Alþýðublaðið - 26.02.1975, Blaðsíða 2
STJÓRNMÁL
út i ófæruna
í umræðum þeim, sem
fram hafa farið um landbún-
aðarmál, hefur það m.a.
komið fram, að tekjur þær,
sem við höfum af útfluttum
landbúnaðarafurðum, nægja
ekki einu sinni til þess að
standa undir kostnaði við
þær innfluttu rekstrarvörur
— s.s. áburð — sem þarf til
þess að framleiða þessar af-
urðir. Það er ekki aðeins, að
þau gæði, sem eru af inn-
lendum rótum runnin og var-
ið er til landbúnaðarfram-
leiðslunnar — s.s. eins og
vinna bóndans og fjölskyldu
hans, landnytjarnar sjálfar
o.s.frv. — fáist ekki greiddar
að neinu leyti, þegar við selj-
um afurðirnar út. Þær inn-
fluttu rekstrarvörur, sem við
notum til þessarar fram-
leiðslu, fást ekki einu sinni
greiddar. Þetta sýnir i hvað
óefni er komið.
Nú hefur verið skýrt frá
þvi, að hluti þessara inn-
fluttu rekstrarvara — áburð-
urinn — hafi hækkað um
125%. Og þá vaknar sú
spurning hvort lengra eigi að
halda út i ófæruna. Verði
ekkert að gert þurfum við á
yfirstandandi ári að borga
talsvert á annan milljarð i
útflutningsuppbætur með út-
fluttum landbúnaðarafurð-
um og tekjurnar i erlendum
gjaldeyri, sem við fáum fyrir
þennan útflutning, munu eft-
ir áburðarverðshækkunina
ekki nægja nema til þess að
greiða brot af kostnaðinum
við þær innfluttu rekstrar-
vörur, sem þarf til þess að
framleiða þessar afurðir. Er
virkilega hægt að ætlast til
þess, að islenskir launþegar,
sem á rösku hálfu ári hafa
verið sviptir þriðjungi af
launatekjum sinum, séu
látnir standa undir slikri vit-
leysu? A það virkilega að
viðgangast, að nokkuð á anii-
an milljarð af skattpening-
um almennings renni til þess
að greiða útflutningsuppbæt-
ur i offramleiðslu landbún-
aðarvara þegar þessi sama
offramleiðsla skilar ekki
einu sinni til baka i þjóðar-
búið þeim gjaldeyri, sem
varið var til kaupa á erlend-
um rekstrarvörum til fram-
leiðslunnar?
Skynsemi veröur að
ráða
Það má vel vera, að i ein-
stökum góðærum séu íslend-
ingar svo rikir, að þeir geti
þannig bókstaflega talað
kastað peningunum út um
glugga. En þegar að kreppir
eins og nú verður að leyfa
skynseminni að ráða.
Alþýðublaðið og Alþýðu-
flokkurinn hafa margoft var-
að við hættunni af hinni
röngu landbúnaðarstefnu —
hættunni fyrir bændur, hætt-
unni fyrir neytendur og hætt-
unni fyrir þjóðarbúið. Væri
ekki ráð að fara nú að leggja
eyrun við slikum varnaðar-
orðum?
SB
ASÍ:
Ríkisstjórnin notar
Norðf jarðarslysin
sem skólkaskjól til
að skerða tekjur launa-
fólksins í landinu
söluskattsprósentu, sem til hans
rennur sé fyllilega nægilegur
tekjustofn til þess að hann geti,
með eölilegri timabundinni
lánsfjáröflun, staðið við allar
skuldbindingar sinar gagnvart
Vestmannaeyingum og jafn-
framt bætt fjárhagstjón það,
sem varð af náttúruhamförun-
um i Neskaupstað, svo sem
sjálfsagt er. Tilgangur þessarar
skatthækkunar er þvi sá einn að
skerða tekjur launafólks, þótt
Norðfjarðarslysin séu notuö
sem skálkaskjól fyrir henni:
Miðstjórn og samninganefnd
Alþýðusambands islands skora
þvi á hæstvirt Alþingi að fella
skattlækkunarákvæði frum-
varps þessa.”
