Alþýðublaðið - 06.12.1974, Síða 2
GLENS
„l)m hvaö ertu aö hugsa
Dabbi?”
„Ég er aö hugsa um þaö,
hvort hann pabbi muni sjá um
mjaltirnar, meöan viö erum i
brúökaupsferöinni, ef ég bæöi
þfn og þú segöir já.”
¥
„Guöi sé lof, aö þér eruö
kom inn.”
¥
„Mér er sagt, að trúlofun
þin sé á enda.”
„Já, og hann Steini hagaði
sér andstyggilega”.
„Nú, ég hélt, að þú hefðir
slitið trúlofuninni?”
„Já, en honum stóð hjartan-
lega á sama.”
¥
Svona hefur þú aldrei haldiö
utan um mig, Astvaldur.
*
Móðirin: „Dóttir min er
gagnmenntuð stúlka. Hún
spilar á píanó, málar, kann
grasafræði, dýrafræði,
frönsku og itölsku. Hvað getið
þér herra minn?”
Biðill: „Ef i hart fer, get ég
búiö til matinn og stoppað
sokka.”
¥
„Kem eftir augnablik. Ég
ætia bara aö koma
krökkunum i rúmiö”.
IBÆKUR TIL BLAÐSINS
Hjalti
tJt er komin, hjá Isafoldar-
prentsmiðju, þriðji og siðasti
hluti sögunnar af Hjalta litla,
eftir Stefán Jónsson, og ber
hann heitið „Hjalti kemur
heim”. Bókin er beint framhald
af „Mamma skilur allf'og er
þetta önnur prentun hennar, en
fyrst kom hún út árið 1951.
„Hjalti kemur heim” er, eins
og hinar Hjaltabækurnar, frá-
sögn af lifi og lifsviðhorfum
ungs drengs i sveit, vandamál-
um hans, áhyggjum og gleðiefn-
um. Þetta er fimmta bindið i
heildarútgáfu Isafoldar á barna
og unglingabókum Stefáns Jóns
sonar, en jafnframt henni kem-
ur nú út sjötta bindi hennar,
„Björt eru bernskuárin”. Einar
Bragi sá um útgáfu bókarinnar,
listamaðurinn Orest Vereiski
hefur myndskreytt hana, en
káputeikningu og útlit annaðist
Kristin Þorkelsdóttir.
Suður s v eitar a nnálar
Þá hefur ísafold einnig gefið
út annað bindi af „Þá var öldin
önnur” eftir Einar Braga, en
fyrra bindi hennar var gefið út á
slöasta ári. í þessari bók fjallar
Einar Bragi um Austur-Skafta-
fellssýslu og gerir mönnum og
mannlifi þar á liðnum öldum
nokkur skil. Skýrir undirtitiil
bókarinnar,, Darraðardansinn I
Suðursveit og fleiri þættir”, efni
hennar ef til vill betur en löng
lýsing.
Bókin er, sem fyrr segir, gefin
út af Isafoldarprentsmiðju, en
káputeikningu annaöist Hörður
Agústsson.
Togarasaga
tJt er komin hjá Bókaútgáfu
Menningarsjóðs. Saga Islenskr-
ar togaraútgerðar fram til 1917.
Höfundur Heimir Þorleifsson
cand. mag. fjallar hér um
mikilvægan þátt I atvinnusögu
tslendinga. Sagt er frá upphafi
togveiða við Islands og bernsku-
árum togaraútgerðar. t ritinu er
leitast við að svara spurningum
sem þessum. Var þorskastrið
um aldamótin? Hvers vegna
töpuðu útlendir kapitalistar
stórfé á tslandi árið 1899? Var
ofsagróði á togaraútgerð? Voru
hásetar hátekjumenn þegar
þeir fóru I verkfall 1916?
Bókin er 212 blaðsiður, prýdd
fjölda mynda m.a. af flestum
togurum I eigu tslendinga á
þessu tímabili.
Þetta er þriðja bókin i ritröð-
inni Sagnfræöirannsóknir —
Studia historica, sem Sagn-
fræðistofnun Háskóla tslands
stendur aö, en Bókaútgáfa
Menningarsjóðs annast útgáfu,
en Prentsmiðjan Hólar sá um
prentverk, Ritstjóri ritraöar-
innar er Þórhallur Vilmundar-
son. Próf.
Bókin kostar innbundin
2190.00 en i kiljuformi 1.964.00.
