Alþýðublaðið - 18.02.1976, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 18.02.1976, Blaðsíða 3
Úr Alþýðumanninum á Akureyri: STEFNUR OG STEFNU- LflUST FÓLK Þótt fram hafi i seinni tiö komiö býsna skemmtilegar athugasemdir viö orsakalögmáliö og enn á ný skjóti marg- soönir hughyggjuórar upp kollinum — einkum meðal engilsaxa báöum megin hafs — þá verður okkur einföldu hvers- dagsfólki sjálfsagt enn um sinn mest haldreipi i þeirri trú okkar, að „ekkert spretti af engú” „allt eigi sinar orsakir”. Meö þaö i huga skulum við nálgast þá skringilegu atburði, sem gerzt hafa i deilum og dilkadrætti stjórnmálaanna i vetur. Að ýmsu leyti hefur veriö liflegt i pólitik siöustu mánuöi. Samt hafa þessar deilur haft yfir sér allt annaö svipmót en áður hefur verið. Venjulega hafa póli- tiskar deilur mest mótast af málflutningi hinna tveggja póla islenzkra stjórnmála — ihaldsmanna og vilta vinstursins. Morgunblaðið og Þjóöviljinn hafa lagt mest af mörkum i málskjóðuna og flokk- arnir tveir dregiö höfuðdrættina i mynd stjórnmálamanna — dregið i dilkana tvo: hægri og vinstri. öll stjórnmálaumræða hefur i rauninni markast af þessum tveimur flokkum — hina flokkana hefur að mestu leyti skort frumkvæði til að marka sér vettvang og orðið að reisa til- veru sina að nokkru á gamaltryggu fylgi og að nokkru á hagsmunafylgi (sbr. SIS/KEA). Hugsjónalega eða hugmynda- fræðilega undirstöðu hefur skort. Fram- sókn,arflokkurinn hefur allra flokka lengsta þjálfun i svona utanveltulifi — má eiginlega telja þetta orðiö eðlilegt flokknum — að hafa helzt enga stefnu — eða eigum við kannski að segja allar stefnur? „Midaldramannahallæri" Alþýðuflokkurinn hefur hins vegar verið á fallanda fæti. Það var þvi orðin lifsnauðsyn fyrir hann að dusta af sér rykið —ekki aðeins með nýrri stefnuskrá, þvi að stefnuskrá sem slik er ekki annað en eins og reiöabúnaður á skipi og þótt vel verði til reiða að vanda, ef mikinn skal sigla — þá verður hins að gæta að kjöl- festan sé næg — ef ekki á að kollsigla sig — og kjölfestan i þeirri vandasömu siglingu sem stjórnmál einatt eru er ein- mitt starf flokksins og ekki siður starf- semi forystumanna flokksins. Nú er það svo, að allir flokkar á Islandi eru i „mið- aldramannahallæri” — þegar sleppir lit- rikum og aðsópsmikilum foringjum flokk- anna, sem allir eru komnir á efri ár — blasir við ægileg eyðimörk aðgerðalitilla og aðsópslitilla miðlungsmanna. I þessu efni hallar ekki á neinn flokk. Þeim mun forvitnilegra er að fylgjast með þvi, sem hefur verið að gerast i seinni tiö. Hvaða mál hefur boriö hæst? Hvers vegna? Hverjir hafa haft sig mest i frammi? Hverjar verða afleiðingarnar? „gentlemen agreement" Tvimælalaust hefur landhelgismáliö boriö hæst. Það er ekki nýtt og reyndar fátt forvitnilegt eða óvænt komið beinlinis fram i þvi máli Hins vegar hafa önnur mál verið á annan veg en oft áður. Stjórn- mál hérlendis siðustu áratugi hafa mjög einkennzt af nokkurs konar „gentlemen agreement”, sem sumir hafa nefnt „samtryggingarkerfi stjórnmála- fiokkanna”. Pólitiskar umræður hafa oftast verið nöldurkennt nagg og þras ýmist um formsatriöi og litilræði, ómerki- legar