-
flokknum hafa sem sé verið reiðubúnir til þess
að ganga til liðs við einhverjar þeirra — annars
hefðu engar viðræður af þeirra hálfu við Ólaf
Jóhannesson farið fram.
Af þessu getur fólk séð, að engu er um það að
treysta, hvað Sjálfstæðisflokkurinn kann að
gera i málum þessum eftir kosningarnar. Eini
þingflokkurinn, sem einarðlega stóð gegn kaup-
ránsráðaðgerðum rikisstjórnarinnar og vildi
ekki ljá máls á neinum samningum um slika
hluti, var þingflokkur Alþýðuflokksins. Þing-
menn Alþýðuflokksins stóðu ekki i neinu makki
við stjórnarliðið um þessi mál og þvi hljóta þeir
launþegar, sem mótmæla vilja þeim ráðstöfun-
um og leggja vilja sitt af mörkunum til þess að
koma i veg fyrir, að næsta Alþingi staðfesti þær
að snúa til liðs við Alþýðuflokkinn. Hann er eini
stjórnmálaflokkurinn, sem fólkið getur treyst i
þessum efnum þvi þingflokkur hans var eini
þingflokkurinn, sem heill og óskiptur ljáði ekki
máls á neinu baktjaldamakki við stjórnarliðið
um málið áður en ólafur rauf þingið.
ÖSKAMMFEILNI ÞJÓÐVILJALIÐSINS
Eftir að ráðherrar Alþýðubandalagsins hafa
staðið með Ólafi Jóhannessyni, forsætisráð-
herra, að útgáfu bráðabirgðalaga, þar sem
kjarasamningar stéttarfélaganna eru ógiltir
með valdboði,og kauphækkun, sem koma átti til
framkvæmda þann 1. júni s.l., hrifsuð af launa-
fólkinu með valdi,skýtur Þjóðviljinn upp kollin-
um og segir, að sérhvert atkvæði greitt Alþýðu-
bandalaginu i komandi kosningum sé vopn i
kjarabaráttu verkafólks! Hversu öfugsnúin
þessi röksemdafærsla Þjóðviljans er skýrist enn
betur þegar að þvi er gáð, að i tillögum þeim um
efnahagsmál, sem rikisstjórnin lagði fram á Al-
þingi og urðu til þess, að verkalýðssinnarnir i
SFV hurfu frá stuðningi við hana áttu ráðherrar
kommúnista hugmyndina að ákvæði um að
skera niður með lögum þær kauphækkanir, sem
fjölmargar launastéttir höfðu þá nýlega undir-
ritað samninga um. Svo kemur Þjóðviljinn eftir
þetta allt saman og segir, að sérhvert atkvæði
greitt G-listanum sé vopn i kjarabaráttu launa-
fólksins i landinu. Sér er nú hver óskammfeiln-
in! Það er eins og þessir herrar haldi, að launa-
fólkið á Islandi sé bæði sjónlaust og heyrnar-
laust — og skilningsvana i þokkabót.
ialþýöuj
SAGT í KOSNINGABARÁTTUNNI
HIN SKÝRA STEFNA ÓLAFS
Timinn er upp á siökastiö
orðinn fjarska ánægður með
ólaf sinn Jóhannesson, og er i
rauninni ekki nema gott um það
að segja — nægjusemi er dyggð.
Nú er meira að segja farið að
hrósa Ólafi hástöfum fyrir það,
að hann sé eini stjórnmálaleið-
togi þjóðarinnar, sem hafi skýra
og ákveðna stefnu i efnahags-
málum. Þaö hafi best komið
fram, segja Tómaritstjórarnir,
þegar hann lagði fram frum-
varpið fræga um viðnám gegn
veröbólgu. Til sannindamerkis
hélt Timinn upp á hvitasunnuna
með þvi að prenta framsögu-
ræðu Ólafs fyrir frumvarpinu i
heilu lagi. (A nokkrum siðum,
enda er ekki ennþá farið að
hrósa Ólafi fyrir að vera
gagnoröur.)
En hver er nú hin ákveðna
stefna ólafs og Framsóknar i
efnahagsmálum? Svariö má
raunar, ef vei er leitað, finna i
verðbólgufrumvarpinu og
skýringum Ólafs viö þvi. Frum-
varpið fjallaði, eins og lesendur
muna, um verðstöövun og kaup-
bindingu fram i nóvember,
bráðabirgðaráöstafanir, sem
áttu að fresta verð-
bólguvandanum um hálft ár. I
framsöguræðu sinni dró Olafur
heldur enga dul á það, að þessar
aðgerðir væru út af fyrir sig
engin lausn. Þær væru aðeins
fyrsti áfanginn af þremur.
