Alþýðublaðið - 08.05.1975, Page 1

Alþýðublaðið - 08.05.1975, Page 1
VIÐBRÖGÐ VIÐ ERINDI VILMUNDAR *-----► 3. SÍÐA alþýðu inntiTTii FIMMTUDAGUR " 8. maí 1975 - 104. tbl. 56. árg. BJÖRN JÓNSSON, FORSETI ASÍ VARLA FÚSIR TIL SAMHINGA „Afstaða útgerðarmanna i togaradeilunni bendir ekki til þess, að atvinnurekendur séu beinlínis fúsir til samninga, en þó er ekki um nákvæmlega sama hlutinn að ræða, og rétt að hafa ekki uppi miklar getgátur”, sagði Bjöm Jónsson forseti ASt í sam- tali við Alþýðublaðið i gær. Seinni lota kjarasamninga Al- þýðusambandsins og vinnuveit- enda hefst á morgun með samn- ingafundi þar sem byrjað verður aö ræða endanlega kjarasamn- inga, eins og gert er ráð fyrir i bráðabirgðasamkomulaginu frá i vetur, en eins og kunnugt er renn- ur það út 1. júni. „Það má segja, aðallt það, sem rættverður um, séu visitölumál”, sagði Björn ennfremur, „en þó má skipta þvi i tvennt. t fyrsta lagi er um það að ræða að vinna upp þá kjaraskerðingu, sem hefur orðið frá þvi siðustu samningar voru gerðir, og i öðru lagi að semja um frambúðar visitölu”. Um þá yfirlýsingu nokkurra að- ildarfélaga Alþýðusambands Norðurlands, að þau muni ekki veita ASt umboð til samninga fyrir sig, sagði Björn Jónsson, að þar hafi raunverulega engin breyting orðið á.Niu manna- nefndin hafi ekki samið fyrir þessi félög, þegar bráðabirgða- samkomulagið var gert i vetur, en skömmu siðar hafi þau siðan undirritað samhljóða samkomu- lag. Þá benti Björn á, að öll stærstu verkalýðsfélögin fyrir norðan hafi veitt niu manna nefnd ASt samningaumboð, og þar á meðal væru Iðja og Eining og flest verslunar- og iðnaðar- mannafélögin fyrir norðan. „En nái þessi félög, sem ekki vilja semja með okkur, betri samning- um, óska ég þeim bara til ham- ingju”, sagði Björn. EKKI GRUNDVÖLLUR FYRIR SAMNINGUM EINS 0G ER „Ég mun hafa samband við sáttasemjara rikisins i kvöld, eða á morgun, og skýra honum frá þvi að ekki er grundvöllur fyrir þvi samn- ingaformi, sem útgerðarmenn lögðu fram tillögur að á siðasta sátta- fundi”, sagði Jón Sigurðsson, forseti Sjómannasambands íslands, i viðtali við Alþýðublaðið i gær. „tltgerðarmenn lögðu til”, sagði Jón ennfremur, „að farið yrði inn á bátakjarasamningana, en það getum viö ekki sætt okkur við og þvi verður þvi hafnað. Hvað svo verður, get ég ekki sagt til um.” Ráðuneytið svaraði aldrei bréfinu oa VIÐ IIRDUM AF 50 MILLJÖNUM I GJALDEYRISTEKJUM Mikið strið hefur verið háð undanfar- ið milli hagsmunaaðila á ferðamála- markaðnum. Stjórnvöld virðast taka beinan þátt i þessu striði. Nú er sýnt, að íslendingar verða af gjaldeyristekjum, sem hefðu numið nálægt 50 milljónum króna þar sem stjórnvöld „gleyma” að svara beiðni islenska flugfélagsins Air Viking um leyfi til að flytja farþega frá Norðurlöndum til íslands i sumar. Tekjurnar falla í hlut danska flugfélagsins Sterling Airways. Um langa hrið i vetur stóðu yfir viðræður milli Alþýðuorlofs og Flugleiða h.f. varðandi ódýrar or- lofsferðir fyrir félagsfólk laun- þegasamtakanna á Norðurlönd- um til og frá íslandi á þessu sumri og tók samgönguráöuneyt- ið þátt i þessum viðræðum. í viðræðunum lét Alþýðuorlof