Alþýðublaðið - 01.10.1974, Side 7
Á seglskipi um aldamót?
Um 1980 verður stærsta oliuskipið um 1 milljón tonn, en stærri verða þau ekki, segir Stian Erichsen prófessor við NTH
i Þrándheimi. — Ekki vegna þess, að við getum ekki byggt stærri skip, heldur vegna þess, að það verður erfitt að nota stærri
skip. Seinna gætu risaskip siglt yfir höfin með blaktandi seglum! Sjálfstýrðir, vindknúðir vélmenn, sem líða áfram yfir
heimsins höf.
Gamlir menn, sem unnu segl-
skipunum geta nú glott i kamp-
inn. Það litur út fyrir, að skútur
eigi eftir aö sigla um höfin sjö
aftur!
Skipatæknin hefur tekiö ó-
stjórnlegum framförum á þess-
ari öld. Við höfum haft kol- og
oliuknúin gufuskip. Við höfum
séð þægilegar gufuvélar og
öskrandi vélar knúðar gufu og
gasi. Fyrir nokkrum áratugum
bókaklúbbi AB ókeypis og
kaupið bækurá betra verði
' Bókaklúbbur AB er stofnaður með það fyrir aug-
um, að hæqt sé að gefa félögum klúbbsins kost á
fjölbreyttu úrvali bóka á betra verði en yfirleitt
gerist á almennum bókamarkaði.
: Félagar geta allir orðið, haf i þeir náð lögræðisaldri.
Rétt til kaupa á bókum klúbbsins eiga aðeins
skráðir félagar Bókaklúbbs AB.
: Bókaklúbbur AB mun gefa út 6-8 bækur árlega.
Féalgsbækurnar munu koma út með eins eða
tveggja mánaða millibili.
Um það. bil einum mánuði áður en hver félagsbók
kemur út verður félögum Bókaklúbbs AB sent
Fréttabréf AB, þar sem bókin og höfundur hennar
verður kynntur, greint frá verði bókarinnar, stærð
hennar, o.fl.
: Félagar Bókaklúbbs AB eru ekki skyldugir að
kaupa neina sérstaka bók. Félagar geta afþakkað
félagsbækur með því að senda Bókaklúbbi AB sér-
stakan svarseðil, sem prentaður verður i hverju
fréttabréfi AB.
Félagar Bókaklúbbs AB geta valið sér aðra bólk, en
þá, sem boðin er hverju sinni í Fréttabréfi, og auka
bækur að vild sinni. Velja má bækurnar eftir skrá,
sem birt er í Fréttabréfinu. Þá geta félagar keypt
bækur til viðbótar samkvæmt sértilboði, sem veitt
verður öðru hvoru.
Ef bók er afþökkuð, eða önnur valin í hennar stað,
eða aukabækur pantaðar, þarf fyrrnefndur svar-
seðill að hafa borizt Bókaklúbbi AB fyrir tilskilinn
tíma. Að öðrum kosti ver»ur litið svo á, að félaqinn
óski að eignast þá félagsbók, sem kynnt er í
Fréttabréfinu. Félagsbókin verður þá send ásamt
póstgíóseðli. Félaginn endursendir siðan póstgíró-
seðilinn ásamt greiðslu í næsta pósthús eða banka-
stofnun.
Sú eina skylda er lögð á herðar nýrra félaga
Bókaklúbbs AB að þeir kaupi einhverjar 4 bækur
fyrstu 18 mánuðina, sem þeir eru félagar. Félags-
gjöld eru engin. Áskriftargjald Fréttabréfsins er
ekkert.
Félagar Bókaklúbbs AB geta sagt upp félags-
réttindum sínum með þvi að segja sig skriflega úr
klúbbnum með eins mánaðar fyrirvara. Sami
uppsagnarfresturgildir fyrir nýja félaga, en þó að-
eins að þeir hafi lokið kaupum á fjórum bókum
irinan átján mánaða.
