Alþýðublaðið - 25.02.1976, Blaðsíða 13
Íþróttír
FRIÐRIK
MARK-
HÆSTUR
Hin unga vinstri handarskytta
úr Þrótti Friörik Friöriksson
var markahæstur i 1. deildar-
keppninni i ár, meö 85 mörk.
Þetta verður aö teljast mjög
góöur árangur hjá leikmanni
sem lék i fyrsta skiptiö i vetur
meðal beztu handknattleiks-
manna tslands. Friörik var
vel að þessum titli kominn.
Hann er bæði fljótur og út-
sjónarsamur leikmaöur sem á
framtiöina fyrir sér. Hann er
einn af þeim mörgu ungu og
efnilegu leikmönnum i ís-
lenzkum handknattleik sem
miklar vonir hljóta aö vera
bundnar við. Hann hefur þeg-
ar verið valinn i landsliöshóp-
inn og verður væntanlega einn
af íslenzku leikmönnunum
sem leika munu gegn Júgó-
slövum og Luxemburgar-
mönnum i undankeppni
Oly mpiuleikmannanna á
næstunni. Alþýöublaöið óskar
Friðriki til hamingju meö hinn
góöa árangur á handknatt-
leiksvellinum þaö sem af er
þessari handknattleiksvertíö.
SNJORALL-
INU VAR
FRESTAÐ
„Við erum tilneyddir til þess að
aflýsa Heykjavikurmótinu i
snjó-rally veðursins vegna einu
sinni enn”, sagði Ólafur Ragnars-
son fréttamaður i samtali við
blaðið, en það þurfti að fresta
keppninni tvær heigar i röð vegna
snjóleysis. Eins og kunnugt er, þá
er búið a skipuleggja þessa
keppni á Sandskeiði, og eru það
Lions klúbbarnir Freyr og Njörð-
ur, ásamt þremur björgunar-
sveitum sem að þessari keppni
standa.
Að sögn Ólafs er keppnin haldin
þetta seint að vetrinum vegna
þess að nú fyrst er dagurinn orð-
inn nógu bjartur til að af keppni
geti orðið. Ólafur t jáði okkur að ef
snjóleysi verður áfram á Sand-
skeiði, þá hafa þeir Stiflisdal i
Þingvallasveit i bakhöndinni, en
þar erágætis aðstaða fyrir keppni
sem þessa, þar sem snjóþyngra
er þar en á Sandskeiöi. g.G.
Meistaramót
fslands haldið
6 og 7 marz
Meistaramót tslands i frjálsum
iþróttum innanhúss veröur haldiö
helgina 6. og 7. marz n.k. i Laug-
ardalshöllinni, og i Baldurshaga.
Þátttökutilkynningar þurfa aö
berast til F.R.Í. fyrir 28. febrúar
n.k. Þátttökugjald er 100 kr. fyrir
hverja keppnisgrein.
LANDSLIDH) OG PRESSAN
EIGAST VIÐ f KVðLD
í kvöld kl. 20.30 verður
leikur landsliðsins i
handknattleik og liðs
sem iþróttafréttaritarar
hafa valið, og gengur
undir nafninu pressu-
leikur. Þessi leikur er
nær árlegur viðburður,
og þykja þeir oftast
mjög skemmtilegir og
spennandi. Með honum
gefst iþróttafréttaritur-
um lika gullið tækifæri,
til að velja þá leikmenn
sem ekki hafa f engið náð
hjá landsliðsnefndinni,
og þeim þykir að ættu
fullt erindi i landsliðið.
Þetta er þvi lika nokkurs
konar barátta, milli
mats iþróttafréttarit-
ara, á einstökum leik-
mönnum, og landsliðs-
nefndarinnar, hins veg-
ar.
Sjaldan, eða aldrei hefur is-
lenzka landsliðið I handknattleik
verið gagnrýnt jafn harkalega i
dagblöðum, og einmitt i vetur, og
er þvi ærin ástæða til að hvetja
fólk til þess að koma og sjá leik-
inn, þvi hann er lika nokkurs kon-
ar barátta tveggja málstaða,
þ.e.a.s., iþróttafréttaritara og
handknattleiksforystunnar, en
einsog kunnugt er þá hafa þessir
hóparekkialltaf verið sammála á
þessum vetri.
Það er óþarfi að tiunda mögu-
leika hvors liðs um sig Bæði eru
skipuð sterkum og góðum leik-
mönnum, sem flest allir ef ekki
allir myndu sóma sér vel i lands-
liðinu, þ.e.a.s. ef þeir hafa ekki
þegar verið valdir I það.
Landsliðið verður þannig skip-
að i kvöld: Markverðir: Ólafur
Benediktsson Val, og Guðjón Er-
lendsson Fram. Aðrir leikmenn
eru:
Bjarni Jónsson Þrótti,
Friðrik Friöriksson Þrótti, Sigur-
beigur Sigsteinsson Fram, Páll
Björgvinsson Viking, Arni Ind-
riðason Gróttu, Jón Karlsson Val,
Steindór Gunnarsson Val. Hinir
þrfr sem valdir hafa verið i lands-
liðið, Jón Hjaltalin Magnússon,
Ólafur Einarsson og Ólafur Jóns-
son, eru allir erlendis og munu
þvi ekki leika með i kvöld.
Pressuliðið verður skipað eftir-
farandi leikmönnum: Markverð-
ir: Guðmundur Ingimundarson
Gróttu, Birgir Finnbogason FH.
