Alþýðublaðið - 31.08.1975, Page 8
í HREINSKILNI SAGT
Ætt og erfðir.
Okkur Islendingum hefur löngum ver-
ið gjarnt að vita nokkur deili á sam-
ferðamönnunum. Af þeirri vitneskju
þykir mega ráða, hvers er von af frekari
kynnum. Það er ekki út i hött fremur en
margt annað af gamalla máli. Og við
þykjumst hafa af þvi glögga reynslu, að
erfðir séu langæjar og það skipti máli,
hvort forfaðirinn er t.d. Hallgrimur Pét-
ursson eða Axlar-Björn, svo dæmi séu
tekin af andstæðum. Mér þykir rétt að
rifja þennan barnalærdóm upp til frek-
ari glöggvunar á framhaldinu. Við lýð-
ræðisjafnaðarmenn höfum nokkuð lengi
fengið að heyra þær fréttir, að við séum
nú ekki alveg einir á báti um áhuga á
framkvæmd hugsjóna jafnaðarstefn-
unnar!
Þannig kepptust Alþýðubandalagið og
Samtök frjálslyndra og vinstri manna
við það baki brotnu fyrir siðustu kosn-
ingar, að lýsa þvi yfir, hvor fyrir sig, að
þeir væru hinir einu sönnu jafnaðar-
menn!
Um samtökin og þeirra starf er unnt
að vera fáorður. Þau birtust á stjórn-
málahimninum eins og flugeldur, lýstu
upp dálitinn blett af umhverfinu um leið
og þau sprungu og eru nú horfin i
myrkrið utan ein tætla, sem smákólnar
og dofnar.
Um Alþýðubandalagið skiptir nokkuð
öðru máli. En feril þess er vert að rekja
örstutt. Ekki svo að skilja, að ástæða sé
til að eyða löngu máli i einstök atriði frá
fyrri timum. Hundflöt Rússaþjónkun og
fyrirgefningarbænir kommúnistanna
frá 1934, ef þeir villtust út af linunni, er
ekki óþekkt fyrirbæri, lika úr öðrum
löndum. Afstaða arftaka þeirra, Sósial-
istaflokksins, bæði fyrir og i siðasta
striði er gjörþekkt hér. Þar kvað við
sama tón og áður hjá kommúnistum.
Glöggt vitni um það eru kjánaskrif Lax-
ness á þeim árum, sem hann hefur nú
keppzt við að ómerkja sjálfur i seinni
tið. Persónudýrkun á hinum blóði
stokkna, kákasiska þjóðvegaræningja,
Stalin, entist til æviloka hans, talsvert
fram á sjötta áratuginn. ,,Hann var allt-
af sami góði félaginn, sem mat mann-
gildið öllu hærra,” sagði Þjóðviljinn um
hann, þegar hann hafði loks geispað gol-
unni. Siðari timar geta ef til vill dregið
lærdóma af annarri eins bersýni sem
þessari! Hér þarf enginn að villast á
ætterninu á pólitiskri uppistöðu Alþýðu-
bandalagsins. Breyting á nafni, sem
ekki er einu sinni fylgt eftir með stefnu-
skrá eða flokkslögum, skiptir vist ekki
máli.
„Það vaxa
ekki
hundshár,
nema ...”
Ef svipazt er um bekki og aðgætt,
hvað eftir flokkinn liggur, i þvi að þoka
áfram hagsmunamálum alþýðu þessa
lands, verður litið á vegi manna annað
en stóryrði og upphrópanir. Rétt er að
staldra við þá staðreynd, að Alþýðu-
bandalagið hefur ekki eytt meiri orkú i
annað en að rægja og afflytja Alþýðu-
flokkinn og hefur þótzt geta gert allt bet-
ur. Þetta hefur heppnast vonum framar
til þessa, enda er enginn svo leiður að
ljúga, að einhver verði ekki til að trúa.
Mátturinn til raunhæfra aðgerða hefur
Eftir Odd A. Sigurjónsson
samt ekki komið i ljós, jafnvel þó að-
staðan væri fyrir hendi. Það segir sina
sögu.
Mælt er að Einar Benediktsson hafi
eitt sinn látið þau orð falla um skáld-
bróður, sem hann hafði takmarkaðar
mætur á: ,,Það vaxa ekki hundshár
nema á hundi”! Eðlileg ályktun af þessu
sannmæli þjóðskáldsins, er auðvitað, að
ekki þurfi að villast á, hvaða skepna sé
undir, þar sem hundshárin sjást. Vist
mættu ýmsir, sem ekki hafa gefið gaum
að öðru en stóryrðavali Alþýðubanda-
lagsmanna, skyggnast betur ofan i
flókabendilinn, sem skepnan er umvaf-
in. Þetta á ekki sizt við ýmsa unga
menn, sem hafa i unggæði látið blekkj-
ast og halda að hárafarið sé betur ættað
en raun er á. Ósanngjarnt væri, að ætla
þeim öllum svo kaldrifjað hugarfar, að
þeim sé sama, hvort þeir fari með rétt
eða rangt. En dæmin sanna að niður-
staðan af starfi þeirra getur orðið á
svipaða lund, þótt fyrir misskilning sé.
Alþýðubandalagið telur sig nú hina
einu von verkalýðs og launþega. Vilja
nú ekki þeir, sem enn eru ekki búnir að
stinga úr sér annað augað og setja rauða
bót fyrir hitt, leggja ærlega fyrir sig þá
spurningu í hverju það sjáist?