6 fyrstu bækur i Bókaklúbbi AB:
3 fjölfræðibækur: 2 skáldsögur:
Fánar að fornu og nýju Sjóarinn, sem hafið hafn-
Uppruni Mannkyns aði eftir Yukio Mishima
Fornleifafræði Máttúrinn og dýrðin eftir
Islenzkt Ijóðasafn. Graham Greene.
Ég vil vera með
Umsókn nýrra félaga
Vinsamlega skráið mig í Bókaklúbb AB.
Ég hef kynnt mér félagsreglurnar og geri mér
grein fyrir kvöðum nýrra féiaga um kaup á bókum.
Nafn
Nafnnúmer
Heimilisfang.
é
Almenna
bókafélagið
Austurstræti 18 — Reykjavík
Pósthólf 9 — Símar 19707 & 16997
■
s
komu diselvélarnar og reyndust
vel. Nú knýja þær meginhluta
skipanna, sem flytja varning
heim.
Nokkur kjarnorkuknúin skip
eru til, en þau tilheyra framtið-
inni. Kjarnaklofvélin, sem not-
uð er nú, er ekki hættulaus og
dýr i rekstri. Kjarnaklofvélin
(notuð til að bræða saman og
kljúfa frumeindir) er rétt á til-
raunastiginu og það er langt
þangað til að hún verður al-
mennt notuð á skipum.
A meðan gæti það komið fyrir,
að seglskipin yrðu aftur hafin til
vegs og virðingar. Um aldamót-
in 2000, eða eftir 25 ár, gætu
500.000 tonna skip siglt um
heimshöfin með aðstoð straums
og storms. Þá yrðu þessi fornu
náttúrulögmál aftur notuð til að
knýja skip áfram!
Bandariski prófessorinn
Harry Benford við háskólann i
Michigan kom fram með þessa
kenningu i fyrirlestri i Japan.
Fyrirlesturinn fjaliaði um elds-
neytisvandamál framtiðarinn-
ar.
Þeir, sem láta sig dreyma um
seglskipin mega þó ekki gera
ráð fyrir ofbeldissömum báts-
mönnum og eigingjörnum
skipsstjórum undir hvitum,
blaktandi seglum. Seglskip
framtiðarinnar verða tæknilega
fullkomin og búin öllum hugsan-
legum tækjum frá kili að
mastri.
Burt með erfiöið! Nú er hægt
aö vinda upp segl með vélum.
Seglin verða gerð úr áli og rifuð
eins og hansatjöld. Fáir verða i
áhöfninni eða kannski engir
næstum, svo að gamli skútuhá-
setinn verður vist aldrei til aft-
ur.
Sannleikurinn er sá, að nú-
timatækni sér um öll störf um
borð og unnt er að stjórna þeim
um gervitungl frá útgerðinni i
landi.
Þetta er að minnsta kosti hug-
sanlegur möguleiki.
Og um leið er sú staðreynd
fyrir hendi að hér er um vélar
knúðar af vindi og mataðar af
staðreyndum að ræða.
„Möguleikarnir
fyrir hendi”
Hvað segja norskir skipa-
fræðingar um þetta? Stian
Erichsen prófessor við sjó-
mannaskólann i Þrándheimi
varð fyrir svörum:
— Möguleikarnir til að byggja
seglskip eru enn fyrir hendi og
þá á ég fyrst og fremst við
vegna eldsneytiskreppunnar og
mannfæðar, en ekkert norskt
útgerðarfélag hefur slikt i
hyggju nú! Það er ekki einu
sinni unnt að segja, að menn
hugsi alvarlega um seglskipin,
þvi að sú hugmynd á enn langt i
land!
Tæknilega séð er þó ekkert i
vegi fyrir þvi að byggja full-
komið seglskip, segir Stian
Erichsen prófessor. Við vitum
meira um siglingafræði nú, en
áður og getum þvi notað seglin
betur.
Við vitum einnig meira um
veðurfræði og getum þvi hag-
nýtt okkur vinda og staðvinda
betur en áður. Við getum forð-
ast stillur og hegðað okkur sam-
kvæmt veðurspám fram i tim-
ann. Þar koma gervitunglin og
tölvurnar að góðu haldi.
