Alþýðublaðið - 02.08.1974, Blaðsíða 8

Alþýðublaðið - 02.08.1974, Blaðsíða 8
Línuvörðurinn lék stórt hlutverk á Akureyri IATTI FOTUM FJOR AÐ I ILAUNA EFTIR LEIKINN 1 Ennþá einu sinni hafa lélegir dómarar áhrif á úrslit leiks. Nú var þaö annar linuvörðurinn i leik ÍBA og Vikings á Akureyri. Hvað eftir annað I seinni hálfleik veifaði hann rangstöðu á Akur- eyringa eftir að boltánum hafði verið spyrnt fram þó svo að leik- menn Akureyringa hafi verið langt fyrir aftan vörn Vikings þeg- ar boltanum var spyrnt. En þeir komust svo innfyrir vörnina „eftir að boltanum var spyrnt”. 1 lögunum segir að um leið og boltanum sé spyrnt þá skuli athuga hvar sóknarleikmennirnir séu staðsettir. Hitt er svo annað mál, hversu fljótir fram þeir eru eftir að boltinn er á leiðinni. Þeir gætu verið komnir langt innfyr- ir vörnina þegar þeir loks fá boltann. Akureyringarnir urðu fyrri til að skora, það var Gunnar Blön- dal eftir að Kári hafði brotist upp kantinn og gefið fyrir markið, þar sem Gunnar skallaði inn úr erfiðri aðstöðu laglega gert hjá honum. Fljótlega I seinni hálfleik jafnaði Kári Kaaber fyrir Vlkinga með skoti úr þvögu. Akureyringar náðu svo forystunni strax aft- ur með marki Gunnars sem braust I gegn eftir stungubolta. Aftur jafnaði Kári fyrir Viking með skoti af stuttu færi úr þvögu. Úrslitamarkið gerði svo Öskar Tómasson eftir langa sendingu inn I vitateig, þar sem hann fékk boltann óvænt, með föstu skoti frá markteig. Leikinn dæmdi Óli ólsen og er furðulegt, að hann skuli taka mark á línuverðinum, þegar að auðséð er, að hann hefur rangt fyrir sér, eins og Óli viðurkenndi eftir leikinn. VÖLSUNGUR MEÐ ÁFRAM Völsungur frá Húsavlk heldur áfram I 8 liða keppnina I Bikar- keppninni eftir sigur gegn Þrótti Neskaupstað á miðvikudags- kvöldiö. Sigur Völsunga var sanngjarn, þó svo að markatalan hafi að- eins verið 1-0. Markið gerði fyrrverandi landsliðsmaður, Hreinn Elliðason, eftir sendingu frá öðrum fyrrverandi landsliðsmanni Magnúsi Torfas. Þegar leikurinn fór fram, var rigning og leið- inlegt veður. Það verður þvi sennilega Völsungur sem á að halda uppi heiðri liðanna úr 2. deild I næstu umferð. Þvi telja má full- vist að KR hafi sigrað Ármann I gærkvöldi. Létt hjá Val Ekki voru Haukar I Hafnarfirði nein hindrun hjá Valsmönnum I Bikarleik liðanna I. Hafnarfirði á miðvikudagskvöldið. Vals- menn hreinlega burstuðu Haukana og skoruðu 8 mörk, en fengu á sig eitt márk, þegar þeir slökuðu á undir lokin. Ekki gekk Valsmönnum neitt sérlega vel að finna leiðina I markið I fyrri hálfleik, en þá skoruðu þeir tvö mörk. Hið fyrra geröi Helgi Benediktsson en Alexander það seinna. t seinni hálfleik tókst allt hjá Valsmönnum og sendu þeir þá knöttinn sex sinnum I netið hjá Haukunum. Eins og áður sagði skoruðu Háukarnir sitt eina mark undir lokin, þegar Valsmenn voru farnir að slaka á. Bikarkeppnin Gisli Torfason I leik gegn Val I fyrra. Allar Ifkur eru á að hann leiki nú gegn Val I síðari leik liðanna á Laugardalsvellinum. Gísli Torfason tekur skóna fram að nýju og lék sinn fyrsta leik aftur gegn Selfossi Það vakti athygli i leik Selfyss- inga og Keflvikinga að Gisli Torfason kom inná sem vara- maður. F’yrr i sumar hafði Gisli ákveðið að hætta allri keppni og æfingu i knattspyrnu vegna leikleiða, sem er hlutur, sem allir iþróttamenn þekkja, það er engin löngun hvorki til æfinga né keppni. Þetta virðist vera rétt ákvörðun hjá konum að gefa sæti sitt eftir I liðinu til annarra sem eru tilbúnir og hafa löngunina til æfinga og keppni. Nú er sem sagt Gisli kominn aftur hress og endurnærður, fullur af eldmóði. Það verður örugglega mikill styrkur fyrir liðið að fá þennan snjalla leikmann aftur i liðið. 1 leiknum gegn Selfossi átti hann góðan leik, þó er greinilegt að nokkurt úthald og snerpu vantar. En það er hlutur sem ungur leikmaður eins og hann er fljótur að kippa i lag. Lands- keppni við Næstkomandi mánudag og þriðjudag fer fram á Laugardals- vellinum landskeppni I frjáls- iþróttum við tra. Það er orðið langt siðan við höfum tekið þátt i landskeppni með fullskipað landslið, þ.e tvo kcppendur i hverri grein. Siðast kepptum við viö Skota hér heima 1966 svo segja má að timi sé til kominn enda hcfur okkar fólk staðið sig með ágætum i sumar. „írar eru með sterkt lið á okkar mæli- kvarða og eru þeir sterkastir i lengri hlaupunum. Við munum þó eiga töluverða möguleika á að sigra i keppninni, við höfum sterka spretthlaupara og góða menn i kastgreinunum,” sagöi örn Eiðsson formaður FRI á blaðamannafundi i þessu tilefni. A morgun munum við segja nán- ar frá keppninni. Eyjamenn áfram án erfiðleika SIGRUÐU BREIÐABLIK SANNFÆRANDI Vestmannaeyingar sigruðu Breiðabliksmenn úr Kópavogi örugglega I Bikarkeppninni i Eyjum á miðvikudagskvöldið 3-1. Leikurinn var vel leikinn af báðum aðilum og oft mjög fjörug- ur. Eyjamenn voru betri aðilinn i leiknum og sigur þeirra sann- gjarn. Fyrsta markið var Eyjamanna, það var Haraldur Júliusson sem skoraði. Hann hætti um sinn öllum afskiptum af knatt- spyrnu en virðist nú vera að finna sitt gamla form. í seinni hálfleik jöfnuðu Kópavogsmenn með marki Ólafs Frið- rikssonar. Það stóð ekki lengi, þvi aftur kom Gullskallinn sinum mönnum yfir og lokaorðiö átti svo Tómas Pálsson, sem aftur virðist vera að finna leiðina I markið með góðu skoti. Auðvelt hjá Fram Framarar áttu ekki i neinum erfiðleikum með liö Fylkis úr Ar- bæjarhverfinu á Laugardalsvellinum á miövikudagskvöldið, þó svo að sigurinn hafi veriö i smærra lagi, 4-0.1 hálfleik var 2-0. Fyrsta markFramara geröi Marteinn Geirsson úr vitaspyrnu, en hin þrjú gerði Kristinn Jörundsson. Bikarkeppnin © Föstudagur 2. ágúst 1974.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.