Alþýðublaðið - 28.12.1974, Síða 2

Alþýðublaðið - 28.12.1974, Síða 2
SIJÓRNMÁL Jólasveinar einn og átta Niu borgarfulltrúar Sjálf- stæðisflokksins eyddu heilli næturstund i siðustu viku til aö ganga frá jólagjöf sinni til Reykvikinga. Jólagjöf þess- ara niu heiðursmanna er 67,8% hækkun á útsvörum borgarbúa frá siðustu álagn- ingu. Það fer ekki illa á þvi, að af- greiösla fjárhagsáætlunar Reykjavikurborgar skuli vera siðasta verk borgarstjórnar- meirihlutans fyrir jól og hún fari fram um sama leyti og jólasveinarnir þyrpast af fjöll- um til byggða. En mikill er munurinn á hugarfari hinna niu borgarfulltrúa Sjálfstæðis- flokksins og gömlu jólasvein- anna niu, sem gera sér erfiða ferð á hendur á aöventunni til að gleðja blessuð börnin á jól- um. Við afgreiðslu fjárhagsáætl- unar Reykjavikurborgar að þessu sinni lögðu borgarfull- trúar minnihlutaflokkanna fram álitsgerð til bókunar, þar sem þvi var lýst yfir, að fjár- hagsáætlunin eins og hún er úr garði gerö sé gagnslaust pappirsplagg, i iitlu eða engu samræmi við raunveruleik- ann. Afgreiðsla fjárhagsáætlun- ar Reykjavikur var aö þessu sinni með hefðbundnu sniði. Borgarfulltrúar Sjálfstæðis- flokksins einn og átta greiddu nú sem fyrr atkvæöi eins og flokksskipun hljóðaði. Borgar- stjórnarflokkur þessi er ekki sundurlaus hjörð. öðru nær. Þeir lögðust að sjálfsögðu gegn öllum tillögum minni- hlutans. Þeir nimenninganna sem höfðu manndóm i sér til aö viöurkenna eitt og annað i tiilögum minnihlutans i um- ræðum, höfðu gleymt öllu öðru en flokksvaldinu, þegar til at- kvæðagreiðslu kom. Það heyr- ir til undantekninga, að færri en niu hendur séu á lofti gegn tillögum, sem borgarfulltrúar minnihlutans gerast svo djarf- ir að leggja fram á þeim vett- vangi, sem Sjálfstæðisflokk- urinn hefur helgað sér sem ó- umdeilanlega eign, borgar- samfélagi Reykvikinga. Jólasveinaleikur borgar- stjórnarihaldsins er engu lík- ur. Þó kunna þjóðsögur að herma frá einhverju, sem minnir á hina einkennilegu borgarstjórnarpólitik ihalds- ins. Þó að jólasveinaeðli borgar- fulltrúa Sjálfstæðisflokksins sé allt annað en jólasveinanna á fjöllunum, er ekki út i hött að tileinka þeim gamla jólavisu: Jólasveinar einn og átta ofan koma af fjöllunum... H.E.H. HALLDÓR VALDIMARSSON SKRIFAR UM KVIKMYNDIR Stjörnubíó. HÆTTUSTÖRF LÖGREGLUNNAR Framleiðandi: Columbia Stjórnandi: Richard Fleischer. Gerð eftir sögu Joseph Wambaugh, lögregluforingja. Aðalhlutverk: George C. Scott Jane Alexander Stacy Keach Rosalind Cash Eftir öll ónefnin, áburö um ofbeldi og spillingu og annað aðkast sem bandariska lögreglan hefur orðið fyrir i bókmenntum, kvik- myndum og viða annars staðar, hlýtur hún nú loks uppreisn æru, með þessari kvikmynd og öðrum álika, sem viðurkenna loks að þar munu vera á ferðinni tiltölulega venjulegir menn sem vinna vanda- söm störf viö erfiðar aðstæður og oft i óþökk náungans. Þessi mynd fjallar á nokkuð raunsæjan hátt um lif og starf lögreglumanna I Los Angeles og þótt hún beri það með sér, að sumu leyti, aö vera gerö eftir sögu lögregluforingja, þá hlýtur hún að teljast með betri lög- reglumyndum sem hér hafa sést. Myndin er spennandi og atburðarás hröð. Nóg er um byssuleik i henni, fyrir þá sem horfa vilja á slikt, en þó er gefinn góður gaumur að öðrum lögreglustörfum, svo sem afskipti þeirra af hjónadeilum, vændiskonum og fleiru. Einnig eru tekin til meðferöar persónuleg vandamál sem viröast fylgja lögreglustörfum, utan þeirra þjóðfé- lagsvandamála sem tæpt er á. í stuttu máli: