Alþýðublaðið - 05.12.1975, Síða 9
Árleg landskeppni i blaki
við Færeyjar hefst
Blaksamband Islands og Blak-
samband Færeyja hafa komið sér
saman um að þjóðirnar leiki tvo
landsleiki árlega, að minnsta
kosti næstu fimm árin. Verður
keppninni þannig háttað að fyrst
verða tveir leikir leiknir hér
heima og sfðan tveir i Færeyjum
á næsta ári, og svo koll af kolli.
Blaksamband tslands hefur gefið
veglegan bikar til þessarar
keppni. Munu þetta vera fyrstu
kynni þessara þjóða i þessari
iþróttagrein.
Fyrstu leikirnir i þessari lands-
keppni verður i kvöld og á morg-
un. Sá fyrri verður leikinn kl.
20.30 i Laugardalshöllinni, og sá
siðari kl. 15.30 á sama stað. Leik-.
urinn i kvöld verður 10. landsleik-
ur Islendinga i blaki, en sá fyrsti
var leikinn gegn Norðmönnum i
marz 1974.
Islenzka landsliðið hefur verið
valið og er það þannig skipað:
Halldór Jónsson 1S, sem jafn-
framt er fyrirliði, Indriði Arnórs-
son 1S, Sigfús Haraldsson IS, Ant-
on Bjarnason, UMFL, Tómas
Jónsson UMFL, en þetta e'r jafn-
í kvöld
framt hans fyrsti landsleikur.
Elias Nielsson Vikingi, Öskar
Hallgrimsson Vikingi, Páll Ólafs-
son Vikingi, Guðmundur E. Páls-
son Þrótti, Gunnar Árnason
Þrótti, og Valdemar Jónasson
Þrótti. Guðmundur og Valdemar
eru jafnframt einu mennirnir
sem leikið hafa alla landsleikina
til þessa. Ekki er þó alveg vist að
allir þessir menn leiki siðari leik-
inn, þvi að sögn Halldórs Jóns-
sonar fyrirliða, geta verið gerðar
smávægilegar breytingar, ef illa
gengur.
íprcttir
Gilroy gerir það
gott í Skotlandi
Stund hefndarinnar
er runnin upp!
Þess vegna verður að hvetja FH til sigurs
Árni áf ram
hjá Fram
Gilroy tók við stöðu fram-
kvæmdastjóra Morton hefur lið-
inu hins vegar gengið mun betur,
og eru þeir komnir upp fyrir
miðja deild. Þykir sá árangur
mjög góður hjá honum þar sem
Morton er m jög fjárvana og hefur
engin efni á að kaupa leikmenn,
til sin. Var allt i óreiðu hjá félag-
inu áður en hann kom, en Joe hef-
ur nú komið á fastari skorðum hjá
félaginu og dafnar það vel undir
stjórn hans.
Danmörk og
Finnland í
16 liða úrslit
Tvö lönd hafa unnið sér rétt i 16
liða úrslitum, alþjóða knatt-
spymukeppni unglinga sem fram
fer I Ungverjalandi dagana 28.
mai til 6. júni nk. Þau eru Dan-
mörk og Finnland, en þriðja land-
ið er svo auðvitað gestgjafarnir
Ungverjar sem fara beint i úrslit.
Eins og menn muna eflaust þá er
Island i riðli með Luxemburgar-
mönnum og hefur fyrri leikurinn
þegar verið leikinn. Hann fór
fram i Luxemburg og lauk með
sigri okkar manna 1:0. Er þvi lik-
legt að allavega 3 lið frá Norður-
löndum taki þátt i 16 liða úrslit-
um. Seinni leikur Islendinga og
Luxemburgara fer fram hér
heima 16. april nk.
Á sunnudagskvöldið kl. 20.30
leikur FH siðari leikinn i 1. um-
ferð Evrópukeppni bikarhafa
gegn norska liðinu Oppsal. Eins
og menn eflaust muna þá tapaði
FH fyrri leiknum sem leikinn
var i Ekeberghallen i Osló 19:11.
Möguleikar FH-inga til að vinna
upp þennan 8 marka mun verða
eflaust ekki miklir, þvi þetta
norska lið er eitt það bezta i
Noregi um þessar mundir. En
hitt er svo annað mál að þaö
væri eflaust mjög gaman fyrir
islenzka handknattleik, að FH-
ingar ynnu leikin þó bara væri
ekki nema til þess að unnendur
handknattleiksiþróttarinnar
geti sem fyrst aftur gengið tein-
réttir og stoltir út úr Laugar-
dalshöllinni, eftir hrakfarir
landsliðsins gegn þvi norska nú i
vikunni.
Óvenjuleg bláðaskrif norskra
blaða um islenzkan handknatt-
leik og knattspyrnu hefur verið
með ólikindum nú siðasta ár.
Menn opna svo ekki norskt blað
fyrir leiki við lslendinga, en að
þar séu feitletraðar greinar um
ruddaskap Islendinga og ýmis-
legt annað þaðan af verra.
Við svo búið má ekki standa.