atkvæðaveiöar — eöa enn frekari árétting á tviskiptingunni i islenzkum stjórnmálum og ber þar hæst eilifðar- málin — herinn og NATO. Nú ber aftur svo við, að hasarmál setja mestan svip á pólitikina og má þar nefna til Kröflu- máliö, Klúbbmáliö og harövituga gagn- rýni á dómsmálin (t.d. Jósafatsmáliö). Slik mál einkenndu stjórnmálaumræður hér á landi fyrir daga „samtrygg- ingarinnar” og einkenna stjórnmálin i flestum lýðræðisrikjum — a.m.k. þeim, sem búa við frjálsa blaðamennsku. Islenzku blöðin hafa verið mjög háð flokk- unum — lotið stjórn þeirra beint eða óbeint. Nú bregður svo við, að nokkrir menn hafa gert alvarlega tilraun til að brjóta samtrygginguna á bak aftur Sjálf- sagt er það engin tilviljun og vafasamt að skýra það með að þeim hafi flogið það i hug út i bláinn — einhverjar þjóöfélags- aöstæöur búa þar aö baki. Það er eitthvað að gerast i dag, sem getur ekki aðeins komið gersamlega flatt upp á æöstu valdsmenn og gert þá næstum vitstola af bræði — eins og dæmin sanna — heldur getur orðið til þess að breyta útlinum stjórnmálanna. Menn hafa getið sér þess til, aö amerisk blaðamennska og Water- gatemálið hafi hér einhverju ráðið og ástæöulaust er aö vanmeta áhrif útlanda á islenzka pólitik — flestir gera sér grein fyrir þvi, aö utanrikismálin hafa meiri áhrif á stjórnmál á tslandi nú en þau gerðu fyrir nokkrum áratugum. En fleira kemur hér til. Ungt fólk á móti dilkadrætti Ungt fólk nennir ekki aö láta draga sig i dilkana tvo og hefur glögglega komið auga á annmarkana á þeim dilkadrætti — séð i gegnum ómerkilegan blekkingarvef svonefndrar vinstri stefnu, sem er ýmist holtaþokuvæl, þar sem tekist er á með til- vitnunum i gamlar bækur likt og guöfræð- ingar á miðöldum geröu, þegar þeir deildu um það, hvort Adam hefði haft nafla eða ekki eða ennþá ómerkilegra fiskiri eftir stundarfylgi óánægjufólks og útigangsmanna ýmiskonar svo sem hin kostulega afstaða Alþýðubandalagsins til landnýtingarinnar ber vitni um. Það er engin tilviljun, að vaxtarbroddur þessarar nýróttækni hefur verið i Alþýðu- flokknum. Viö skulum vera alveg hrein- skilin og viðurkenna, aö aöeins þar, sem til staöar er gamalfrjór jarövegur — en gróöurlitill — ná frjóangar fram- tiöarinnar rótfestu. Alþýöuflokkurinn var illa farinn af skipulagsleysi, hugmynda- leysi og uppdráttarsýki. Viö stóöum frammi fyrir þvi, að annað tveggja hlaut islenzk jafnaðarstefna að deyja út — sem var i rauninni útilokað — eða kommúnistum hlaut að takast að villa til sin jafnaðarmenn vegna aumingja- skapar okkar. Það var ekki nema einn kostur fyrir hendi — sá að bursta af sér rykiö og benda á hvað jafnaðarstefna væri — ekki aðeins i stefnuskrá heldur lika i framkvæmd. Það er þetta, sem er að gerast. örvænting Framsóknar Þegar Ólafur Jóhannesson kallar Vilmund Gylfason allskyns ónefnum og þenur sig út af svigurmælum á þingi er það örvænting, sem stýrir oröum hans — örvænting, út af þvi, að hann og flokkur hans eru að missa af lestinni vegna þess, að þeir hafa veriö svo einstaklega ógæfu- samir að reka frá sér einmitt þá menn, sem gátu ef til vill tryggt Framsóknar- flokknum lengri lifdaga — þeir slitu alla