Alþýðublaðið - 28.12.1974, Blaðsíða 12

Alþýðublaðið - 28.12.1974, Blaðsíða 12
alþýðu mum Bókhaldsaðstoð meó tékka- færslum BÚNAÐAR- \QJ BANKINN KÓPAYOGS APÓTEK Opið öll kvöld til kl. 7 Laugardaga til kl. 12 e 30 ÁRAHÚMOR PIMM á förnum vegi-------------------------------------------- Fitnaðir þú um jólin? Móöir: „Hárið á þér er allt úfið, Lóa min. Kyssti hann þig gegn vilja þinum?” Lóa: „Hann hélt það vist, mamma”. ♦ Hann: „Kossarnir tala mál ástarinnar”. Hún: „Hvað um það?” Hann: „Við skulum tala um ást”. * „Hættu þessu, Bolli!” „Láttu ekki svona. Þér er ekki alvara”. „Kysstu mig þá aftur og sannaðu til”. V Faðir: ,-,Er hann ekki dálitið fljótur á sér?” Dóttir: „Jú, en samt kemst hann ekki undan! ” * Villi: „Jæja, hvað sagði hún, þegar þú barst upp bón- orðið?” Jónsi: „Ég bað hennar ekki. Aöur en ég komst svo langt, kvaðst hún elska Matthias, Einar og Davið, svo að ég tók þann kostinn að þegja”. * „Er Magga enn að leita að fullkomna manninum sin- um?” „Nei, nú leitar hún bara að eiginmanni”. * „Er ég nógu góður handa þér?” „Nei”, svaraði hún hrein- skilnislega, „það ertu ekki. En þú ert of góður handa öllum öðrum stúlkum”. # Hann: „Þegar ég kvænist, mun ég leiða fagra stúlku og góða matreiðslukonu að altar- inu”. Hún: „Almáttugur! Það væri tvikvæni”. Hann: „Heldur þú, að það sé óheilnæmt að kyssast?” Hún: „Ég veit ekki — ég hef aldrei...” Hann: „Hefur þú aldrei ver- ið kysst?” Hún: „Ég hef aldrei orðið lasin”. „Þú gleymir henni fljótlega og verður jafngóður aftur”. „Nei, þvi miður eru engar horfur á þvi! Ég hef keypt handa henni ósköpin öll, og allt með afborgunum”. (H)RÓS í HNAPPA- GATIÐ KAKTUS- ORÐAN Kaktusinn okkar fell- ur að þessu sinni í skaut borgarstjórnarmeiri- hlutans í Reykjavík með borgarstjóra í broddi fylkingar. Tilefni veit- ingarinnar er, að á tím- um kjaraskerðingar, bindingar vísitölu og sí- hækkaðs verðlags láta kaktushafar sér sæma að nýta til fulls álagn- ingarheimildir á ein- staklinginn, sem laun sín fær frá öðrum, en fella að nýta möguleik- ann á álagningu að fullu á þá sem atvinnurekstur hafa með höndum og skammta sér laun til framtals að eigin geð- þótta. Þegar flestir landsmenn sitja heima og njóta fri- og helgi- daga, er alltaf hópur fólks að störfum. Okkur hættir oft til að gleyma þessu fólki, þegar við strjúkum kýldar vambirnar og hreiðrum um okkur i sófanum — óhult frá dagsins amstri. Og ekkert þykir okkur sjálfsagð- ara, en að þetta fólk sé að störfum fyrir okkur, ef okkur býður svo við að horfa. Það er þetta fólk, sem við veitum siðasta (h)rós ársins 1974 og til að veita (h)rósinu viðtöku völdum við simastúlk- una. Sem annað þetta starfsfólk stendur hún trú sinn vörð, með klemmur um höfuð, og sér til þess að við getum rabbað við vini og ættingja, jafnt fjær sem nær og jafnt á hátiðum sem hvunndags. Það var Bragi Kristjánsson, forstjóri rekstrardeildar Lands- simans, sem nældi (h)rósinni i barm Unnar Þorsteinsdóttur, yfirvarðstjóra. Bragi kvaðst vera glaður að fá tækifæri til þess að veita þeim þessa viðurkenningu og sagði: „Það er mér mikil á- nægja, að veita þessa (h)rós, fyrir hönd Alþýðublaðsins. Hún er ykkur öllum veitt, fyrir að sitja hér og þjónusta okkur hin, meðan við erum heima og etum og drekkum, sofum og látum okkur liða vel”. Rækjustríðið Rækjustriðið er hafið á Húnaflóa, hetjur og vikingar fram til orustu róa, það blikar á vopnin og skipst er á ögrunarorðum og augljóst að dragi til tiðinda rétt eins og forðum. Rækjan er fjarska litil og illa lesin og læðupokast i Flóanum utan við nesin og kann ekki að varast mannanna mein og hrekki og Matthíasar guðspjall skilur hún ekki. En eitt hef ég hugleitt heilmikið núna i vetur hvað þetta litla, örsmáa kvikindi getur vaidið miklum og þrálátum deilum og þrasi og þyngslum fyrir brjóstinu á Matthiasi. Hrund Helgadóttir, nemi: „Hvað heldurðu”. Egill Egilsson, verslunarstjóri: „Það er nefnilega það. Ég bara veit það alls ekki. Ég stig aldrei á vigt eftir jól — ekki fyrr en i febrúar, i fyrsta lagi”. Bryndls Þorsteinsdóttir, hús- móðir: „Ja, ætli ég hafi ekki þyngst um svona hálft kiló”. Kjartan ólafsson, lögreglu- þjónn: „Já, ég hef ábyggilega fitnað. Ætli þaö hafi ekki bæst á ein tvö kiló eða svo”. Elin Davlösdóttir, afgreiðslu- stúlka i Isbúö: „Ég er ekki farin aö athuga það ennþá. Raunar geri ég fastlega ráð fyrir þvi. Hver er það, sem ekki fitnar um jólin?”

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.