Alþýðublaðið - 02.08.1974, Síða 2

Alþýðublaðið - 02.08.1974, Síða 2
Stjórn- mái t VERÐBÓLGUELDINUM í kosningabaráttunni i vor kom Jón Armann Héöinsson, al.m., með athyglisverðar upplýsingar um áhrif verðbólgunnar á aðstöðu sparifjáreigenda i landinu. Jón Armann benti á, að sparifé landsmanna myndi nema u.þ.b. 27 milljörðum króna og af þvi fengju spari- fjáreigendur að sjálfsögðu sina vexti. Þeir nægja hins vegar hvergi til þess að halda óbreyttum kaupmætti spari- fjárins i þeirri verðbólgu, sem verið hefur. A s.l. ári — árinu 1973 — var verðbólgan yfir 30% og það samsvaraði þvi, að af þessum 27 milljörðum kr. hefðu yfir 3 milljarðar brunnið til ösku á verðbólgubálinu — þrátt fyrir vaxtagreiöslurnar. Það ár rýrnaði sem sé kaup- máttur sparifjárins um röska 3 milljarða króna. Og hverjir eru það, sem eiga sparifé á tslandi? Það er fyrst og fremst unga fólkið, sem er að spara fyrir heimilisstofnun, og þeir miðaldra og eldri, sem lagt hafa i sjóð til elliáranna. Það er sparifé þessa fólks, sem verðbólgan hefur verið að brenna. VIÐNAMS ER ÞÖRF Enginn maður getur grætt á verðbólgu. Þeir, sem græða á verðbólgutimum, taka sinn gróða á þvi, að aðrir tapa. Verðbólgan sjálf hefur engum neitt að gefa. Fjölmargir Islendingar — einkum og sér i lagi millikyn- slóðin i landinu — byggir afkomu sina að verulegu leyti á þvi, að verðbólgan geri iskuldir þess að engu. Einkum og sér i lagi á þetta við þá kynslóð, sem stendur i hús- byggingum. En um leið og verðbólgan gerir skuldir þess smáar hlýtur hún að smækka eignir einhverra annarra á móti. Og þar ræðst hún fyrst og fremst að sparifjáreigendunum — unga fólkinu og þeim eldri. Auk þjóðfélagsheildarinnar sjálfrar, sem lán veitir úr - opinberum sjóðum, er það þessu fólki, sem blæðir á verð- Ibólgutimum. Jón Jónsson fer i banka og slær sér þar lán til bifreiða- kaupa eða húsbyggingar. Hann reisir sér e.t.v. hurðarás um öxl i von um, að timinn og verðbólgan vinni með honum i aö éta niður skuldina. En Jón Jónsson slær sér ekki peninga frá einhverri ópersónulegri bankastofnun — heldur peninga, sem annar einstak- lingur hefur falið bankanum til varðveislu. Og um leið og Jón Jónsson fagnar yfir þvi, að verðbólgan nagar niður skuldir hans, þá horfir annar maður, sem i raun hefur veitt honum fyrirgreiðsluna, upp á það með hryggð, að sparifjár- innstæða hans rýrnar að sama skapi. Framhald á bls. 4 Hafnarfjarðar Apótek Opið öll kvöld til kl. 7 Laugardaga til kl. 2 Helgidaga kl. 2 til 4. 300 manns á þrem dögum þ ára ferðalag Ingólfs Arnarso ♦ ’*\ ..Hugmyndin með þessu hlaupi er að tengja nánar Ingólfshöfða og landnámsbæinn Reykjavik, en talið er að Ingólfur hafi farið leið þessa á þrem árum, sem íþróttafólkið ætlar nú að hlaupa á þrem dögum”, sagði Gisli Halldórsson formaður þjóðhátiðarnefndar, I gær. Vissulega voru þessi tengsl náin i gær, þvi auk borgarstjóra og fleiri fyrirmanna Rcykjavíkur á Ingólfshöfða, stóð strætisvagn frá SVR nálægt flugvellinum