Alþýðublaðið - 05.12.1975, Qupperneq 8
- sími 81866 - eða sendið greinar á ritstjórn Alþýðublaðsins,Sfðumúla 11, Reykjavík
Full ástæða til að vera á
verði um ranga verðlagningu
Kári skrifaði
Ærna ástæðu tel ég til að fagna
þvi að loksins er kominn maður
sem hefur verulegan áhuga á sinu
starfi i embætti verðlagsstjóra.
Hann gengur að þvi með oddi og
egg að seljendur vöru verðmerki
vöru i sýningargluggum, og nýj-
asti þátturinn i verðlagseftirlitinu
er að nú geta eftirlitsmenn
embættisins gengið inn i hvaða
verzlun eða fyrirtæki sem selur
þjónustu og krafizt verðlagsút-
reikninga fyrir vöru og þjónustu
sem á boðstólum er. Þetta er
þarft framtak og gert i þeim til-
gangi að fólk þurfi ekki að ganga
að þvi gruflandi að sá sem það á
kaup við sé að svindla á þvi eða að
beita það einhverskonar órétti.
Til áréttingar þvi áliti minu að
hér sé upptekin þjóðþrifastarf-
semi vildi ég segja örlitið dæmi
sem kunningi minn sagði mér að
hefði hent sig nú á dögunum.
Hann fékk litla hrærivél að gjöf
oe vildi skipta henni á öðru raf-
magnstæki, en það fylgi með i
kaupunum að slikt væri unnt.
.Kuáninginn sagðisthafa séð tæki
sem hann hafði hug á að eignast i
skiptum fyrir vélina i annarri
heimilistækjaverzlun og stóðu
verðin þannig að hægt hefði verið
að skipta á öfnu. Hann fór siðan
morguninn eftir í verzlunina þar
sem gjöfin hafði verið keypt, en
þaðer ein stærsta verzlun sinnar
tegundar i miðborginni. Það stóð
heima að tækið sem hann hafði
hug á fékkst i verzluninni, en
verðið var rúmum 3000 krónum
hærra en á sama hlut i hinni
verzluninni sem hann hafði skoð-
að kvöldið áður. Þetta kom kyn-
lega fyrir sjónir og þvi spurðist
hann fyrir um þetta. Svo vildi til
að ungur maður var við af-
greiðsluna og sagði hann sig fýsa
jafnmikið að komast til botns i
þessu. Hann sótti þvi möppu sem
hafði að geyma útreikninga og
þar stóð heima að kunningi minn
hafði rétt fyrir sér, verðið var of
hátt, 3000 krónum of hátt. Skiptin
áttusér stað og fylgdu afsakanir i
kaupbæti, þetta hefðu verið mis-
tök og yrðu þau lagfærð hið skjót-
asta.
Kunningi minn sagðist draga i
efa að hér hefði verið um mistök
að ræða heldur hefði hugur fylgt
máli. Þess vegna brá ég mér i
verzlunina og vildi athuga málið.
Viti menn að þar var tækið verð-
merkt með þvi sama verði og
kunningja minum var tjáð daginn
áður og væri rangt og stæði þar
vegna „mistaka”.
Þess vegna hripa ég þessar lin-
ur að ég vil benda fólki á að vera á
varðbergi gagnvart svona hlut-
um, og spyrja ef það er i vafa um
réttmæti verðmerkinganna.
Fróðlegt væri að vita he margir
hafa keypt svona tæki i þessari
verzlun og látið hafa af sér stórfé
vegna „mistaka” i verðmerking-
um.
Hvimleiðir út-
sendarar síð-
degisblaðanna
Það er einn hlutur sem ég hef
lengi ætlað að skrifa i „Hornið”
ykkar Ut af, en hef hingað til ekki
nennt að gera. Er það út af hinum
mjög svo hvimleiðu auglýsinga-
árásum siðdegisblaðanna Visis
og Dagblaðsins á saklausa veg-
farendur. Hræðsla þessara blaða
við að verða undir i baráttunni
um kaupendur, fer að nálgast
geðveiki. Nýjasta vopn Visis i
þessari baráttu um að verða ekki
undir, er að prenta limmiða, sem
svo menn á þeirra vegum klina á
fólk. Fyrsti limmiði þeirra hafði
áletrun eitthvað á þessa leið:
„Visir að bættri umferðamenn-
ingu, ég kann að ganga yfir
götu”. I sjálfu sér er ekkert at-
hugavert við efni áletrunarinnar,
JÓLAFUNDUR
Kvenfélags Alþýðuflokksins
í Reykjavík
verður haldinn mánudaginn 8. desember
n.k. kl. 20.30 i Iðnó uppi.
Séra Þorbergur Kristjánsson flytur hug-
vekju.
Nokkrar félagskonur flytja þætti um jól i
ýmsum löndum.
Kaffiveitingar o.fl.
Mætið vel og takið með ykkur gesti.
