Alþýðublaðið - 30.01.1976, Side 9
I
Iðnaður
Formaður Félags islenzkra
iðnrekenda, Davið Scheving
Thorsteinsson hafði framsögu
um málefni islenzks iðnaðar á
fundi i Trúnaðarmannaráði
Alþýðuflokksfélags Reykja-
vikur nú á dögunum. Á fundin-
um lét Davið Scheving
Thorsteinsson m.a. svo um
mælt, að ísland væri nú orðið
láglaunasvæði. Iðnaðurinn,
sem taka yrði við meira og
meira vinnuafli væri svo illa á
vegi staddur vegna þess,
hvernig að honum væri búið I
landinu, að hann gæti ekki
greitt þau laun sem greiða
þyrfti svo iðnverkafólk nyti
góðra lifskjara. Davið benti á,
að ekkert annað virtist komast
að i hugum ráðamanna
þjóðarinnar en stóriðja, sem
grundvallaðist á erlendu fjár-
magni og notaði tiltölulega lit-
ið vinnuafl, en fengi mjög
ódýra orku. Iðnaður lands-
manna sjálfra, sem byggður
er fyrir innlent fé og á að sjá
sifellt stærri hluta vinnuafls
þjóðarinnar fyrir atvinnu,
væri hins vegar alger hom-
reka og nyti hvergi nærri jafn-
réttis á við hinar tvær aðalat-
vinnugreinar landsmanna
sjávarútveg og landbúnað.
í orðum formanns Félags is-
lenzkra iðnrekenda er fólginn
beizkur sannleikur. Við höfum
lengi vitað, að hinar svo-
nefndu frumframleiðslu-
greinar — sjávarútvegur og
landbúnaður — geta ekki tekið
við meira vinnuafli, en starfar
á þeirra vegum nú. Vegna
örra tækniframfara er jafnvel
liklegra, að eftirspum eftir
vinnuafli i þessum atvinnu-
greinum minnki fremur en
aukist jafnvel þó framleiðsla
atvinnuveganna haldi áfram
að aukast bæði i magni og að
verðmæti. 1 þessu sambandi
þarf t.d. ekki annað en að lita
á þá öru vélvæðingu, sem
orðið hefur i frystihúsum og
annari fiskverkun á umliðnum
árum. í frystihúsunum hafa
t.d. flökunarvélar komið i stað
fjölda fólks, sem áður hand-
flakaði fiskinn og i rækju-
vinnslu hafa afkastamiklar
vélar leyst mannshöndina af
hólmi. Það nýja vinnuafl, sem
kemur út i atvinnulifið á
hverju ári, verður þvi að lang-
mestum hluta til að leita sér
verkefna i öðrum atvinnu-
greinum en sjávarútvegi og
landbúnaði. Eina framleiðslu-
í kreppu
atvinnugreinin i þröngri
merkingu þess orðs, sem gæti
tekið við þessu vinnuafli, er
iðnaðurinn — ekki erlend stór-
iðja heldur okkar islenzki
iðnaður.
Þetta höfum við íslendingar
lengi vitað, en ekkert gert til
þess að gera islenzkum iðnaði
það kleift að færa út kviarnar,
auka fjölbreytnina og gerast
samkeppnishæfur i fram
leiðslu við erlendan iðnaðar-
innflutning og hvað kjör
varðar við aðra atvinnuvegi
landsmanna. Vist hafa verið
gerðar áætlanir um, hversu
miklu vinnuafli iðnaðurinn
þurfi að veita viðtöku á næstu
árum og samdar hafa verið
skýrslur og tillögur um,
hvernig á að gera honum það
fært. Stundum hefur verið
talað um „islenzka iðn-
byltingu” i þessu sambandi og
iðnrekendum og landsmönn-
um öllum verið gefin hin
fegurstu fyrirheit i þessu sam-
bandi sem gætt hafa menn
augnabliks bjartsýni og trú.
