Alþýðublaðið - 02.08.1974, Side 3

Alþýðublaðið - 02.08.1974, Side 3
'iggja iar Aletrun minnisvarðans á Ingólfs- liöffta, nokkurs konar undir- strikun sögunnar. IndriOi G. og Sigurftur bóndi takast i hendur eftir aft Sigurftur hefur svift hjúpnum af minnis- varftanum. Sést hér glöggt, hversu varftinn ' er hár miftaft vift Indriöa efta Sigurft, eftir þvi hvorn fólk þekkir. ,,Þá var liðið frá upphafi þessa heims sex þúsundir vetra og sjð tugir og þrír vetrar. En frá holdgan drottins átta hundruð og Isjö tugir og fjögur ár." Flugkapparnir, sem komu hingað fyrir 50 árum.... Hérmætastflugvélin New Orleans og vagnhestar meö kerru fyrir framan Eliingsen I Reykjavik, þessa fyrslu daga flugs á landinu. — Spurðu fyrst um mat Þann 2. ágúst fyrir nákvæm- lega 50 árum og nákvæmlega 1050 árum eftir að fyrsti land- námsmaðurinn sigldí hingað, kom hingað fyrsta flugvélin til Islands, en hún lenti á Horna- firði og kom þaðan frá Kirkwall ia Orkneyjum. I flugvélinni, sem bar nafnið New Orleans, var flugmaðurinn Nelson og John Harding að- stoðarmaður. Daginn eftir komu félagar þeirra, Lowell H. Smith og Leslie P. Arnold einnig til Hornafjarðar, en þeir höfðu verið i samfloti, ásamt þriðju flugvélinni, sem varð að nauð- lenda á hafinu skammt frá Fær- eyjum vegna smávægilegrar bilunar, en flugmönnunum var bjargað. Flugvélar þessar voru smiðaðar i Bandarikjunum og af gerðinni Douglas DWC. Daginn eftir að Nelson og Smith lentu á Hornafirði, flugu þeir til Reykjavikur. og tók ferðin þar á milli fimm tima, enda i mótvindi. I samtima fréttum segir, að ekki hafi siður verið fylgst með gangi þeirra félaga en kosningaúrslitum. Lentu vélarnar á innri höfninni i Ileykjavik, og var mikill við- búnaður þar til að taka á móti þeim, en fáir höfðu þó að morgni þess dags átt von á flugköppun- um, vegna slæms veðurs. í viðtölum eftir þennan áfanga hnattflugsins, sögðu þeir félagar að þeir hefðu aldrei verið i hættu, eini vandinn við lendingu hér hafi verið að finna nægilega sléttan sjó. Annars segir i heimildum að þeir hafi haft frekar áhuga á mat og hvild en að láta á sér bera. Þær fréttir bárust nú af þriðju flugvélinni, að breskur togari hafi fundið hana á reki, mjög gliðnaða. bjargað mönnunum, en þegar átti að fara að bjarga vélinni um borð, liðaðist hún i sundur og var ónýt. A myndinni, sem tekin var '24 fyrir utan Hótel tsiand, eru fv. Crosia, Harding, Summer, Nelson, Locatelli og Smith, en Locatelli og félagar komu hingaft á itölskum flugbát sköinmu á eftir hinum, en þeir nauölentu á hafinu á leift til Grænlands. Var haft eftir þeim félögum að ekki væri óliklegt að is- lenskar hafnir yrðu i framtið- inni notaöar sem lendingar- stöðvar fyrir ílugvélar. Lendingarstöðvar væru hér dá- góðar og sumarveðráttan is- lenska mundi eiga þurfa að fæla neinn frá að bregða sér á flug norður hingað. (Stuðst við bók- ina Annálar islenskra flugmála 1917—1928, eftir Arngrim Sigurðsson). HORNIÐ Horn Flókagotu og Gunnarsbrautar hættulegt slysahorn Ibúi í Norðurmýrinni hringdi í blaðið og vildi benda á þá miklu hættu, sem vegf arendum stafaði af gatnamótum Flókagötu og Gunnars- brautar. Hann sagði að þarna væru mjög tíð slys og þætti íbúum hverfisins ekki vanþörf á því, að þarna yrði komið á bið- eða stöðvunarskyldu eins fljótt og auðið væri. Viðkomandi sagði, að þeir sem kunnugir væru, færu ætíð mjög varlega á þessu horni, enda þekktu þeir hættuna sem þarna felst. Skömmu áður en hann hafði samband við okkur hafði einmitt orðið árekstur þarna á fyrr- nefndu horni og í vetur varð þar dauðaslys. Að lokum sagði sá, sem hringdi, að það væri eins og umferðayfirvöld biðu eftir að annað dauðaslys yrði þar á gatna- mótunum. Liggur þér eitthvað á hjarta? Hringdu þá í HORNIÐ REYKJAVÍK þJOÐHATIÐ 1974 I tilefni 1100 ára byggðarí Reykjavík hefur Þjóðhátíðar- nefnd Reykjavíkur 1974 látið gera þessa minjagripi: Minnispening um landnám Ingólfs Arnarsonar. 70 mm í þvermál. Afhentur í gjafaöskju. Upplag: Silfur, 1000 stk. kr. 10.000./pr. stk. Bronz, 4000 stk. kr. 3.000./pr. stk. Teiknaður af Halldóri Péturssyni. Framleiðandi: Is-Spor h.f. Útsölustaðir: Skrifslofa Þjófthátiftarnefndar Reykjavikur, Hafnarbúftum. Landsbanki tsiands. Frimerkjamiöstöftin, Skólavörftustig. Veggskjöld úr postulíni framl. hjá Bing og Grön- dahl í Kaupmannahöfn i aðeins 4000 eintökum. Teiknaður af HaEldóri Péturssyni. útsölustaöir: Thorvaldsenbazar, Austurstræti. Rammagerftin, Hafnarstræti Raflux, Austurstræti tsl. heimilisiftnaftur, Hafnarstr. Frimerkjamiftstöftin, Skóla- vörftustig. Æskan, Laugavegi. Domus, Laugavegi Geir Zoega, Vesturgötu Rammageröin, Austurstræti Bristol, Bankastræti tsl. heimilisiftn. Laufásvegi Mál & menning, Laugavegi Liverpool, Laugavegi S.t.S. Austurstræti. Rósin, Glæsibæ Gjafabúftin, Vesturveri --------------------------B Föstudagur 2. ágúst 1974.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.