frjóangana úr garði sinum — Ólafur er ekki annað en hreggbarinn hlynur, sem stendur af gömlum vana — rótlaus þótt bolmikill sé — slfkir stofnar standa þar til þeir falla af-sjálfsdáðum þótt þeir punti sig með lánuðum lifsþrótti um stund. Ólafur Ragnar Grimsson spáði enda- lokum islenzka flokkakerfisins fyrir fimm árum. Hann haföi á réttu að standa — að vissu marki. Hann gerði sér bara ekki grein fyrir þvi, að skipti i islenzkri sögu verða ekki á fáeinum árum — þau verða með kynslóðum. Gamla flokkakerfið varð til á tólf árum. Þaö tekur sjálfsagt önnur tólf ár að ganga af þvi dauðu. Viðurkenning á sljórn MPLA í Angóla í athugun „Það hefur ekki verið endanlega ákveöið, hvort rikisstjórn MPLA i Angola verði viðurkennd. Norðurlönd- in eru hins vegar með málið i athug- un,” sagði Pétur Thorsteinsson ráðu- neytisstjóri i utanrikisráðuneytinu i samtali við blaðið i gær. Hersveitir MPLA, sem er hreyfing Marxista og er studd dyggilega af Sovétrfkjunum og Kúbu, hafa náð á sitt vald öllum helztu bæjum landsins. Hefur MPLA að mestu brotið á bak aftur FNLA og Unita, hreyfingar þær sem einnig um völdin berjast. Pétur Thorsteinsson sagði að Norðurlöndin hefðu oft samstöðu þeg- ar rikisstjórnir úti i heimi væru viöur- kenndar. Hefði verið fundur f Kaup- mannahöfn i gær, þar sem ræddur var möguleikinn á þvi að viðurkenna rikis- stjórn MPLA. Hefði Island ekki átt þar fulltrúa, en verið skýrt frá gangi mála. „Það verður að athugast nákvæm- lega hvort viðkomandi rikisstjórn hafi full umráð yfir öllu landinu, áður en ákvörðun um viðurkenningu er tekin. Þessi mál eru til athugunar þessa dag- ana, og verður ákvörðun tekin fljót- lega,” sagði ráðuneytisstjóri að lok- um. — GAS. I HREINSKILNI SAGT Lifs eða liðin? Almenningur er nú farinn að velta þvi fyrir sér i fullri al- vöru, hvort hæstvirt rikis- stjórníslands sé enn á lifi, eða ekki. Og þetta er ekkert gamanmál, þvi að lifsmörkin hafa verið býsna fá undan- • farið. Mál málanna, land- helgismálið, sem yfirlýst var, að hefði algeran forgang, hefur legið i fullkomnu þagnargildi i viku, eða meira. Það sem lakara er, að innan stjórnarinnar ber ekki á neinni samstöðu, til þess að gera nokkurn skapaðan hlut, nema ef væri að biða eftir ein- hverjum „punktum” frá hr. Luns! Rétter að geta þess, að utanrikisráðherra var einkar uppblásinn um daginn, þegar Bretar áréttuðu atferli sitt með framhaldandi ásiglingum á islenzk varðskip og beittu fiskiflota sinum inn á alfriðað svæði, til þess að gera þar sem harðasta hrið að ókynþroská ungfiski. Menn litu sitt upp á hvern og hugsuðu. Nú kannske Einar ætli nú að fara að taka á sig rögg? En Adam var ekki lengi i Paradís. Það kom strax i ljós, að belg- ingur ráðherrans var algerlega sama eðlis og þegar krakkar blása upp blöðrur á skemmtunum, til þess að hampa þeim um stund og sprengja siðan með smá- hvelli! Varla hafði frétzt um von ein- hverra punkta frá hr. Luns, þegar blaðran beinlinis „punkteraði” ogallur vindur var á bak og burt. A sama tima hefur mest litið frétzt af gerðum forsætisráðherra. Varla veröur unnt aö skynja, að hann hafi svo mikið sem lygnt augunum, hvað þá meira. Þannig setur