Alþýðublaðið - 29.04.1975, Blaðsíða 12

Alþýðublaðið - 29.04.1975, Blaðsíða 12
alþýðu II KTíTTil NastM Iif PLASTPOKAVERKSMIÐJA Sítnar 82639-82655 Vatnogörbum 6 Box 4064 — Reykjavtk ÆFINGIN TÚK SKEMMRI TIMA EN RÁDGERT VAR „Viö höfðum áætlað lengri tima I að koma öllum af slysstað og talið að allt að einum og hálf- um tima væri mjög gott,” sagði Guðjón Petersen hjá Almanna- vömum i símtali við Alþýðu- blaðið i gær. Almannavarnir efndu á laug- ardaginn til mikillar æfingar . A lóð Hliðarskóla var sett á svið stórslys. Aðkoman að slysstaðn- um var ömurleg þegar blaða- mann Alþýðublaðsins bar að lið- lega hálf ellefu. Slasaðir, deyj- andi og dánir dreifðir yfir austurhluta lóðarinnar, sumir stynjandi, aðrir kölluðu eftir hjálp hástöfum, og nokkrir létu ekkert á sér kræla. Verið var að hlúa að hinum slösuðu með teppum. Sjúkrabilar og slökkvi- bilar með blokkandi neyðarijós innan girðingarinnar og lög- reglufarartæki dreif að. Það fór ekkert á milli mála, hvað hverjum var ætlað að gera. Lögreglan girti af svæðið og beindi frá nokkrum hópi áhorf- enda sem drifið hafði að. Það voru 108 skátar, sem tóku að sér að leika þá slösuðu. Þeir komu saman i Hliðaskóla snemma morguns og þar bjuggu læknanemar þá út með slysasár, beinbrot og ýmsa likamlega kvilla sem illa þola óvænt áföll. Siðan var þeim dreift um svæðið og stórslys til- kynnt klukkan hálf ellefu. Fjór- um minútum siðar kom fyrsti sjúkrabillinn á vettvang og hófst þá aðhlynning þeirra slösuðu. Siðan kom lögregla, björgunarsveitir og hjálpar- sveitir. A slysstað voru þeir slösuðu greindir og'sagt fyrir um hvert skyldi flytja þá. Fyrsti sjúkling- urinn fór átján minutum eftir tilkynningu og sá siðasti 65 minútum eftir að fyrsta til- kynning barst. Um orsök þessarrar hröðu „tæmingar” slysstaðarins sagði Guðjón Petersen: „Það hjálpaði mikið hversu vel almenningur sem þarna var af tilviljun og fylgdist með, hagaði sér. Það var mikið til bóta, hversu vel hann virti allar afmarkanir þó ekki væru þær nema kaðal- spotti. Þá hjálpar það svona til- fellum að fréttastofur eru með menn á staðnum, þá sér fólk og veit að það fær fréttir af at- burðinum i fjölmiðlum. Sjálfsagt hefði timinn orðið lengri hefði verið um raunveru- legt slys að ræða, til dæmis að hreinsa hefði þurft brak eða rústir á slysstað til að komast að þeim slösuðu.” Æfing þessi var fyrst og fremst gerð til að fá fram ann- marka á þeirri áætlun, sem Al- mannavarnir hafa til að vinna eftir, verði um stórslys að ræða á höfuðborgarsvæðinu. Við innt- um Guðjón eftir þeim: „Það er tvennt sem fyrst og fremst þarf að bæta. Það er greining slasaðra á slysstað. Hún gekk ekki nógu hratt fyrir sig auk þess sem merkingar slasaðra voru ekki nógu skýrar eftir greininguna, en úr þeim ágalla tókst okkur að bæta aö nokkru strax. Þá olli lélegt fjarskipta- samband vandræðum. Það þarf að auka, bæði milli okkar og sjúkrahúsanna og milli sjúkra- húsanna innbyrðis. Þetta olli þvi að Landakot fékk tiltölulega fáa sjúklinga, en Landsspitalinn kvartaði undan of hörðu streymi. Þegar þessar upp- lýsingar bárust okkur var of seintað bæta úr, þvi að svo fáir sjúklingar voru eftir.” Læknanemarnir sem út- bjuggu sárin og sögðu fyrir um sjúkdómana, fylgdust með þeirri aðhlynningu sem sjúklingamir fengu á slysstaðn- um og aðgættu hvort rétt væri að farið Þeirkváðuupp úr með það strax á augardag að frammistaða björgunarmanna hefði verið frábær. Sjúkrahúsin og aðrir aðilar, sem þátt tóku i æfingunni, eru nú að vinna úr slnum skýrslum þannig að eftir þessa æfingu ætti allt að vera betur I stakkinn búið með að bregðast við fjöldaslysi. KÓPAV06S APÓTEK Opið öll kvöld til kl. 7 Laugardaga til kl. 12 SfcNDIRIL ASTÖÐIN HF FJORAR SIÐUSTU SKAKIR FRIÐRIKS Hér fara á eftir fjórar síðustu skákir Friðriks ólafssonar frá skákmót- inu á Las Palmas i síðustu viku. Eins og fram hefur komið í frétt- um yfir helgina hafnaði Friðrik í 5.