Alþýðublaðið - 23.09.1975, Side 12

Alþýðublaðið - 23.09.1975, Side 12
alþýðu Veórrid Blæs ekki byrlega en blæs þó Það blæs ekki beint byrlega fyrir gangnamönnum þessa dagana, en það blæs þó og rignir. Sunnanlands er gert ráð fyr- ir svipuðu veðri i dag eins og var i gær, — skdraveðri, breytilegri átt og umhleyping- um. Austlæg átt heíur verið rikjandi, og svo verður vænt- anlega enn um sinn. Nyrðra hefur hann blásið kaldan af austri og norðan. Þar er þykkt Iofti og rigning öðru hverju. Gátan /nAr/VFJÖLD/Nfir' r/L •/42/9 Eltd FJRLL F/SK u/? L£5T u/v X>U6 L£6l/J? frost tiÖfí/F ufí vrxr /R ‘bPONf) mnr ' 1 £M6 - ~ró///z (rOÍETft ffTfíLSn KOrtf) sfem. VfflSfl /R t £flt> VASKfl 5K/NN /Ð f A'ROK UR F//V HM6fl L Vf/fr/ T/M TEYR 2E/NS £ND. ver& /a DURT UR Útgefandi: Blað hf. Framkvæmda- stjóri: Ingólfur P. Steinsson. Rit- stjóri: Sighvatur Björgvinsson. Ritstjórnarfulltrúi: Bjarni Sigtryggsson. Auglýsingar og af- greiðsla: Hverfisgötu 10 — simar 14900 og 14906. Prentun: Blaða- prent hf. Áskriftarverð kr. 800.- á mánuði. Verð í lausasölu kr. 40.-. MEGUM VIÐ KYNNA Margrét Indriðadóttir, fréttastjóri tftvarpsins: er fædd á Akureyri, 28. október 1923. Margrét er dóttir hjónanna Indriða Helgasonar og Laufeyjar Jóhannsdóttur. Margrét er gift Thor Vilhjálmssyni rithöfund, og eiga þau hjónin tvo uppkomna syni. Margrét lauk stúdentsprófi frá MA vorið 1943, en þá um haustið flutti hún til Reykjavikur, og byrjaði að starfa hjá Morgun- blaðinu, þar sem hún var nær þvi samfelít til ársins 1949. í Bandarikjunum lagði Margrét stund á blaðamannanám i Minni- sota-háskóla i Minneapolis, frá árinu 1946 til áramóta 1947-48. Hjá fréttastofu Útvarpsins byrjaði Margrét að vinna árið 1949, og hefur hún starfað þar siðan, eða i samfellt i 26 ár. Er blaðamaður Alþýðublaðisns spurðu Margréti um hennar helstu áhuga-og tómstundamál, sagði Margrét: ,,Ég hef litinn sem engan tima til tómstundaiðkana, en ef einhver timi gefst til sliks, þá nota ég hann aðallega til lesturs. Þar sem ég var i Tónlistar- skólanum i gamla daga, þá hef ég einnig áhuga á tónlist, og þá helst klassiskri, en ég hef einnig áhuga á popptónlist, sé hún vönduð og góðj’sagði Margrét að lokum. KOPAYOGS APÓTEK , Opiö öll kvöld til kl. 7 Haugardaga til kl. 12 HEYRT, SEÐ 0G HLERAÐ HEYRT: Að starfsmenn Sendi- bilastöðvarinnar hf. verði að samþykkja eins konar trygging- arvixla, sem komi til greiðslu ef stöðin er gerð bótaskyld vegna handvammar bilstjóra, ellegar ef viðskiptavini er endurgreitt fyrir slæma þjónustu eða of háan reikning. SÉÐ: A Kastrupflugvelli við Kaupmannahöfn er ekki farið i manngreinarálit þegar örygg- ið er annars vegar. Þar var Geir Hallgrimsson á leið i opinbera heimsókn til Noregs þuklaður hátt og lát — i sprengjuleit! LESIÐ: Að LL og Cargolux vilji ráða 10 islenska flugvirkja til Luxemborgar i næsta mánuði. Kaupið verður 27-35 þúsund frankar (113.400-147.000 fsl. krón- ur) á mánuði. Þeir flugvirkjar sem hafa áhuga á þessu þurfa að ráða sig í minnst eitt ár. 1 Frétta- bréfi Flugvirkjafélags Islands koma þessar upplýsingar fram. LESIÐ: I sama Fréttabréfi segir, að einn af islenskum yfirmönnum flugvirkja i Luxemborg hafi kom- ist svo að orði: ,,Ef ég mætti ráða myndi ég kalla aftur til starfa alla islenska flugvirkja, sem horfið hafa frá LL og Cargolux i Luxem- borg og greiða þeim tvöfalt kaup, vegna þess að þeir eru langbestu flugvirkjar sem við höfum haft”. Af hverju hafa flugfélögin misst þessa góðu starfskrafta? spyr Fréttabréfið og lætur þess getið að i Lux starfi nú 14 islenskir flug- virkjar. HLERAÐ: Að ritstjóri Timans, Jón Helgason, hafi i hyggju að hætta fréttaskrifum af landbún- aði en gerast bóndi sjálfur. Er hann sagður hafa fest kaup á jörðinni Hlíð i Ljósavatnshreppi i Suður-Þingeyjarsýslu og ætli að hefja þar búskap af fullum krafti næsta vor. HEYRT: Að Pólýfónkórnum hafi verið boðið að leika stórt erlent kórverk inn á hljómplötu fyrir heimsmarkað. Stjórnandi kórs- ins, Ingólfur Guðbrandsson og stjóm kórsins hafa enn ekki á- kveðiðhvort af upptökunni verð- ur, en á næsta starfsári tekur kór- inn til flutnings Messu i h-moll eftir Bach, sem talið er eitt til- komumesta kórverk allra tima. ER ÞAÐ SATT: Að Geir Ilall- grimsson hafi lengt utanlandsfcrð sina að lokinni