Þrátt fyrir það, að myndin gefur á stundum nokkuö GÆÐAMERKI A IÐNAÐARVÖRUR Frestur til að skila tillögum i samkeppni um gerð gæða- merkis fyrir islenskar iðn- aðarvörur til útflutnings renn- ur út 31. þessa mánaðar. Stofnað var til samkeppni þessarar á sðastliðnu hausti og var upphaflegur frestur til 25. október sl. Mjög mikill fjöldi tillagna barst fyrir þann tima en dóm- nefnd taldi rétt aö framlengja frestinn þar eð auöséö var á tillögunum að höfundum hafði ekki unnist timi til að fullmóta þær. Nú er hins vegar aðeins hálfur mánuður til stefnu og þykir ástæða til að hvetja fólk til að nota hin góðu fri á milli jóla og nýárs, til að ganga frá tillögum sinum. Þaö eru írt- flutningsmiðstöð iðnaðarins og Félag isl. iðnrekenda, i samvinnu við Félag isl. teikn- ara, sem gangast fyrir sam- keppni þessari. Það merki sem endanlega verður fyrir valinu veröur not- að á vörur eða umbúðir til að gefa til kynna að um sé að ræða gæðavörur. Veröur sett á stofn nefnd til að úthluta merkinu, og mun nefndin kanna gæði vörunnar áður en leyfi til að nota merkið er gefið út. Nefndin fylgist siðan með þvi að sömu vörugæðum sé haldið við og hefur heimild til að afturkalla heimild til notk- unar. BÆKUR TIL BLAÐSINS Frá tveimur hliðum „Silfurbrúðkaupið — Ljóð og leikur” nefnist nýútkomin bók eftir Jónas Guðmundsson og er það 10. bók höfundar. Bókin er kjöldregin. Lesin frá tveimur hliðum. Annar helm- ingurinn hefur að geyma ein- þáttunginn „Silfurbrúðkaupiö”. Hinn helmingurinn hefur að geyma ljóöabókina „Ljóð og leikur.” Þykja kvæði Jónasar myndræn og spaugsöm, en i þeim er alvarlegur undirtónn. Bókin er gefin út i 300 tölusett- um eintökum og eru öll árituð af höfundi. Bókin er til sölu i helstu bókaverslunum og hjá höfundi. Útgefandi er Letur h.f. Róbert, Gylfi, Tómas Fálkinn hefur gefið út stóra hljómplötu með lögum eftir dr. Gylfa Þ. Gislason við ljóð eftir Tómas Guðmundsson, og eru þau sungin i visnastil af Róbert Arnfinnssyni leikara með undirleik hljómsveitar undir stjórn Jóns Sigurösson- ar. Umsögn á öftustu kápusiðu er skrifuð af Jóni Þórarinssyni tónskáldi, og auk þess skrifar þar Tómas Guömundsson nokkrar linur um útgáfuna. Pennavinur Nikos Papadeas, óskar eftir að komast i bréfasamband við islenskar stúlkur á sinum aldri, 18 ára. Hann les og skrifar ensku. Utanáskrift hanser: Nikos Papadeas, 112, Gounari St„ Patras, Greece. Þjóðlagaplata Menningarsjóður hefur gefið út hljómplötu með is- lenskum þjóðlögum. Þar flytur Eddukórinn, en i honum eru átta manns, fjórar konur og fjórir karlar, þjóðlög frá ýmsum timum. Sum þessara laga eru vel þekkt, en önnur miður. Upptakan fór fram i Danmörku, og hefur að dómi kunnáttumanna tekist með ágætum. Kórinn var stofnaður 1970. glanskenndar hugmyndir um lögreglumenn og baráttu þeirra gegn glæpum, þá verður hún að teljast mjög góð og ástæða til að hvetja fólk til að sjá hana. Hafnarbíó: TRAFFIC Framleiðandi: Jacques Tati Stjórnandi: Jacques Tati Aöalhlutverk: Jacques Tati 1 stuttu máli: Jacques Tati. Sá hinn sami og átti heiöurinn að Playtime og fleiri góöum, eða frábærum myndum. Sá sem skóp Hulot frænda, þá mektarpersónu. Það var með tilhlökkun sem ég gekk inn i Hafnarbió, en — hvilik vonbrigði. Traffic er alls ekki I þeim gæðaflokki sem búast mátti við af Tatimynd, meö henni hefur meistarinn hrokkið af stalli sinum, að minnsta kosti i bili. Myndin fjallar um umferð, bila og flest það er að þeim lýtur og reynir að gera það á gamansaman hátt, en mistekst að ná tökum á