Alþýðublaðið - 20.12.1975, Blaðsíða 8

Alþýðublaðið - 20.12.1975, Blaðsíða 8
Steinn Emilsson er dáinn. Litrikum, margþættum og einstæöum lifsferli er lokið. Steinn er fæddur að Kviabekk i Ólafsfirði, sonur sóknarprestsins þar, sr. Emils Guðmundssonar og konu hans Jane Mariu Steinsdóttur, prests i Árnesi Steinsen. Steinn varð gagnfræðingur frá Akureyri 1915. Hóf nám við Mennta- skólann i Reykjavik, en hætti i 4. bekk vegna þess að einn kennari hans móðgaðist við hann, af barnalegu, jafnvel hlægilegu tilefni. Steinn neitaði að biðja kennara þennan afsökunar, fannst hann ekki geta réttlætt það fyrir samvizku sinni, kaus að vera þrár og yfirgaf skólann. Til Noregs hélt hann og vann þar við silfurbergsnámurnar i Kongsbergi 1916 og safnaði þá steinum og bergteg- undum. Las allmörg ár jarðfræði, berg og kristalfræði, en vann jafnframt á rannsóknarstofum i Noref*i- Auk þess nam hann við Háskólann i Jena 1920- 21. Fékk styrk frá Alþingi til að kljúfa og flokka silfurberg. Hann kenndi nútimaislenzku við Há- skólann i Hamborg 1927-28, en fékkst jafnframt við rannsóknir á sýrufari i islenzkum jarðvegi. Varð eftir það efnafræðingur sildarverksmiðjanna á Sólbakka, Onundarfirði og Siglufirði. Þar mældi hann og aldursákvarðaði sild, að þvi að mér skilst fyrstur Is- lendinga. Auk blaðaútgáfu um tima ritaði hann mikið af greinum jarðfræðilegs efnis, mest á þýzku. A.m.k. ein þess- ara greina er sigild: „Lössbildung auf Island” og er vitnað i hana enn þann dag i dag. Stúdentspróf mun hann hafa tekið i Noregi, en ekki er mér kunnugt um hvort hann lauk jarðfræðinámi sinu með prófi. Hitt er mér kunnugt/að beztu jarð- fræðingar islenzkir búsettir bæði hér- lendis og erlendis skiptust á skoðunum við hann og leituðu álits háns á ýmsum viðfangsefnum i jarðfræði. A þeim árum og einnig siðar gátu jarðfræðingar ekki lifað á jarðfræði- kunnáttu sinni, en urðu að taka kennslu allskonar sem aðalatvinnu og gegna hugðarefnum sinum i þeirri fræði og öðrum i fritimum sinum. Nú koma kaflaskipti i lifi Steins Emilssonar. Eftir vetrarkennslu við unglingaskólann i Vestmannaeyjum, fer hann til Bolungarvikur árið 1928. Lætur hann þar til sin taka á mörgum sviðum, enda varð aðalstarfssvið i lifi hans bundið þeim stað. Hann gerðist skólastjóri unglinga- skólans þar, barnaskólastjóri, spari- sjóðsstjóri, aðalhagyrðingur þorpsins, hreppsnefndar og sýslunefndarmaður og oft andófsmaður hins allsráðandi valds í Bolungarvik. Ekkert mál i þorpinu var honum ó- viðkomandi. Hann var með afbrigðum vinsæll kennari og margir voru þeir, er fengu lán hjá honum i sparisjóðn- tiÉIÉíÉisllll rVHIfV ULL| _ _ _________W ai / I • a j Nu hjooum vio j. f A'íý : ‘ AMERtSK DÖNSK ENSK ÍSLENZK ÍTÖLSK JAPÖNSK NORSK PORTÚGÖLSK ÞÝSK Verð kr. 26.925 Verð kr. 6.380 rafljós í miklu úrvali r-s Opið til kl. 10 í kvöld * VIKULEGA NÝJAR SENDINGAR Raftækjadeild HRINGBRAUT 121 • SÍMI 28-602 um, er aðrar leiðir lokuðust. Hér var það, sem hann kynntist eft- irlifandi konu sinni Guðrúnu Hjálm- arsdóttur sem var nemandi hans i unglingaskólanum. Þrátt fyrir verulegan aldursmun var hún honum trú og trygg til hins sið- asta. Margir leituðu til hans með allskon- ar hjálparbeiðnir, svo sem auka- kennslu undir nám i ýmiss konar skól- um, en eins og i ritningunni komu þeir ekki allir aftur til að þakka honum, enda hygg ég að hann hafi ekki ætlast til þess. Undirritaður gerðist héraðslæknir i Bolungarvikurhéraði 1961 og starfaði þar til 1972. bar hlotnaðist mér sú gæfa að kynn- ast Steini, lauslega i fyrstu, en siðar betur og varð hann bezti vinur minn. Hann hjálpaði mér við reikningshald i apoteki og á annan hátt. Kom jafnað- arlega á heimili mitt. Einnig var hann mjög kærkominn gestur, bæði konu minni og dóttur er hún óx úr grasi. Hann rakti ættir okkar saman og var mjög fær ættfræðingur. Eins og ég hefi áöur um getið var Steinn ágætur hagyrðingur. Við hátið- leg tækifæri og oft endranær kom •Steinn ýmist einn eða með Guðrúnu sinni. Að jafnaði kom hann á afmæl- um, nýársdag, sumard. 