Alþýðublaðið - 31.10.1975, Page 6
Mynd fyrir konur segir bíóið ...
Ekki sízt
karlmenn ?
Bíóin
I rauninni er maður ekki alveg viss
um, hvort maður á að taka það sem háð
— eða hvort Friðfinni Ólafssyni -er fúl-
asta alvara þegar hann auglýsir að
þetta sé mynd fyrir alla —og þó einkum
konur.ekki sizt þegar maður rekur aug-
un i þessa viðbót við auglýsingu mynd-
arinnar hady Caroline Lamb.sem gerð
er eftir sögunni Astir Byrons, í blöðun-
um sjálfan kvennafridaginn.
En þessi áleitna spurning verður i
senn skiljanlegri og óskiljanlegri, þegar
horft er á þessa klassisku sögu i þeim
skrautumbúðum, sem slá við öllum For-
syte-ættarrómönum, jafnvel þótt þeir
væru sendir út i lit — og nálgast undir
lokin hughrif Á hverfanda hveli. Þvi
burtséð frá öllu kynjajafnrétti jaðraði
þessi mynd i augum karlmanns við
hreinni paródiu af glæsimeðferð ástar-
harmleikja kvikmynda allra tima.
Karlpeningurinn i myndinni er skrýdd-
ur og málaður á ýktan hátt. Meira að
segja Familie Journalen erhættað birta
svona myndir með heitustu
slots-rómönunum — og ef ekki hefði
komið til gott gerfi og sérlega góður
leikur Söru Miles, þá hefði ekki farið á
milli mála að öll hefðum við verið göbb-
uð á hinn herfilegasta hátt.
En við skulum gefa okkur það sem
forsendu að meining Roberts Bolt, leik-
stjóra og höfund handrits hafi verið sú
að velja Astir Byrons og allt þetta glæsi-
hlaðna brezka yfirstéttarliferni sem um
búðir utan um klassisku söguna um þri-
hy rninginn: Móöir-sonur-tengdadóttir,
og þá eigum við auðveldara með að
meta og sjá myndina í réttu ljósi. Og
sem slik er hún vel gerð, m.a. vegna
. þess að þarna sjáum við dæmi þess, hve
góður leikur hefur mikið að segja fyrir
kvikmynd. Fyrir vikið verður myndin
ekta og kemst til skila eins og höfundur
vill. Það verða engar truflanir og áhorf-
andinn er þátttakandi. Ég minnist sam-
bærilegrar myndar frá sama leikstjóra
og mörgum sömu leikurum: Dóttir
Ryans, sem sýnd var i Gamla bíói i
fyrra.
Við höfum þarna Söru Miles, Jon
SJómrarp
Sjónvarp klukkan 20:40
Flugvélakaup Landhelgisgæzlunnar
eru komin i kastljósiö á nýjan leik og
verða þvi til umræðu i þættinum Kast-
ljós i sjónvarpi i kvöld, en umsjónar-
maður Kastljóss að þessu sinni er Svala
Thorlacius
Arni Gunnarsson ritstjóri mun taka
Leif Magnússon, aðstoðarflugmála-
stjóra tali, en hann var i nefnd þeirri,
er mælti með kaupum smærri flugvélar
og auknu leiguflugi við eftirlit stærri
landhelgi, en Pétur Sigurðsson forstjóri
Landhelgisgæzlunnar eða einhver
fulltrúi, sem hann tilnefnir verður þar
til andsvara og mun verja fyrirhuguð
kaup Gæzlunnar á nýrri Fokker
Friendship flugvél, sem er talin kosta
600milljónir króna. Eflaust mun bera á
góma aðrar flugvélategundir, sem
ræddar hafa verið i fréttum, og grein-
um blaðanna undanfarið, svo sem
Lockheed Orion úthafsvélar, og fróðlegt
væri að fá svör við þvi i þættinum, hvort
Islendingar séu svo litillátir, að þeir geti
sætt sig við notaðar vélar af þessum
gerðum, en leikmenn hafa bent á þann
möguleika. Svo og kannske, hvort
Finch, Richard Chamberlain, John
Mills, Sir Laurence Olivier, Ralph
Richardson, Margaret Leighton, svo
nokkur nöfn séu nefnd — og það er erfitt
að leggja sérstakt og ákveðið mat á leik
jafn frábærra leikara, sem eru komnir i
þann staðal, að þeir bregðast ekki undir
neinum kringumstæðum. Þó er freist-
andi að benda á tvennt i myndinni sér-
staklega: Leik Söru Miles i hlutverki
Caroline Lamb, sem fer vaxandi eftir
þvi sem á myndina liður, — svo og tón-
listRichard Rodney Bennett, sem leikin
er af Filharmóniuhljómsveit Lundúna
undir stjórn Marcus Dods.