Annar áfanginn fól i sér hliðar-
ráðstafanir ýmsar, aðallega
„gengissig”, sem áttu að fylgja
fljótlega á eftir. En þessir tveir
áfangar áttu fyrst og fremst að
veita ráðrúm til að undirbúa
þriðja áfangann, hina raun-
verulegu lausn vandans. Hin
skýra stefna Ólafs Jóhanns-
sonar i efnahagsmálum feist
sem sagt i þvi, að nú sé rétt að
hugsa sig vel um i svo sem hálft
ár!
Alþýðuflokkurinn neitaði að
fallast á þessa stefnu, meðal
annars vegna þess, að hann
treysti ekki rikisstjórn ólafs
Jóhannessonar til að nota
umhugsunarfrestinn skynsam-
iega og koma sér saman um
fullnægjandi ráðstafanir i
haust. Alþýðuflokkurinn taldi,
að Alþingi þyrfti ekki einungis
að tryggja ráðrúm til að snúast
við vandanum, ekki aöeins að
gefa umhugsunarfrest, heldur
yrðium leið að setja á
laggirnar stjórn, sem gæti
hugsað, sem gæti undirbúið
raunhæfar aðgerðir fyrir
haustiö. Þess vegna vildi Al-
þýðuflokkunnn, að stjórnin
bæðist lausnar og efnt yröi til
nýrra kosninga, um leið og
fundin væri bráðabirgðalausn á
aðsteðjandi efnahagsvanda.
Meirihluti Alþingis reyndist
vera sammálaAlþýðuflokknum
um þetta, svo að Ólafur
Jóhannesson neyddist til að efna
til kosninga, að vísu á annan og
óvarlegri hátt en Álþýðu-
flokkurinn hefði kosið. Með
bráðabirgðalögum var
kauphækkunum frestað fram
yfir kosningar, og nú biður
rikisstjórn ólafs Jóhannessonar
um nýtt umboð til aö fram-
kvæma sina skýru stefnu i efna-
hagsmálum. Með öðrum orð-
um: ef hún sigrar i kosningun-
um, ætlar hún að setjast niður
og hugsa I nokkra mánuöi. En
dettur nokkrum manni i hug i
alvöru, að sú umhugsun myndi
leiða til nokkurrar niðurstöðu,
sem ráðherrarnir gætu orðiö
sammála um? Auðvitað ekki.
Stjórnin myndi halda áfram að
velta málunum á undan sér frá
degi til dags og gefast svo upp
að lokpm, en þó ekki fyrr en
ráðaleysi hennar hefði bakað
þjóðinni tjón, sem seint yrði
bætt.
INDLAND í „ATÓMKLÚDDINN”
Eins og fram hefur komið i
fréttum, hefur Indland nýlega
sprengt sina fyrstu atóm-
sprengju. Sú sprenging hefur ekki
vakið mikla athygli á alþjóða-
vettvangi, enda þótt slikar
sprengjutilraunir hjá öðrum
rikjum hafi á undanförnum árum
vakið upp öldu reiði og mótmæla
viða um heim. Að visu hafa Ind-
verjar fullyrt, að tilraunin sé gerð
með friðsamlega hagnýtingu
kjarnorkunnar fyrir augum —
hvernig svo sem skýra á það, að
kjarnorkusprengja geti verið
notuð i friðsamlegu skyni. 1 raun-
inni er hins vegar enginn vafi á
þvi, að Indland stefnir óðfluga að
þvi að verða sjötta kjarnorku-
veldið.
Á s.l. tveimur áratugum hefur
fólk haft miklar áhyggjur af
kjarnorkuvopnakapphlaupinu.
fyrst vonuðust menn eftir þvi, að
hægt væri að takmarka kjarn-
orkuvigbúnað við þrjú lönd —
Bandarikin, Sovétrikin og Bret-
land. En svo slóst Frakkland i
hópinn, og þar á eftir Kina.
Þarmeð voru rikin i kjarnorku-
klúbbnum orðin fimm og svo
hagar til, að einmitt þessi sömu
fimm riki eiga fastafulltrúa i
öryggisráði Sameinuðu þjóðanna
þannig að segja mátti, að þarna
væri náð hinni eðlilegu markalinu,
þar eð þessi riki ættu öðrum
fremur að bera ábyrgð á öryggis-
málum heimsins.
Árið 1968 tókst einnig að ná
alþjóðasamkomulagi um bann
við dreifingu kjarnorkuvopna.
Þetta samkomulag var liður i við-
leitni Bandarikjanna og Sovét-
rikjanna um að draga úr spennu i
heiminum, en þvi miður fyrir
samkomulagið — og e.t.v. heims-
byggðina alla — voru nokkur
voldug riki, sem ekki fengust til
þess að undirrita sáttmálann.