Tölvur um borð og i landi geta
séð um siglingu og allt sem segl-
unum viðkemur. Með gervi-
tunglum og fjarstjórnartækjum
er unnt að gera skipið sjálfstýrt.
í seglskipum framtiöarinnar
verða vélar, sem geta stýrt
skipinu úr stillu eða unnt verður
að nota dráttarbáta til að kom-
ast þaðan.
Seglaútbúnaðurinn er örugg-
ari og jafnvægið meira eftir þvi
sem skipið er haft stærra. Það
er þvi ekkert þvi til fyrirstöðu
að byggja 500 þúsund tonna skip
eða enn stærra. Þvi stærri þvi
betra.
Stian Erichsen prófessor vill
leggja áherslu á það, að þetta
séu engir framtiðardraumar.
Hann bendir aðeins á þetta sem
tæknilegan möguleika. Ýmis-
legt annað kemur einnig til
greina, svo sem fjármagn,
rekstur og öryggi. Oliuskortur-
inn verður að aukast og oliu-
verðið að hækka til að farið
verði að hugsa alvarlega um
seglskip.
Nútima seglskip verður til-
tölulega ódýrt i rekstri og þó
skiptir engu hvert oliuverðið
kann að verða, en vindurinn
verður alltaf heldur óáreiðan-
legur orkugjafi, hvað svo sem
tækninni fleygir fram. Það er
ekki hægt að búast við stöðugum
byr. Seglskipin eru lika seinni i
förum, en olian gæti orðiö svo
dýr, að ekkert skip hefði efni á
að bruna áfram.
Vilja ekki
„vélmenni”
En meðan seglskipin eru enn
ekki raunhæf á ný, er þróunin öll
i þá átt að gera skipin sjálfstýr-
anlegri. Nú eru til kerfi, sem
geta sagt útgerðarmanninum
meira um ástand skipsins, stöðu
þess og siglingaleið en áhöfnin
gæti gert og það þó að skipið sé
hinum megin á hnettinum.
Stian Erichsen segir að ekkert
sé þvi tæknilega til fyrirstöðu að
fjarstýra skipinu, en norskir út-
gerðarmenn kæra sig kollótta
um það. Þeir vilja ekki gera
skipið svo sjálfstýrt, að engir
menn séu um borð!
Áhöfnin á norskum skipum i
framtiðinni á að fá alla þá
tæknilegu aðstoð sem unnt er,
en áhöfnin á að vera kyrr. Eng-
inn vill fá vélmenni, fjarstýrð
tæki og stjórnun úr landi.
— Hvernig verða yfirmenn-
irnir um borð varir við þróun-
ina?
— Við skulum fyrst tala um á-
höfnina. Venjulegir hásetar
hafa hingað til unnið á þilfari
eða i vél, en skipting yfirmanna
hefur ekkert breyst. Það er
vafasamt, að þetta verði svo á-
fram, en stýrimenn og vélstjór-
ar hafa sterk stéttafélög og
miklar umræður verða án efa
áður en það verður einhver
breyting á þessum málum.
Margir hafa hugsað sér sam-
eiginlegt námskeið fyrir alla
yfirmenn á flotanum og þá hafa
þeir sérmenntun i huga, sem
byggð er á undirstöðumenntun-
inni. Yfirmennirnir verða þvi
með mun meiri sérmenntun en
nú og ásamt lýðræðisiegri
stjórnun um borð hlýtur þetta
að verða mikil breyting.
Tökum sem dæmi vaktakerfi
yfirmannanna. Yfirmaðurinn
verður valinn með tilliti til sér-
menntunar, sjógangi og stöðu
skipsins. öryggið verður meira,
ef sérfræðingarnir eru valdir
eftir hæfni og allir halda kunn-
áttunni við.