En ef við notum orð forstjóra Há-
skólabiós i auglýsingunni án allrar okk-
ar vaknandi vitundar um að konan sé
maður og ekkert kvenlegt sé manninum
óviðkomandi (eða öfugt) — þá er þetta
ein af þeim myndum, sem búast má við
að engin kona léti fram hjá sér fara i
sjónvarpi — að maður nú ekki tali um
litsjónvarp — og þess vegna bjóst maður
nú eiginlega við fullu húsi. En það var
kannske eins gott fyrir þá, sem þá hefðu
lent fremst i húsinu, þvi það er leiðinlegt
að sitja, þó aftarlega sé, undir sýning-
um, sem er iðulega úr fókus, einkum
hægra megin á tjaldinu. BS.
hugsanlegt væri að Gæzlan yfirtaki
eftirlitsflug NATO á þessu svæði og fái
þá Orion vélarfrá NATO til ráðstöfunar.
Þá hafa lánamál nemenda i
framhaldsnámi verið mjög i brennidepli
að undanförnu, en Vilhjálmur
Hjálmarsson, menntamálaráöherra
mun svara spurningum Gunnars
Gunnarssonar, blaðamanns og tveggja
fulltrúa námsmanna um þessi mál.
Loks ræðir svo Svala Thoralacius við
Nikulás Sigfússon, yfirlækni Hjarta-
verndar og leitar skyringa á þvi hvers
vegna islenzkir karlmenn þyngjast
samtals um 70 tonn yfir vetrartimann,
og hvort það standi i sambandi við mat-
aræði landans. Vigdis Jónsdóttir skóla-
stjóri mun i framhaldi af þvi svara
spurningum Svölu um á hvern hátt
karlmenn geti með breyttu mataræði
forðast þessa árvissu fitusöfnun, sem
taliner standa i beinu hlutfalli og bein-
um tengslum við vaxandi fjölda hjarta-
sjúkdómstilfella hjá islenzkum karl-
mönnum.
oo o
Útvarp
7.00 Morgunútvarp Veðurfregnir
kl. 7.00, 8.15 og 10.10. Morgun-
leikfimi kl. 7.15 og 9.05. Fréttir
kl. 7.30, 8.15 (og forustugr.
dagbl.), 9.00 og 10.00. Morgun-
bæn kl. 7.55. Morgunstund
barnannakl. 8.45: Guðrún Guð-
laugsdóttir les „Eyjuna hans
Múminpabba” eftir Tove Jans-
son i þýðingu Steinunnar Briem
(2) Tilkynningar kl. 9.30.
Þingfréttir kl. 9.45. Létt lög
milli atriða. Spjallað við bænd-
ur kl. 10.05. Úr handraðanum
kl. 10.25: Sverrir Kjartansson
sérum þáttinn. Morguntónleik-
arkl. 11.00: Shura Cherkassky
leikur Etýður op. 25 eftir
Chopin/Colonne-hljómsveitin
leikur Sinfóniu i g-moll eftir
Lalo: George Sebastian stjórn
ar.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.Til-
kynningar.
12.25. Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 Við vinnuna: Tónleikar.
14.30. Miðdegissagan: „A fullri
ferð” eftir Oscar Clausen Þor-
steinn Matthiasson les (13).
15.00 Miðdegistónleikar
15.45 Lesin dagskrá næstu viku.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.25 Popphorn.
17.10 Útvarpssaga barnanna:
„Tveggja daga ævintýri” eftir
Gunnar M. Magnúss. Höfundur
les (3).
17.30 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki.
Tilkynningar.
19.35 Daglegt mál Helgi J.
Halldórsson flytur þáttinn.
19.45 Þingsjá Kári Jónasson sér
um þáttinn.
20.00 Frá tónleikum Sinfóniu-
hljómsveitar tslandsi Háskóla-
biói kvöldið áður. Stjórnandi:
Karsten Andersen. Einsöngv-
ari: Elisabeth Söderström.
a. Tilbrigði op. 56 eftir
Brahms um stef eftir Haydn. b.
