Alþýðublaðið - 30.01.1976, Blaðsíða 6

Alþýðublaðið - 30.01.1976, Blaðsíða 6
Blóðsýni sýnir fósturskaða Nú er hægt að svara því, hvort allt er i lagi með fóstrið á meðgöngutimanum. I vissum tilfellum getur blóðsýni sýnt, hvaða sjúkdómur þjáir fóstrið eða gæti ógnað þvi. Visindamenn við Akademiska sjúkrahúsið i Stokkhólmi hafa skoðað blóðsýni 8000 kvenna. Ann- ar hópur visindamanna við Karolinska sjúkrahúsið hefur kannað blóðsýni 2000 kvenna. Visindamennirnir segja, að það sé enn of snemmt að segja, hvilika þýðingu þessi aðferð muni hafa. Þeir segjast þurfa að safna meiri gögnum til að vera vissir. — En niðurstöðurnar hingað til benda til þess, að þessari aðferð verði beitt við blóðsýniskönnun á öll- um barnshafandi konum, segir dósent Bernt Kjessler við Akademiska sjúkrahúsið. 1. SÉRTILBOÐ Ritzkex 115.— 2. SÉRTILBOÐ Grænar baunir 1/1 dós 145 kr. Rauðkál 1/1 dós 275 kr. 3. SERTILBOÐ Hveiti Pillsbury’s Best 25 kg. 2900.— 5 Ibs. 278.— AUKINN VELTUHRAÐI LÁGT VÖRUVERÐ Hvaö getur 5 manna fjölskylda sparað á mánuði eða ári? KJÖT & FISKUR H/F SELJABRAUT 54 SÍMI 74200 - 74201 Fræðslufundir Reykjavíkur Félagsheimili prentara Hverfisgötu 21 10. fundur, mánudaginn 2. febrúar kl. 20.30. Fundarefni: Verkalýðshreyfingin og kjarabaráttan Frummælandi: Karl C|estur fundarins: Steinar Gubnason Björn Jónsson Fundarstjóri: Þórunn Valdimarsdóttir at Verjum gróður - verndum land -landvernd 0F Alþýðublaðið ISLENZKII KAR ERLENDAR VÆ SVONA MIKIÐ ER BORDAD AF KARTOFLUM Æ minna er nú neytt af kartöflum i Evrópu, þó má sjá að þegar efnahagsástandið versnar i sumum lönd- um, þá eykst kartöflu- neyzlan mjög. Þessi þróun heyrir þó til liðinni tið nú, vegna þess að sumstaðar eru kartöflur orðnar dýrari en epli og appelsinur. trar og Belgar eru mestu kartöfluæturnar i Efnahags- bandalaginu. Belgar éta kartöflur ekki eins og gert er að mestu i Danmörku, þ.e. soðnar, heldur steikja þeir kartöflur sem þeir leggja sér til munns. ítalir vilja heldur spaghetti en kartöflur og borða þeir minnst af kartöflum af bandalagsrikj- unum. Arleg kartöfluneyzla á mann i EBE löndunum er sem hér segir: írland 117 kg, Belgia og Luxem- ....og svo er það þessi frá Efnahagsbanda- lagslöndunum. Maður kom inn á veitingastaö i einhverju Efnahagsbanda- lagsrikinu og sagði við þjóninn: „Ég sé að þið auglýsið alla rétti á boðstólum. Ég ætla að fá filasteik og franskar kartöflur.” „Þvi miöur, það er ekki til,” svaraði þjónninn. „Vissi ég ekki!” hrópaði maðurinn, „hvernig er hægt að búast við að þið eigið filakjöt?” „Viö eigum filakjöt, herra, en engar kartöflur...” Produktionen i IjOOO ton 866 1968/69 burg 109 kg, Bretland 102 kg, Frakkland 94 kg, Þýzkaland 92 kg, Holland 85 kg, Danmörk 64 kg, og Italia 38 kg. Til gamans má geta þess að hver Islendingur borðar árlega milli 65 og 70 kg af kartöflum. Föstudagur 30. janúar 1976.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.