Það er óskandi að dagur hefnd-
arinnar sé loksins runninn upp
og að FH-ingar, fyrir Islands
hönd, sýni nú þeim norsku i tvo
heimana. Þvi veit ég að það er
ósk allra hand- og knattspyrnu-
unnenda að FH-ingar sigri i
leiknum með eins stórum mun
og mögulegt er. Allir þeir, sem
séð hafa islenzk félagslið og
landslið leika, vita að við erum
langt frá þvi að vera ruddalegir,
og voru t.d. Norömennirnir,
sem léku landsleikina i vikunni,
verri en við. Munurinn á is-
lenzkum og norskum hand-
knattleik er bara sá að margir
Norðmennirnir, sem léku t.d.
landsleikina, hefðu frekar átt
heima i leiklistarskóla heldur en
i handknattleik. T.d. gerðist at-
vik, sem átti sér stað i fyrri leik
FH—Oppsal og hefur verið mjög
umtalað meðal þeirra lslend-
inga sem sáu þann leik. Geir
Hallsteinssyni var visað af leik-
velli i 5 minútur fyrir brot, sem
alls ekki átti sér stað. Aðdrag-
andinn að þvi var sá að einn
norsku leikmannanna hindraði
Birgir Finnbogason i marki FH
við að taka knöttinn. Hann
lagðist yfir boltann i vitateig
FH-inganna. Geir og Gils
Stefánsson hugðust flýta sér að
taka knöttinn úr höndum þessa
manns, en við það gerði sá
norski sér litið fyrir og fleygði
sér af mikilli list, eins og um
mörg stórt brot væri um að
ræða. Ráku dæmigerðir heima-
dómarar Geir af leikvelli fyrir
brot, sem átti sér ekki stað i
staðinn fyrir að reka
Norðmanninn af leikveili
Sú fregn hefur gengið meðal
knattspyrnuáhangenda og jafnvel
vérið færð i letur að hinn snjalli
landsliðsmarkvörður úr Fram,
Arni Stefánsson, muni leika með
Akureyrarliðinu KA næsta sum-
ar. Árni, sem er Akureyringur,
hefur leikið tvö siðastliðin sumur
með Fram við góðan orðsti og er i
dag álitinn einn bezti markvörður
á Islandi. Alþýðublaðið fékk þær
upplýsingar nú fyrir skömmu frá
félögum Arna úr Fram, sem
hafðar eru eftir Arna sjálfum, að
það standi ekki til að hann fari
norður næsta vor. Mun hann þvi
að öllum likindum verja mark
Fram enn eitt sumarið, Fram-á-
hangendum til mikillar ánægju,
enda erfitt fyrir félagið að fylla
Arni Stefánsson mun vera áfram
hjá Fram næsta sumar.
skarð svo góðs markvarðar ef
hann hefði farið.
Þjálfari Vals siðastliðið sumar
Joe Gilroy gerir það gott i Skot-
landi. Fljótlega eftir að hann
hættihjá Val i byrjun október, tók
hann við 1. deildarliðinu Morton,
sem Guðgeir og Atli Þór voru hjá.
Þá var Morton neðst i 1. deildinni
oghafði gengið mjög illa. Eftir að
Þórarinn Ragnarsson brýzt inn úr horninu i
leiknum gegn Oppsal i Noregi 16. nóvember
siðastliðinn.
fyrir að hindra Birgir i að ná til
knattarins. Þetta og mörg fleiri
atvik áttu sérstað i þessum leik.
Þess vegna er það skylda
islenzkra handknattleiks-
unnenda að flykkjast i Laugar-
dalshöllina og hvetja FH-inga til
sigurs gegn „leikurunum” frá
Osló.
FH-ingar hafa löngum staðið
sig vel i keppni við erlend lið, og
hafa beztan árangur af öllum is-
lenzkum liðum i keppni við er-
lend félagslið. Lið þeirra nú er
kannski ekki eins sterkt og það
hefur verið undanfarin ár, en i
liðinu eru þó margir leikreyndir
menn, sem vex ásmegin, þegar
á reynir. Liðið verður skipað
sterkustu Ieikmönnum, sem
þeir hafa yfir að ráða á sunnu-
dag.
I liði Oppsal eru þrir lands-
liðsmenn, sem léku i landsliðinu
gegn tslendingum i vikunni. Má
þar fyrstan nefna markvörðinn
Paal Bye, sem er eflaust einn
bezti markvörður, sem leikið
hefur á islenzkri grund. Fyrir-
iiðinn. Allan Gjerde, sem var
markahæstur i fvrri landsleikn-
um með sjö mörk, — hann lék
ekki siðari leikinn — og einnig
gegn FH-ingum i Noregi með 5
mörk. Kristen Grislingas —
nr. 2hjá norska landsliðinu — er
sá þriðji. Auk þessara eru
margir þekktir leikmenn i
liðinu, t.d. Roger Hverven Geir
Röse og fleiri. Til gamans má
geta þess að félagið hefur aldrei
tapað leik á heimavelli i
Evrópukeppni og hefur þó leikið
gegn liðum eins og Gummers-
bach, Mai Moskva, Steua
Itúmeniu og fleirum, Sýna þess-
ir sigrar glöggt hversu sterkt
liðið er. Með liðinu hingað
kemur 22. manna klapplið.
Eins og fyrr segir hefst
leikurinn i Laugardalshöliinni
kl. 20,30 á sunnudagskvöldið.
Forsala aðgönguliða hefst i dag
i tþróttahúsinu i Hafnarfirði
milli kl. 1-5. Á sunnudag verður
hún siðan kl. 1-4 og byrjar siðan
i Laugardalshöllinni kl. 6.
Það er full ástæða til þess að
hvetja fólk að koma á leikinn. og
örva FH-inga til sigurs, þvi ekki
mun af veita gegn leikurunum
frá Osló.
Sigfús Haraldsson 1S, „smassar”
gegn Þrótti i hraðmóti Blaksam-
bandsins i haust. Hann mun
væntanlega leika sinn 3
LANDSLEIK GEGN Færeyjum i
kvöld.
Föstudagur 5. desember 1975.
Alþýöublaöið