Saga Eldeyjar-Hjalta
Tvimælalaust er Saga Eldeyj-
ar-Hjalta, er kom útl tveimur
bindum haustið 1939, eitt merk-
asta verk Guðmundar G. Haga-
lins og reyndar er hún jafntvi-
mælalaust eitt af öndvegisritum
islenskum frá þessari öld. Það
var prófessor Siguröur Nordal,
sem kom þvi til leiðar, að bókin
var rituð, og i formála, sem
hann skrifaöi með henni, segist
honum svo frá, að náin kynni
hans af Eldeyjar-Hjalta i Kaup-
mannahöfn veturinn 1914-15,
hafi sannfært sig um, „að þarna
var efni i ævisögu, sem mátti
ekki gleymast.”En árin liðu og
það var ekki fyrr en Hagalin
haföi skrifað Virka daga eftir
frásögn Sæmundar skipstjóra,
að Sigurður þóttist sjá, „að
þarna var maðurinn, sem gat
skrifað ævisögu Hjalta.” Og les-
endur virðast hafa verið sama
sinnis þvi aö fáar bækur munu
hafa verið meira keyptar á sin-
um tima eöa verið lesnar af
meiri áhuga.
En Saga Eldeyjar-Hjalta hef-
ur um langt árabil veriö með
öllu ófáanleg, svo að þau eintök
Prang
Verzlunarstéttin hefur fyrir
löngu fundið bragöið af þvi,
aö jólin séu heppilegur timi
til þess að auka við umsetn-
inguna. Rétt er það, að ýms-
um veröur fé lausara i hendi
fyrir jólin heldur en aðra
tima ársins. Þetta er á engan
hátt óeölilegt né ámælisvert.
Það hefur um langan aldur
tiökast, að jafnvel þrátt fyrir
fjárráð af skornum skammti
reyndu menn að gera sér
dagamun á jólunum. Og
jólagjafir eru i beinu fram-
haldi af þessu, einn þátturinn
i að gleðja eldri og yngri á
þessum stærsta, almenna
hátiðisdegi ársins. Auðvitað
er þaö eins og i svo fjölmörgu
á landi hér, að þær lenda oft
og tiðum út I ýtrustu öfgar. I
stað þess að vera hóflegur
vottur um að menn minnist
vina og vandamanna, hafa
þær lent I þeim farvegi, að
ekkert þykir hæfilegt, nema
það sé nógu dýrt, kosti þús-
undir króna. Jólavertið
verzlananna er lika orðin
býsna löng. Það er oröið
nokkuð algengt, aö þegar
nóvember er hálfnaður, eða
máske fyrr, fara jólauglýs-
ingar aödynja yfir landslýö,
i útvarpi og sjónvarpi og
blööin fá sinn skerf llka.
Segja má, að ekki sé ráð
nema I tima sé tekiö og allir
hlutaðeigandi keppast viö að
lofa sina vöru. Hástigið er
svo slðustu daga fyrir jólin.
En þetta er allt fyrir opnum
tjöldum. og enginn er auðvit-
að bundinn við að kaupa, þótt
boðiö sé. Fjölmargir verzl-
unarmenn leggja mikla
vinnu og hugvit I að prýöa og
skreyta verzlanir sinar svo
sómi er aö og vegfarendum
til augnayndis. Þannig setja
vel skreyttir búöargluggar
liflegan og skemmtilegan
svip á umhverfiö oft og ein-
att, og segja má I viðbót, að
hér er um að ræða atvinnu-
veg, sem á fullan rétt á sér.
En það er líka til önnur hlið á
þessari jólaverzlun, sem er á
engan hátt aðlaðandi. Alls-
konar prangaralýður tekur
upp tjaldhæla sina og reikar
um eins og hirðingjar, bjóð-
andi margháttað glingur og
dót við húsdyr borgaranna.
Oft og einatt er þaö undir þvi
yfirskyni, að veriö sé að afla
fár til styrktarstarfsemi,
sem I sjálfu sér er góðra
gjalda verð. En heldur er
það nú leiðinlegt, að þurfa að
hlusta á utanaðlærðar rullur
um tilganginn með þessu
fram- og þó fremur bakdyra-
prangi. Þó tekur út yfir allan
þjófabálk þegar til þess arna
eru höfð börn, að bera varn-
inginn milli húsa, jafnvel i
vondum veðrum og á þeim
timum sólarhringsins, sem
börnin ættu samkvæmt Guðs
og manna lögum að vera
heima hjá sér I faðmi fjöl-
skyldunnar. Auðvitað veit
prangaralýöurinn, að enn er
þó svo mikið eftir af mannúð
fólks, að margur verður til
þess að kaupa eitthvert smá-
vægi af börnum, sem bisa
blá af kulda og i myrkri með
skraniö heim að húsdyrum
fólks. Á þann hátt er reynt að
leika á strengi meðaumkun-
ar og mannúðar. En allt
þetta atferli er bæði hvim-
leitt og einstaklega niður-
lægjandi. Möguleikar fólks
til þess að fara I verzlanir og
kaupa þarfir sinar eru ekki
svo þröngir, að til þurfi að
koma þessi óumbeðna að-
stoð. Og segja má, að litiö
dragi vesælan, að ata smá-
krökkum út i að skrapa
þannig saman fáeinar skitn-
ar krónur.
