Alþýðublaðið - 20.12.1975, Blaðsíða 13

Alþýðublaðið - 20.12.1975, Blaðsíða 13
Ágúst Svavarsson til reynslu eftir áramót Allt útlit er nú fyrir það að islenzkur hand- knattleikur missi enn einn handknattleiks- manninn til erlendrar þjóðar. Eins og komið hefur fram i Alþýðu- blaðinu ekki alls fyrir löngu, þá hefur vinstri handarskyttunni i 1R Ágústi Svavarssyni ver- ið boðið að gerast leik- maður með sænska 1. deildarliðinu Malm- berget, sem Ingólfur Óskarsson lék með á sinum tima. Þegar blað- ið hafði samband við Ágúst i gær sagði hann ,,að hann myndi fara i æfingar og keppnisför með liðinu i byrjun janú- ar og þá kæmi i ljós hvort hann tæki þessu tilboði. Þeir hafa þegar boðið mér góða atvinnu við þá grein sem ég hef stundað við Tækniskóla íslands. Ákvörðunin verður samt ekki tekin fyrr en ég er búinn að vera þarna úti”, sagði Ágúst að lokum. Símon Ólafsson bætist í körfuknattleikshópinn Hinn ungi og efnilegi körfu- knattleiksmaöur Simon Ólafsson sem i vetur hefur dvaliö viö nám og æfingar i Cornell háskóla i Bandarikjunum, kom til landsins i gær. Eins og kunnugt er, þá hef- ur 1. deildarúrvalið sem leika á viö hiö sterka verkfræöiháskóla- lið Rose Hulman í Laugardals- höllinni kl. 2 á sunnudag verið val' iö. Stjórn KKI fór þess hinsvegar á leit, hvort ekki væri möguleiki fyrir þá að nota 13. manninn i leiknum viö Rose Hulman og var það auðsótt mál. Mun þvf Simon bætast i hópinn og er ekki nokkur vafi á aö hann muni styrkja liöiö mjög mikiö. Þaö veröur eflaust mjög gaman fyrir körfnuknatt- leiksunnendur aö fylgjast meö Simoni og bandarisku svertingj- unum I sama liði, þvi vitað er, að Simon hefur æft mjög vel að und- anförnu, og þvi i mjög góöri æf- ingu. Simon mun væntanlega dvelj- ast á íslandi eitthvað fram yfir áramótin, og heyrzt hefur að Ar- menningar hyggist nota hann gegn ÍR-ingum i 1. deildarkeppn- inni i körfuknattleik i byrjun janiíar. Þegar einn kemur þá annar fer, þvi búast má við að Jimmy Rogers verði i keppnis- banni gegn IR-ingum en Slmon kemur liklega i staðinn. Af uppiysingum þeim sem KKÍ hefur gefið blaðamönnum um bandariska verkfræðiháskólaliðið Rose Hulman frá Indiana, þá viröist það geysilega sterkt. Að minnta kosti eru tveir leikmenn yfir tveir metrar. Liðið er þraut- þjálfað og hefur mikla reynslu að baki. Það er vonandi að engin slagsmál komi upp i leiknum, en að liðin leiki fjörlegan og skemmtilegan körfuknattleik. Lið 1. deildarúrvalsins er þann- ig skipað: Kolbeinn Pálsson KR, Jón Sigurðsson Arm., Kolbeinn Kristinsson IR, Gunnar Þorvarð- arson UMFN, Kristinn Jörunds- son IR, Stefán Bjarkason UMFN, Kristinn Jörundsson 1R, Stefán Bjarkason UMFN, Torfi Magnús- son Val, Birgir örn Birgis Ar- ' manni — en hann kemur i stað Bjarna Jóhannsson KR sem vegna timaleysis gaf ekki kost á sér. Kári Mariusson UMFN, Beinir símar og eftir lokun skiptiborðs eru Afgreiðsla 14900 Auglýsingar 14906 „ • „Ritstíórn er prentsmiðja 81976 flutt i Siðumula 11 lalþýðul Inf; 4] l»l 81866 Vinsamlegast leið- réttið í simaskránni VIÐ HOFUM FENGIÐ NÝTT SÍMANÚMER V Björn Magnússon Armanni Rogers Armanni. Simon ólafsson Cornell / Ár- Leikurinn hefst kl. 14 i Laugar- manni, Curtiss Carter og jimmy dalshöllinni. Aðöllum likindum: Aston Villa-Norwich í dag Aðalefni íþróttaþáttar Sjónvarpsins í dag er leik- ur Islendinga og Júgóslava í undankeppni Olympíu- leikanna, sem leikinn var í Laugardalshöllinni í fyrra- kvöld. Auk þess er líklegt að viðtal verði haft við 2 blaðamenn og handknatt- leiksunnendur um leikinn. Enski knattspyrnuleik- urinn er