„Scene dé Berenice”, aria eftir
Haydn. c. „1.41” eftir Jónas
Tómasson. d. „Portrait of Dag
Hammerskjöld” eftir Malcolm
W'illiamson. e.
„Meistarasöngvararnir i Nurn-
berg”, forleikur eftir Wagner
— Kynnir: Jón Múli Arnason.
21.30 Útvarpssagan: „Fóstbræð-
ur” eftir Gunnar Gunnarsson
Þorsteinn ö. Stephensen leikari
les (9).
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir.
Dvöl þáttur um bókmenntir.
Umsjón: Gylfi Gröndal.
22.50 Skákfréttir.
22.55 Afangar. Tónlistarþáttur i
umsjá Asmundar Jónssonar og
Guðna Rúnars Agnarssonar.
23.45 Fréttir i stuttu máli. Dag-
skrárlok.
Sjónvarp
20.00 Fréttir og veöur
20.30 Dagskrá og auglýsingar.
20.40 Kastljós.Þáttur um innlend
málefni. Umsjónarmaður
Svala Thorlacius.
21.30 Fortiðin á sér framtið.
Gengnar kynslóðir hafa látið
eftir sig ómetanleg verðmæti
menningar og listaverka. Þessi
verðmæti verður með öllum
ráðum að varðveita. Kvikmynd
frá Menningar- og visinda-
stofnun Sameinuðu þjóðanna.
Þýðandi og þulur Stefán
Jökulsson.
21.50 Þrir sakleysingjar. Tékk-
nesk biómynd frá árinu 1967.
Leikstjóri Josef Mach. Aðal-
hlutverk Jiriho Sováka og
Marie Drahokoupilová. Ráðist
er á stúlku, og skömmu siðar er
stolið bifreið frá ferðamanni,
Lögreglan fær lýsingu á glæpa-
manninum, og þrir menn, sem
lýsingin gæti átt við, eru hand-
teknir. Þýðandi óskar Ingi-
marsson.
23.20 Dagskrárlok.
Kastljós á þyngd karlmanna,
námslán og flugvélakaup
l’líistos liF
PL-ASTPQKAVE RKSMfOJA
Sfmar 62639-82455
Vatnftgörfeum 6
Bo* 4064 — Raykjavík
Pipulagnir 82208
Tökum að okkur alla
pipulagningavinnu
Oddur Möller
löggildur
pipulagningameistari
74717.
Hafnarfjaröar Apótek
Afgreiðslutími:
Virka daga kl. 918.30
Laugardaga kl. 1012.30.
Helgidaga kl. 11-12
Effir lokun:
Upplýsingaslmi 51600.
Birgir Thorberg
málarameistari simi 11463
ónnumst alla
málningarvinnu
— úti og inni —
gerum upp gömul húsgögn
Ferðamenn ættu að vara sig
á vasaþjófunum
RAN MEÐ fS-
KÖLDU BLÓÐI
Þaö er alltaf full ástæöa
til aö vara íslenzka feröa-
menn við vasaþjófum í er-
lendum borgum — og síö-
asta sagan af afreksverk-
um nokkurra slíkra í
Kaupmannahöfn á dögun-
um ætti aö verða enn eitt
vítiö ti! varnaðar.
Sfðasta mánudag var á fimm
mismunandi stöðuin þar i borg
rænt frá tveim Kinverjum og
þrem Japönum samtals hálfri
milljón isl. króna i ferðatckkum
auk persónuskilrikja og annarra
slikra muna. t öllum tilvikunum
notuðu þrjótarnir mjólkuris til að
gabba fórnarlambið.
Atvikin urðu á þá lund, að ungir
og vel til hafðir menn undu sér að
hverju hinna fimm fórnarlamba,
og sögðu að þeir hefðu fengið is á
jakkann. tsinn áttu þeir að hafa
fengið af glugga nærliggjandi
húss þegar þeir gengu þar um.
Þjófarnir buðust siðan til að
hjálpa f erðalöngunum til að
hreinsa isinn af jökkunum, sem
þeir gerðu, og hurfu svo sina leið.
Þegar útlendingarnir voru búnir
að fara i jakkana aftur uppgötv-
uðu þeir stuldinn, og kærðu til
lögreglunnar.
