Alþýðublaðið - 08.05.1975, Side 12
lalþýðul riiisí.os hr* KÓPAVOGS APÓTEK
MFWWm PLASTPOK AVE R KSMIÐ JA Cfmar fOkSS Opið öll kvöld til kl. 7
1 ll rilij ul Vetnogöröum 6 Box 4064 — Reykjevík Laugardaga til kl. 12
Stórfyrirtæki og stofnanir gleyma enn að
greiða hreyfihindruðu fólki leið
STIGARNIR ERU
FÖTLUÐUM
FJÖTUR UM FÓT
„Þrátt fyrir aö málefni fatl-
aöra og hreifihindraðra hafi
mætt sivaxandi skilningi undan-
farin ár, er enn mörgu ábóta-
vant og hvergi hægt að ganga
þar frá fullunnu verki i dag.
Meöal annars er enn mikill
skortur á þvi, aö tillit sé tekiö til
sérþarfa hreifihindraðra viö
húsabyggingar og skipulag,
þannig að þeim er gert næsta ill-
mögulegt aö bjarga sér sjálfir i
daglegri umferð og umsýslu”,
sagöi Ólöf Rfkharösdóttir, hjá
Sjálfsbjörg, félagi lamaðra og
fatlaöra, i viötali viö Alþýöu-
blaöiö I gær, en þá fóru Alþýðu-
blaösmenn i stutta ferö um bæ-
inn og könnuöu hvort tekiö væri
tillit til sérþarfa hreifihindraöra
hjá verslunum, stofnunum og I
öðrum opinberum byggingum.
„Þaö hefur nokkuð áunnist i
þessum efnum undanfariö”,
sagöi Ólöf ennfremur, „en þó er
ástand mjög bágboriö. Til
dæmis er Tryggingastofnun
rikisins, sem hreifihindraöir
þurfa mikiö aö leita til, m jög illa
staösett og litiö tekiö tillit til
þeirra við inngang hennar. Aðr-
ar byggingar má einnig nefna,
svo sem Þjóðminjasafn, Nor-
ræna húsiö margar rikisstofn-
anir, banka og fleira.
Barátta fyrir umbótum á
þessu sviði, hefur staðið alveg
frá upphafi Sjálfsbjargar og það
sem áunnist hefur er meöal
annars þaö, aö nú er tilbúið
frumvarp, sem væntanlega
veröur lagt fyrir Alþingi, um
breytingar á byggingalöggjöf,
þannig aö framvegis verði tekið
tillit til sérþarfa hreifihindr-
aðra, þegar viö byggingu húsa.
Ennfremur höfum við orðiö vör
viö viöbrögö frá arkitektum og
fleiri aðilum og sem dæmi má
nefna aö viö teikningu á nýja
borgarleikhúsinu, var strax tek-
iö tillit til þessa fólks.
Þaö er margt sem hægt er aö
gera, til dæmis aö fækka tröpp-
Glæsibær við Álfheima
I 3. SÍOA
Þjóðleikhúsið.
Inngangurinn
stofnunina...
i Trygginga-
....
Þjóðminjasafnið
...og atram upp á loft.
FIMM á förnum vegi
Hvað hlustar þú helst á í útvarpinu?
Jón Helgi Jóhannesson, versl-
unarmaöur: „Ja, ég veit ekki
hvaö segja skal. Vinnan sér eig-
inlega til þess að ég hlusta ákaf-
lega takmarkaö á útvarp. Þaö
er enginn timi til þess”.
Guðmundur Baldursson, iön-
nemi: „Ég hlusta fremur litið á
útvarp. Þaö er þá helst popp-
hornið og veöurfregnirnar. Ann-
aö hlusta ég ekki á svo ég muni
eftir þvi”.
Björg Benediktsdóttir, skrif-
stofustúlka: „Hvaö ég hlusta á i
útvarpi? Ja, þaö er helst popp-
horniö, lög unga fólksins og aör-
ir þættir meö léttri tónlist.
Morgunpoppiö á fimmtudögum
er besti þátturinn”.
Magnús Pálsson, raftæknir:
„Ég hlusta á alla skákþætti sem
ég get og einnig á erindin um
daginn og veginn. Alls konar er-
indi vekja reyndar áhuga minn
og svo hlusta ég oft á hann Jón
Asgeirsson á laugardögum. Þaö
eru góöir iþróttamálaþættir”.
Bogi G.K. Halldórsson, mat-
reiösiumaöur: „Ég hlusta á
messu á hverjum sunnudags-
morgni, mér til endurnæringar.
Svo hlusta á kvöldsöguna og hef
til dæmis ekki misst af einu oröi
úr Þjófnum i paradis. Svo eru
það Soul-þættirnir, sem ég reyni
að hlusta á”.