En þvi fegurri, sem fyrirheitin
hafa verið og þvi bjartsýnni,
sem forráðamenn iðnaðarins
hafa verið gerðir, þeim mun
meira hefur áfallið verið
þegar i ljós kom, að allt voru
þetta innantóm orð — glamur
eitt og gyllingar. íslenzki
iðnaðurinn hefur ekkert fengið
nema svikin loforð. Það, sem
gert hefur verið i iðnaðarmál-
um er allt i sambandi við við-
ræður við erlenda auðhringa
um stóriðju á íslandi, sem
grundvallast á þvi að nota litið
vinnuafl en þeim mun meiri
orku, sem boðin er langt undir
þvi verði, sem iðnaður lands-
manna sjálfra þarf að greiða
fyrir hann.
Með þessu móti er þjóðin að
grafa sina eigin gröf. Ef hinn
vinnuaflsfreki islenzki iðnaður
verður stöðug hornreka þá
gerist tvennt. 1 fyrsta lagi það,
að stöðugt erfiðara verður að
útvega þvi fólki atvinnu, sem
bætist á vinnumarkaðinn á ári
hverju. í öðru lagi það, að
iðnaðurinn getur aldrei orðið
samkeppnishæfur og greitt
iðnverkafólki mannsæmandi
kaupgjald. Þannig gerir van-
þróaður islenzkur iðnaður ís-
land að stöðugu láglaunasvæði
og þá er þjóðin komin i vita-
hring, sem erfitt verður að
losa hana úr.
PlasbM lil
PLASTPOKAVERKSMKDJA
Shnar 82439-82455
Vatn»gör6um 6
Bo* 4044 — Raykjavfk
Pípulagnir 82208
Tökum að okkur alla
pipulagningavinnu
Oddur Möller
löggildur
pipulagningameistari
74717.
Hafnarfjarðar Apátek
Afgreiðslutimi:
Virka daga kl. 9-18.30
'Laugardaga kl. 10-12.30.
Helgidaga kl. 11-12
Eftir lokun:
Upplýsing^simi 51600.
fréttir.....fréttir.....fréttir......fréttir..... fréttir..... fréttir....
Geir að kanna
viðhorf
til samninga?
Enn hafa engar áreiðanlegar
fregnir farið af niðurstöðum við-
ræðna Geirs Hallgrimssonar við
Harold Wilson um landhelgismál-
ið. Ljóst virðist þó vera, að Geir
hefur ekki komið heim með neitt
frágengið samningsuppkast, en
eftir likum að dæma mun hann
hafa komið heim með hugmyndir
um, hvað Bretar eru fáanlegir til
þess að ganga langt i samkomu-
lagsátt. Mun verkefnið vera að
kanna, hvort möguleiki sé fyrir
þvi, að stjórnarflokkarnir fáist til
þess að samþykkja samninga á
þeim grundvelli og mun Geir ætla
sér þessa viku og næstu helgi til
að ganga úr skugga um það. Að
sögn Dagblaðsins frá i gær eru
heldur dræmar undirtektir hjá
stjórnarliðinu og ef marka má
skrif Timans, eru Framsóknar-
menn ekki sem ánægðastir.
í dag kl. 2 e.h. hafa verið boðað-
ir fundir i Landhelgisnefnd og
Utanrikismálanefnd Alþingis og
munu landhelgismálin vera þar
til umræðu.
Vinnuveitendasambandið:
verkbonn
GETA VERID
MIKID AFL
Stjórn Vinnuveitendasam-
bands íslands hefur fengið fulla
heimild til boðunar verkbanna.
Af þvi tilefni hafði Alþýðublaðið
samband við framkvæmda-
stjo'ra Vinnuv eiten dasám -
bandsins, Ólaf Jónsson, og
spurði hann, hver væri hin
raunverulega ástæða fyrir þvi
að Vinnuveitendasambandið
væri nú með hótanir um verk-
bönn.
Ólafur sagði, að verkbönnin
væru i eðli sinu svipuð og verk-
föllin. Hvort um sig væri lögleg
aðferð, sem fulltrúar vinnuveit-
enda eða verkalýðsfélög gætu
gripið til, ef þeim þætti ástæða
til. ,,Um þetta eru bein ákvæði i
vinnulöggjöfinni”, sagði Ólafur.