DIUPFRYST 6RÆHMETI
ER HOLLT OC HÆRING-
ARRfKT A TETURNA
A veturna er það þýðingar-
meira en ella, að mikil áherzla
sé lögð á grænmeti i mataræði
okkar. A þeim árstima er C-
vitaminþörfin nefnilega mest.
Notkun á djúpfrystu grænmeti
hjálpar til viö að fullnægja C-
vftaminþörfinni, auk þess sem
grænmetiö er góö tilbreyting i
mataræðinu á þeim árstima. 1
frystiborðinu i matvöruverzlun-
inni er hægt að velja um ýmsar
tegundir af djúpfrystu græn-
meti, allt frá hreinu grænmeti
til hvers kyns grænmetisblöndu.
Þaö er löngu sannaö, að meö
djúpfrystingu heldur grænmeti
um langa hriö næringargildi
sinu og vitaminum. Skjót upp-
skera og djúpfrysting sem allra
fyrst eftir að grænmetið hefur
veriðskoriðeru þó skilyröi þess,
að vel takist til. En þar að auki
þarf einnig að meðhöndla djúp-
frysta grænmetið á réttan hátt
áður en þess er neytt, ef bragð
og gæði eiga að komast fyllil,
til skila. Þessar reglur um notk-
un á djúpfrystu grænmeti er t.d.
gott að þekkja:
1. Djúpfryst grænmeti, sem
nota á i kalda rétti svo sem eins
og salöto.þ.h., á EKKI aðsjóða.
Það á að nota beint úr pakkan-
um og ekki má þiöa þaö, fyrr en
rétt áður en það er notað.
2. Ef framreiða á djúpfryst
grænmeti heitt eða i heitum
réttum, þá á að sjóða það eða
verma yfir gufu sem allra styzt.
Nota á eins lítið vatn á græn-
metið og framast er unnt og út i
vatnið á að setja dálitinn bita af
smjöri eöa smjörliki, sem gefur
ferskt og gott bragð.
3. Framreiða á djúpfryst
grænmeti, sem hefur verið soðið
eða hitað upp yfir gufu, strax og
lokið er við að sjóða það eða
hita. Það þolir enga geymslu
eftir suðu eöa hitun, missir þá
bragð og verður klfstraö og
kássulegt.
Teppahreinsun
lireinsurn góifteppi og húsgögn i
hcimahúsum og fjrirtekjum.
Eruin meft nýjar vélar. Góft þjón-
usta. Vanir menn.
SIGFÚS BIRGIR
82296 40491
Útvarps.og
sjónvarpsviðgerðir
Kvöld og helg-
arþjónusta.
10% afsláttur til
öryrkja og aldr-
aftra.
SJÓNVARPS-
VIÐGERÐIR
Skúlagötu 26 —
slmi 11740.
-Hvað tekurðu til bragðs
ef barn þitt tekur allt í
einu upp á því að stela?
Hvað tekurðu til bragðs, cf þú
verður þess visari að barr.ið þitt
hefur stolið frfmerkjum úr safni
skólafélaga sins, faliö einhvern
mun, scm skreytti borð
kennarans, eða stungið sjálf-
skeiðingi i vasa sinn i verzlun-
inni hinum megin við götuna?
Sálfræðingurinn Benjamin
Spock, sem nú er talinn allra
manna sérfróðastur um barna-
uppeidi og áhrif foreldranna i
því sambandi segir að það sé
einkum á sjö ára aldrinum sem
stelvisi komi fram hjá börnum,
jafnvel svo, að það hljóti að
kallast venjulegt....
Við lifum i samfélagi, þar sem
eignaréttur einstaklingsins er
tekinn mjög hátiðlega.
Við stundum vinnu okkar
ekki sem þátt i samvirku fram-
lagi þjóðfélaginu til heilla, held-
ur til að þéna peninga handa
fjölskyldunni og sjálfum okkur.
Brothætt.
Undantekningarlitið er litið á
sérhvern hlut á heimilinu, að
venjulegum húsgögnum þó oft-
ast nær undan skildum, sem
einkaeign þessa eða hins með-
lims i fjölskyldunni.
Um leið og barnið fera aö gera
sér grein fyrir slikum hlutum —
einhvern tima fyrir þriggja ára
aldurinn — kemst það að raun
um að það má ekki leika sér að
brothættum munum, vegna þess
að þeir eru i eigu foreldranna.
Taki hann upp leikfang, sem
eldri systir þess á, þrifur hún
það af þvi og segir: „Égáþað!”
