Alþýðublaðið - 25.02.1976, Page 1
alþýðu
n KTiTTii
41. TBL. - 1976 - 57. ARG.
MIÐVIKUDAGUR 25. FEBRÚAR
Ritstjórn Sfóumúla II - Simi 81866
Kristján Pétursson spyr dómsmálaráðuneytið - sjá bls. 3
Sænska kvikmyndagerðarfólkið - sjá bls. 4 og 5
Kolmunninn er góður nytjafiskur - sjá bls. 9
ÞRJÁR VIKUR SÍÐAN RAÐHERRA VAR SPURÐUR A ALÞINGI
SPURNINGAR
SVARA
Nú eru liðnar röskar þrjár vikur siðan
Sighvatur Björgvinsson, alþingismaður,
bar fram spurningar til dómsmálaráð-
herra, Olafs Jóhannessonar, utan dagskrár
á Alþingi varðandi afbrotamál tengd veit-
ingahúsinu Klúbburinn og hugsanlegra af-
skipta ráðherra af framgangi réttvisinnar.
1 svarræðu ráðherrans virtist litlu vera
svarað til neinnar hlitar, en hins vegar
vakti ræða hans enn fleiri spurningar. Ráð-
herrann lagði heiður sinn að veði fyrir þvi,
að engin fjármálatengsl væru milli Fram-
sóknarflokksins og Klúbbsins. Þetta reynd-
ist vera rangt, þvert á móti hafa átt sér stað
umfangsmikil viðskipti milli Framsóknar-
flokksins og Klúbbsins. Það er svo annað
mál og ósvarað hvort þau tengsl hafa
stjórnað gerðum ráðherrans.
Eins og fram kom i forystugrein hér i
blaðinu ekki alls fyrir löngu, hefði verið
æskilegast að dómsmálaráðherra sjálfur
hefði haft frumkvæði að þvi að sett hefði
verið á laggirnar nefnd, sem treystandi
væri, til þess að rannsaka þessi mál og þá
væntanlega hreinsa ráðherrann af öllum
grun. Þetta hefur ráðherrann, þvi miður,
ekki borið gæfu til að gera. Enn stendur þvi
málið allt óupplýst, og fyrir þessa sök,
vegna þrjózku ráðherrans, stendur stjórn-
kerfið allt veikara.
Alþýðublaðið tekur undir þá skoðun, sem
reyndar hefur komið fram i lesendabréfum
til blaðins, að i þessi mál verður að fara
varlega, meðal annars vegna þess að þau
tengjast sakamálum svo ægilegum, að það
snertir einkalif og tilfinningar fjölmargra,
án þess að þeir sömu eigi aðild að málinu.
En engu að siður er Alþýðublaðið þeirrar
skoðunar, að mikið lengur verði ekki beðið.
Stjórnmálamenn hafa lengi setið hjá, með-
al annars af hræðslu við að mál þessi yrðu
að flokksmáli og að menn tækju flokkslega
afstöðu til þessara sakamála, sem auðvitað
yrði mjög slæmt. En þrátt fyrir það verður
ekki beðið öllu lengur. Alþingi verður að
krefjast þess að rannsóknarnefnd verði
skipuð i málið til þess að upplýsa það og
láta svara fjölmörgum spurningum sem er
algerlega ósvarað. Og ef þingmenn ann-
arra flokka fást ekki til að vera með i sliku
og hefja þannig þetta mál upp yfir flokks-
lega tortryggni, þá verða þingmenn Al-
þýðuflokksins að gera það sjálfir. Og þetta
verður að gerast á næstu dögum.
Þær spurningar, sem rannsóknarnefnd
Alþingis ætti að leita svara við, eru ótölu-
legar. Alþýðublaðið bendir á nokkrar slikar
spurningar — og efalitið geta lesendur
blaðsins bætt öðru eins við.
SPURNINGARNAR
o
o
Af hverju tók ólafur Jó-
hannesson þá ákvörðun
sina að opna veitingahúsið
Klúbbinn, gegn vilja embættis
rikissaksóknara, lögreglustjór-
ans i Reykjavik og þeirra rann-
SQknarlögreglumanna, sem að
rannsókninni unnu? Af hverju
ráðfærði hann sig ekki við þessa
menn og ieitaði jafnframt upp-
lýsinga um það, af hverju þeir
höfðu lokað húsinu?
