Alþýðublaðið - 31.08.1975, Blaðsíða 3
ANGÓLA: BORGAR ASTYRJÖLD
EN EKKI FRELSISBARÁTTA
Hinn 11. nóvember
næstkomandi fær Angóla,
ein af nýlendum Portú-
gala í Afríku, sjálfstæði.
Flestir þeir sem fylgst
hafa með fréttum frá
þessari auðugustu ný-
lendu Portúgala munu ef
til vill velta fyrir sér
hvort ástandið ? nýlend-
unni gefi tilefni til bjart-
sýni um stofnun sjálf-
stæðs ríkis.
Það er vissulega engin deyfð
yfir þjóðmálabaráttunni i
Angólu. bar hefur siðustu mán-
uðina staðið yfir blóðug borg-
arastyrjöld milli þriggja stjórn-
málaafla, sem hver um sig
berst fyrir eigin stjórnmála-
stefnu. Ekki verður sagt að
sjálfstæðisbaráttan, sem slik,
setji mestan svip á þessi stjórn-
mála- og hernaðarumsvif i
landinu enda hafa hinir- nýju
valdhafar i Portúgal fyrir löngu
lýst fullum stuðningi við stofnun
sjálfstæðrar Angólu.
Ef til vill má segja að það hái
mjög hinum striðandi öflum i
landinu, að þeim hafði ekki tek-
ist að marka sér pólitiska stöðu
fyrir byltinguna i Portúgal.
Enda þótt rekja megi upphaf
frelsishreyfinganna, mörg ár
aftur i timann er engu likara en
að skyndileg umskipti i ný-
lendustefnu Portúgala hafi orð-
ið til þess að magna upp erjur og
óeiningu milli einstakra hópa og
leiðtoga þeirra.
íbúatala landsins er um sex
miljónir og þar af eru um
600.000 hvítir innflytjendur,
aðallega frá Portúgal. Þessi
hviti minnihluti Portúgala virð-
ist gjörsamlega hafa dottið út úr
baráttunni eftir að fyrirsjáan-
legt varð að landið fengi sjálf-
stæði. Að visu reyndu nokkrir
sterkir fjármálamenn, svo sem
Fernando Falcao, að hafa áhrif
á valdabaráttuna, i þeirri von
að tryggja fjárhagslega stöðu
hvitra manna i Angóla. Þvi fer þó
viðs fjarri að hviti minnihlutinn
hafi verið samstilltur i þessari
baráttu. Það sem er þó senni-
lega enn athyglisverðara, er að
frelsishreyfingarnar virtust
hafa litinn áhuga á stuðningi
hvita minnihlutans, enda er
augljóst að þessar hreyfingar
leggja mun meira upp úr stuðn-
ingi Afrikurikja heldur en
stuðningi vestrænna rikja. bað
hefur lika komið á daginn að
hinir hvitu innflytjendur virðast
nú sjá sina sæng út breidda og
litla framtið i þessu, áður fyrr
friðsæla og fagra landi og hefur
straumurinn til Portúgal farið
Sovétríkin efla tengsl-
in við Hanoi
Sendinefnd frá Sovétrikjunum
undir forystu Mikhail Soloment-
sev forseta rússneska sovétlýð-
veldisins hefur heimsótt Hanoi til
þess að fagna 30 ára afmæli
Norður Vietnam. Tass-fréttastof-
an greindi frá þvi i gær frá Hanoi,
að sovéska sendinefndin hefði
flutt vietnömsku þjóðinni kveðjur
og árnaðaróskir frá stjórn Sovét-
rikjanna fyrir að hafa tekist að
frelsa allt landið, eins og segir i
fréttinni.
Sendinefndin var einnig við-
stödd vigslu grafhýsis sem reist
hefur verið fyrir hinn fallna for-
ingja, Ho Chi Minh. Þá ræddi
sendinefndin einnig við leiðtoga
kommúnistaflokks Norður Viet-
nam, Le Duan og forsætisráð-
herra Pham Van Dong.
Augljóst er að Sovétmenn
leggja nú mikið kapp á að halda
sem nánustu samstarfi við Hanoi
stjórnina. Á hinn bóginn hafa
engar fréttir borist af heimsókn-
um eða vinsamlegum viðræðum
milli Hanoi stjórnarinnar og
valdhafanna i Peking.
Nútíma þrælahald
Sérstök nefnd, á vegum Sam-
einuðu þjóðanna, hefur skilað á-
liti varðandi nútima þrælahald. t
álitsgerð nefndarinnar kemur
fram að viða i heiminum tiðkast
enn raunverulegt þrælahald, þótt
hin almenna skilgreining orðsins
nái ekki yfir þau afbrigði þræla-
Áskriftar-
síminn er
14900
halds, sem algengust eru. Nefnd-
m litur svo á, að það sé raunveru-
legt þrælahald þegar einstakling-
ar geta nýtt athafnir annarra
manna gegn þeirra eigin vilja.