Stjórnin.
en þó finnst mér auglýsingaáróð-
ur sem þessi hálf neyðarlegur. Ef
fólki er alveg sama þegar þessum
miðum er klesst á það, þá er það i
lagi, en þegar þessir útsendarar
Visis, klina miðunum á fólk óvör-
um, eins og gerðist i Laugardals-
höllinni fyrir landsleik fslands og
Noregs, þá finnst mér of langt
gengið.
Þó finnst mér kasta tólfunum,
þegar blaðasöludrengir þessara
blaða, eru að selja vöru sina á
miklum umferðargötum, eins og
t.d. i Armúlanum. Þar hlaupa
þeir fyrir bilana og veifa sölu-
vamingnum framan i ökumenn,
með þeim afleiðingum að þeir
þurfa oft að snarhemla til að
forða árekstri. Liggur oft nærri,
að aftanárekstrar verði vegna
þessara gálausu sölumanna.
Argur.
Fyrirspurn til
Eysteins í SL
Lesandi hringdi:
Eysteinn Helgason sölustjóri
hjá Sölustofnun lagmetis lýsti þvi
nýlega yfir i viðtali við Alþýðu-
blaðið, að milljónaverðmæti færu
i súginn hjá sjómönnum þegar
þeir hentu lifrinni.
I þessu sambandi langar mig til
að spyrja Eystein hvað sjómenn-
irnir beri úr býtum ef þeir hirða
lifrina. Einnig væri fróðlegt að fá
það upplýst hver verðmismunur
er á lifur sem fer i gúanó og lifur
sem fer i niðurlagningu. Þætti
mér vænt um að fá svör við þess-
um spurningum hið fyrsta.
Meiri áróður í
landhelgismálinu
Sjómaður hringdi:
— Okkar sterkasta vopn i land-
helgisstriðinu er samúð annarra
þjóða. Til þess að vekja fólk i öðr-
um löndum til umhugsunar um
þetta lifshagsmunamál okkar
þarf að koma til sterkur áróður.
Utanrikisráðuneytið hefur ekki
staðið sig vel á þessum vettvangi.
Fregnir herma að engir nýir
bæklingar hafi verið gefnir út
vegna útfærslunnar i 200 milur
heldur hafi verið notazt við rit
sem Hannes Jónsson samdi þegar
við færðum út i 50 milur. Engar
fréttakvikmyndir hafa verið
gerðar fyrir tilstilli utanrikis-
ráðuneytisins, engum erlendum
blaðamönnum verið boðið sér-
staklega til landsins svo vitað sé
og þannig mætti lengi telja.
Ennþá er timi til að bæta úr
þessum mistökum og ég skora á
utanrikisráðherra að sjá til þess
að svo verði gert.
Útvarp
FÖSTUDAGUR
7.00 Morgunútvarp.
12.00 Dagskráin. Tónleikar. Til-
kynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir. Til-
kynningar.
13.00 Við vinnuna: Tónleikar.
14.30 Miðdegissagan: „Fingra-
mál” eftir Joanne Greenberg
Bryndis Viglundsdóttir les
þýðingu sina (9).
15.00 Miðdegistónleikar.
15.45 Lesin dagskrá næstu viku.
16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15
Veðurfregnir).
16.20 Popphorn.
17.10 (Jtvarpssaga barnanna:
„Drengurinn i gullbuxunum”
17.30 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir.Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Dagiegt mál.
19.40 Þingsjá.
20.00 Frá tónleikum Sinfóniu-
hljómsveitar tslandsi Háskóla-
biói kvöldið áður. Stjórnandi:
Vladimir Ashkenazy.
21.30 Útvarpssagan: „Fóstbræð-
ur” eftir Gunnar Gunnarsson.
Jakob Jóh. Smári þýddi. Þor-
steinnö. Stephensen leikari les
(23).
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Leiklistar-
þátturUmsjón: Sigurður Páls-
son.
22.50 Afangar. Tónlistarþáttur
23.40 Fréttir i stuttu máli. Dag-
skrárlok.
Sjónvarp
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Pagskrá og auglýsingar.
20.40 Kastljós. Þáttur um innlend
málefni. Umsjónarmaður Eið-
ur Guðnason.
21.40 Hljóð úr horni. Howard
McGullough leikur nokkur lög á
nýstárlegt rafmagnsorgel og
kynnir hljóðfærið. Þýðandi
Stefán Jökulsson. Stjórn upp-
töku Andrés Indriðason.
22.10 Vltahringur. (Shake
Hands With The Devil).
Bandarisk biómynd frá árinu
1959. Leikstjóri er Michael
Anderson, en aðalhlutverk
leika James Cagney, Don
Murray og Michael Redgrave.
Myndin gerist i Dyflinni árið
1921. Bandariskur læknanemi
af irskum ættum gengur i and-
spyrnuhreyfinguna, er Eng-
lendingar skjóta vin hans til
bana. Þýðandi Kristmann
Eiðsson.
23.55 Pagskrárlok.
FRAMHALDSSAGAN ®—
Brock byrjaði strax að ásaka Holl með mörgum ljótum
orðum. Það var greiniiegt, að hann ætlaði að firra sjálfan
sig allri sök.
