Alþýðublaðið - 25.02.1976, Side 10

Alþýðublaðið - 25.02.1976, Side 10
Hækkið lægstu launin um 25% Ríkisstarfsmaður skrifar: I dag (fimmtudag) er ekki að heyra, að verk- fallið leysist á næstunni. Enn standa atvinnu- rekendur uppi eins og nátttröll og neita að horfast í augu við raun- veruleikann. Þeir, sem ráða í Vinnuveitenda- sambandinu, hefja upp gamla sönginn um það, að atvinnuvegirnir þoli engar kauphækkanir. Þetta er bara ekki rétt. Þessir herrar nota bara verkafólk sem peð í bar- áttu sinni við ríkisvaldið að hrifsa til sín meiri og meiri fríðindi hvað við- kemur skattálagningu, lánamálum og fleira í þeim dúr. Ef fyrirtæki geta ekki greitt hærra kaup en það, sem nú er í gildi, er það einfaldlega vegna þess að þau eru illa rekin. HORNID Skrifið eða hringið í síma 81866 Þvi miður hafa opinberir starfsmenn ekki verkfallsrétt — ekki ennþá. En ástandið hjá meginþorra þeirra er slæmt og launin léleg. Mjög stór hluti opinberra starfsmanna hefur milli 60 og 70 þúsund i laun á mánuði, þegar visitölufjölfjöl- skyldan þarf 120—130 þúsund, samkvæmt útreikningum hlut- lausra aðila. En það kemur sá timi, að við risum upp og krefj- umst réttar okkar eins og verkafólk gerir núna. Satt bezt að segja finnst mér, að forystumenn ASt hafi sýnt og mikið langlundargeð undan- farna mánuði. Það eru tæpir þrir mánuðir siðan farið var að ræða saman, en ekkert gerðist fyrr en verkfail hafði verið boð- hefur opið pláss fyrir hvern sem er Hringið í HORNID sími 81866 - eða sendið greinar á ritstjórn Alþýðublaðsins, Síðumúla 11, Reykjavík að. Þá fyrst hófust eiginlegir samningafundir. A þessu tima- bili hafa orðið miklar hækkanir á ýmsum vörum, þrátt fyrir þessa verðstöðvun. Og enn meiri hækkanir hafa verið boð- aðar. Má nefna sem dæmi, að það má telja fullvist, að gjald- skrá Hitaveitunnar hækki um 35—40% strax eftir að búið er að semja — og fargjöld með SVR munuhækka um 20—25% i april. Hægt væri að nefna mun fleiri dæmi, en ég læt þetta nægja aö sinni. Hér verður samninganefnd verkafólks að vera vel á verði og taka allar fyrirsjáanlegar hækkanir inn i kaupkröfurnar. Mér finnst það vera algjör lágmarkskrafa, að laun þeirra, erminnsthafa hækki um 25% og laun annarra, er hafa nú á milli 75 og 100 þúsund á mánuði hækki um 18%. Auk þess er óhjákvæmilegt að hafa visitöl- una i virku sambandi viö launin, þvi það er beðið eftir þvi að ræna öllum launahækkunum af almenningi aftur. Reynsla und- anfarinna ára sannar þetta. Þótt löng verkföll séu hvim- leið, vil ég hvetja fólk til að gefast ekki upp heldur þrauka áfram. Nokkuð er til i verkfalls- sjóðum og það má fá fjárstuðn- ing frá stöndugum verkalýðs- félögum i nágrannalöndunum . Það eru atvinnurekendur, sem hafa stofnað til þessa verkfalls með óbiigirni sinni — og þar sem rikisstjórnin hefur ekkert gert til að liðka fyrir, er hún samsek. Þessir aðilar eiga það skilið að finna til tevatnsins. Stöndum saman og vinnum sig- ur. Samvirki en ekki Rafafl R.H.J. hringdi: Ég kom meö smáathugasemd þarna i Horninu um daginn vegna samvinnufélags rafvirkja sem nefnistRAFAFL. Þar gat ég þess að ég hefði skipt við þetta fyrir- tæki og það hefði veriö dýrara en önnur. Þvi miður varð mér á i messunni. Þaö var fyrirtækið Samvirki sem ég skipti við, en það er vist annað fyrirtæki, þótt það sé einnig svokallað samv.fél. rafvirkja. Eða er þetta orðið eitt fyrirtæki? J.