Sumir s a m v i z k u s a m i r
foreldrar hafa lagt hart að sér
við að kenna börnum sinum aö
meta og viðurkenna
sameignarrétt hvers um sig
innan þriggja ára aldurs.
Ég er þeirrar skoðunar að rétt
sé að láta það biöa, þangað til
börnunum verður það eðlilegra
að eiga hlutina saman.
Þar með á ég ekki við.að
foreldrarnir eigi að varast að
impra á þvi meðan börnin eru á
áður nefndum aldri, að þau eigi
að eiga hlutina saman Og ég
mundi ýta undir það, ef sú hug-
mynd vaknaði hjá þeim tveggja
eða þriggja ára.
En flest börn yngri en þriggja
ára, hafa of rika hneigð til þess
að eiga sitt ein, og of litla
ánægju af að leyfa öðrum að
eiga þá með sér — jafnvel
aðeins stundarkorn — til þess
um slikt sé að ræða.
Þegar lítið barn reynir að
komast yfir leikfang frá öðru
barni á svipuðu reki, og það
Léttist úr 134 f
Séra Olof Edquist hafði alltaf
verið feitlaginn. 1 lok skyldu-
námsins var hann 86 kg, og
fimm árum siðar, er hann
gegndi herþjónustu, var hann
kominn upp i 116 kg. Frá
barnsaldri var hann mikill
matmaður. Hann lærði
matreiðslu, og það starf átti vel
við hann. þvi miður. Hann
stundaði lika sjómennsku, en
alltaf stóð þó hugur hans að þvi
að gerast prestur, og árið 1968
hlaut hann prestsvigslu.
Sóknarbörn hans sögðu „Prest-
urinn okkar er hnöttóttur eins
og ostur" Þá sýndi vigtin 134
kg, og blóðþrýstingurinn var
220. Þetta reyndi á hjartað — og
á fæturna. og með uppskurði
þurfti að taka blóðtappa úr
vinstra fæti.
Læknir séra Edquists fyrir-
skipaði honum fæði meö 1000
hitaeiningum. En hann undi þvi
ekki til lengdar, matarlystin
jókst um allan helming, og á fá-
um dögum var allt komið i sama
horf.
virðist hafa litla löngun til að
láta þar hlut sinn, tel ég ráð-
legast að þeim sé leyft að deila
um það stundarkorn. Það er
ekki nema hollt hverju barni að
læra það snemma að standa á
rétti sinum.
Yfirleitt er það, að sá sem er
eigandinn sigri i deilunni, þar
sem eigingirnin eykur honum
þrótt.
Þegar börn eru komin á fjórða
árið fer að vakna með þeim
nægileg ástþð i garð annarra
barna um leið og þau fara að
hafa nægilega mikla ánægju af
sameiginlegum leik til þess, að
þau verða fús að lofa öðrum að
eiga hlutina með sér.
Aaldrinum sex til tólf ára, fer
séreignarlöngunin að segja til
sin aftur og þá sterkari en fyrr.
Þáviljabörn fara að „eiga” sin
eigin herbergi. Þau hafa rika
hvöt til þess, að minnsta kosti
öðru hverju, að skipuleggja
eignir sinar og gæta þeirra.
Mörg af þeim vilja fara að
safna einhverju sérstöku —
frimerkjum, steinum jafnvel
einhverju rusli. Og þau fara að
hugleiöa aðferðir til aö þéna
peninga.
Að safna i sarpinn.
Að sama skapi og viðkomandi
eldist dregur úr þessari löngun
hans til að safna i sarpinn, að
minnsta kosti i smáum stil.
Hugur hans beinist að mannleg-
um tengslum, hugmyndum og
hugsjónum, málefnum og
framtiðinni.
Við eyöum þá ekki fleiri orö-
um að söfnunarhneigðinni og
gildi hennar, en beinum athygli
okkar að stelvisinni.
Þegar eins eða tveggja ára
barn reynir að fara með leik-
fang annars barns inn til sin, þá
er þar áreiðanlega ekki um
þjófnað að ræða. Ég minnist á
þetta einur.gis i þeimtilgangi að
vara foreldrana viö að vekja
nokkra sektarkennd hjá barni á
þeim aldri i þvi sambandi Þá er
ráðlegast að segja sem svo:
„Henry langar til að fá það
aftur, svo viö verðum að fara
með það til hans”.
