Alþýðublaðið - 28.12.1974, Síða 3

Alþýðublaðið - 28.12.1974, Síða 3
VILL VEROA ÍSLEHSKUR DOKTOR 1 LÉNHARÐUR UM PÁSKA ! , ,, Reynt er að stef na að dví, að unnt verði að 5ýna ,,Lénharð fógeta", oegar líður að páskumr sagði Jón Þórarinsson, forstöðumaður lista- og skemmtideildar sjón- varpsins, í viðtali við :réttamann Alþýðu- slaðsins. Eins og áður hefur komið fram, var upphaf lega stefnt að því að hafa Lénharð á skjánum nú um hátíð- arnar en að sögn Jóns hefur því miður ekki verið hægt að vinna sleitulaust að frágangi myndarinnar, en vonast væri til þess, að leikritið yrði búiðtil sýningar um páskana. Mynd þessi sýnir væntanlegan miöbæ Garöahrepps. Skipulag þar verður með öðrum hætti en tiðkast hefur hér á landi. Athafna- og þjónustusvæðið verður afmarkað og lokað allri bilumferð. Frá bila- stæðum á að ganga inn á yfirbyggðar göngugötur. Aðkomuleiðir með vorur verða á hæð þar fyrir neðan. Stefnt er að þvi, að lóðir verði byggingarhæfar þar á þessu ári og er þegar hafin bygging fyrsta hússins, safnaðarheimilis. Verkið er unnið á Teiknistofunni Garðastræti 17, undir stjórn Gests Olafssonar og Pálmars ólasonar Auglýsing um námsstyrki til læknanema gegn skuldbindingu um læknaþjónustu í héraöi Samkvæmt reglugerð um námsstyrki til læknanema gegn skuldbindingu um lækn- isþjónustu i héraði, nr. 130 25. mai 1972, verða veittir námsstyrkir að fjárhæð kr. 200 þúsund til allt að 10 læknanema á árinu 1975. Sá, sem slikan styrk fær, skal vera skuld- bundinn til að gegna læknisþjónustu i hér- aði að loknu námi, samkvæmt nánari ákvæðum reglugerðarinnar og samningi við heilbrigðisráðuneytið. Umsóknir sendist landlækni fyrir 15. janú- ar 1975. Umsóknareyðublöð fást i ráðuneytinu og skrifstofu landlæknis. Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið 28. des. 1974. ,,Ég á i fórum minum heilmikil gögn um sögu utanríkisverslunar Islands, sem ég ætlaði til doktorsritgerðar við Háskóla islands. Svo varð það verk að vikja fyrir samningu bókarinnar um alþjóðabanka- viðskipti og fjármál. Þegar sú bók loksins kom út, var henni svo vel tekið, að mér datt i hug að kannski mætti ég nota hana til doktorsvarnar á íslandi, ekki hvað sist eftir að ég las um danskan mann, sem varði doktorsritgerð við Háskóla Islands, þó ritgerðin fjallaði á engan hátt um Is- lenskt málefni. Og nú er ég að vona, að ég fái að verja þessa bók mina við viðskipta- deild Háskóla íslands og verða, ef vel tekst til, fyrsti doktorinn við þá deild.” bað er bandariski hagfræðingurinn og Islandsvinurinn Robert Fraser, sem svo mælir i viðtali við Alþýðublaðið. Fraser kom fyrst til Islands 1958 og hef- ur siðan gist okkur nær hvert ár. Hann er kvæntur islenskri konu, Hrefnu Kristjáns- dóttur. Hann starfar hjá bandarisku flug- málastjórninni I Washington og er nú að vinna að samantekt um útflutning með flugi fyrir bandarikjastjórn. Bókin, sem Fraser langar til að verða íslenskur doktor út á fjallar sem fyrr seg- ir um alþjóðabankamál og fjármálaheim- inn, en þau fræði kennir Fraser einmitt við bankaskóla þann, sem samtök banda- risku bankanna reka. Bók þessi hefur hlotið mikið lof og góðar undirtektir um öll Bandarikin og viða um heim, þvi að sögn kunnugra er þarna ekki aðeins unv að ræða bók fyrir byrjendur i bankastarf- inu, heldur og itarlega handbók fyrir þá, sem þegar eru að störfum I bankakerfinu, og alla þá, sem starfs sins vegna þurfa á sem gleggstum upplýsingum að halda um hin flóknu fjármálafræði nútimans. Af þeim undirtektum, sem málaleitan hans hefur fengið, kvaðst Fraser vongóð- ur um að hann fengi að verja framan- greint rit sitt við Háskóla Islands, enda þótt þeir Islensku bankar, sem bókin hef- ur verið kynnt, væru meðal fárra fjár- málastofnana i heiminum, sem ekki hafa tryggt sér eintök af bókinni. „Það er ekki nóg með að húsið verði svart af sóti heldur er mjöl og lýsislykt yfirþyrm- andi i ibúðunum”, sagði Sig- urður Guðmundsson, einn af ibúum hússins að Grandavegi 39, i viðtali við Alþýðublaðið i gær, en reykur frá húsi Lýsis h.f. og Fóðurblöndunnar h.f. varð þess valdandi að Grandavegur 39 varð svartur nú skömmu fyrir jól og er enn mjög skellóttur. „Þetta hefur oft komið fyrir áður”, sagði Sigurður enn- fremur, „en nú keyrði þó um þverbak. Húsið varð alsvart, gluggar og veggir jafnt. Þessi reykháfur sem á verksmiðj- unni er, gerir ekkert gagn, enda ekki nema stubbur — rétt i kaffibrúsahæð á þakinu. Við höfum ekki reynt að kvarta til forráðamanna þessara fyrir- tækja nú, heldur köllum á lög- reglu og þeir kváðust ætla að gefa skýrslu um þetta. Það var hérna fyrir nokkru, að bif- reið varð alsvört af reyk frá þeim, en þegar kvartað var við forráðamenn fyrirtækj- anna voru svörin skilaboð um að þvo bilinn.” Skýrsla lögreglunnar um mál þetta var i gær komin til Sakadóms, en ekki ljóst hverja meðferð hún myndi fá. Þannig liggur mengunin frá verksmiðjunum enn á húsi og bll að Grandavegi 39. Eigum viö aö trúlofa okkur? þessi auglýsing er ætluð ástföngnu fólki úti á landi. Kaeru •Iskcndur! Það er nú, sem við i Gutli og Sillri gelum gert ykkur það kteifl að hrlngtrúlofast innan nokkurra daga, hvar sem þið eruð stödd á landinu. 1. Hringið eða skrifið eftir okkar fjólbreytta myndalista sem innlheldureitt falleg- asfa úrval trúlofunarhringa sem vo! er á og vcrður sendur ykkur innan klukkust. 2. Með myndalistanum fylgir spwld, gatað i ýmsum stærðum. Hvert gat er núm- erað og með þvi að stinga baugfingri i það gat sem hann passar i, finnið þið róttu stsrð hringanna sem þið aitlið að panta. 3. Þegar þið hafið valið ykkur hringa eflir myndalislanum skuluð þið skrifa niður númerið á þeim, ásami slærðarnúmerunum og hringja til okkar og við sendum ykkur hringana strax i póstkröfu. Meö beztu kveðjum, dull 00 ^tlíur Laugavegi 35 - Reykjavik - Sími 20620 Laugardagur 28. desember 1974. o

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.