áhorfend- um. Sumsé: Vonbrigðiog tveir punktar. Vonandi fáum við þó að sjá reglulega Tatimynd hér, áður en of langt um liður, þvi flestar þeirra hressa, bæta og kæta, á þann veg sem fáum myndum er lagið. í hreinskilni sagt eftir Odd A. Sigurjónsson Almannavarnir? Hinar hörmulegu slysfarir á Norðfirði eru sjálfsagt i nógu fersku minni flestra landsmanna, til þess að þátt- ur s.n. almannavarna hafi ekki farið framhjá alltof mörgum. Strax varð það op- inbert, að engar áætlanir voru til um hvað gera skyldi af hálfu almannavarna, ef eitthvað sviplikt geröist á Norðfirði, sem gerðist slys- adaginn mikla. Ekki varð annað séð, en þeir háu herr- ar i Rvík stæðu gliðsa. Hefðu bæjarbúar sjálfir ekki tekið i sinar hendur skipulegt björgunarstarf, unz hjálp barst úr næstu byggðarlög- um, var aðstoð almanna- varna rikisins vist heldur léttvæg. Einn var sá þáttur, sem þó hefði mátt ætla, að væri á færi almannavarna að aðstoða við, en það var að freista þess að hefta oliu- mengunina, sem leiddi af þvi að svartoliugeymirinn varð iekur. Dag eftir dag glumdi i eyrum Iandsmanna, að nú ætti að fara að senda flot- girðingar á vegum almanna- varna og siglingamálaráðu- neytisins austur. Meðan til- kynningarnar um aðstoðina dundu yfir, rann svo olian á- fram i sjóinn, enda ekki á færi annarra en þeirra sem hafa áhöld til aðkróa oliu- flekkina af, að gera neitt verulegt til bjargar. Þegar svo loksins flotgirðingarnar komu eftir dúk og disk, þá kom i ljós, að vantaði ca. 150- 200 metra, til þess að kæmi að fullu haldi! Erfitt er að þurfa að kingja þvi, að ann- að eins máttleysi i fram- kvæmd riki, þegar á reynir. Vissulega má hafa verið við margháttaða erfiðleika að etja. Hitt ætti öllum að vera ljóst, að þvi aðeins er ein- hver hjálp I neyð , sem þess- ari einhvers virði, að hún berist skjótt. Almannavarnir — það er stórt orð Hákot. En meðal annarra orða: Hvern- ig var hérna á Kötlusvæöinu fyrir nokkrum vikum, þegar húsbruninn varð og búið var að taka úr sambandi loft- skeytatækin I aðvörunar- kerfinu? Voru það ekki tvær vikur, eða máske þrjár, sem verið var aö bisa við að skipta um þau og sambands- laust á meðan? Kötlusvæðið er þó undir sérstakri árvekni almannavarna, að sögn. öll- um er vist ljóst að náttúru- hamfarir gera engin boð á undan sér. Það þýðir litið að segja eins og Jón sterki: „Biddu meöan ég er aö bregða þér!” Eigi slik starf- semi að koma fólki að gagni, þarf að hafa hlutina i lagi og geta brugðist við þannig að haldi komi. Engum er gagn að þvi, að til sé einhver stofnun, sem kafnar undir fögru nafni þegar á reynir. Ætli það sé mikil fró fyrir nauðstadda, þótt einhverjir stjörnumerktir krossriddar- ar birtist, til að glápa á við- urstyggð eyðileggingar? Fráleitt held ég það. Ég hygg, að almenningur hér á landi sé sannariega ekki seinni til aðstoðar i neyðar- tilfellum en almenningur annarra landa. Væri þess þá ekki að vænta, að sú eða þær stofnanir, sem sérstaklega er falið að veita skjóta aðstoð væru ávallt reiðubúnar? Er ekki gengið úr hófi, ef óhöpp, slys og neyð manna er höfð að einskonar fiflskaparmál- um? GOÐFUSLEGA GERIÐ SKIL LANDSHAPPDRÆTTI ALÞÝÐUFLOKKSINS Hafnarfjarðar Apótek Afgreiðslutími: Virka daga kl. 9-18.30 Laugardaga kl. 10-12.30. Helgidaga kl. 11-12 Eftir lokun: Upplýsingasími 51600. BLÓMABÚÐIN ALFHEIMUM 6 SIMI. 33978 _ 82532 BLÓMASKREYTIN&flR ÞAÐ BORGAR SIG AÐ VERZLA f KR0N DUÍIA í ClflEflBflE /ími 84900 Laugardagur 28. desember 1974.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.