Alþýðublaðið - 23.01.1975, Síða 5
'
Ctgefandi: Blað hf.
Framkvæmdastjóri: Ingólfur P. Steinsson
Ritstjórar: Freysteinn Jóhannsson (ábm)
Sighvatur Björgvinsson
Auglýsingastjóri: Fanney Kristjánsdóttir
Afgreiðslustjóri örn Halldórsson
Hitstjórn: Skipholti 19, simi 28800
Auglýsingar: Hverfisgötu 8—10, simi 28660 og 14906
Afgreiðsla: Hverfisgötu 8—10, simi 14900
Prentun: Blaðaprent hf.
LODNUSOLUMALIN
Eftir mikil fundahöld og nokkru eftir, að
loðnuveiðar voru hafnar, tókst loks að ákveða
loðnuverðið. Akvörðunin var gerð i yfirnefnd
með atkvæðum fulltrúa seljenda og þjóðhags-
stjóra gegn atkvæðum fulltrúa kaupenda. Engu
að siður eru seljendur og þá einkum og sér i lagi
sjómenn óánægðir með verðákvörðunina. Verð-
ið hefur lækkað töluvert mikið frá þvi i fyrra og
mun það að sjálfsögðu rýra til muna afrakstur
útgerðarinnar og hlut sjómannanna.
A umliðnum árum hefur loðnan að mjög veri-
legu leyti komið i stað sildarinnar fyrir islensk-
an útveg. Loðnuaflinn hefur verið mikill og
loðnuafurðir skapað þjóðarbúinu miklar tekjur.
Veiði og vinnsla loðnu hafa staðið undir ýmsum
öðrum greinum útvegs. Loðnuútgerðarmenn <j>g
sjómenn á loðnuveiðum hafa verið skattlagðir
fyrir aðra, og er það i sjálfu sér ekki svo óeðjli-
legt þegar tekið er tillit til slæmrar afkomu ut-
vegsins i heild og þeirra miklu uppgripa, sem
verið hafa hjá mörgum, sem loðnuveiðar halfa
stundað. |
En nú virðist þessu timabili vera lokið þar
sem loðnuveiðarnar höfðu slika yfirburði
framyfir aðrar greinar útvegsins. Verð á loðnu-
afurðum hefur lækkað mjög erlendis og okkur
skorti framsýni til þess að semja um sölu á þeim
afurðum á s.l. vetri á meðan verðið var enn við-
unandi. í stað þess að selja við þvi verði, sem þá
var i boði, var tekin sú áhætta að biða og sjá,
hvort enn væri ekki hækkana að vænta. Sú bið
kostaði þjóðarbúið mikið fé, þvi i stað þess að
hækka fór verðið ört lækkandi. Slikt áhættuspil
hefur oft leikið okkur íslendinga illa eins og
reynslan sýnir og einmitt af þeim orsökum hef-
ur verið komið á fót i flestum öðrum vinnslu-
greinum sjávarafurða sölusamtökum til þess að
samræma sölumálin þannig, að óþarfa áhætta
sé ekki tekin. Hafa sölusamtökin vfirleitt gefið
góða raun og myndu fæstir vilja hverfa aftur til
gamla skipulagsins, þar sem svo til hver og einn
verkandi varð sjálfur að selja framleiðslu sina.
Það er áreiðanlega orðið timabært að taka
upp svipað skipulag i sölu á loðnuafurðum —
þ.e.a.s. að mynda heildarsölusamtök er móti
stefnuna i sölumálum þessarar atvinnugreinar.
Mjög mikið af loðnunni er unnið i verksmiðjum,
sem islenska rikið á, og þvi væri eðlilegt, að
rikisvaldið sjálft hefði frumkvæði um stofnun
sölusamtaka loðnuvinnslustöðva komi slikt
frumkvæði ekki annars staðar frá. Hér er um
svo mikilvæga atvinnugrein að ræða fyrir þjóð
arbúið, að við getum ekki látið sölumál hennar
reka á reiðanum heldur ber brýna nauðsyn til
þess að þau séu samræmd eins og verða myndi,
ef stofnuð yrðu sölusamtök um sölu loðnuaf-
urða. Slikt væri haldbesta leiðin til þess að koma
i veg fyrir það, að óþarfa áhætta yrði tekin i
sölumálum þessarar vinnslugreinar, sem haft
getur ófyrirsjáanlegar afleiðingar fyrir vinnslu-
stöðvar, útveginn og þjóðarbúið i heild.