Morgunblaðið upp ein- stakan sauðarsvip og fimbulfambar um, að verkföllin veki nú svei mér ekki veru- lega hrifningu hjá launþegum, hvorki til sjós eða lands! Ja, vissu fleiri en þögðu þó, stendur þar! Það ætti nú ekki að vera nein sérstök ráðgáta fyrir rikisstjórnina, sem megin- hlutann af sinni valdatið hefur verið að naga utanúr lifsbjörg manna með skatt- piningu og hverskyns ráðstöfunum til að draga úr kaupmætti launa, sé fólk ekkert hrifiðaf aðþurfa að ganga i opna baráttu. tslenzk alþýða er heldur ekki svo blind. að hún hafi ekki fylgzt með, hvernig þjóðarhagir eru, hvernig hvaðeina, sem stjórnvöldin hafa nærri komið, er i grænum sjó. Hún sér mætavel hvernig sá skuldabaggi, sem mun hvila á hennar og framtiðarinnar herðum, hefur velt Svef ngenglar! Allsherjarverkfall er nú skollið á með meiri þunga en nokkru sinni fyrr, þar sem það nær að þessu sinni tU meginhluta sjó- manna, auk svo til alls landverkafólks. Og sannarlega er ekki þörf á að segja, að þetta hafi komið eins og „þjófur úr heið- skiru lofti”, þar sem launþegasamtökin og raunar vinnuveitendur lika hafa mánuðum saman gert allt til að rumska viö sjösofendum stjórnvalda. Það liggur við að vera æfintýralegt að sjá, hvernig málgögn stjórnarinnar bregðast við, þegar á hólminn er komið. utanum sig með ógnarhraða á siðustu árum. Hún sér ráðleysið og svefngengils- háttinn, sem hefur einkennt stjórnar- störfin á þessum siðustu timum: Verkalýðshreyfingin veit lika, að hún hefur sannariega freistað aö leggja grunn aö skynsamlegum háttum i launamálum, en i einu og öllu talað fyrir daufum eyrum. Þegar svo er komið á hún ekki annars úrkosti en að beita mætti samtaka sinna.til að ná aítur einhverju af þvi, sem hún hefur verið svipt af lifsbjörg sinni. Þetta er svo einfalt mál, að það þarf einstaka moðhausa til að skilja ekki. Eftir Odd A. Sigurjónsson Allt annað mál er, aö engin ábyrg laun- þegasamtök gera sér það að leik, að beita verkfallsvopninu. Fólk skilur mætavel. að þjóðhagslega er það enginn búhnvkkur. að hjól atv innulifsins stöðvist um hábjargræðistimann. Fóik veit, að þetta er aðeins nauðvörn, sem kostar ómælt fé og fórnir. En þá er lika skammt i, að gera sér grein fyrir, aö þegar beitt er jain ein- stökum þursahætti og hér er raun á. frá hálfustjórnvalda, sé eðlilegt að búast við. að þau hafi þá einnig gert sér grein ívrir hinu þjóðhagslega tjóni. Stundum hafa íhaldsöflin gert sér að leik, aö loknum verkfölium, að burðast við að reikna út tjónið, sem af þeim hefur hlotizt. v. Hvað sem um réttmæti þess útreiknings er að segja, má þó fullyrða eitt. Þeim sömu öflum hefur ekki ennþá auðnast að koma þeim lærdóm inn i sina þykku hausa, að skynsamlegra er, að sýna ekki ætið sama þvergirðinginn i öllum launa- málum, en láta það sem þeir telja tapað, koma heldur launafólkinu til góða með þvi að afstýra vinnustöðvun i tæka tið. Aö þessu sinni var ta'kifærið betra en olt áður, þar sem segja má að ylti á aögeröuin stjórnvalda fyrst og fremst. Þetta tækifæri hefur verið ónotað og þvi er komiö sem komiö er. Miðvikudagur 18. febrúar 1976 Alþýðublaðið

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.