Hér með er auglýst eftir, hvert frum-
kvæði þeirra hefur verið um lagasetn-
ingu, til hags og heilla alþýðu þessa
lands. Leggið þið nú kollana i bleyti,
drengir! Það er hins vegar ekki min sök,
né annarra krata, þótt þið gangið bón-
leiðir til búðar úr leitinni, og það er ekki
endalaust hægt að skjóta sér bak við
kunnáttuleysið, að þekkja ekki hárafar-
ið.
Gömlu Hollywood
hetjurnar Henry Fonda og
James Stewart hittust i
London af tilviljun nýlega,
og þá notuðu þeir tækifærið
til að rifja upp gamla tima
þegar þeir voru ungir menn i
New York og spiluðu og
sungu fyrir átta sent. Eftir
að James hafði leikið eitt lag
fyrir blaöamenn og Henry
sungiðmeð, þá sagði James:
— Heimurinn hefur breyst
mikið. En gamli góði Henry
hefur ekki breyst. Hann
getur enn ekki sungið!
fðlk
Raggi rólegi
FJalla-Fúsi
EG PÓR AÆ) \JE\9A
% VSIQIKIMI
0(1 SKOUAklUIW r
GÆ12-i SIDDI
Bíóín
HÁSKDLABÍÓ *,„■!
LAUGARÁSBÍÓ
Simí 112075
Hver
Who
Ofsaspennandi mynd, sem
sýnir hve langt stórveldin
ganga i tilraunum til aö njósna
um leyndarmál hvers annars.
Leikstjóri: Jack Gold.
Aöalhlutverk: Elliott Gould,
Trevor Howard
tSLENZKUR TEXTI.
Bönnuö innan 12 ára.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
'ÓNABÍÓ Slmi:lllS2
Sjúkrahúslif
0E0RGE C.SCOTT
“THEHOSPfTAL”
PADDY CHAYEFSKY
DIANA RI05
^ ARTHURHIU|R ^ HOWARD OtrTTFRIEO
Mjög veJ gerö og leikin, ný,
bandarisk kvikmynd sem ger-
ist á stóru sjúkrahúsi i Banda-
Tikjunum.
I aöalhlutverki er hinn góð-
kunni leikari: George C. Scott.
önnur hlutverk: Piana Rigg,
Bernard Hughes, Nancy Mar-
chand.
tSLENZKUR TEXTI.
Leikstjóri: Arthur Hiller
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Bönnuö börnum yngri en 16
ára.
KÓPAVOGSBlD
Bióinu lokaö um óákveöinn
tima.
HAFNARBÍÓ *imi
^ SIXMENOUTOFHELL. 'l
THESE ARE
THE
Hörkuspennandi og viöburöa-
rik bandarisk Panavision lit-
mynd, um æsilegan hefndar-
leiðangur.
YVilliam Hoiden, Ernest
Borgnine.
ÍSLENZKUR TEXTI.
Bönnuö innan 16 ára.
Eridursýnd kl. 3, 5, 7, 9 og
11,15.
c
■
5 ■ i.'
Alþýðublaðið •
á hvert heimili *
■ ■■■■■■«■■■■■■■■ ■,
trídlofunárhringár
, Fljót afgreiösla.
Sendum g©gn póstkröfu
GUÐM. ÞORSTEINSSON
gullsmiöur, Bankastr. 12
Gleymib okkur
einu sinni -
og þiÖ gleymiö
því aldrei !
Fred Zinnemanhs film of
nii: iiayoi
THluIMILlL
AJohnWoi >lf Pmduction
Bascd on Ihe Ixxik by Frcdcrick H>rs>ih
UDisjributcd ln OiKniw Inttmrtwntil Oni»rt,rtiou ^
Framúrskarandi bandarisk
kvikmynd stjórnað af meist-
aranum Fred Zinnemann,
gerö eftir samnefndri met-
sölubók. Frederick Forsyth
sjakalinn, er leikinn af Ed-
ward Fox. Myndin hefur hvar-
vetna hlotiö frábæra dóma og
geysiaðsókn.
Sýnd kl. 5, 7,30 og 10.
Bönnuö börnum.
NÝIA EtíÓ Slmi U54Í
Mr. T
MR.T
Hörkuspennandi ný bandarisk
sakamálamynd. Aöalhlut-
verk: Robert Hooks, Paul
Winfield.
ÍSLENZKUR TEXTI.
Bönnuö innan 16 ára.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
'STIORNUBÍÓ t»imi l8956
FAT CITY
ISLENZKUR TEXTI.
Ahrifamikil og snilldarvel
leikin amerisk úrvals kvik-
mynd. Leikstjóri: John
Huston.
Aöalhlutverk: Stacy Keach,
Jeff Bridges.
Þessi vinsæla kvikmynd
veröur sýnd áfram yfir
helgina.
Sýnd kl. 8 og 10.
Síðasti Mohikaninn
mynd i litum og Cinema
Scope.
Aöalhlutverk:
Jack Taylor,
Paul Muller,
Sara Lezana.
Sýnd kl. 4 og 6.
Bönnuö innan 14 ára.
Vélhjólaeigendur
Moto-x - Moto-x
Útbúnaður, hanskar hlífar. Lewis
leöurjakkar og stígvél. Plaköt ofl.
Bögglaberar f. HONDU 350.KETT
hanskar. DUNLOP-dekk.
MÖLTUKROSS speglar og aftur-
Ijós. ofl. ofl. Póstsendum.
Vélhólaversiun
Hannes Ölafsson
Skipasundi 51. Sími 37090
o
Sunnudagur 31. ágúst 1975.