Aðrir leikmenn eru: Þórarinn
Ragnarsson FH, Guðmundur
Arni Stefánsson FH, Stefán
Halldórsson Viking, Guðjón
Magnússon Val, Bjarni
Guðmundsson Val, Hannes Leifs-
son Fram, Pétur Jóhareson
Fram, Hörður Kristinsson Ar-
manni, Hörður Sigmarsson
Haukum, og Geir Hallsteinsson
FH. Ekki er alveg vitað hvort
Geir leikur með þar eð hann
meiddist illa á fæti i leiknum gegn
Fram á sunnudagskvöldið.
Ungi leikmaðurinn úr
Fram Hannes Leifsson,
hefur átt mjög góða
leiki að undanförnu
meðFram-liðinu. Hann
er áreiðanlega maður
framtiðarinnar i is-
lenzkum handknatt-
leik.
Hann leikur með
pressuliðinu i kvöld
gegn landsliðinu.
Sigraði bæði í snóker og krambúl
Agúst Agústsson tvöfaldur
íslandsmeistari í billjard
tslandsmótið I „krambúl" var
haldið á billjardstofunni á
Klapparstig nú i vikunni, og voru
þar mættir til leiks flest allir
beztu spilarar landsins. Til úr-
slita léku þeir ólafur Jakobsson
og Agúst Agústsson, og föru leik-
ar svo að Agúst bar sigur Ur být-
um cftir skemmtilega keppni. t
þriöja sæti var Gunnar Hjartar-
son margfaldur tslandsmeistari.
Með þessum sigri sinum varö
Agúst tvöfaldur tslandsmeistari i
billjard, þar sem hann sigraði
einnig i „snóker” keppninni, sem
var haldin á sama staö fyrir
skömmu. Þetta er i fyrsta skipti
sem Agúst er tslandsmeistari i
krambúl, en I „snóker” hefur
hann sigraö nokkrum sinnum. Er
ekki vafi á þvi að Agúst er einn af
beztu, ef ekki bezti billjardspilari
landsins.
Almenningur veit ekki mikiö
um þessa skemmtilegu iþrótt, þar
sem sjaldgæft er aö um hana sé
skrifað. Til aö ná góöum árangri I
þessari iþrótt, þarf geysimikla
æfingu og reynslu, sem og I öðr-
um greinum iþrótta, þannig aö ó-
hætt er að gera þessari iþrótt jafn
háttundir höföi sem öörum grein-
um.
Ömar Ragnarsson í fararbroddi Úr fyrri keppni
O blaoamanna og
/1 , , , P , , , r dómara: Frábær til-
íþrottairettamanna gegn domurum snsómars tn víta-
Fyrir leik pressuliösins og
landsliðsins, leikur lið iþrótta-
fréttaritara gegn liði handknatt-
leiksdómara. Þessir leikir hafa
nær undantekningarlaust verið
mjög vinsælir meðal handknatt-
leiksunnenda enda oftast mjög
vel Ieiknir. ómar Ragnarsson
mun væntanlega leiða Iþrótta-
fréttaritarana.enda hafa fáir fyr-
irliðar eins mikla ábyrgðartil-
finningueins og Ómar. Hannhef-
ur átt við þrálát meiðsli að striða
siðan i haust, en er nú á batavegi,
og að sögn hans sjálfs, að komast
i toppæfingu. ,,Ég get ekki án i-
þrótta verið” segir Ómar, og þvi
reyni ég ávallt að fyrirbyggja
meiðsli áður en þau gerast.
Iþróttir eru fyrir mig eins og eit-
urlyf fyrir eiturlyfjasjúklinga, ég
get ekki án þeirra verið. Ég mun
gera allt sem i minu valdi stendur
til aö við náum að sigrast á hinu
harðsnúna liði dómara, og treysti
hinum lögfróöu lögfræöingum
sem dæma munu leikinn, þeim
Jóni Steinari Gunnlaugssyni og
Bergi Guönasyni, til þess að sjá
viö öllum fólskubrögðum og leik-
araskap dómaranna, sem þeir
eru svo þekktir fyrir. Við munum
fara inn á leikvöllinn með þvi
hugarfari að sigra og það mun
takast i lokin sagði hinn knái i-
þróttafréttaritari hjá Sjónvarp-
inu, og enginn efast um að hans
orð séu ekki sönn. Auk ómars
munu flest allir iþróttafréttarit-
arnir leika. Helgi Danielsson mun
t.d. vera i marki og er það ekkert
launungamál, að hann ásamt
Ómari eru styrkustu stoðir i-
þróttafréttaritaranna. Markvörð-
urinn er eins og flestir vita hálft
liðið, og þvi er það mikill akkur að
hafa jafn margreyndan landsliðs-
mann eins og Helga til að sjá um
rammann.
Lið dómaranna veröur svipaö
og verið hefur undanfarin ár, og
mun þvi gamla Vikings-kempan
Bjöm Kristjánsson leiða það,
Björn gerði mikinn usla siðast
þegar þessi lið mættu og ættu
menn ekki að veröa hissa ef
settur yrði sérstakur gæzlumaður
á Björn i þessum leik. Hver fær
það erfiða verkefniskal ekki gefið
upp að svo stöddu, en eitt er vist
það verður ekki sparað lið til.þess
að stoppa hann, þótt svo færi að
lið iþróttafréttaritara þyrfti að
verða tveimur til þremur mönn-
um færri i vörninni. En hvort liðið
er betra fæst úr skorið i kvöld.
Aður en leikirnir hefjast mun
skólahljómsveit Kópavogs leika
nokkur létt lög.
Alþýðublaöið
AAiðvikudagur 25. febrúar 1976