á Fagurhólsmýri og litlum pallbíl frá á- haldahúsi borgarinnar sást einnig bregða fyrir. Urðu margir undrandi að sjá strætisvagninn og gátu sumir sér til að hægri hringleið væri farin að ganga svo langt, en reyndar mun þessi leið hafa verið skýrð Arnarhóll-Ingólfshöföi-Arnarhóll og vcrður þjónustuvagn fyrir hlauparana. Liklega vcrður tiðni þessarar leiðar 100 ár. Það var Ari Magnús- son, Ungmennafélaginu Úlfljóti, sem tendraði eldinn á Ingólfshöfða i gær, og hljóp fyrsta spölinn með hann og skilaði honum til næsta hlaupara. Annars mun iþróttafólk úr a.m.k. 16 iþróttafélögum taka þátt i að ferja eldinn til Reykjavíkur, en með honum á að kveikja langeld við styttu Ingólfs á Arnarhóli á morgun. Minnisvaröinn ætti að vera ,skotheldur’ ,,Þjóðhátiðarnef nd á- kvað í vor að reisa þenn- an minnisvarða á Ing- ólfshöfða, í samráði við ríkisstjórn og borgar- stjórn Reykjavikur, og herra Kristján Eldjárn forseti ákvað áletrunina, svo verkið á að vera „skothelt" hvernig sem á þaðer litið", sagði Indriði G. Þorsteinsson, „þjóð- hátíðarskörungur" í gær, i 13 þúsund feta hæð á leið Magnús Magnússon og Sigurður Sverrir Pálsson komu fyrir hönd bresku stöðvarinnar BBC og voru á vestur-þýskum bll. Tókst ekki betur til en svo að hann festist á sandinum á með- an þyrla landhelgisgæslunnar ferjaði aöra loftleiðina og reyndist gæsian enn einu sinni haldbetri en stórveldin. frá Ingólfshöfða til Reykjavíkur. 1 gærmorgun fór þjóðhátiðar- nefnd Reykjavikur o.fl. ásamt fréttamönnum austur að Ing- ólfshöfða, þar sem afhjúpaður var minnisvarði um landgöngu Ingólfs Arnarsonar á Ingólfs- höfða. ,,Þetta er stærsta stuðla- bergssúla sem við vitum til að reist hafi verið hér á landi, 3,5 metrar á hæð, enda gekk ekki á- takalaust að koma henni fyrir á höfðanum”, sagði Siguröur Helgason i Steiniðju.S. Helga- sonar, en hann sá um að velja og vinna steininn og fór margar ferðir austur að Hrepphólum i Hrunamannahreppi til að velja nægilega fallegan stein. Á steininum stendur: Ingólfur tók þar land er nú heitir Ingólfs- höfði. Það er vitnun úr Land- námubók. Neðar á steininum stendur: 11 alda minning 1974. Ekki gekk átakalaust að koma steininum á sinn stað, sem fyrr segir. Fyrst var reynt með kranabil, en þar sem það gafst ekki, hljóp Vegagerðin undir bagga og var steinninn bundinn framan á tönn stórrar jarðýtu, sem öslaði með hann upp á höfðann. Það var Sigurður Björnsson bóndi að Kviskerjum, sem fyrstur orðaði þessa hugmynd við þjóðhátiðarnefnd, og naut hann hugmyndar sinnar i gær, er hann afhjúpaði varðann. Birgir Isleifur Gunnarsson, borgarstjóri stigur út úr þyrlu Land- helgisgæslunnar niöur á Ingólfshöfða, 1100 árum eftir aö Ingólfur steig á þann höfða úr skipi sinu. BLÓMAHÚSIÐ simi 83070 Skipholti 37 Opió til kl. 21.30. Einnig laugardaga og sunnudaga. ÞAÐ B0RGAR SIG AÐ VERZLA i KR0N 1 í i i>únA GlflEflBflE 'ími 84900 Q Föstudagur 2. ágúst 1974.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.