i ljós áhuga á þvi, að komið yrði á samnorrænum fargjöldum og beindist þessi áhugi að þvi marki, að sömu fargjöld giltu fyrir alla Norðurlandabúa burtséð frá bú- setu þeirra á flugleiðinni milli ís- lands Kaupmannahafnar og Stokkhólms. Um þetta stóðu viðræður allt fram I miðjan janúar s.l., en þá lögðu Flugleiðir h.f. fram endan- legt tilboð sitt. Fulltrúar Alþýðu- orlofs fóru með tilboð þetta til bræðrasamtaka sinna annars staðar á Norðurlöndunum. Kom strax i ljós, að þau höfðu ekki á- huga á tilboði Flugleiöa h.f. vegna þess, hve hátt það var. Al- þýðuorlof leitaði þá til islenska flugfélagsins Air Viking, sem taldi sig geta tekið þessa flutn- inga að sér fyrir miklum mun lægra verð en fólst i endanlegu tilboði Flugleiða h.f. Forsaga þessa máls er þessi: Stærsta ferðaskrifstofa á Norður löndum, RESO, sem er i eigu samvinnusamtakanna og laun- þegasamtakanna i Sviþjóð ákvað á siðastliðnu hausti að efna til sérstakra flugferða fyrir félags- menn samtakanna, sem að ferða- skrifstofunni standa, til tslands á þessu sumri. í byrjun nóvember i fyrra var leitað hófanna um, hvort Air Viking vildi og gæti tek- ið þessa flutninga að sér. En á- kveðið var þá, að farnar yrðu til íslands nitján ferðir I sumar frá Kaupmannahöfn með Norður- landabúa. tslenska samgönguráðuneytið synjaði Air Viking leyfis til að taka umrædda flutninga að sér og samkvæmt upplýsingum, sem blaðið hefur aflað sér, fór ráðu- neytið ekki dult með það I bréfi til Air Viking, að ráðuneytið bæri sérstaka umhyggju fyrir Flug- leiðum h.f. og leyfi þetta kynni að hafa áhrif á hag þess félags. Reso leitaði nú samninga við danska flugfélagið Sterling um flutningana á farþegunum til ts- lands frá öðrum Norðurlöndum og vildi þá svo til, að ekki stóð á samþykkt stjórnvalda fyrir lend- ingum flugvéla frá Sterling Air- ways hér á landi, þegar eftir henni var leitað. Reso var hins vegar ekki að öllu leyti ánægt með þá þjónustu, sem i boði var hjá Sterling, þar sem danska félagið getur aðeins flogið hingað til lands að næturlagi, en hins vegar hafði Air Viking svar- að þvi til, að það gæti tekið flugið að sér að deginum til, en dagflug er alla jafna vinsælla en nætur- flug eins og kunnugt er. Af þess- um sökum leitaði Reso enn á ný til Air Viking. Air Viking sótti nú enn á nýjan leik um leyfi til að fljúga sam- kvæmt þeim samningi, sem I boði var við Reso, en samkvæmt upp- lýsingum, sem Alþýðublaðiö hef- ur aflað sér, hefðu þessir flutn- ingar, ef islenskir aöilar hefðu tekið þá að sér, gefið gjaldeyris- tekjur, sem nema nálægt 50 milljónum islenskra króna. Air Viking hefur enn ekki borist svar við bréfi sinu og ákveðið hef- ur verið, að Sterling Airways taki þessa farþegaflutninga að sér og hefjast þeir upp úr miðjum mai. Þó að ekki hafi orðiö af samn- ingum milli Alþýðuorlofs og Flugleiða h.f. um hin svonefnd „samnorrænu fargjöld”, mun Al- þýðuorlof nota hópferðarfargjald Flugleiða fyrir félagsmenn sina á sama grundvelli og aðrar feröa- skrifstofur i sumar. Alþýðuorlof hefur á hinn bóginn 2. SÍÐA LOFTLEIÐIR ÞREIFUÐU FYRIR SÉR UM FREKARI ÞOTUKAUP Alþýðublaðið varpaði fram þeirri spurningu i