Loks þagnaði hann, þegar hann sá stirðnaðan svip dr
Holls.
— Ég er ekki að ráðast persónalega á yður, dr. Holl,
sagði hann.
— Heldur á hvern? Dr. Jordan?
— Já, ég verð að viðurkenna, að hann hefur valdið mér
miklum vonbrigðum.
— Hann yður? spurði dr. Holl hvasst. — Hvers vegna
komuð þér hingað með konuna yðar?
— Hún vildi það. Ég hef alltaf litið á Jan sem sameigin-
legan vin okkar. Mér kom aldrei til hugar, að hann vildi
eyðileggja hjónaband okkar.
Þetta kórónaði allt. Dr. Holl gladdist yfir, að Jan hafði
sagt honum allt af létta, þvi að Brock var enn samvizku-
lausari en hann hafði haldið.
— Það hefur hann alls ekki gert.heldur þvert á móti,
sagði hann ákveðinn. — Ég hef frétt, að kona yðar hafi
verið eiturlyfjaneytandi. Þarf ég að tala skýrar?
— Ég skil þetta alls ekki. Ég veit ekki, hvar hún fékk
eiturlyfin. Áreiðanlega hjá Jordan.
— Reynið að átta yður, maður, hrópaði dr. Holl. — Ég
þoli ekki svona svivirðingar um heiðviröan mann. Dr.
Jordan heldur sér við læknaeiðinn. Hann vonaði, að enn
væri unnt að hjálpa konu yðar...
1 þvi hringdi síminn.
Hann hrukkaöi ennið meðan hann hlustaði.
— Já, takk. Það var sorglegt. Ég veit, að eftirleikurinn
verður harður. Við ræðum það seinna.
Hann leit fyrirlitningaraugum á Oluf Brock.
— Konan yðar lézt fyrir hálftima, hr. Brock, sagði
hann. Það fór ekki fram hjá honum, að Brock virtist létta.
— Það átti aldrei að sleppa henni af spitalanum! Þetta
er morð!
Nú er nóg komið! Þetta er ekki lokuð deild. Við höldum
ekki sjúklingum hér gegn vilja þeirra. Við getum ekkert
nema bent á að afleiðingarnar geta orðiö alvarlegar og
sjúklingarnir bera sjálfir ábyrgðina um leiö og þeir yfir-
gefa spitalann.
Svo held ég, að þér vitið betur en ég, hvað orsakaði
heilsumissi konu yðar. Það verður lögreglumál.
Oluf Brock hrökk við.
— Er ekki hægt að ræða málið? spurði hann eftir smá
þögn.
— Nei. Ég krefst lögreglurannsóknar vegna spitalans.
Við höfum ekkert meira að tala um. Sælir. hr. Brock.
— Hvað er nú? spurði Hetty Rose, þegar Brock var
farinn.
— Biðum eftir gangi mála og drekkum teið okkar, sagði
dr. Holl.
— Kaffið, sagði hún og reyndi að brosa glaðlega.
— Eruð þér leiðar, Roselill? Eins og það hafi ekki komið
fyrir, að við sæum hann svartari? Sækið mér koniaksglas.
Jordan fer að koma. En hringið fyrst heim fyrir mig.
Julia Holl horfði ringluð á gólfið. Að hann skyldi þurfa
að standa i ströngu mánuð eftir mánuð!
— Hvaðerað, mamma? spurði Dani. — Hvers vegna er
pabbi eyðilagður?
Hún hafði heyrt Juliu segja, að hann ætti ekki að vera
svona eyðilagður.
Julia strauk yfir silkimjúkt hár hennar.
— Pabbi er ekkert eyðilagður, músin min. Hann er bara
leiður.
— Það eru alltaf heimskingjar að þreyta hann, sagði
Dani. — Nú verður Cecile reið.
Cecile, fyrrverandi ritari dr. Holls, en núverandi ráðs-
kona, birtist um leið og nafn hennar var nefnt.
Julia haföi þegar sagt henni, hvað komið hafði fyrir og
það var óhætt aðsegja, að Cecile logaði af reiði.
AÐST0ÐAR-
LÆKNIRINN
Chris kallaði á Dani.
— Farðu inn til hans, bað Julia.
— Hvað er Marc að gera?
— Taka bilinn i sundur.
— Nýja bilinn?
— Það gengur ekki alltof vel, sagði Dani.
— Við erum bráðum komin með varahlutaverzlun, and-
varpaði Julia.
— Hann þegir þó á meðan, sagði Cecilie til að verja
Marc. — Hvað er nú að?
— Frú Brock er dáin.
Cecilie andvarpaði djúpt. — Hvers vegna velur svona
fólk ekki annan spitala?
— Mig langar ekkert til að hugsa um allt það, sem
gerist á stóru spitölunum og við fréttum aldrei um, sagði
Julia.
U)
n
<u
>
"ö3 'ö>
+■ 4—
</> cn
fO 03
^ CQ
£ B
m *-
*
, m
.!=
t =
Ul Ul
Alþýðublaðið
Föstudagur 5. desember 1975.