„Verkbann er fyrst og fremst
fólgið i þvi, að atvinnugrein,
sem gert er verkfall hjá, getur
stöðvað sinn rekstur og er þá
ekki bundin af þvi að greiða
laun til starfsfólks sins. Þetta á
sérstaklega við, þegar verkföll
eru boðuð i tiltölulega
fámennum hópum, þar sem
atvinnufyrirtækin eru knúin til
þess að hafa mestan hluta
starfsfólksins áfram á launum,
eftir að allt er meira eða minna
komið i strand,” sagði Ólafur
Jónsson. Hann benti einnig á, að
til þess að hægt væri að boða
verkbann, þyrftu samningar að
sjálfsögðu að vera útrunnir og
uppsagðir. Þó sagði Ólafur, að
mögulegt væri að nota verk-
bannið, til þess að knýja fram
samninga, jafnvel þótt ekki
stæði þannig á að samningar
væru uppsagðir. Þetta á sér-
staklega við atvinnugreinar,
sem byggja á árstiðabundinni
starfsemi. ólafur sagði þó, að
þessu hefði ekki verið mikið
beitt. „Þetta er vissulega mikið
afl ef þvi er beitt, en það eru að
sjálfsögðu sömu vandræðin með
það eins og með verkföllin”,
sagði Ólafur Jónsson að lokum.
Þá hafði Alþýðublaðið sam-
band við Skúla Pálmason hjá
Vinnumálasambandi sam-
vinnufélaganna. Hann sagði að
Vinnumálasambandið sæi
algerlega um þessi mál fyrir
samvinnufélögin, en þrátt fyrir
það væri yfirleitt um samstöðu
að ræða milli Vinnumálasam-
bandsins og Vinnuveitendasam-
bandsins, enda væru hagsmunir
beggja þeir sömu.
Skúli sagði, að verkbönnin
beindust fyrst og fremst gegn
einskonar skæruhernaði, sem
verkalýðsfélög og sérhópar
gætu beitt'gegn vinnuveit-
endum. A hinn bóginn, ef til
allsherjarverkfalla kæmi, þá
væri i rauninni engin forsenda
fyrir verkbanni.
Þá sagði Skúli, að lokum, að
Vinnumálasambandið hefði
ekki enn aflaö sér heimildar til
verkbanns og hann gæti ekki
sagt um það hvort svo yrði gert.
Að visu gæti stjórn Vinnumála-
sambandsins sjálf tekið þessa
ákvörðun, en til þess hefði ekki
komið enn.
B
Reynsluakstur vélhjóla
Ilse Reuter, 27 ára, frá Stuttgart, vinnur fyrir sér með þvi að reyna vél-
hjól áður en þau eru seld. Hún er vafalaust eini reynsluekillinn i Vestur-
Þýzkalandi, sem hefur þetta að atvinnu, en Ilse veit ekkert betra en að
setjast á bak BMW, Kawsaki eða Harley-Davidson. Hún ætti að vita
það, þvi aö hún ferðast um 40 þúsund kilómetra árlega á vélhjóii (aö-
eins 900 I einkalifi). Hún vinnur hjá iðnfyrirtæki og fær ekki meiri laun
en einkaritari. Hún er hins vegar hrifnari af vélhjólaakstri en ritvél, en
undir leöurjakka og hjálmi er konan, sem viö vildum sjá klædda kvöld-
kjól eöa skartbúningi.
Ákvörðun um tíma-
setningu verkfalla
tekin á mánudaa
Þrátt fyrir daglega fundi ASI og
vinnuveitenda með sáttasemjara,
virðist litið sem ekkert þokast i
samkomulagsátt. Hagstofustjóri,
Klemens Tryggvason og Jón
Sigurðsson, forst.m. Þjóðhags-
stofnunar, hafa mætt á fundum og
gert grein fyrir spá Hagstofunnar
um verðlagsþróunina fram eftir
árinu. Þá hefur sérstök nefnd,
sem vinnur að málefnum lifeyris-
sjóðanna gert grein fyrir tillögum
sinum, en i þeirri nefnd eru
Bjarni Þórðarson, trygginga-
fræðingur, frá rikisstjórninni,
Pétur Blöndal frá ASl og Guðjón
Hansen frá Vinnuveitendasam-
bandinu. Þessi nefnd hefur gert
grein fyrir ýmsum möguleikum
um breytingar á skipulagi og
rekstri sjóðanna.