Nefndin bendir m.a. á að fjöldi
kvenna i vanþróuðu rikjunum og i
fátækrahverfum iðnrikjanna, sé
rekinn nauðugur út á braut vænd-
is. Þá er einnig bent á að leigulið-
ar viða i sveitum séu enn beittir
aðgerðum, sem séu i algerri mót-
sögn við grundvallarreglur
mannréttinda yfirlýsingar Sam-
einuðu þjóðanna. Þá er þrælahald
svartra manna i Suður Afriku
tekið sem dæmi um hámark
þessa misréttis.
Nefndin hefur lagt til að mál
þessi verði tekin fyrir að nýju og
gerðar frekari athuganir á á-
standinu og unnið að þvi, i sam-
ráði við viðkomandi rikisstjórnir,
að þessum málum verði komið i
viðunandi horf.
"Síðasti dagur ÚTSÖLUNNAR
er á mánudag
^Stórkostleg verðlækkunj
Angólskir skæruliðar flytja vopn og vistir frá bækistöðvum sinum i Zaire að
viglinunni i Angóla árið 1971.
vaxandi með hverjum degi sem
liður.
Venjulega er talað um þrjá
hópa, sem berjast nú i nýlend-
unni. Þessir hópar eru MPLA
undir stjórn Agostinho Neto,
FNLA undir forystu Holden Ro-
berto og UNITA sem lýtur for-
ystu Jonas Savimbi. Ekki er það
þó svo að þessar fylkingar séu
fullkomlega samstilltar, hver
um sig. Helsti foringi Ovim-
bundi kynflokksins i suðurhluta
Angólu er t.d. Daniel Chipenda,
sem talinn er einn af skæðustu
andstæðingum Netos enda þótt
þeir berjist báðir undir merkj-
um MPLA. Þriðji foringi MPLA
er svo Pinta Andrade, sem setið
hefur 12 ár i fangelsum Portú-
gala og stjórnar nú frelsis-
baráttu sinni frá Brazzaville i
Congo. Bæði Chipenda og And-
rade hafa deilt á Neto fyrir að
veraof mikið undir áhrifum frá
Moskvu, en Neto ásakar hina
baráttufélaga sina um að vera
umboðsmenn kynþáttaremb-
ings og nýrrar þjóðernislegrar
nýlendustefnu.
Þessi átök innan MPLA hafa
valdið miklum erfiðleikumog
hafa forsetar nágrannarikjanna
Congo, Zaire, Zambiu og Tanz-
aniu reynt mikið til þess að
koma á samkomulagi i liðinu.
Ljóst er að MPLA nýtur mikils
stuðnings frá Sovétrikjunum og
löndum Austur Evrópu auk
þeirra Afrikurikja, sem hér
hafa verið nefnd. Auk þess nýt-
ur MPLA stuðnings OAU og er
sá stuðningur þeim sennilega
mest virði.
FNLA, sem áður hafði notið
stuðnings OAU, sækir mestan
styrk til Bakongo kynflokksins i
norðurhluta Angólu en nýtur
auk þess stuðnings frá Zaire en
þaðan- hafa þeir skipulagt
hernaðarlega vigstöðu sina með
þremur herstöðvum innan
landamæra Zaire. Þess má
einnig geta að Mobuto forseti
Zaire er tengdafaðir Holden
Roberto foringja FNLA, en
Mobuto hefur mjög mikilla
hagsmuna að gæta gagnvart
Angólu vegna þess að útflutn-
ingurfrá Katanga héraði i Zaire
þarf að flytjast um angólskt
landssvæði. Varðandi hernaðar-
legan stuðning við FNLA skiptir
einnig miklu máli að Zaire hefur
á að skipa langstærsta her i
þessum hluta Afriku.
Stuöningur við UNITA er
sagður aðallega hafa komið frá
portúgalska hernum að þvi er
talsmenn MPLA og FNLA segja
en UNITA-menn segjast ekki
njóta neins stuðnings erlendis
frá, heldur fyrst og fremst'inn-
fæddum ibúum Angólu, sérstak-
lega þó á svonefndu Ovim-
bundu-svæði.
Atökin i landinu eru þvi' fyrst
og fremst innanlandserjur, en
vegna þess hve auðugt landið er
og mikilvægt i sambandi við
iðnað og verslun hafa iðnaðar-
lönd Evrópu fylgst af mikilli at-
hygli með þvi sem þarna er að
gerast. Einnig hafa nágranna-
löndin i Afriku tekið virkan þátt
i þessari innanlandsbaráttu i
'Angólu.
Veizlusalir
Hótels Loftleiöa
standa öllum opnir
HOTEL LOFTLEIDIR
o
Sunnudagur 31. ágúst 1975.