Það er ekki fyrr yfirleitt en
barnið er oröið sjö ára, að
hneigð til þess að taka það sem
það á ekki, getur orðið til-
tölulega almennt vandamál.
Það getur komið fyrir að
98 kfló iiiiiiiiii
Hann sá að hér dugðu engin
vettlingatök. Hann hafði lesið
um föstur og ákvað að reyna þá
leið. Fyrst fastaði hann i eina
viku, og það reyndist auðveld-
ara en hann liafði búizt viö.
Þvinæst borðaði hann aðeins
hrátt grænmeti um hrið, fastaði
svo aftur vikutima og léttist um
hálft kilógramm á dag. Hann
tók nú upp þá reglu að fasta
fyrstu viku hvers mánaðar, og
siðar lengdi hann þetta föstu-
tlmabil upp i tvær vikur. Hann
tekur þetta alls ekki nærri sér.
Honum finnst fastan auðveldari
en að þurfa að spara við sig
mat. A einu ári hefir hann náð af
sér 36 kilógrömmum, og tak-
mark hans er að léttast enn um
20 kg og komast niöur i 78 kg.
Hann liefir gert þetta alveg á
eign spýtur, ekki dvalið i nein-
um heilsuhælum. Og allan
þennan tima hefir hann sinnt
störfum sinum eins og ekkert
hefði i skorizt. Hann drekkur
aldin- og grænmetissafa og
barnið hnupli einhverju frá
skólasystkini sini. Eða aurum
úr pyngju móður sinnar. Eða
leikfangabyssu i verzlun.
Það er hvorki nauðsynlegt né
æskilegt að foreldrarnir áviti
það harkalega fyrir það, eða
gefi i skyn að þau muni aldrei
geta tekið það i sátt, eöa unnað
þvi framar.
Fyrsta skrefið, sem sýnir svo
að ekki verður um villzt, að
foreldrarnir vilji ekki liða neitt
hnupl, er að skila tafarlaust
þvi,sem hnuplað hefur veriö.
Barnið verður að fara með
það, sem það hnuplaði aftur til
eigandans þegar i stað, annað
hvort eitt, eða i fýlgd með móð-
ur sinni eða föður.
Iðrizt sárlega...
Verði það foreldranna, sem fer
með barninu, að hafa orð fyrir
þvi vegna þess hve það blygðast
sin, nægir að segja einungis að
barnið iðrist þess sárlega, að
þviskulihafa orðið þetta á, og
það muni aldrei koma fyrir það
aftur.
Og þegar foreldrarnir ræða
þetta við barnið sjálft, er ekki úr
vegi að haga orðum eitthvað á
þessa leið: Það hvaFf laralltaf
öðru hverju að öllum að langa til
aö eiga einhvern þann hlut, eða
eitthvað það sem aðrir eiga. En
við megum ekki taka það, þvi að
slikt væri ekki heiðarlegt. Ég
veit að þú ert ekki illa gert barn
og þú tókst þetta ekki af þeim
sökum.
Þegar barni verður það á að
hnupla einhverju, er það yfir-
leitt vegna þess að þvi liður að
einhverju leyti illa, jafnvel þó
það geti ekki til nefnt neina
orsök fyrir þeirri vanliðan.
Geri barnið sér hins vegar
ljóst hvar skórinn kreppir, þá
ætti foreldrunum að vera mjög i
mun að vita það einnig.
En aldrei ættu foreldrar að
láta sem þau leggi trúnað á þeg-
ar barnið reynir aö telja þeim
trú um — og tekst venjulega
ekki betur til en svo að það opin-
berar þar með sekt sina — að
það hafi fundið spilin,
plastdátann eða aurana.
Börnum, sem það hendiir að
hnupla einhverju á fyrstu skóla-
árunum sinum er þaö venjulega
nægilega þung refsing aö upp
um þau kemst og að þau veröa
vatn. Hann hefir farið til læknis
sins, m.a. til að fylgjast með
blóðþrýstingi, sem var kominn
upp i 220/155, sem er mjög hátt,
en var síðast ekki nema 135/85,
og er það alveg eöiilegt. Hann
hafðireykt 30 sigarettur á dag,
en fór i bindindi lO.mai 1971.
Það var mjög erfitt i uppliafi, en
eftir að hann hóf fösturnar,
hvarf löngunin i sigaréttur gjör-
samlega. Hann er lika alveg
laus við hina óseðjandi
matgræðgi.