Næsti fundur með sáttasemjara
hefur verið boðaður kl. 10 i fyrra-
málið.
Eftir helgina hefur baknefnd
ASI verið boðuð til fundar og þar
verður gerð grein fyrir gangi
mála til þessa. Þá verður einnig
tekin ákvörðun um hvenær skuli
timasetja verkföll. —B
Vegfarandi á aðeins að ganga
yfir götu á sebrabrautum
Út er komin islenzk
skipaskrá árið 1976,
sem Siglingamála-
stofnun rikisins gefur
út miðað við 1. jan. ár
hvert.
Siglingamálastjóri,
Hjálmar R. Bárðarson
hefur sent svohljóðandi
greinargerð vegna
skipaskrárinnar:
Efni þessarar skipaskrár,
sem miðast við 1. janúar 1976 er
i öllum meginatriðum óbreytt
og því viðbótarefni haldið, sem
fram kemur i ýmsum sértöflum
aftan við aðalskrána. Þessari
fullkomnun skipaskrár hefur
verið mjög vel tekið, og gildi
þessa nýja efnis eykst, þegar
hægt er að gera samanburð
sömu atriða frá ári til árs.
Skipaskrá þessi er gefin út af
Siglingamálastofnun rikisins
samkvæmt lögum um stofnun-
ina, en þar segir m.a. að birta
skuli árlega skrá yfir islenzk
skip, svo og að þar skuli birta
skrá yfir einkaleyfisnöfn skipa,
skip í smiðum, skip sem felld
hafa verið niður af skipaskrá á
árinu og annan ganlegan fróð-
leik um íslenzkan skipastól.
Þessum ákvæðum laganna er
reynt að framfylgja með þvi að
birta ýmsar sérstkar skrár og
töflur yfir einstök atriði, sem til
fróðleiks og gagns getur verið
um islenzkan skipastól.
Eins og i skipaskránum und-
anfarin ár er i þessari skrá
heimahafnar skips sérstaklega
getið I öðrum dálki, á eftir nafni
skipsins, þar eð heimahöfn
skips þarf ekki alltaf að vera
sami staður og heimili skrásetts
eiganda.
1 siðustu skrá (1975) var i
fyrsta skipti birt sérstök skrá
yfir djúpristu, ytri stærðarmál
og þyngd skipa. Þessi skrá var
þá tekin með samkvæmt tilmæl-
umhhafnaryfirvalda og skipa-
smiðastöðv, til hagræðis vegna
viðlegupláss fyrir skipin i höfn-
um og við slipptöku skipanna.
Frá síðustu skrá hefur verið
bætt við nokkrum skipum, og
verður svo framvegis eftir þvi
sem hægt er að afla nánari upp-
lýsinga um skipin. Þess ber þó
aö geta, að þessar upplýsingar
eru ekki nákvæmar, enda fyrst
og fremst hugsaðar til leiðbein-
ingar og hægðarauka fyrir þá,
sem þessar upplýsingar þurfa
að nota (sjá bls. 258).
A undanförnum árum hafa
mörg skip verið endurmæld i
samræmi við núgildandi alþjóð-
legar mælingareglur, enda er
nú svo komið, að mjög fá skip
eru enn me eldri mælingu, en
þau eru eins og aður merkt með
sérstöku merki framan við
rúmlestartöluna.
Þar sem ekkert merki er, þá
er um að ræða skip, sem mælt er
samkvæmt gildandi mælinga-
reglum.
Eins og undanfarin ár hefur
verið reynt að safna saman til
birtingar myndum af öllum nýj-
um islenzkum skipum, 100 brl.
ogstærri, semskráð hafa verið á
árinu. 1 ár eru myndir af 12 nýj-
um islenzkum skipum (sjá bls.
270) og vantar því aðeins mynd
af 1 skipi, Hvalvik, sem skráður
var 1975.
Eins og undanfarið er i ár i
meginskránni tilgreint hvað
veiðar talið er að hvert islenzkt
fiskiskip sé útbúið til að stunda.
Vegna þess hve fiskiskip, sem
stunda aðrar veiðar en togveið-
ar hafa stækkað, eru mörkin
milli togara og annarra fiski-
skipa orðin mjög óglögg.
