Alþýðublaðið - 06.05.1975, Page 1
KR-INGAR REYKJAVÍKURMEISTARAR - SJÁ BLS. 9
alþýdu
ÞRIÐJUDAGUR
6. maí 1975 - 102. tbl. 56. árg.
NJOSNA-
TÆKIN
UPPTÆK
- PUNKTUR OG BASTA
„Bæjarfógetanum i Hafnarfirði
hefur verið sent bréf, frá embætti
rikissaksóknara, þar sem þess er
krafist, að fjárskiptatæki þau,
sem fundust i Kleifarvatni haust-
ið 1973 og ekki voru flutt löglega
til landsins, verði gerð upptæk til
rikissjóðs, svo sem gert er ráð
fyrir i lögum númer 19 frá 1940 og
niðurlagi laga númer 59 frá 1969
um tollheimtu og tolleftirlit”,
sagði Þórður Björnsson yfirsak-
sóknari rikisins, i viðtali við Al-
þýðublaðið i gær.
„Það var 8. október 1973”,
sagði Þórður ennfremur, ,,að
bæjarfógetinn i Hafnarfirði sendi
til okkar skýrslu um fund á fjar-
skiptatækjum i Kleifarvatni, á-
samt umsögn Póst og simamála-
stjórnarinnar, sem látið hafði
skoða umrædd tæki. Þann 11.
október sama ár voru skjöl þessi
send dómsmálaráðuneyti, þaðan
til utanrikisráðuneytis og hafa nú
borist aftur til baka. Krafa okkk-
ar um að tækin verði gerð upp-
tæk, verður eina aðgerð embættis
saksóknara i þessu máli.”
Alþýðublaðið sneri sér einnig til
bæjarfógetans i' Hafnarfirði, Ein-
ars Ingimundarsonar, og innti
hann eftir frekari gangi málsins.
„Við höfum fengið bréf sak-
sóknara og munum framfylgja
kröfum hans”, sagði Einar, ,,en
frekari rannsókn er ekki farið
fram á og þvi fer hún ekki fram.”
Svo sem kunnugt er fundust
umrædd fjarskiptatæki i Kleifar-
vatni i september 1973. Bæjar-
fógetinn i Hafnarfirði tók málið til
rannsóknar og sendi það saksókn-
ara rikisins ásamt umsögn Póst
og simamálastjórnar, sem lét
skoða tækin. Saksóknari sendi
dómsmálaráðuneytinu máls-
skjölin til umsagnar 11. október
1973 og dómsmálaráðuneyti sendi
utanrikisráðuneyti þau —
einnig til umsagnar — siðar i
sama mánuði. Þar hefur svo mál
þetta verið til umsagnar þar til i
lok april á þessu ári, að það var
endursent dómsmálaráðuneyti. t
gær, þegar Alþýðublaðið hafði
samband við Pétur Thorsteinsson
ráðuneytisstjóra I utanrikisráðu-
neytinu, fengust þær upplýsingar
að málið yrði ekki tekið til nánari
athugunar þar. Dómsmálaráðu-
neyti sendi málið saksóknara og
tók undir umsögn utanrikisráðu-
neytis þess efnis, að þar sem ekki
lægi fyrir hverjir tilteknir aðilar
hefðu flutt tækin til landsins, væri
ekki ástæða tii annarra aðgerða
en þeirra, að gera tækin upptæk
til rikissjóðs.
MIKIÐ UM
MISNOTKUN
SKOTVOPNA
„Það væri óskandi að þeir,
sem skotvopn hafa undir
höndum, reyndu. að halda sig
innan ramma laganna um
meðhöndlun þeirra, en þvi
miður vill verða nokkur mis-
brestur á þvi. Til okkar berast
alltaf öðru hvoru kvartanir og
tilkynningar um misnotkun
skotvopna og þá jafnvel lika
skotvopn, sem gerð hafa verið
upptæk af lagavörðum i öðr-
um lögsagnarumdæmum”,
sagði Bjarki Eliasson, yfirlög-
regiuþjónn, i viðtali við Al-
þýðublaðið i gær.
„Sérstaklega eru það
fuglafriðunarlögin, sem ekki
eru virt”, sagði Bjarki enn-
fremur, „eins og okkur berast
Framhald á bls. 4
LEKI AF
VELLINUM
Nokkur hundruð flöskur af á-
fengi og nokkur hundruð karton
af sigarettum hafa á undanförn-
um mánuðum verið keypt ólög-
lega og smyglað út, af Keflavikur-
flugvelli af einum og sama útveg-
unaraðila, sem starfar á flugvell-
inum en er búsettur i Keflavik.
Það var á laugardaginn, sem
lögreglan lét til skarar ’skriða og
veitti eftirför leigubilstjóra i
Keflavik, sem fylgst hefur verið
með um nokkurn tima. Hafa tiðar
ferðir hans inn og út af flugvallar-
svæðinu vakið grunsemdir um, að
hann hefði ekki hreint mjöl i pola-
horninu. Var hann handtekinn við
ibúðarhús i Reykjavik og leit gerð
ibifreiðhans. Fannst þegar nokk-
urt magn af áfengi og sigarettum
og játaði hann við yfirheyrslu, að
hann hefði um nokkurra mánaða
skeið annast flutninga á slikum
varningi fyrir mann, sem hann
tilgreindi. Reyndist þetta vera is-
lenskur starfsmaður á flugveliin-
um, sem búsettur er i Keflavik.
Var hann handtekinn og situr nú i
gæsluvarðhaldi.
Einnig var handtekinn vamar-
liðsmaður, sem viðurkenndi að
hafa selt hinum islénska útvegun-
araðila talsvert magn af áfengi
og tóbaki. Er talið, að hann hafi
viöurkennt sina hlutdeild i þess-
um ólöglegu viðskiptum.