1. fyrsta vetr- ardag og skrifaði þá árnaðaróskir og oftast i bundnu máli. i gestabók héim- ilisins og myndaði með þvi uppistöð- una i gestabókinni þau 11 ár sem við vorum samtiða i Bolungarvik. Flest af þessum kveðskap hans var búið til á leið til min eða heima hjá mér, en ekki fyrirfram mótað. 1 fáum orðum var hann persónuleiki og vinur, sem maður ekki hittir fyrir sér nema mjög sjaldan á lifsleiðinni. Ég man i rauninni ekki eftir öðrum jafn vinsælum, glaðlyndum, hjálpfús- um og gáfuðum manni, ætið tilbúinn með hjálp og hluttekningu i annarra vanda, en jafnan dulur um eigin hag. Mér er enn i fersku minni, er ég tók hann með mér i ferðalag til mins fyrra læknisumdæmis i Súðavik og Vigur, hvernig hann heillaði menn við fyrstu kynni, hvar sem hann kom. En nú gef ég Steini orðið: (ritað i gestabók mina) 17. nóv. 61 (fyrsta ár mitt i Bolungarvik): Steinn Emilsson — hinzta vinarkveðja Meðan sól á háa hnúka hellir geislum, vindar strjúka, þá skulu ætið hingað hranna hugarfylgjur góðra manna. 24. júni ’65 (fyrsti afmælisd. dóttur- innar) 10. júni ’64: „siðasta visa Steins, frændi minn:” Götu mina geng ég beinn i góðu veðri og upphátt segi: gott væri að hafa einn — uppstramm- ara á þessum degi. (Ekki man ég hvort honum varð að ósk sinni 4. des. ’64. 22. sept. ’64 Dropar falla einn og einn — Og enn falla dropar einn og einn Steinn mm CN ijZ '* Ætið hljóttu á æskuvori yndisbjarma i hverju spori Góð og blessuö komandi ár. Steinn. 1. jan 1966. Ekki felli ég frosin tár frændi, ég er slíkur að þraukað verði þessi ár þar til yfir lýkur. En þú munt njóta næstu ár nægta úr heilsubrunni góðæri og för til fjár falli að traustum grunni. góð og blessuð komandi ár. Steinn. 8. febr. Daginn, sem fyrst sá til sól- ar. Steinn orti eins og venja hans var við slik tækifæri. 2. janúar 1967. Alir sæju að veröld við er vafurlega slegin, ef stokkið gætu upp Stigahlið og starað „Hinumegin”. Árnaðar og framtfðaróskir Steinn. Sumard. fyrsti ’67. Árin koma. Arin fara. Allir inn i framlið stara, vænta auðs og yndiskjara, — eldri skuldir gleymast tiðum, þótt þær séu þyngslavara, er þoka mætti burt,— ef bara enginn vildi eldi skara, að óskahöll frá lýðum — — forða hriðum — forða oss frá hriðum. Beztu sumaróskir frá Steini. Fyrsta vetrardag 1967. Kæri frændi: Verði góður vetur vinsælt læknissetur. Gefðu ef þú getur, gleddu manna tetur. Sjúkur mildi metur mönnum öðrum betur — bað verður góður vetur, vinur færir i letur. 4. des. ’67 (afmæli ó.H.) Margt er það og margt er það, sem mennirnir dunda við — hugir sumra hraða för, um hæpin klettarið. Ólafur fær það^n óskir um það að auðna riti gullstöfum allt næsta blað — Kallar svo frá klettum til þin kátur Fjallasveinn: Varpað af þér áhyggjunum Eins og Steinn. 8. ágúst ’67. Kæru hjón og allir ykkar vinir, Ég óska ykkur heilla — eins og hinir — Steinn. 1. vetrard. ’68. Ekki mæli ég orðin stinn, enda þótt ég segi: Við fögnum báðir frændi minn, fyrsta vetrardegi. Steinn. 