Hvert er mat sérfróðra lögfræð-
inga — var lagaheimild
ráðherrans ótviræð? Atti
ekki ráðherrann, samkvæmt
sömu áfengislögum, einmitt að
loka húsinu vegna þess, að að-
standendur þess höfðu gerzt
brotlegir við ákvæði laganna?
Hvað stóð i bréfi þvi, sem
aðstandendur Klúbbsins
sendu ráðuneytinu i
október, 1972, þar sem þeir
kröfðust þess að ráðuneytið
skærist i leikinn og opnaði húsið
fyrir þá? Af hverju hefur ráðu-
neytið aldrei birt þetta bréf I
sinum langorðu greinargerð-
um?
o
o
Hvers vegna voru brotlegir
starfsmenn ATVR endur-
ráðnir? Hver voru brot
þessara manna og hversu lengi
höfðu þeir stundað þau? Var yf-
irmönnum þeirra i ATVR aldrei
kunnugt um þetta meinta mis-
ferli?
Kristinn Finnbogason upp-
lýsti I sjónvarpsþætti að á
þessum tíma, þegar hann
stjómaði skuldabréfaviðskipt-
um Framsóknarflokksins og
Klúbbsins, hafi honum ekki ver-
iðkunnugt um að Klúbburinn að
öðru leyti stóð i slæmum mál-
um. Þar sem þetta var á þeim
tima blaðamál og Kristinn að
auki framkvæmdastjóri dag-
blaðs, hvernig stendur þá á þvi
að Kristinn Finnbogason virðist
hafa verið eini maðurinn á is-
iandi, sem ekki vissi i október
1972, að Klúbburinn stóð i slæm-
um málum?
Hver voru tengsl — ef ein-
hver — skuldabréfa við-
skipta Framsóknarfiokks-
ins og Sigurbjörns Eirikssonar
annars vegar og ákvörðunar
ráðherra hins vegar?
Af hverju féll Sigurbjörn
Eiriksson, veitingamaður,
frá fimm milljón króna
kröfu sinni á hendur Húsbygg-
ingasjóði Framsóknarflokksins
tveimur dögum áður en ráð-
herrann tók þá ákvörðun sina að
opna veitingahúsið gegn vilja
lögreglunnar? Sigurbjörn
Eiriksson hefur hingað tii verið
talinn harður viðskiptamaður,
og hingað tii hefði verið talið ó-
venjulegt af honum að falla frá
fimm milljón króna kröfu á
hendur einum eða neinum —
bótaiaust?
Hvernig hefur öðrum veizlu-
höldum og hanastélsboðum ver-
ið háttað? Hafa verið frekari
viðskipti þarna á milli?
o
Hver er afstaða lögreglu-
stjórans i Reykjavik til
þessa máls? Ljóst er hver
afstaða hans var, en af hverju
hefurhann nú ekki svarað itrek-
uðum spurningum fjölmiðia?
o
Hvenær hófust þessi mál?
Hversu umfangsmikil eru
þau? Tengjast þau banka-
kerfinu —einum eða fleiri bönk-
um — með einum eða öðrum
hætti?
o
o
Hver hafa verið önnur fjár-
máiatengsl Framsóknar-
flokksins og Klúbbsins eða
aðstandenda hans? Hvernig
voru, til dæmis, greiddar veizl-
ur þær sem frambjóðendur
flokksins sátu fyrir tvennar
kosningar á árinu 1974?
Hafa hugsanlega átt sér
stað frekari afskipti ráðu-
neytis af frumgangi mála?
Fram hefur komið, að þegar
Baldur Möller sendi ioðið bréf
til lögregluyfirvalda i Kefiavik,
þegar einn aðstandenda veit-
ingahússins hafði verið vfir-
heyrður vegna nýrra mála, þá
dugði ekki bréfið heidur hringdi
hann með þvi. Hvað sagði Bald-
ur Möller i þessu simtali? 1
hvers umboði hringdi hann?
Framhald af 15. siðu.
Vonandi að hvergi sé um verri hluti að ræða
Vera má að við einhverjum, kannski öllum,
þessara spurninga séu til eðlileg svör. En þau
eðlilegu svör hafa ekki fengist til þessa, þvert á
móti hefur þetta mál orðið tortryggilegt með
hverjum deginum.