Þorgeir Þorsteinsson, lögreglu-
stjóri á Keflavikurflugvelli, sagði
I viötali við fréttamann Alþýðu-
blaðsins, að ekki væri vist, hversu
mikið magn væri um að ræða.
„Þessir menn halda ekki bókhald
yfir viðskipti sin”, sagði Þorgeir,
„en það er fyrst og fremst upp-
sprettan,sem reynt er að grafast
fyrir um”.
„Þar kemur til greina meira en
einn möguleiki”, sagði Þorgeir.
Kvað hann þær reglur gilda, að
hver varnarliðsmaður, sem náð
hefði 21 árs aldri, mætti kaupa 5
flöskur á mánuði. Væru þetta yf-
irleitt 5 pela flöskur. Þessu gætu
menn safnað saman, ef þeir
neyttu þess ekki, og væri þá
möguleiki meðal annars fyrir
hendi, að þeir seldu sinn skammt.
„Sé mönnum þetta freisting, þá
er liklegt, að hún vaxi frekar en
hitt við hverja hækkun, sem verð-
ur á áfengi hér”, sagði Þorgeir.
Þorgeir kvað aðra möguleika
koma til greina, en fslenski út-
vegunaraðilinn situr i gæsluvarð-
haldi, þar sem ekki eru fullkönn-
uð sambönd hans.
Miðað við 300 flöskur af áfengi
og 500 karton af sigarettum, er
trúleg álagning ekki langt frá 1,5
milljónum króna, ef boriö er sam-
an við islenskt verðlag, hvernig,
sem hún kann að skiptast á milli
þeirra, sem eiga hlut að svona
verslun.
MINNI SMYGL-
MÁL UPPLÝST
VIÐ RANNSÖKN
ÞESS STÓRA
„Rannsóknin á dreifingunni
þokast áfram”, sagði Asgeir
Friðjónsson, dómari, er frétta-
maður blaðsins hafði tal af hon-
um. „Við þá rannsókn hafa komiö
fram nýir angar, sem leitt hafa til
þess, að upp hefur nú komist um
fjögur ný smyglmál”, sagði Ás-
geir. Hann kvað þau að þvi leyti
til sams konar og þau, sem gjarn-
an hafa verið nefnd „stórsmygl-
málin”, að skipverjar á Islensk-
um flutningaskipum ættu þar hlut
að máli, en að þau værú minni i
Það er gamait, en gerði sitt
gagn. Einhvern tima endaði það
svo feril sinn vafið utan um
Ijósastaur, en verðbólgan hefur
séð fyrir þvi, að þessi hjólgarm-
ur var þó sleginn á 100 krónur á
óskilamunauppboði lögreglunn-
ar á laugardaginn. Dýrustu
hjólin, sem enginn eigandi hirti
um að sækja, voru slegin á um
17 þúsund.
sniðum, eftir þvi, sem enn
væri upplýst.
Tveir nýir menn hafa viður-
kennt hluta af dreifingu smygls-
ins, að leigubilstjóri i Reykjavik,
sem enn situr i gærluvarðhaldi,
hefur ekki kannast við hlutdeild
sina.
Nokkrir skipverjar á fleiri en
einu skipi eru viðriðnir þessi fjög-
ur nýju smyglmál. Vegna skipa-
feröa og fjarvista smyglaranna af
þeim sökum og öðrum, er enn
ekki ljóst, hvaða magn er hér um
að ræða, en eins og áður segir
virðist ljóst, að þessi mál eru
minni i sniðum en þau, sem rann-
sókn á dreifingu beinist einkum
að, og eins hitt, að ekki eru hér
sömu menn að verki.
Rannsóknin á dreifingunni i
„stórsmyglinu” heldur áfram,
sem og hinum fjórum, og ekki séð
fyrir endann á þvi, hvort þeim á
enn eftir að fjölga.
Umferöarslys barna helst á
mánudögum og fimmtudögum
Á siðastliðnu ári slösuðust 296
börn I umferöinni, og urðu þar af
212 börn fyrir bilum, en 84 voru
farþegar i bilum. Þetta sýnir
slysaskráning Umferöarráðs, og
hún leiðir ennfremur i ljós, að
flest börn slasast á mánudögum
og föstudögum, og meira en
þriðjungur þeirra slasaðist á
tlmabilinu kl. 14—17 á daginn. Þá
leiða skýrslur Umferöarráös i
Ijós, að fiest börn slasast á vorin
og haustin.
Þeir árstimar eru þvi mest not-
aðir til umferðarfræðslu, og I mai
og júni gengst Umferöarráð, I
samvinnu við lögregluna, Leik-
vallanefnd Reykjavikur og bif-
reiðatryggingafélögin, fyrir upp-
lýsingastarfi um börn i umferð.
Tilgangur þessa fræöslustarfs
er aö kynna líkamleg og sálræn
vandamál, sem börn eiga við að
striöa i umferöinni, og gerð verð-
ur grein fyrir þvi, hversu mikil á-
hrif skipulag Ibúðarhverfa hefur
á tiðni slysa á börnum. Hvatt
veröur til þess, að lóðir og leik-
svæði verði gerö þannig úr garði,
að þau laði börn til leikja og að
leiktæki séu sett upp á sem flest-
um stöðum, sérslaklega þó við
fjölbýlishús. Einnig verður fjall-
að um börn og reiðhjól og foreldr-
ar hvattir til þess að kaupa ekki of
fljótt reiöhjól handa börnum sln-
um, eða þeir sendi þau ekki út I
umferðina ein sins liðs á reiöhjól-
um fyrr en þau hafa þroska og
getu til.