Ef við ekki reynum að samræma stefnu okkar
i sölu- og markaðsmálum heistu útflutningsaf-
urða landsmanna getur svo farið, að einstakir
útflytjendur gripi til þess ráðs að undirbjóða
hver annan. Mest er hættan á þvi, þegar erfið-
lega horfir um sölumálin. öll rök benda þvi til
þess, að okkur beri að samræma sölustefnuna i
loðnuafurðunum enda höfum við góða reynslu af
slikum sölusamtökum á öðrum sviðum.
frá
SUJ
Sambandi ungra jafnaðarmanna
Umsjón:
Lárus Guðjónsson
Slfellt bætist viö á vinnu-
markaöinum ungt fólk, og
gengur það sjálfkrafa I við-
komandi stéttarfélag þeirrar
atvinnugreinar er það stund-
ar. Fljótlega rekst þetta unga
fólk harkalega á alla þá ag-
núa, sem eru á kjörum alís
meginþorra verkafólks. Lé-
legan vinnuaðbúnað sem birt-
ist I ónógum hollustuháttum á
vinnustað, ófullnægjandi ör-
yggisútbúnaði gegn slysum
o.s.frv. Eins og heilbrigðu
ungu fólki sæmir veröur það
reitt og hneykslað á óréttiæt-
inu, og fer fram á breytingar
til batnaðar. En fæst af þessu
unga fólki sem er að hefja lifs-
baráttuna þekkir inn á kerfið,
og veit hvert það á að snúa sér
með umkvartanir sinar.
Jón Jónsson er ágætt dæmi
um svona uppákomu. Hann er
18 ára og hefur starfað á fisk-
verkunarstöð siðan hann lauk
gagnfræðaskóla.
Jón tók eftir þvi þegar hann
fór að lesa siðustu samninga,
að eftir þeim að dæma var
hreinlætisaöstöðu mjög ábóta-
vant. Vatn var sjaldan heitt i
krönum og klósettin sjaldan
þrifin. Þegar Jón i hneykslan
sinni snyr sér til eldri og
reyndari vinnufélaga sinna,
kemur babb i bátinn. Hann fær
upptalninguna gömlu um upp-
reisnaranda unga fólksins, á-
byrgöarleysi, frekju og eigin-
girni. Honum er sagt að litið
hefði orðið úr honum veturinn
1942, þegar oft þurfti að brjóta
isinn af tunnunni sem notuð
var til þvotta.
Nú varð Jón reiður. Hann
les samningana enn betur og
rekur þá augun i það, að á
hverjum vinnustað skuli vera
trúnaðarmaöur, sem sjá eigi
um að gerðum samningum
skuli framfylgt. Jóni léttir
mikið við þessar upplýsingar
og aflar sér þegar vitneskju
um, hver sé trúnaðarmaður
verkalýðsfélagsins á staðnum,
og heldur á hans fund.
Trúnaðarmaðurinn varð
Jóni nokkur vonbrigði, þvi
hann var orðinn nokkuð gam-
all og hafði liklega verið einn
af þeim, sem þvoðu sér upp úr
tunnunni frosnu veturinn 1942.
Jón lét ekki á vonbrigðum sin-
um bera vegna þess, að trún-
aöarmaðurinn var einn elsti
starfsmaður fyrirtækisins og
yrði þvi illa séð ef hann yrði
móögaður. En trúnaðarmað-
urinn var Jóni til mikillar
gleði alveg sammála I öllum
höfuöatriðum, og lofaði að at-
huga málið. Nú hélt Jón að öll-
um raunum sinum væri lokið.
Málið var komið i hendur
trúnaðarmannsins og hann
var jú fulltrúi verkalýðsfé-
lagsins á staðnum.
En það liður og biður og
ekkert gerist i þá átt að hrein-
lætisaðstaðan batni. Jóni likar
ekki þessi seinagangur, og
heldur aftur til fundar við
trúnaðarmanninn, og spyr tið-
inda. Trúnaðarmaðurinn segir
þá Jóni, að málið sé ekki eins
einfalt og ætla mætti við fyrstu
sýn. Hann hafi farið og rætt
þetta við forstjórann, en for-
stjórinn tjáöi honum að þetta
væri ýmsum annmörkum háð.
Lagfæring á heita vatninu yrði
það kostnaðarsöm, að fyrir-
tækið hefði ekki ráð á þvi i bili.