Noregsheimsókn- inni með nokkurra daga hvildar- og hressingardvöl i Kaupmanna- höfn, þar sem hann leiti jafn- framt læknis? ÖRVAR HEFUR ORÐIÐft*! Valdahópum Sjálf- stæðisflokksins er nú likt farið og liði Nixons fyrr- um Bandarikjaforseta þegar ljóst var að ein- hverjir höfðu gert stór og mikil mistök, en ekki var enn hægt að henda reiður *á neinum ákveðnum syndasel. Fyrstu við- brögðin við afhjúpunum Alþýðublaðsins um mútu- þægni byggingarnefndar Sjálfstæðishússins — eða Skálkaskjóls, — eins og nýjasta nafnið á þeirri byggingu er— voru und- arleg: Það varð enginn til að neita fréttunum, —■ menn spurðu bara í undr- un: Hver lak? Og nú sitja menn ekki í hljóðri undrun um upp- runa lekans, þvi næstu viðbrögð eru orðin ljós. Allir Sem hagsmuna hafa að gæta innan valdakerfis flokksins eiga nú sinar einkaskýringar á lekan- um. Einn af útlagaprins- um flokksins skrifar grein i Alþýðublaðið i' dag og fullyrðir að lekinn sé sprottinn af harðvitugri valdabaráttu innan Sjálf- stæðisflokksins — „morð- sveitimar” sem sitji um Albert séu ekki úr röðum fjandmanna — heldur hefurverið vegið úr laun- sátri með rýtingi i bak eigin flokksbróður. ' Er nú von menn spyrji hvort Sjálfstæðisflokkur- inn standi nú frammi fyr- ir sínum pólitisku ragna- rökum, þegar „bræður munu berjast, og að bön- um verða.” En einna fróðlegast er þó að fylgjast með þeim aflátsbréfum sem Heim- dallur og ýmis hverfa- samtök flokksins gefa nú út á Albert og hvitþvo hann af öllum hugsanleg- um fyrri syndum. Þvi hafi Pétur Guðjónsson, einkavinur Alberts um áratugaskeið, rétt fyrir sér, þá er það ekki Albert sem átti að þvo, — miklu heldur þeir, sem að baki morðsveitunum standa. Og Pétur er ekki einn um þá skoðun, að það séu valdamenn i flokknum, sem óttuðust uppgang Alberts, sem hafi komið þvi svo i kring, að það lenti á knattspyrnuhetj- unni að þiggja mútur, — og þeir hinir sömu siðan látið mútuþægnina leka — ----til að koma óorði á hann. Ýmsar raddir heyrast nú um þetta og vilja eflaust margir fá skýrsvör, ekki sist sjálf- stæðismenn sjálfir. En hvað nú um hina þöglu meðreiðarsveina Ár mannsfells? Hvaða svar hefur Sveinn R. Eyjólfsson, fram - kvæmdastjóri Dagblaðs- ins og einn af eigendum Armannsfells, að gefa Pétri og þeim öðrum, sem vilja fá svar við spurn- ingu sinni? Og hvenær lýkur upp raust sinni Birgir Isleifur Gunnars- son, borgarstjóri i Reykjavik, lögmaður Ar- mannsfells? í þeirri refskák, sem nú er tefld um örlög Ar- mannsfellsmálsins er hver leikur nú vandlega hugsaður, og enginn vill leika af sér manni. Full- yrt er að þetta sé innan- hússtaflmót i Sjálfstæðis- flokknum, og ljóst er á viðbrögðum ráðamanna, að þetta verður ekki hraðskák. En sýnilegt er að eins og titt er i góðri leikfléttu er byrjað á skynsamlegri fórn — og þá má ekki vera með neina nisku. Þá verður að fóma þeim manni eða þeim mönnum, sem nauðsynlegt er til að upp komi góð staða. Og þá kæmi það ekkert á óvart þótt við sæjum i fyllingu timans þrjá menn á fálkakrossum flokksins. Einn þeirra hangir i miðið, öllu mest- ur, en honum til sitt- hvorrar handar verða þeir Sveinn og Albert. Og hann mun segja við þá: Sannlega segi ég yður, i kvöld mun ég skaffa ykk- ur lóðir i Paradis... FIMM a förnum vegi Ert þú með margt fé? % Helgi Eysteinsson, mjólkur- bilstjóri: Nei, ekki get ég nú sagt það. Ég er með nokkrar kindur. Mér finnst hrein hörmung að sjá féð sem kemur af fjallinu, mér finnst það bæði magurt og smátt. Sigþór Steingrimsson: Nei, ég er með örfáar skepnur, annars skulum við ekkert tala um það. Mér virðist sem fallþungi verði ofan við meðallag núna. Alla- vega held ég að við geturn verið ánægðir miðað við fé á Austur- landi. Snorri Jóhannesson: Ónei, ekki er það nú. Ætli féð sé bara ekki þokkalegt, en þó rýrara fremur en hitt og óttaleg kvikindi sýn- ast mér vera innan um. Spurt í Haf ravatnsrétt í gær Úlfar Nordal: Nei, þér að segja er ég einskonar fulltrúi bóndans á Helgafelli og hvað féð snertir þá list mér alveg ljómandi vel á það, þetta eru stólpagripir sumt. Magnús Þórðarson: Nei, ekki er ég nú með margar kindur en maður er þó við þetta. Ég vil ekkert segja um hvort féð sé vænt eða ekki, það er ekkert að marka að sjá það svona renn- blautt og drullugt.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.