Það verður að leggja á þaö á-
herslu að öryggið verður að
vera meginmál bæði háseta og
yfirmanna. Nú er einn yfirmað-
ur á vakt á dag, þegar skipið er
** : ét ■*»
„Globik Tokyo” fékk nýlega titilinn „stærsta flutningaskip heims” Skipið er 477 þúsund tonn og var
byggt i Japan fýrir Globtik Tanker Co. Skipið er 379 metrar á lengd, 62 á breidd og ristir 36 metra. Ef til
vill verður „heimsins stærsta skip” 1 milljón tonn eftir fáein ár!
á rúmsjó og þannig getur það
lika verið, ef skipið er búið öll-
um hjálpartækjum tæknilega
séð. Sé sjógangur mikill getur
stundum nauðsyn krafið, að
tveir menn séu við stjórn eins og
á flugvél.
Mannlega séð getur vélvæð-
ingin haft óheppileg áhrif. Þvi
er nauðsyn á þvi, að allar að-
stæður um borð séu eins góðar
og frekast er unnt. Það er þegar
greinilegt„að ástandið um borð
er orðið lýðræðislegra. Útgerðin
hefur gengið fyrir öðrum fyrir-
tækjum á þessu sviði. A flestum
góðum skipum eru af og til sam-
eiginlegir fundir og gamaldags
yfirstjórn skipstjóra/yfirmanna
yfir áhöfninni er að hverfa. Það
hefur orðið mikil breyting á
stjórnun norskra skipa.
En skipstjórinn stjórnar enn
skipinu og hann ber ábyrgðina
alla, einnig lögfræðilega séð.
Þannig er það um allan heim og
það verður langt þangað til að
breyting verður á þvi. Ef ein-
hver vill þá breyta þvi.
Það hafa verið uppi ráðagerð-
ir um að skipta ábyrgðinni milli
skipsstjóra og annars yfir-
manns. T.d. með þvi að skipta
yfir á tvær tólf tima vaktir og
Erichsen segist ekki vita betur
en þetta kerfi sé notað hjá einu
merku skipafélagi „Hurtigrut-
en”. Þar hefur fyrsti stýrimað-
ur ábyrgð á skipinu meðan hann
er á vakt.
Hann telur rétt að breyta
kerfinu þannig, að skipsstjórinn
beri ekki einn alla ábyrgð á
skipinu. Margir skipstjórar
standa i brúnni svo dögum
skiptir þvi að skipstjórinn ber á-
byrgð á skipinu, en það er erfitt
að finna aðra lausn eins og lög-
gjöfin er nú. Fyrr eða siðar
hljóta þó mannleg viðhorf að
breyta þessu.
— Hvernig haldið þér, að
venjulegt skip liti út um alda-
mótin Erichsen?
— Það bendir ekkert til þess
að róttækar breytingar verði á
skipum fyrir 1990. Skipin verða
bætt en ekki breytt.
Oliuskip verður útlits eins og
oliuskip nú. Yfirbyggingin verð-
ur kannske frábrugðin, en skip-
ið sjálft verður i aðalatriðum
eins og þaðer nú. Byggt úr stáli.
Tæknilega séð er hægt að
byggja risastór flutningaskip úr
steinsteypu, en skipasmiða-
stöðvar um gjörvallan heim
byggja allt sitt á stáli og breyt-
ingin yrði langvarandi og dýr.
Stálið stendur sig enn i sam-
keppninni og mun án efa gera
það lengi.
Nú eru tæki um borð, sem
mæla áhrif hafsins á skips-
skrokkinn. Yfirmaður á vakt
getur alltaf lagað hraða skipsins
eftir áhrifum sjávarins. Þessi
tæki gera mönnum kleift að
nýta stálið betur.
Tæknilega séð er unnt að
byggja skip, sem er mörg
milljón tonn og frá heimsstyrj-
öldinni siðari hefur stærð
„stærsta flutningaskips heims”
þrefaldast árlega.
Stian Erichsen prófessor telur
óliklegt að sú þróun haldi á-
fram. 1 lok sjöunda tugsins
verða skipin 750 þúsund eða
milljón tonn. Þó aö menn hljóti
að fara gætilega með getgátur
hvað útgerð viðkemur bendir
allt til þess að breytt viðhorf
muni draga úr óðavexti skip-
anna.