„REKINN FYRIR OF
GOTT STARF"
Miöstjórn og samninganefnd
ASÍ, sem kvaddar voru saman
til fundar þriðjudaginn 25.
febrúar, vegna framkomins
frumvarps rikisstjórnarinnar
,,um ráðstafanir vegna snjó-
flóða i Norðfirði og fjáröflun til
Viðlagasjóðs” samþykkti ein-
róma að senda Fjárhags- og
viðskiptanefnd Neðri deildar
Alþingis meðfylgjandi bréf.
„Miðstjórn og samninganfnd
Alþýöusambands tslands mót-
mæla harðlega þeirri hækkun
söluskatts, sem felst i frum-
varpi til laga um ráðstafanir
vegna snjóflóða I Norðfirði og
fjáröflun til Viölagasjóðs, sem
lagt var fram á Alþingi I dag.
Miðstjórn og samninganefnd
telja, að framlagning og
hugsanleg samþykkt þessa
skatthækkunarfrv. hafi mjög
spillt samningamöguleikum
aðila vinnumarkaðarins, ásamt
almennt neikvæðum undirtekt-
um rikisstjórnarinnar um
sparnað i rikissrekstri, sem
variö yrði til lækkunar á skött-
um láglaunafólks, og það gæti
metiö sem þátt I iausn kjara-
mála.
Miðstjórn og samninganefnd
ASl hafa kynnt sér stöðu Við-
lagasjóðs og hafa sannfærst um,
að tekjur hans af framlengdri
Arið 1974 var dreift úr flugvél-
um Landgræðslu rikisins 2249.16
tonnum af áburði og fræi, sem
skiptist þannig:
tonn %
1 landgr.girð....1257,20 55,9
Abeitilönd........639,43 28,4
A afréttarlönd....124.00 5,5
Vestm.eyjarog
annað.............228,53 10,2
Alls 2249,16 100,0
1973 var alls dreift úr flugvél-
um Landgræðslunnar 1430.61
tonni af áburði og 20.34 tonnum
af fræi eða samtals 1451,05 tonn-
um. Aukningin frá 1973 er þvi
798.11 tonn eða um 55%.
Minni flugvélin, TF-TÚN,
hóf dreifingu 2. mai flugmaður
var sá sami og undanfarin ár,
Sigurjón Sverrisson. Vélin lauk
störfum 26. júli og hafði þá alls
flogið 233 klst. og 25 min., dreifði
704.05 tonnum af áburði og 27.11
„Það sem hleypti þessum
hita i málin, voru alls ekki
deilurnar um þessa frönsku
ferðamannahópa, heldur
valdahlutfalladeila sem runn-
in er frá Sigurði Jóhannssyni
og þegar samþykkt var að
framkvæmdastjóri megi ekki
sitja i stjórn félagsins, þá var
þvi beint til min persónulega,
þannig að ég gat ekki annað en
sagt af mér”, sagði Einar
Guðjónssen, framkvæmda-
stjóri Ferðafélags íslands, i
viðtali við Alþýðublaðið i gær,
en deilur þær sem undanfarið
tonnum af fræi, samtals 731,16
tonn, sem skiptist þannig:
tonn
Landgræðslugirðingar ... 193,20
Beitilönd..............345.43
Vestmannaeyjar.........192.53
Alls. 731.16
Stærri vélin, TF-NPK, hóf
dreifingu 27. mai. Atvinnuflug-
menn flugu vélinni eins og 1973 i
sjálfboðavinnu. Vélin lauk
störfum 2. ágúst og hafði þá alls
flogið 212 klst. og 45 min., dreifði
1476.6 tonnum af áburði og 41.4
tonnum af fræði eða samtals
1518.0 tonnum, sem skiptist
þannig:
tonn
Landgræðslugirðingar.....1064
Beiðilönd................ 294
Afréttarlönd............. 124
Annað..................... 36
Alls. 1518
hafa staðið innan stjórnar fé-
lagsins enduðu á aðalfundi
þess, með þvi að Einar sagði
starfi sinu lausu.