Séra Edquist býr á fimmtu
hæð, og ef hann þurfti að ganga
upp alla stigana vegna bilunar
á lyftunni, varð hann að hvila
sig og kasta mæðinni á hverri
hæð. Nú notar hann sjaldan lyft-
una. Hann iðkar göngur og
hlaup og skiðaferðir. Hann
þurfti að nota sterkar svefntöfl-
ur til að geta sofiö en nú sefur
hann án lyfja.
Eiginkona séra Edquist hefir
tekið upp svipað mataræði, og
maður hennar. Hún hefir lika
fastaö en ekki eins lengi. og
að biðjast afsökunar, til þess að
þau láta það ekki henda sig
aftur. Lika það að þeim verður
ljóst að foreldrarnir þola þvi
ekki slikt.
Það er að minnsta kosti sjald-
gæft að þau endurtaki það.
Þetta sém um hefur verið
fjallað, er hnupl sem barnið
fremur einsamalt og með
leynd, og það barn sem hlotið
hefur viðhlitandi aðhald i upp-
eldi af hálfu heiðarlegra for-
eldra. Slikt hnupl á ekkert skylt
við þegar krakkar mynda með
sér þjófaílokka, vitandi það.að
foreldrarnir taka ekki ýkjahart
á sliku framferði.
Barnasálfræðingur, sem fær
til meðferðar hnuplmál eins og
það er fyrr greinir, getur fundið
ýmsar og ólikar orsakir-----að
barninu finnst sem það sé haft
út undan, að það séhaldið öfund
eða afbrýðisemi i garð bróður
eða systur, og þannig mætti að
sjálfsögðu lengi telja.
En þegar ég fékkst nokkuð við
slikt starf, furðaði ég mig á þvi
hve maður rakst hvaö eftir
annað á vissar hliðstæður.
Flest voru börnin rúmlega sjö
ára. Og ekkert þeirra var, aö
dómi kennaranna, sérlega vel
liðið af bekkjarsystkinum sin-
um
Það álag sem þvi er samfara
að breytast úr „litlu barni”
pabba og mömmu i verðandi
ungling, krefst meðal annars
hæfileika tilaðeiga auðvelt með
að stofna til einlægrar vináttu.
Sjálfhelda.
Þau börn sem ekki eru gædd
hæfileikum i þá átt. geta komizt
i sjálfheldu i einskis manns
landi. Erfiðleikarnir á að afla
sér vina, geta orðið til þess að
barnið fái hneigð til aö eignast
eitthvað annað.
Þeir hlutir sem börn hnupla
helzt á þessum aldri, viröast
sanna þá tilgátu mina. Þau
hnupla annaðhvort þvi, sem þau
vita að einhverjum öörum
þykir vænt um, eða peningum
til að kaupa sælgæti i þvi skyni
að kaupa sér vináttu meö þvi.
En þegar barnið hefur verið
staðið að slikri hrösun, hættir
það oftast nær öllu hnupli.
Verði sú ekki raunin, er
liklegt að orsakirnar séu
alvarlegri og djúplægari en þær,
sem áður er getið, annað hvort
hvað snertir sambúðina við
skólasystkinin, eða foreldrana.
Og þá er ekki neinum vafa
bundið að börnin þarfnast
sálfræðilegrar aðstoðar.
lagt af um 10 kg. Hún er laus
við gallköst sem hún þjáðist af,
og hægðir hafa komizt i gott lag,
en voru áður tregar. Hún fastar
dag og dag, eða 2 daga i einu,
t.d. þegar meiri háttar
hreingerning eða eitthvert
annað erfiði er fyrir höndum,
þvi að henni finnst henni aukast
þróttur i föstunni.
Matseöill séra Edquists er
sem hér segir:
Morgunverður: Rósberjate og
ekkert með þvi.
Hádegisverður: Krúska með
súrmjólk og hveitikimi.
Kvöldverður: Hrátt grænmeti
og einhver heitur grænmetis-
réttur.^
Hann hefur ánægju af að
matbúa enn i dag. þótl
matreiðslan beinist nú að öðrum
réttum en áður fyrr. Einn
rétturinn er þannig, að hann
brytjar ýmiskonar grænmeti
smátt, hitar þaö létt i mataroliu
á pönnu, blandar saman við þaö
tómatmauki og borðar þetta
með soönum hrisgrjónum.
Eftir Dr. Benjamín Spock