Alþýðublaðið - 30.01.1976, Page 1
19. TBL. - 1976 - 57. ARG.
FÖSTUDAGUR 30. JANÚAR
Ritstjórn Sióumúla II - Slmi 81866
Kartöfluskortur hérlendis og kartöflurnar hitamál
í löndum Efnahagsbandalagsins
- Sjá 6. og 7. síðu
EKKI FLEIRI HflND-
TEKNIR
ENNÞft
Rannsókn á moröi Guðmundar
Einarssonar og hvarfi Geirfinns
Einarssonar er nú i fullum gangi.
Alþýðublaðið náði i Eggert
Bjarnason rannsóknarlögreglu-
mann i sima i gærkvöld, eftir
margitrekaðar tilraunir og
spurðist fyrir um gang mála.
Eggert var staddur i fangelsinu i
Siðumúla, er til hans náðist, lik-
legast við yfirheyrslur i málinu.
Vildi hann ekkert um málið segja
á þessu stigi. Hann neitaði þvi þó,
að fleiri hefðu verið hnepptir i
varðhald, en 7 aðilar sitja nú inni
vegna þessara tveggja manns-
hvarfa. Sögusagnir höfðu mynd-
ast um, að nokkrir aðilar til við-
bótar hefðu verið handteknir, en
eftir orðum Eggerts að dæma,
eru þær sögur tilhæfulausar með
öllu. Þá var Eggert að þvi spurð-
ur hvar þessir aðilar sætu i gæzlu-
varðhaldinu. Vildi hann ekki tjá
sig um það atriði.
Fátt er um annað rætt meðal
almennings, en nýjustu viðburði i
Geirfinnsmálinu. Má liklegt telja
að meginþungi rannsóknarinnar
hvili nú á hvarfi Geirfinns, enda
er morð Guðmundar upplýst að
miklu leyti. óliklegustu sögur eru
á kreik komnar, margar tilbún-
ingur einn. Erfitt er að gera
greinarmun á röngum og réttum
fréttum, sem eru þannig gripnar
á götunni. Þykir Alþýðublaðinu
ekki ástæða til þess að birta frétt-
ir þvi likar, enda þótt heimildir
blaðsins af málinu séu nokkuð
áreiðanlegar. Lögreglan hefur
greinilega ákveðið að sveipa sig
hulu þagnarinnar, þvert á móti
við það, sem gert var i fyrri rann-'
sókn Geirfinnsmálsins.
Fátt eitt er um það að segja i
bili, en fólk vill fá að vita um gang
rannsoknarinnar á þessum saka-
málum og hvernig þessi mál eru
vaxin. Ef Alþýðublaðið fær ekki
fréttir sinar staðfestar innan
skamms, mun blaðið birta óstað-
festar fregnir. Ef fólk fær ekki
fréttir frá lögreglunni, þá er það
hlutverk fjölmiðla að skýra frá
nýjustu viðburðum, eftir þvi sem
næst verður komizt. —GAS.
Haukur Guðmundsson bætist
í hóp rannsóknarmannanna
Haukur Guðmundsson, rann-
sóknarlögreglumaður i Kefla-
vik, sá er stjórnaði rannsókn-
inni á hvarfi Geirfinns Einars-
sonar á sinum tima, er tekinn til
við rannsóknina að nýju, ásamt
starfsbræðrum sinum i Reykja-
vik. Ný og áður óþekkt atriði
urðu ljós i málinu hjá Reykja-
vikurrannsóknarlögreglunni og
þeir tóku af skarið og hófu að
rannsaka það á nýjan leik, eftir
að Keflavikurlögreglan hafði
lagt málið til hliðar á siðasta
sumri. Þótti mörgunt furðulegt
að Haukur Guðmundsson skyldi
ekki hafður með i ráðum, þegar
Reykjavikurlögreglan lét nú til
skarar skriða i þessu ntáli og
handsamaði þrjá menn á mánu-
daginn. En nti er Iiaukur sem
sagt kominn i slaginn á nýjan
leik.
Er Keflavikurlögreglan lagði
málið til hliðar á siðasta sumri,
um það bil 10 mánuðum eftir að
Geirfinnur hvarf, þá var mörg-
um spurningum ósvarað. Lög-
reglan hafði þó sinar hugmyndir
og jafnvel einstaka menn grun-
aða, og segir sagan að nokkrir
þeirra, sem nú nýverið hafa
verið handteknir, hafi þá legið
undir grun um að vita mcira, cn
þeir létu i veðri vaka. Hins veg-
ar var ekki hægt að færa sönnur
á þessar rökstuddu grunsentdir
lögreglunnar i Keflavik og lok-
uðust þvi allar leiðir i málinu.
Fyrir stuttu siðan komst rann-
sóknarlögreglan i Rvik. óvænt á
sporið við yfirheyrslur I öðru
máli, hvarfi Guðmundar Ein-
arssonar. Leiddi það til hand-
töku fyrrnefndra þriggja
manna.
Itannsókn málsins hefur nú
tekið nokkuð aðra stefnu en áð-
ur gerðist, fyrir um það bil einu
ári. Nú hefur aðalvettvangur
rannsóknarinnar fluzt til
Iteykjavikur, og málið nú at-
hugað i öllu viðara samhengi en
áður. Þó var frá upphafi ljóst að
hvarf Geirfinns var nátengt
smygli á spira, þótt það hafi
ekki fengist staðfest fyrr en nú.