Þar sem oft er spurt um það,
hve stör islenzki togaraflotinn
sé, þá hefur i þessri skipaskrá
verið tdíin saman sérstök skrá
yfir togaraog er hún á bls. 250
neðan við yfirlitið yfir islenzka
skipastólinn. I þessari skrá eru
„togarar” taldir þau skip ein,
Sérskrá um togara í nýút-
kominni Skipaskrá 1976
sem svo til eingöngueru búin til
togveiða og eru stærri en /!!
brl. Þar er einnig greint á milli
siðutogara og skuttogara og
skipin flokkuð eftir stærðum i
þrjá flokka: 200-299 brl„ 300-499
brl. og 500 brl. og stærri.
Niðurstaðan verður sú, að alls
eru islenzkir siðutogarar 9 tals-
ins samtals 6.617 brl. en skut-
togarar alls 59, samtals /).906
brl. Alls eru islenzkir togarar
þvi 68 talsins og samtals 36.523
brl.. að stærð. Skuttogsrarnir
voru 10 talsins 1. janúar 1973,
samtals 4.993 brl„ þeir voru 32
þann 1. janúar 1974, samtals
16.558 brl. og 1. janúar 1975 voru
þeir 53 og samtals 27.289 brl.
Skuttogurum hefur þannig
fjölgað um 6 skip á árinu 1975 og
stærð þeirra samtals aukizt um
2.617 brl.
Á þremur árum, árin 1973,
1974 og 1975 hefur islenzkum
skuttogurum þannig fjölgað um
27 skip, og stærð þeirra aukizt
um 13.348 brl. A sömu þremur
árum hefur siðutogurum hins-
vegar fækkað um 12 skip, sam-
tals að stærð 7.818 brl. Til frek-
ari fróðleiks er hér birt tafla yfir
þá siðutogara sem teknir hafa
verið af skrá á þessum árum.
Teknir af skrá 1973
Haukanes GK-3 693 brl.
Hafliði SI-2 677 brl.
Þorkeil Máni RE-205 722 brl.
3skip 2.092 brl.
Teknir af skrá 1974
Hállveig Fróðad. RE-203 566
brl.
Hjörleifur
Bylgja
Kaldbakur
Mars
Röðull
Sléttbakur
Svalbakur
Úranus
RE-211 610 brl.
RE-145 566brl.
EA-1 .654 brl.
RE-261 684 brl.
GK-518 680 brl.
EA-4 654 brl.
EA-2 656 brl.
RE-343 656 brl.
9 skip 5.725brl.
Auk þess var siðutogaranum
-NARFA, RE-13, 779 brl. breytt I
skuttogara árið 1975.
2. íslenzur skipastóll
1. janúar 1976.
Fjöldi og rúmlestatala is-
lenzkra skipa 1. janúar 1976 er i
töflu á bls. 250 og eru niðurstöð-
ur þær, að þilfarsfiskiskip undir
100 brl. aðstærðeru 609samtals
18.536 brl. Fiskiskip 100-499 brl.
eru alls 263 samtals 59.441 brl.,
fiskiskip 500-999 brl. eru alls 26,
samtals 21.002 brl.
tslenzk þilfarsfiskiskip eru nú
898 að fjölda til og samtals
98.979 brl. að stærð. Allur is-
lenzki skipastóllinn var 1. janú-
ar 1976, 995 skip samtals 175.207
brl. Þilfarsskipum hefur þvi
fækkað um 1 skip á árinu en flot-
inn stækkað um samtals 8.001
brl. Vegna endurmælinga skipa,
sem á skrá eru, hafa 34 skip
minnkað um alls 518 brl., en 8
skip hafa við endurmælingu á
árinu stækkað um samtals 121
brl. Þessar breytingar á skipa-
stólnum eru teknar saman i
töflu á bls. 257 og skrá yfir skip,
sem hafa verið endurmæld á ár-
inú er á bls. 248.