Meðal þeirra voru tvö kjarnorku-
veldi — Frakkland og Kina og auk
þeirra nokkur riki, sem ekki
höfðu yfir kjarnavopnum að ráða
— þar á meðal Indland. Samt sem
áður gátu menn huggað sig við
það, að öflugur alþjóðlegur stuðn-
ingur væri við þá hugmynd að
komið væri i veg fyrir það, að
fleiri riki en þau fimm, sem þá
réðu yfir kjarnorkuvopnum,
slægjust i „kjarnorkuklúbbinn.”
Indland er nú að hnekkja þessari
viljayfirlýsingu fiestra þjóða
heims jafnvel þótt það muni taka
landið nokkur ár til viðbótar að
ERLENDIS FRÁ
framþróa þá tækni, sem þarf að
beita svo hægt sé að nota kjarn-
orkuvopn i styrjöld.
Það er erfitt að spá nákvæm-
lega fyrir um, hvað vakir fyrir
Indlandi með þessari ákvörðun,
hvert stjórn landsins hyggist
stefna. Indland hefur fyrst og
fremst átt í deilum við Pakistan,
en I Bangla-Deshstyrjöldinni kom
glögglega i ljós, að Indland hafði
algera yfirburði, hvað varðar
venjulegan vopnabúnað og her-
styrk. Afstaðan til kjarnorku-
veldisins Kina hefur þvi sjálfsagt
vegið þyngra á metaskálunum.
Milli þessara tveggja rikja hafa
orðið landamæraskærur og bæði
keppa þau um forystuhlutverkið i
Asiu. Kina 'styður Pakistan, en
Sovétrikin Indland. Þar með hafa
lönd þessi beinlinis dregist inn i
átök Sovétrikjanna og Kina og
með eigin kjarnorkuvopnabúnað
að bakhjarli getur Indland styrkt
stöðu sina sem sjálfstætt og óháð
riki við þær aðstæður.
Hins vegar er það alls ekki vist,
að þessi ákvörðun Indverja að
koma sér upp eigin kjarnorku-
vopnum auki á öryggi landsins.
En kjarnorkuvopnabúnaður
skapar riki aukið álit, og það er
kannski það, sem úrslitum réði.
Það er næsta eðlilegt, að jafn
stórt og mannmargt riki, sem
Indland er, reyni að koma sér i
hóp stórvelda. Aður lék það hlut-
verkið sem forysturiki hinna hlut-
lausu rikja i heiminum, en þvi
hlutverki hefur landið orðið að af-
sala sér af ýmsum ástæðum.
Þegar lengra er litið mun kjarn-
orkuvopnabúnaður auka styrk
þess og mótvægi gegn Kina i Asiu.
En það er ekki heldur hægt að
lita fram hjá þeirri staðreynd, að
stjórnmálaviðhorf innanlands
kunni að hafa haft áhrif á þessa
ákvörðun Indlandsstjórnar.
Sprengjutilraunin eykur mjög álit
þeirrar rikisstjórnar, sem Indira
Gandhi veitir forstöðu, en upp á
siðkastið hefur stjórn hennar sætt
mjög harðri gagnrýni frá iands-
lýðnum. Óánægjan með erfitt
efnahagsástand landsins hefur
verið mikil og bæði hin sigursæla
styrjöld gegn Pakistan og atóm-
sprengingin geta leitt huga fólks-
ins á aðrar brautir. Þá hefur
rikisstjórnin einnig verið undir
mjög miklum þrýstingi frá
áköfum þjóðernissinnum.
Sigurinn i styrjöldinni gegn
Pakistan og sprenging kjarn-
orkusprengju munu þó aðeins
reynast stjórninni skammgóður
vermir, ef hún fær ekki leyst
erfiðleika þá, sem við blasa i
innanlandsmálum. Þessi stað-
reynd er einnig hinn veiki blettur
á Indlandi hvað varðar stöðu þess
meðal rikja heims og áhrif þess á
alþjóðavettvangi. Ef Indland fær
ekki leyst þau erfiðu vandamál,
sem þjá landið sjálft og stafa af
innanlandsástæðum einum
saman, þá mun það áfram leika
heldur litið hlutverk i alþjóða-
stjórnmálum — þrátt fyrir sigur-
inn yfir Pakistan og kjarnorku-
spreng jutilraunina.
FRÁ A-LISTANUM
ÚR VESTFJARÐAKJÖRDÆMI
KOSNINGASKRIFSTOFA
Alþýöuflokkurinn í Vestf jaröakjördæmi
hefur opnað kosningaskrifstofu á Isafirði.
Skrifstofan er í Alþýðuhúsinu, uppi, sfmi 3955.
Skrifstofan verður fyrst um sinn opin eftir há-
degi og á kvöldin, en verður síðar opin lengur.
Alþýðuf lokksfólk og aðrir stuðningsmenn A-
listans á Vestfjörðum. Hafið samband við
skrifstofuna eða forystumenn flokksins í
hverju byggðarlagi og veitið upplýsingar.
A-listinn
Miðvikudagur 5. júní. 1974
o