gær, hvort Flugleiðir h.f. væru að undirbúa flugvélakaup til viðbótar þeim, sem félagið heíur þegar lýst yfir, að það telji sig nauðbeygt að kaupa. En vegna þeirra kaupa hefur félagið sem kunnugt er ósk- að eftir rikisábyrgð, að upphæð nálægt 2.500 milljónir islenskra króna, sem rikisstjórnin hefur enn ekki lagt blessun sina yfir. FRAKKI K0M HINGAÐ TIL AÐ LEIÐ- RÉTTA FERÐAFÉLAGSMISSKILNING „Ég er hingað kominn, i þetta sinn, til þess að leið- rétta og hrekja ónákvæman og villandi málflutning I deilum þeim, sem komið hafa upp um ferðir meðlima Nouvelles Frontieres til Islands, og jafnframt til að fullvissa mig um að sú þjónusta og fyrirgreiðsla, sem okkur hefur hingað til verið veitt hérlendis, standi enn til boða”, sagði Cristian Pinot, forsvarsmaður franska ferðaklúbbsins Nouvelles Frontieres Associ- ation, i viðtali við Alþýðublaðið I gær, en hann dvelst um þessar mundir hérlendis, til viðræðna og ráðagerða við Einar Guðjohnsen, um áframhaldandi ferðir klúbbsins hingað. „Ég vil koma þvi á framfæri”, sagði Pinot ennfrem- ur, „að við erum ekki kaupmenn sem selja sólskin á fölskum forsendum og erum ekki hingað komin til að valda mengun. Ferðamannamengun er staðreynd á Is- landi sem annars staðar, en við viljum taka höndum saman með ykkur, um að berjast gegn henni. Við erum fyrst og fremst að halda uppi ódýrum ferðum hingað, til þess að franskt fólk geti kynnst tslandi og tslending- um og vináttutengsl geti skapast milli þjóðanna. Þetta hefur heppnast nokkuð vel, að mlnu viti, og meðal ann- ars hef ég orðið var við það, að island virðist hafa meiri áhrif á ferðalanga, en önnur lönd. Við munum halda áfram ferðum okkar hingað”, sagði Pinot að lokum, ,,og fjölga þeim. A komandi sumri verða farnar hingað 18 ferðir, sem er nokkur aukning frá þvi I fyrra og vonandi getum við leiörétt misskilning þann, sem upp hefur komið, svo að starf- semí klúbbsins geti haldið áfram á þeim grundvelli samstarfs og vináttu, sem myndast hefur. Ég vil svo taka það sérstaklega fram, að ég er ekki kominn hing- að til að skipta mér af innanfélagsmálefnum Ferðafé- lags tslands, heldur einungis til að kveða niður þann ó- nákvæma og villandi málflutning, sem gert hefur okk- ur að nokkurs konar grýlum i augum tslendinga.” t gær leitaði Alþýðublaðið nán- ari upplýsinga um viðræður Flug- leiða h.f. við erlenda aðila varð- andi flugvélakaup og ræddi i þvi sambandi við Mr. Glen Allred, sölustjóra og yfirmann þjálfunar- deildar United Airlines i Denver, Colorado USA. Hann sagði: „Það er alveg rétt, að fyrir nokkru síð- an barst okkur fyrirspurn frá Loftleiðum um það, hvaða flug- vélar við hefðum til sölu. Þá áttu sér stað viðræður um flugvéla- markaðinn á breiðum grundvelli, en þar sem við höfðum engar flugvélar, sem Loftleiðir töldu sig geta notað, komust viðræðurnar aldrei á það stig, að þeir sýndu verulegan áhuga á kaupum”. „Einu vélarnar, sem við höfð- um handa þeim”, sagði Mr. All- red ennfremur, „voru vélar af geröinni DC833, en á þeim virtust þeir ekki hafa mikinn áhuga. Bo- eing 720 vélar höfðum við engar til sölu”.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.