svo á milli Aston Villa og Norwich City sem leikinn var á Villa Park síðasta laugardag Þar gefst fólki gott tækifæri á að sjá markakóng Nor- wich, Ted MacDougall í ham, og gamla landsliðs- manninn Martin Peters á- samt mörgum öðrum nafntoguðum knattspyrnu- mönnum. Með þeim leik verður sýnt úr leik Q.P.R. og Derby, en að vanda verður hann sýndur í í- þróttaþættinum sjálfum. Að sögn Bjarna Felixsonar var leikurinn ekki kominn til landsins í gærdag, en von var þó á honum. Ef svo illa tekst til að leikirnir komi ekki í tæka tíð til landsins verður leikur Leicester City og Ipswich Town sem leikinn var fyrir skömmu á Filbert Street í Leicester sýndur. íþróttablaðið velur íþróttamann ársins í hverri grein Nú nýlega hefur Iþróttablaðið kosið iþróttamanns ársins i hverri keppnisgrein. Þetta er i þriðja skiptið sem blaðið gengst fyrir þessari keppni. Að þessu sinni hlutu eftirfarandi iþrótta- fólk þessa titla: Badminton: Haraldur Konrelius- son TBR. Borðtennis: Gunnar Finnbjörnsson, Erninum. Blak: Indriði Arnórsson, 1S. Fimleikar: Sigurður T. Sigurðsson, KR Frjálsar iþróttir: Hreinn Hall- dórsson, HSS. Golf: Ragnar Ólafsson, GR. Glima: Pétur Ingvason, Vikverja. Handknatt- leikur: Hörður Sigmarsson, Haukum. Júdó: Viðar Guðjohn- sen, JR. Körfuknattleikur: Krist- inn Jörundsson, IR. Knattspyrna: Árni Stefánsson, Fram. Lyfting- ar-.óskar Sigurpálsson, A. Sund: Þórunn Alfreðsdóttir, Ægi. Skíði: Jórunn Viggósdóttir, KR. Pressan velur Námsmenn hópast heim í jólaleyfi Eitt af þvi sem tilheyrir jóla- haldi nú i seinni tið er að ættingj- ar sem dvelja langdvölum er- lendis við nám eða störf, koma heim til að eyða jólunum meðal skyldra. Blaðiö hafði samband við Svein Sæmundsson hjá Flugleiðum og spurði um þjóöflutningana. Sveinn sagði: „Flutningarnir ganga samkvæmt áætlun og allir sem ætla sér munu komast heim fyrir jól, nema veöur hamli. Mesta álagið er nú framundan, og segja má að mesti annatíminn hefjist i dag og mun standa fram á siðasta dag”. Aðspurður um hvort náms- menn kæmu siður nú en áður vegna fjárskorts, sagði Sveinn: „Farskrárdeildarfólkið hefur það á tilfinningunni að fleiri náms- menn komi heim nú en t.d. i fyrra. M.a. koma tvær leiguflug- vélar frá Kaupmannahöfn með tslendinga sem eru bæði við nám og störf á Norðurlöndunum. Námsmenn koma mikið i stórum hópum og með leiguflugi. Leigu- ferðirnar • eru með vélum frá Flugleiðum. Islendingafélögin og samtök námsmanna komast að m jög góð- um kjörum við Flugleiöir þegar efnt er til svona hópferöa. A mánudag mun lið sem blaða- menn velja leika við júgóslav- neska landsliðið i handknattleik. I gærdag komu blaðamenn til skrafs og ráðagerða með Hilmari Björnssyni þjálfara Vals. Þegar upp var staðið var útkoman þessi: Ólafur Benediktsson, Val Jens Einarsson, IR, markverðir Jón Hjatlalin, Lugi Björgvin Björgvinsson, Viking Stefán Gunnarsson, Val Páll Björgvinsson, Vikingi Agúst Svavarsson, IR Sigurbergur Sigsteinsson, Fram Þórarinn Ragnarsson, FH Bjarni Jónsson, Val Ólafur H. Jónsson, Dankersen og Jón Karlsson, Val Kjarakaup Hjartacrep og Combi. Verð kr. 176.00 50 gr. hnota, áður kr. 196.00. Nokkrir litir á aðeins kr. 100.00 hnotan. 10% auka afsláttur af 1 kg. gr. pökkum. H0F Þingholtsstræti 1. Gamli iandsliðsniaðurinn Martin Peters kemur væntaniega við sögu i leik Aston Villa og Norwich I sjónvarpinu i dag. TRCLOFUNARHRINGAR Fljót afgreiðsla. Sendum gegn póstkröfu GUÐM. ÞORSTEINSSON gullsmiður, Bankastr. 12 Alþýðublaðið Laugardagur 20. desember 1975.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.