3. Skip strikuð út af
skipaskrá árið 1975 og
ný skip á árinu
Alls voru 40 skip strikuð út af
skipaskrá á árinu 1975, samtals
2.318 brl. að stærð. Skrá yfir
þessi skip er á bls. 247 i skránni,
og þar er tilgreind ástæðan fyrir
útstrikun hvers skips. Fiskiskip
100 brl. og stærri, sem strikuð
voru út af skipaskrá á árinu 1975
eru þessi: Járngerður GK-477,
Sæborg RE-20 og Brynjólfur
AR-4 sem öll sukku á árinu, og
Halkion VE-205, Skinney SF-20,
Ólafur Sigurðsson AK-371 og
Sverdrupson IS-303 voru öll seld
til Noregs á árinu. Engin flutn-
ingaskip voru strikuð út af skrá
á árinu 1975.
Á árinu 1975 hafa bæzt i is-
lenzkan skipastól alls 39 skip,
samtals 10.716 brl. (sbr. bls.
245). Til samanburðar má geta
þess, að á árinu 1974 bættust 65
skip við, alls 26.303 brl„ árið
1973 bættust 70 skip við, samtals
19.851 brl. og árið 1972 bættust 75
skip við, alls 8.167 brl. Flest
skipanna, sem frumskrásett
hafa verið á árinu 1975, eru
fiskiskip, og stærst þeirra er
skuttogarinn Harðbakur
EA-303. Af öðrum skipum skal
fyrst nefna varðskipið Tý. Þá
voru keypt til landsins nokkur
notuð flutningaskip, Hvalvik,
Laxá, Alfsnes, Rangá og Bæjar-
foss.
4. Aldurislenzkraskipa
1. janúar 1976.
Skrá yfir áldur islenzkra
skipa er á bls. 252. Enn er elzta
skip á skrá 5 brl„ smiðað árið
1905. Skip smiðuð 1945 og fyrr
eru þó aðeins 95 skip, samtals
3.461 brl„ af alls 995 skipum,
samtals 175.207 brl. Af þessum
skipum eru 556 skip, alls 137.907
brl. smiðuðárið 1960ogsiðar, og
242 skip, samtals 56.745 brl. eru
smiðuð árið 1970 og siðar. Ekki
er þó kunnugt um smiðaár 12
smáskipa, sem eru alls 93 brl.
að stærð.
5. Skip i smiðum
1. janúar 1976
Erlendis voru i smiðum um
siðustu áramót 6 skip, samtals
um 3.350 brl. Þetta eru 5 skut-
togarar, innan við 500 brl„ tveir
i smiðum I Noregiog þrir i Pól-
landi. Þá er i smiðum i Noregi
ferjuskip fyrir Herjólf H/F i
Vestmannaeyjum, sem áætlað
er um 1000 brl. Skrá yfir þessi
skip er á bls. 266 i skipaskránni.
Innanlands voru umsamin og i
smiðum 22 skip, samtals 2.827
brl. að stærð (sjá bls. 266). Af
þessum skipum eru 7 stálfiski-
skip, flest af skuttogaragerð, en
lika til alhliða veiða. Eitt vöru-
flutningaskip um 385 brl. er i
smiðum á Akranesi fyrir Se-
mentsverksmiðju rikisins. Þá
eru i smiðum innanlands 14 tré-
fiskiskip, öll 50 brl. eða minni.
6. Fiskiskipastóll
helztu fiskveiðiþjóða.
Eins og undanfarin ár er i
skipaskránni i ár birt skrá (á
bls. 268) yfir fiskiskipastól
helztu fiskveiðiþjóða. Eru þar
birtar upplýsingar um fiski-
skipastól landa með 10.000 brl.
fiskiskipaflota og þar yfir, og
eru þá tekin nr.eð fiskiskip sem
eru 1000 brl. og stærri, hval-
veiðiskip og togarar meðtaldir.