Alþýðublaðið litur svo á að lýðræðið i þessu landi sé i mikilli
hættu, ef ekki verður gripið i taumana. Stjórnvöld, og ekki sizt
dómsyfirvöld, verða að vera hafin yfir tortryggni. Það eru þau
ekki nú.
Ef þessi mál reynast vera öll i stakasta lagi, þá standa stjórn-
völd keikari eftir en áður. Þá gleymast stóryrði dómsmálaráð-
herra og hann öðlast virðingu sina á ný.
En úr þvi sem komið er er Alþýðublaðið þeirrar eindreginnar
skoðunar, að málið allt sé svo tortryggilegt, uns frekari og skýrari
svör frá ráðherra, fjölmörgum embættismönnum og sérfræðing-
um, fást, að Alþingi verði að gegna þeirri skyldu sinni og gripa i
taumana með þvi að stofna til rannsóknar. Vonandi leiðir sú rann-
sókn i ljós, að þótt hér sé augljóslega um margar mjög óheppileg-
ar ákvarðanir að ræða, þá sé hvergi um verri hluti en það að ræða.
En hvort sem slik rannsókn leiðir það i ljós eða aðra og verri hluti,
þá getur ekki lengur við svo búið staðið.
Undirstaða islenzkra stjórnhátta og virðing valdsins er i hættu,
og þeirri hættu verður að bægja frá.
Allra hrottalegasta árás sem
Bretar hafa gert á islenzt varð-
skipiþessu þorskastriðiog hinum
fyrri var gerð um hádegi i gær.
Freigátan Yarmouth sigldi fjór-
um sinnum á varðskipið Þór af
slikri hörku að vart er hægt að ef-
ast um að tilgangurinn hafi verið
að sökkva varðskipinu. Þegar
varðskipið Týr fór Þór til aðstoð-
ar sigldi freigátan Scylla á Tý.
Það er greinilega aðeins tima-
spursmál hvenær alvarieg slys
verða eða menn missa lifið á mið-
unum ef ástand helzt óbreytt.
Freigátan Yarmouth tilkynnti
varðskipum okkar i fyrradag, aö
hún hefði fengið fyrirmæii um, að
þola enga trufiun á veiðum
brezku togaranna.
Um hádegi I gær var Þór stadd-
ur 27 sjómilur út af Langanesi.
Varðskipið var á hálfri ferð og
stefndi i átt frá brezkum togurum
sem voru i 3,4 sjómilna fjarlægð.
Freigátan Yarmouth sigldi Þór
uppi i fárra metra fjarlægð og
snarbeygði siðan á bakborða.
Fjórum sinnum var siglt á Þór og
er skipið illa leikið eftir aðförina
Brúarvængur stjórnborðsmegin
er brotinn af, göngubrú fyrir
framan brú er lögð inn, neðri brú-
arvængur stjórnborðsmegin er
beyglaður og stjórnborðsspil á
skipherraibúð lagðist inn. Engin
slys yrðu á mönnum og má teija
það hina mestu mildi.
Varðskipið Týr var þarna
skammt frá og sigldi i átt að Þór
til að veita aðstoð. Freigátan
Scylla var náiægt Tý og tilkynnti
skipherra varðskipsins að hann
væri á leið til að aðstoða Þór.
Freigátan reyndi allt hvað hún
gat til að hindra siglingu Týs og
sigldi siðan aftan á varðskipið.
Skemmdir munu ekki hafa orðið
verulegar.
Sem fyrr segir hafa herskipin
fengið fyrirmæli um að þola enga
truflun á veiðum togaranna. Þar
sem varðskipunum hefur orðið
vel ágengt við klippingar að und-
anförnu virðist það vera stefna
freigátumanna að koma varð-
skipunum úr umferð með hrotta-
ieguin ásiglingum. Þessar að-
ferðir eru á ábyrgð brezka flota-
málaráðuneytisins og þar með
brezku rikisstjórnarinnar. Með
sama áframhaldi verða okkar fáu
varðskip úr leik innan skamms og
það þarf kraftaverk til að koma i
veg fvrir stórslvs á miðunum.
—SG