15. jan ’69 Til frænda Ó.H.: Ef þú hittir einhvern mann, sem auðnan hefir flúið, með ástúð skaltu hugsa um hann, en hætta eig við svo búið, með huga þinum götu greið, gæfu fylftu sporið, fylgdu honum langt á leið, leiddu hann út i vorið. Lapis (Steinn) Hér lýsir „humanistinn” Steinn sin- um innra manni. Sumarsólhvörf 69 Kæri frændi. Ég þakka þér mjög vel fyrir Súðavikur og Vigurferðalagið. 22/4 1970 Við kveðjum kaldan vetur 23/4 1970 Kom blessað sumar og reynstu okkur betur. St. Laugard. 4. april ’71. Kæri frændi. Ég þakka fyrir þennan dag. „lslands er það !ag” St. 22/4 ’71 Gleðilegt sumar. St. 23/4 ’71 Stikaðu með mér Stigahlið, — stund liður fljótt Við skulum frændi og vinur góður vaka i nótt. á mm ••/v- f h 'f t' „Hér sé guð”, það er gömul kveðja Einu skal ég sálu veðja að enginn flytur aðra betri óskina á þessum vetri. , St.E. 31. des. Alla daga ár og sið, óttalaus og slingur stikar lifsins Stigahlið stoltur (aðkominn) Bolvikingur Hér kemur fram að hann finnur sig „aðkominn” ekki innfæddan. 2. jan. ’65. Oft sé ég i anda undarlegar sýnir. Vökudraumar eru vinir minir Óskadraumar allir rætist þinir. St.E. borkell máni, það er hann, sem þræddi rétta veginn, og tslendinga fyrstur fann fegurð sólarmegin. Steinn. Sumard. fyrsti ’66. Blessun i bæ berist i dag staðnæmist langar stundir: Ljúfir ijósdagar, ljúfar nætur ljúf vökul vina. ljúfir ljósrannar, ljúfir starfstimar, ljúfar iæknishendur. Ljúfir ljósvinir ljúfir búálfar ljúf ólafs ævi. St. bótt heimspekingar hafi skráð um hugvit mannafyr og sið, þá hefur enn enginn náð efstu brún á Stigahlið. 26. 2. ’72. St. Ég þakka fyrir góðvild og glaðar stundir. Steinn. Ég bætti viðjsiðastur ritaði Steinn — einn — þvi hann var siðastur til að rita i gestabókina — við fluttum til Akur- eyrar 5/3 ’72. Með þessum linum bið ég Steini guðsblessunar, þegar hann nú „stikar yfir Stigahlið og stendur hinum meg- in”. Eins óska ég alls góðs hans trygg- lyndu konu og börnum þeirra. Ó. llalldórsson, 1. SÉRTILBOÐ Ritzkex 115.— 2. SÉRTILBOÐ Kjöt á gamla veröinu 3. SÉRTILBOÐ Hveiti Pillsbury’s Best 25 kg. 2900.— 5 Ibs. 278.— AUKINN VELTUHRAÐI LÁGT VÖRUVERÐ' Hvaö getur 5 manna fjölskylda sparaö á mánuöi eða ári? KJÖT & FISKUR H/F SELJABRAUT 54 SÍMI 74200 - 74201 'V’-V Einfalt SPENNANDI ÓDÝRT Fæst í flestum bóka- og leikfanga- verzlunum Heildsöludreifing: FRÍMERKJAMIÐSTÖÐIN H.F. býður Pennann velkominn í nágrennið og viðskiptavini hans ál dSU B UJORNSSON PI.1SÍM llf PLASTPOKAVERKSMiOJA Slmar 82639 -82655 VBtnagörbum 6 Box 4064 - Raykjavfk bipulagnir 82208 Tökum að okkur alla pipulagningavinnu Oddur Möller löggildur pipulagningameistari 74717. Hafnarfjarðar Apotek Afgreiðslutimi: Virka daga kl. 9-18.30 Laugardaga kl. 10-12.30. Helgidaga kl. 11-12 Eftir lokun: Upplýsingjsimi 51600. Birgir Thorberg málarameistari simi 1146: Önnumst alla málningarvinnu — úti og inni — gerum upp gömul húsgögn Teppahreinsun Hreinsum gólfteppi og húsgögn I heiinahúsum og fyrirlækjum. Eruin mcö nýjar vélar. G66 þjón- usta. Vanir mcnn. SIGFÚS BIRGIR 82296 40491 f^jSISSsBB Innrettingar HBv húsbyggingar BREIÐÁS Vesturgötu 3 simi 25144 KOSTABOÐ á kjarapöllum KJÖT & FISKUR Breiðholti Simi 74200 74201 ÞAÐ B0RGAR SIG AÐVERZLA í KRON KasettuiAnaður oq áspilun, fyrsr útgefendur hljómsveitir, kóra og fl. Leitió tt'boöa. Mifa-tónbönd Akureyri Pósth. 631. Slmi (96)22136 Dunn í GlflEflBflE /ími 64900 Heimiliseldavélar, 6 litir - 5 gerðir Yfir 40 ára reynsla Rafha við Óðinstorg Sfmar 25322 og 10322

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.