Það er ekki vegna tækni-
vandamála heldur vegna þess,
að við höfum ekkert með stærri
skip að gera. Þróunarlöndin
munu i sivaxandi mæli hreinsa
oliuna sjálf og með minni hrá-
oliu þurfum við færri skip.
Færri en tæknilega fullkomnari
oliuskip.
— Hvað um framtiðarvélina?
— Gufuvélar eða vélar, sem
ganga fyrir þykkri oliu. Eða
kolefni eða kolefnisblönduð olia.
En það gætu einnig verið disel-
vélar. Ég held, að hér sé ekki
heldur neinnar byltingar von.
Diselvélinni tekst áreiðanlega
að halda i horfinu.
Hreyflarnir eru hins vegar
takmarkaðir. Hver hreyfill get-
ur knúið gott skip áfram með 60
þúsund hestafla krafti, en á
stóru oliuskipi afkastar hann
ekki meira en 60 þúsund hestöfl-
um. Það er nóg til að knýja á-
fram 1 milljón tonna skip og
auðvitað er ekkert þvi til fyrir-
stöðu að fjölga hreyflunum.
— Simritun?
— Það verða mörg ár áður en
hætt verður að nota loftskeyti á
skipum. Það verður varla fyrir
1990 og ef til vill enn seinna.
Þetta orsakast af öryggisástæð-
um um borð. Það verður að
tryggja öryggi skipanna i neyð-
artilfellum. Það er ekki hægt að
reikna með sima um borð i stór-
um skipum. Við þurfum að nota
loftskeyti i mörg ár enn.
Annars verður mikii breyting
innan útvarps á næstunni og þá
á ég við gervitunglin og fjar-
skipti þau. sem þau munu sjá
um. Nauðsynleg samtöl og
einkasamtöl munu verða um út-
varpstima svonefndan. Það er
ekki fáránlegt að ætla, að venju-
legur háseti geti legið I kojunni
og hringt heim um 1980.
Siðar munu neyðarköll einnig
fara fram gegnum útvarps-
sima. en þá þarf að breyta öilu
simakerfinu. Það tekur vitan-
lega tima. þvi að það er ekki
hægt að ætlast til þess að allur
heimsflotinn hætti við loftskeyt-
in og byrji að nota simann á
svipstundu.
DYNASCHIFF. Þýskir vlsindamenn hafa byggt skip samkvæmt kenningu, sem þeir kalla .Dynaschiff”. Þar sýna þeir. hvernig ei
unnt að byggja seglskip framtiðarinnar. „Dynaschiff” er 1 þúsund tonna skip. A skipinu eru 6 möstur, scm eru hreyfanleg. sjálfstæðog þri
þætt. Rárnar eru fastar við mastrið og unnt er að sveigja allar rár I söinu átt, þegar mastrinu er snúið. Þær eru þannig lagaðar, að loftmót
staðan verður hæfileg á seglin, þegar þau eru notuð. Seglin eru þanin út lárétt sln hvoru megin við mastrið. Gert er ráð fvrir, að það taki
15-20 sek. að draga segl við hún. Hjálpartækin eru þrjár 500 hestafla vélar, sem notaðareru til aö draga scgl aö hún, rifa þau og knýja skipið
áfram. Allt undir þilfari er ætlaö flutningi og öðru sllku. „Dynaschiff” er liægt að beita meira upp I vindinn (48 gráöur) heldur en unnt var
að beita fjórmöstruðum berki af gömlu gerðinni (68 gráður). Seglskip fer betui I sjó en vélknúið skip, þvl að þar gætir ekki titringsins frá
vélunum og óloft og ollufnykur fyrirfinnst ekki. Vfsindamenn gera ráð fyrir þvl, að seglskipið vcrði cinnig satnkeppnisfært fjárhagslega.
o
Þriöjudagur 1. október 1974.
Þriöjudagur 1. október 1974.