Jón
Allir vissu að fyrirtæki er
snéru að sjávarútvegi væru
það skuldug. Ekki var heldur
hægt að taka neinn innan
fyrirtækisins til að þrifa kló-
settin þvi manneklan væri það
mikil við framleiðslustörfin,
og of dýrt væri að ráða til þess
sérstaka manneskju.
Þetta kom Jóni mjög á ó-
vart, og hann spurði trúnaðar-
manninn hversvegna hann
hefði ekki talað við verkalýðs-
félagið? Hann væri fulltrúi
þess og honum bæri að gæta
hagsmuna verkafólksins á
vinnustaðnum.
Nú varö trúnaðarmaðurinn
örlitið reiður. Hann benti Jóni
á það, að hann væri búinn að
vinna þarna I 30 ár og hefði
veriö laus við vesen allan þann
tima. Og ef Jón hafi svona
mikinn áhuga á að gerast
verkalýðsfrömuður, skuli
hann gera þaö á fundum hjá
verkalýðsfélaginu.
Og Jón fór á fund. Hann var
staöráöinn i þvi að fá heita
vatnið sitt og hreina klósettið.
A fundinum voru fáir. Það
fór svolitill glimuskjálfti um
Jón þegar fundurinn hófst, og
þar fóru menn upp i ræðupúlt
og héldu ræður. Alltaf þegar
maður var i ræðustólnum ætl-
aði Jón aö verða næstur. En
þannig fór að lokum aö hann
kiknaði undir þeirri hugsun að
standa þar sjálfur og tala.
Fundinum lauk án þess að Jón
ræddi um vandamál vinnu-
staöar sins, og enn notar hann
óhreina klósettiö og þvær sér
upp úr köldu vatni.
Þannig fór þetta með Jón,
og þeir eru margir Jónarnir.
Verkalýðshreyfigin biður ó-
metanlegt tjón með þvi að
reyna ekki að ná til ungs fólks
sem nýgengiö er i hennar rað-
ir, og skóla það til félagslega.
Þaö er ekki nóg að auglýsa
einhver námskeið i blöðum og
á kaffistofum. Verkalýösleið-
togar verða að gefa sér tima
til að koma á vinnustaði og
ræöa við öll þau nýju ungu
andlit sem þeir sjá, um kjör
þeirra, sem verkafólks, fram-
tið þeirra sem verkafólks og
þá þörf, sem verkalýöshreyf-
ingin hefur fyrir það sem
virka félaga.
Sú spurning hlýtur að
vakna, hvort verkalýösfélög
ófaglæröra verkamanna gætu
ekki tekið upp svipað fyrir-
komulag og iðnnemafélögin. 1
þeim er mestmegnis mjög
ungt fólk, og þeim er stjórnað
oft á tiöum af ungmennum um
tvitugt af mikilli röggsemi.
Þar lærast undirstöðuatriöi
verkalýösbaráttu og stjórnun-
ar, og ræðupúltið breytist úr
gapastokk i ákjósanlegan
stað, til að segja meiningu
sina. Ef Jón hefði fyrst verið i
sliku félagi, hefði hann bæði
fengiö heita vatnið sitt og
hreina klósettið.
FLOKKSSTARFIÐ
Kvenfélag Alþyöuflokksins i Reykjavik
FÉLAGSFUNDUR
Kvenfélag Alþýðuflokksins i Reykjavik minnir
félagskonur á fundinn i Félagsheimili prentara
við Hverfisgötu i kvöld kl. 20,30.
GESTUR FUNDARINS
VERÐUR BENEDIKT GRÖN-
DAL, FORM. ALÞÝÐU-
FLOKKSINS.
Félagskonur! Mætið vel og
stundvislega.
STJÓRNIN
ísfirðingar og nágrannar
STJÚRNMALAVIÐHORFIÐ
Alþýðuflokksfélag tsafjarðar boðar til fundar nk. laugardag, 25.
janúar, kl. 16.00 I Alþýðuhússkjallaranum, gengiö um aðaldyr.
FUNDAREFNI:
1. Sighvatur Björgvinsson, alþm., segir frá
þingmálum og þá einkum hlut Vestfjarða I
nýsamþykktum fjárlögum. Einnig ræöir
hann viðhorfin framundan.
2. önnur mál.
Athugið! Allt stuðningsfólk Alþýöuflokks-
ins á isafirði og i nágrenni er velkomið á
fundinn auk flokksbundins fólks.
STJÓRNIN
Fimmtudagur 23. janúar 1975.
o