Er fróðlegt að fylgjast með þró-
un á stærð islenzka fiskiskipa-
flotans miðaö við stærð fiski-
skipaflota annarra landa. Is-
land er i ár i 19. sæti i röð 35
landa. ísland var i 17. sæti i
fyrra en þá af 34 löndum, sem
höfðu fiskiskipastól 10.000 brl.
og þar yfir Þrátt fyrir aukningu
á islenzka fiskiskipastólnum
hefur Island færst neðar i þess-
ari skrá á undanförnum árum.
vegna rnikillar aukningar fiski-
skipafiota annarra þjóða.
t'slenzk fiskiskip 100 brl. og
'stærri voru 287 talsins samtals
78.993 brl. i janúar 1975, en um
siðustu áramót voru fiskiskip
þessi 289 skip samtals 80.443 brl.
að stærð. Þessi islenzku fiski-
skip eru 1.03 af hundraði af
fiskiskipaflot allra þjóða, en i ár
er hundraðshluti miðað við
brúttórúmlestir i fyrsta skipti
birtur i skipaskránni, til frekari
glöggvunar á stæröarhlutföllun-
um.Kemur þar fram, að Rúss-
land eitt á 38,26% af fiskiskipa-
stóli allra landa. Næst kemur
Japan með 13,16%, þá Spánn
með 6,86%, Bandariki Norður
Ameriku með 4,95%> og Stóra
Bretland með 3,02%.
7. Skráning á
opnum vélbátum
I skipaskránni i ár er ekki get-
ið um fjölda og stærð opinna
vélbáta (trillubáta), en i siðustu
skipaskrá var þess getið, að þá
voru skráðir 1087 opnir vélbátar
samtals 3.456 brl. Þessir opnu
vélbátar eru ekki taldir með i
aðal-skipaskránni, og hefur þvi
ekki verið birt opinberlega skrá
yfir þá. Vitað er að þessi skrá
yfir opna vélbáta hefur ekki
verið nægilega áreiðanleg. Á
siðasta ári varþvi lögð töluverð
vinna i að reyna að lagfæra
þessa skrá yfir opna vélbáta, en
þvi verki var ekki lokið um ara-
mót. Fyrirsjáanlegt er þó að
opnum vélbátum á skipaskrá
mun fækka við þessa endur-
skoðun, og ekki er ósennilegt að
tala skráðra opinna vélbáta
muni lækka niður i 800-900 skip
alls.Væntanlega mun verða
hægt að birta nánari tölur i
skipaskrá 1. janúar 1977.
8. Aðrar töflur
i skipaskrá
Eins og undanfarið eru i þess-
ari skipaskrá ýmsar sértöflur
birtar til frekari fróðleiks um
skipastólinn. Skal þar sérstak-
lega getið um skrá yfir vélateg-
undir i islenzkum skipum. og
vélaorku á rúmlest. Þá eru upp-
lýsingar um meðalaldur is-
lenzkra skipa fjölda radióbún-
aðar og fiskileitartækja o.fl.
Það er enn sem fyrr von Sigl-
ingamálastofnunar rikisins, að
skipaskráin megi með þeim
fjölmörgu upplýsingum sem fel-
ast i sértöflum i skránni verða
til gagns fyrir þá. sem nota
þurfa i starfi, og til ánægju fyrir
þá. sem áhuga hafa á að fvlgjast
með þróun islenzkra skipa. fisk-
veiða. siglinga og skipasmiða.
Reykjavik. 8. janúar 1976.
Hjálmar Ií. Bárðarson.
Siglingamálastjóri.
LausI plá&s
Her e.- laust auglysingaplass.
Hafið samband við auglys
ingadeild blaðsins, Hverfis
gotu 10 — simi 14906.
'Teppahreinsuh
' Hrelnsum gólfteppi og húsgögn I
heimahúsum og fyrirlœkjum.
Erum mcA nýjar vélar. Góö þjón-
‘ usta. Vanir menn. -i
SIGFÚS BIRGIR
82296 40491
M KOSTABOÐ
&áS!il8m/ Innrettingar VIV húsbyggingar á kjarapöllum KJÖT & FISKUR
BREIÐÁS Breiðholti
Vesturgötu 3 simi 25144 Simi 74200 — 74201
ÞAÐ B0RGAR SIG
AÐVERZLA í KRON
KasettuiAnaöur og á
fyrir útgefendur hljórr
kóra og fl. Leitiá tilbo
Mifa-tónbðnd Akureyrl
Pósth. 431. Simi (té)22
DUAA
Síðumúla 23
/ími 04900
íimiliseldavélar,
litir - 5 gerðir
ir 40 ára reynsla
fha við Óðinstorg
nar 25322 og 10322