Er blaðið reyndi að ná sam-
bandi við Hauk Guðmundsson i
gærdag, svaraði Keflavikurlög-
reglan þvi til að hann dveldist
nú i Reykjavik við rannsókn
málsins. „Það fer ekki snefill af
rannsókn málsins fram i Kefla-
vik, aö minnsta kosti ekki enn-
þá.”
En það er ljóst að sameig-
inlega, ættu rannsóknarlögregl-
an i Rvik. með sinar nýju upp-
lýsingar og Keflavikurlögreglan
með fyrri rannsóknir, að geta
leyst gátuna fyrr en siðar.
—GAS.
Síðasti
bitinn...
1 danska blaðinu AKTUELT
frá þvi s.l. laugardag er frá
þvi skýrt, að ambassador ís-
lands i London, Niels P. Sig-
urðsson, hafi verið fluttur til
Bonn. Segir blaðið,
að ambassadornum hafi þótt
við hæfi að enda Lundúnadvöl
sina með þessum táknræna
hætti, birtir mynd af Niels þar
sem hann er að borða þorskinn
og lætur i ljósi þá skoðun, að
islenzki ambassadorinn hafi
kvatt London með tilhlýðileg-
um hætti.
Nöfnin ekki birt
nema sekt sé sönnuð
Nafnabirtingar sakfelldra
manna og aðila að sakamálum
hafa oftsinnis verið mikið deilu-
efni, ekki aðeins hér á landi,
heldur unt viða veröld. Þessar
deilur hafa nú skotið upp kollin-
um hérlendis á nýjan leik, varð-
andi liin dularfullu og margum-
töluðu hvörf, Geirfinns og Guð-
mundar Einarssonar. 1 þessum
málum sitja nú 7 menn i gæzlu-
varðhaldi, og hafa 4 þeirra nú
þegar játað sekt sina, að hluta
til að minnsta kosti. Nöfn þeirra
fjögurra hafa birzt i fjölmiðlum,
en nöfn hinna þriggja gæzlu-
varðhaldsfanganna hafa ekki
komið á prenti ennþá, enda sekt
þeirra ckki sönnuð. En hvað
reglur gilda um nafnabirtingar
sakamanna hjá islenzkum fjöl-
miðlum?
Indriði G. Þorsteinsson rithöf-
undur á sæti i siðanefnd Blaða-
mannafélags Islands. Við
spurðum hann um þetta atriði.
„Mcginreglan hlýtur að vera að
valda ekki saklausu fólki miska
mcð ótimabærum nafnbirting-
um. Um nafnabirtingar sak-
felldra ntanna eru engar skráð-
ar reglur, en það hefur verið
viðtekin venja að birta ckki nöfn
sakamanna, fyrr en sekt þeirra
hefur verið sönnuð, eða játning-
ar þeirra iiggi fyrir. Það eru
annars uppi stöðugar deilur urn
þetta atriði, en fyrrnefnd venja
hefur verið i heiðri höfð i is-
lenzkum blaðaheimi.Það má
ekki henda að nöfn ákærðra
rnanna, sem svo sannast sýkn-
ir saka, verði birt i fjölmiðlum,
slikt er ófyrirgcfanlcgt. En það
ætti ekki að henda á islandi, ef
viöteknar venjur eru virtar,”
sagði Indriði að lokunt.
—GAS.
Listamannalaun eru
ÁRVISST
HNEYKSLI!
segir formaður Bandalags ísl. listamanna
Thor Vilhjálmsson, formaður
Kandalags isl. listamanna sagði i
viðtali við blnt. Alþýðublaösins i
gær, að nefnd sú, er úthlutaði
listamannalaunum vissi ekkert
um list. „Það setur hlátur að
mönnum, að sjá hverjir sitja i
þessari nefnd”, sagði hann.
Hverjum skyldi detta i hug, að
þcireigi að fjalla um mcnningar-
mál.”
Um það hvort ckki væru undan-
tekningar, sagði Thor Vilhjálms-
son aðeins, „ja, við skulum segja
undantekning.”
„i höfuðatriðum eru listamenn
andvigir þeim aðferðum sent
notaðar eru til þess að greiða
listamönnum laun. Stjórnmála-
flokkarnir nota þetta, til þcss að
geta haldið uppi hrossakaupunt
og til þess að fá litilssiglda menn
til þess að konta skriðandi á
hnjánum, til þess að biðja um
eitthvað. Það er alltaf nóg til af
þeim. Þeir sent stoltari eru og
eitthvað gagn er I leiða þetta hjá
sér og bara fussa við.”
Svo bætti hann við: „Það er
þarna fullt af fólki, sem fær þessi
laun, sem skiptir engu máli fyrir
islenska menningu. Þeir, sem
liafa eytt ævi sinni, i að vinna að
list „þekkja alls ekki sumt af
þessu fólki.”
Thor kvað þaö sæta furðu, að
Atli Heimir Sveinsson skyldi ekki
vera meðal þeirra, sent fengu
listamannalaun. Að visu hefði
hann afþakkað þau áöur, en það
væri ekki næg ástæða til að úti-
loka hann frá listamannalaunum
til lifstiðar.
Þá stób Uka til að setja Atla i
byrjendaflokk. Nú hefur hann
fcngið tónlistarverðlaun Norður-
landa.
Þá sagði formaður Bandalags
isl. listamanna aö lokum, að það
væri skömin að þvi að hvorki
Svavar Guðnason né Sigurjón
Ólafsson væru i hciðursflokki. Að
visu væri búið að gera þessi
heiðurslaun að öfugmæli með
hinuin furöulegustu ákvörðunum
siðustu árin. Að visu væru þar þó
undantekningar. g