—6. sæti, en Anderson vann biðskák sína úr síðustu umferð eftir að Alþýðublaðið fór i prentun á föstudags- kvöld/ og var þvi þá ekki vitað hvort honum tækist að skjótast upp fyrir Friðrik í lokin. Hvitt: Fernandes Svart: Olafsson Sikileyjarvörn 1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 e5xd4 4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 al6 6. Be2 e5 7. Rb3 Be7 8. g4 h6 9. h4 Be6 10. Bf3 Rbd7 11. Be3 Rb6 12. De2 Rc4 13. 0-0-0 . RxBe3 14. f2xRe3 Rd7 15. Df2 b5 16. Rd5 a5 17. Be2 Hb8 18. Kbl a4 19. Rd2 a3 Pomar fær sér kaffibolla eftir jafnteflið við Friðrik. 20. Dxa3 Rc5 3. Bb5 a6 21. Del BxRd5 4. Ba4 Rf6 22. exd5 De7 5. 0-0 Be7 23. Df2 Ra4 6. Hel b5 24. Re4 b4 7. Bb3 d6 25. Hdfl 0-0 8. c3 0-0 26. Bd3 Dxa3 9. h3 Be6 27. Kcl Rb2 10. d4 BxBb3 28. Dd2X Db6 11. DxBb3 d5 29. Dc3 Dxe3+ 12. dxe5 Rxe4 30. Rd2 e4 13. Rb-d2 Re4-Rc5 31. Hel Rx(B)d3+ 14. Dc2 Dd7 32. c2xRd3 Db6 Jafntefli. 33. Hxe4 Bf6 34. Dc2 Da5 Hvitt: Friðrik 35. Rv3 Dxd5 Svart:Cardoso 36. Hc4 DxHhl+ Kóngsindversk vörn. 37. Gaf. 1. d4 g6 HvitbMecking 2. c4 c6 Svart: Ólafsson 3. Rc3 Bg7 Spánskur leikur 4. e4 d5 5. e5 Be6 1. e4 e5 6. cxd5 Bxd5 2. Rf3 Rf6 7. Rg-e2 Rh6 8. RxBd5 9. Rc3 10. Bc4 11. Be3 12. Bb3 13. 0-0 14. a4 15. Re4 16. Rg5 17. Df3 18. De4 19. e6 20. ' Bcl 21. g4 22. Rf3 23. HxRd4 24. HxB 25. Df4 26. BxR 27. Dd2 28. Hf4 29. Hf6 30. Rd4 31. Df4 Hvitt: Friðrik Svart: Bellon Sikileyjarvörn 1. e4 2. Rf3 3. d4 4. c3 5. c3xd4 6. e5 7. Rb-d2 8. Bb5 9. Da4 10. 0-0 11. BxR 12. Ddl 13. Rb3 14. De2 15. axB 16. Dd3 17. Rg5 18. Rf3 19. HalxB 20. de3 21. HxH 22. Hcl 23. h4 24. b4 .25. Hc5 26. h5 27. Db3 28. Rxg5 29. Ddl 30. DxR 31. f3 32. Hc7 33. Dc5 34. Kh2 35. Hc8+ 36. De7 + 37. Dxe6+ 38. Hh8 39. Dh3+ e619. Ha-dl DxRd5 Dd7 Rf5 b6 Ra6 0-0 b4 Ha-d8 Rc7 Rd5 Bh6 Ha-dl Rd-e7 Rxd4 Dc7 BxBcl a5 Rd5 e6xB Db6 Kg2 Hc8 Hf-e8 gefið c5 g6 Bg7 c5xd4 d5 Bg4 Rc6 Db6 Hc8 Bd7 HxB Bf5 Bc2 BxR a6 Bh6 f6 BxB f5 e6 DxH Dd7 Re7 0-0 Rc6 f4 g5 Rxd4 Dg7 DxR Dxh5 Df5 Dbl + Hf5 Kg7 Kh6 Kh5 Hg5 gefið fimm á förnum vegi Hvernig líst þér á hækkun verslunarálagningar? Valbjörn Eggertsson, sjónvarpsvirki: Ég er alveg hættur að versla, það er allt orðið' svo dýrt! Annars veitir kaupmönnunum vafalaust ekki af þessu — þeir hafa barmað sér svo mikið, að afkoma þeirra hlýtur að vera slæm. Margrét Grimsdóttir, hús- móðir: Það er náttúrlegar best að fá allt sem ódýrast. En kaup- menn verða liklega að fá sinar launahækkanir eins og aðrir, þegar allt hækkar. Þorbjörg llalldórsdóttir, af- greiðslustúlka: Mér finnst þetta bara alveg agalegt! Ég er á móti öllum hækkunum, hvaða nafni sem þær nefnast, — og mér finnst bara ekkert gaman að vera sifellt að hækka verðið á vörunum, sem ég afgreiði. Öskar Hallgrimsson, bankastjóri: Var þetta ekki óumflýjanlegt? Þegar hækkanirnar hrannast saman kemur einhvern timan að þvi, að stiflan brestur. Svava Sigurgeirsdóttir, fyrr- verandi ræstingakona: Ætli það þýði nokkuð fyrir okkur að segja. Verðum við bara ekki að taka öllum þeim hækkunum, sem skella á okkur? Liklega tækist okkur ekkert betur upp þótt við réðum þessu sjálf.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.