Einar sagði ennfremur:
„Deilur þær sem risið hafa
út af þessum Frökkum, eru
ýktar og málið hefur verið
blásið mikið út. Staðreyndin
er sú að þessir hópar eru um
5% af farþegum félagsins, en
frá þeim kemur um helmingur
tekna þess. Skrifstofan hefur
ekki þurft að sinna þeim neitt,
það hef ég gert persónulega,
og það er alrangt að þeir hafi
tekið upp pláss i skálunum
fyrir tslendingum. Þetta fólk
er með sin eigin tjöld og þvi ó-
háð skáladvöl, en það hefur
aftur á móti komið fyrir að
aðrir stjórnarmeðlimir hafi
jafnvel rekið íslendinga úr
skálum, til þess að koma sin-
um útlendingahópum inn. Það
hefur ennfremur verið bent á,
i þessu sambandi, að tilgangur
félagsins sé ekki að græða
penlnga, en ég vil þá benda á,
að eftir liggja engir peningar,
þvi þeir hafa allir verið lagðir
i skála.
Raunar er ekki annað um
málið að segja en það, að ég
hef verið rekinn út á gaddinn,
ekki fyrir falsanir eða slælega
frammistöðu, heldur fyrir að
vinna of vel og það að félagið
hefur gengið of vel meðan ég
hef verið framkvæmdastjóri.
á honum. Nú geta þeir horfið
frá þeirri stefnu sem ég hef
fylgt, sem raunar er sú sem
alltaf hefur verið i gildi, og
farið i staðinn að reka félagið
með tapi. Ætli úrræðið hjá
þeim verði svo ekki að komast
á riflegan rikisstyrk — það er
vaninn hjá flestum”.
Alþýðublaðið hafði einnig
samband við Sigurð Jóhanns-
son, forseta Ferðafélagsins,
en hann vildi ekki tjá sig um
málið að svo stöddu.
2249 TONNIIM AF ÁBURDI
OG FRÆi DREIFT 1974
Ætli þaö sé gátan um dularfull dufl, og
tæki i Kleifarvatni, sem þeir Sérleifur
Ishólm og Hektor Oddson, leynilög-
reglumenn Leikfélags Reykjavikur,
eru þarna að leysa? Hvað sem þvi lið-
ur þá eru þeir nú fluttir úr Iðnó með sin
tslendingaspjöll vegna þrengsla i leik-
Lopasamkeppni
„Ætlun okkar með samkeppninni sem
nú er i gangi, er að fá hugmyndir
um fallega og söluhæfa muni úr þeim
tegundum Alafosslopa, sem á boð-
stólum er”, sagði Unnur Konráðsd.
verslunarstjóri við blaðið i gær. „Við
teljum meira virði að fá fullunna muni
en t.d. mynstur, sem uppteiknuð væru,
þvi að það er reynslan, að jafnvel á-
gætustu handavinnukonur veigra sér
við þvi að senda teikningar. Það get-
RÍKISSJÓÐU
FULLTRUUM
ÞINGI OG
KAUP FYRIR
Þeir 25 fulltrúar, sem nú sitja að
störfum á Búnaðarþingi, fá greitt úr
rikissjóði kaup fyrir fundarsetuna og
þiggja sömu laun fyrir og alþingis-
| Virka daga kl. 9-18.30
p Laugardaga kl. 10-12.30.
U Helgidaga kl. 11-12 p
j§ Eftir lokun: $
Upplýsingasími 51600. ||
I,,, .. , .... 1 |---Xvv--------4. I BLÓM ABÚÐI N | Ag
| Hafnarijarðar Apotek ^ I /\\\ m s „ II_______- _ _ |||
Afgreiðsiutími: S
Virks dflas k
I
ALFHEIMUM 6
SÍMI: 33978 — 82532, jg
BbÓMASKREYTINEflR -
I
i
ÞAÐ B0RGAR SIG
AÐ VERZLA i KR0N
%
| VÍ —------------ ir, UUUI‘manF\i: I I IIlKrilH ^ iimrMimiri—iimm 1111II |
punn
í GUEflBflE
/ími 64200
%
&
8
Miðvikudagur 26. febrúar 1975