GENGISSKRÁNING
Nr. 222 - 5. desember 1974.
SkráC frá Eining Kl. 13, 00 Kaup Sala
2/12 1974 i Bandaríkjadollar 117,30 117,70
4/12 - i Sterlingspund 272, 50 273,70
2/12 - i Kanadadollar 118,70 119, 20
5/12 - 100 Danskar krónur 1987, 10 1995,60 *
- - 100 Norskar krónur 2182, 40 2191,70 *
- - 100 Sænskar krónur 2749, 60 2761, 30 *
- - 100 Finnsk mörk 3196,55 3201,95 *
- - 100 Franskir frankar 2536, 25 2547,05 *
_ - 100 Belg. frankar 314,50 315, 80 *
- - 100 Svissn. frankar 4404,60 4423,40 #
- - 100 Gyllini 4564,00 4583,50 *
- - 100 V. -Þýzk mörk 4729, 20 4749,40 *
4/12 - 100 Lírur 17,62 17,69
5/12 - 100 Austurr. Sch. 664, 15 666,95 *
- - 100 Escudos 473,45 475, 75 *
4/12 -• 100 Pesetar 206, 30 207, 20
_ - 100 Yen 39, 12 39,29
2/9 100 Reikningskrónur- Vöruskiptalönd 99,86 100, 14
2/12 - l Reikningsdollar- Vöruskiptalönd 117, 30 117,70
Breyting frá síðustu skráningu.
hennar, sem ratað hafa i forn-
bókaverslanir, mega vist teljast
harla fá. En nú hefur Almenna
bókafélagið bætt úr þessum
skorti og sent frá sér bókina i
nýrri útgáfu. Er hún i tveimur
bindum sem fyrr og alls um 560
bls. I allstóru broti.
örn og Örlygur
Bibliuhandbókin þin eftir
sænska höfundinn Herbert
Sundemo I þýöingu sr. Magnús-
ar Guðjónssonar. Þetta er i
fyrsta sinn, sem út kemur á is-
lensku slik handbók við bibliu-
lestur i heildarútgáfu hinnar
helgu bókar. Aður hafa birst
skýringar á hlutum hennar.
Bókin er helguð minningu sr.
Hallgrims Péturssonar og geng-
ur hluti af andvirði hennar til
byggingar Hallgrimskirkju
(5%) Bókin er valin til þýöingar
úr miklum f jölda slikra bóka, að
bestu manna yfirsýn. Bókin fæst
I grænu eða gulu, vönduðu
bandi.
Náttúran er söm við sig undir
jöklieftir Þórð frá Dagverðará
og færð I letur af Lofti Guð-
mundssyni, myndskreytt af
Ragnari Kjartanssyni. Þeir fé-
lagar, Loftur og Þórður fara hér
á kostum um Furðustrendur
umhverfis (Snæfellsness) og lit
rikrar æfi Þórðar sem flest er
æfintýramenn óska sér virðist
koma upp i hendurnar.
Gersemar guðanna eítir Erich
von Daniken I þýðingu Dags
Þorleifssonar blaöamanns.
Bókin fjallar um þá hugmynd
höfundar, að guðirnir hafi verið
geimfarar frá öörum veröldum,
sem hafi heimsótt jörðina og
kipptöpum upp á stig mannsins.
Tilfærir hann fjölda dæma, sem
fornfræðingar hafa enga skýr-
ingu á, kemur jafnvel með skýr-
ingu á guðdóminum sjálfum.
Frumherjar I landaleit eftir
Felix og Anthea Barker, þýdd af
Steindóri Steindórssyni frá
Hlöðum. Bókin er upphaf bóka-
flokks um þetta efni og fjallar
um landkannanir frá fyrstu tið
og lýkur á kafla um silkiveginn
frá Kina. Fjöldi litmynda og
korta prýðir bókina og að lokum
er timatalsskrá og skrá yfir
könnuðina sem bókin fjallar
Að lokum eru bækur fyrir
yngstu lesendurna, Paddington
i innkaupaferð og Paddington i
loftfimleikum eftir Bond og
Banbery, þýddar af Lofti Guð-
mundssyni. Báöar eru rikulega
myndskreyttar með litmynd-
um, eins og vera ber.
í hreinskilni
sagt
eftir Odd A. Sigurjónsson
Hafnartjarðar Apótek
Afgreiðslutími:
Virka daga kl. 9-18.30
Laugardaga kl. 10-12.30.
Helgidaga kl. 11-12
Eftir lokun:
Upplýsingasími 51600.
BLÖMABÚÐIN
BLQAWSKREYTINGflR
ÞAÐ B0RGAR SIG
AÐ VERZLA f KR0N | U!
Durm
i CUEflBffi
/fmi 84900
0
Föstudagur 6. desember 1974.