Á.S. gerði athugasemd við það sem birtist eftir mig á dögun- um, en ég sé ekki ástæðu til að svara siiku rugli. Síferska fram- burðarkennslan Stefán Guðni Ásbjörnsson hringdi i Hornið. Ég get ekki látið það vera að hringja og kvarta aðeins yfir útvarpinu. 1 mörg ár hefur verið framburðarkennsla i hin- um ýmsu tungumálum i útvarp- inu, og er ekkert nema gott um það að segja. Það er hins vegar eitt atriði sem pirrar mig og verður þess valdandi, að ég missi ánægjuna af framburðar- kennslunni i dönsku. Astæðan er sú að kennarinn þar, Gunnar Róbertsson Hansen, er látinn og hefur verið um nokkurra ára skeið. (Jtvarpið er sem sagt að leika eldgamlar segulbandsspólur i framburðarkennslunni, og það « löngu eftir að kennarinn er lið- inn. Sömu segulbandsspólurnar ár eftir ár. Að visu er það al- gengt að t.d. heyrist til látinna leikara i gömlum útvarpsleik- ritaupptökum, en það finnst mér hins vegar allt annars eðlis. Samband kennara og nemenda, eins og á að myndast við fram- burðarkennslu af þvi tagi sem útvarpið er með, er nokkuð ná- ið. Þvi finnst mér i hæsta máta óviðeigandi að útvarpa gömlum kenn'sluþáttum þegar kennarinn er látinn. t þáttum þessum er talað beint til fólks og mér finnst það einhvern veginn ekki við hæfi, að það sé látinn maður sem það gerir. Það má ef til vill segja að þessi athugasemd sé óþarft röfl, en mér er svona innanbrjósts og veit að mörgum útvarps- hlustendum er ekki kunnugt, hvernig i pottinn er búið. Barnasagan tímavillt í morgunútvarpinu Útvarpshiustandi skrifar. Hvernig stendur á þessari timasetningu á morgunsögu barnanna i útvarpinu, kl. korter fyrir niu. 011 börn, sem ég þekki, eru annaðhvort farin i skólann á þessum tima, eða eru ekki vökn-. uð. Við, sem erum morgunsvæfir, þurfum eitthvað annað en þessar sjálfsagt ágætu bókmenntir, svona á leiðinni i vinnuna. Og börnin, sem eiga þó að njóta þessa, og reyndar er margt stórvel gert fyrir börn í fjölmiðl- um, fara á mis við allt saman af fyrr greindum ástæðum. Elsk- urnar minar, eitthvað létt úr tómenntunum milli forystugrein- anna og niu-fréttanna, barnasög- una aftur á móti um kl. tiu f.h. Hanzkinn tekinn upp fyrir Valdimarog Bjarna Blaðalesandi skrifar: Ég get ekki varizt þvi að lýsa furðu minni yfir þeim árásum, sem okkar ágætu iþróttaleiöbein- endur og iþróttafréttamenn hafa orðið að þola siðustu dagana. Hinn ágæti Valdimar örnólfsson hefur orðið fyrir aðkasti vegna morgunleikfiminnar og Bjarni Felixson vegna þess helzt, að mér skilst, að hnn sé ekki nógu friður sýnum. Heyr á endemi! Þjóðin er að springa úr ofáti og hreyfingarleysi og þá má hún ekki hlusta á morgunleikfimi. Er þá ekki réttara að hlusta á smá- áminningu á morgnana um það að hreyfa sig svolitið og ekki spillir hljómlistin hjá Magnúsi. Valdimar á lika sérstakan heiður skilið fyrir afrek sin við að vekja áhuga ungs fólks á iþróttum. Er þess skemmst að minnast, að skiðadrottning okkar Islendinga og stolt okkar og gleði i skammdeginu, Steinunn Sæmundsdóttir, hóf sinn frægðar- feril einmitt hjá Valdimar uppi Kerlingafjöllum. Jórunn Viggós- dóttir mun einnig hafa fengið handleiðslu hjá honum. Ég vil bara óska þess, að Valdimar láti ekki deigan siga og haldi sinu striki. Einnig eru skrif þau, sem birzt hafa um Bjarna Felixson að und- anförnu, mjög óviðeigandi. Knattspyrnan er okkar lang- vinsælasta iþrótt og Bjarni gamalreyndur i henni, bæði sem keppnismaður og fréttaritari. „Rauða ljónið”, er þekkt bæði innanlands sem utan og ekki væru margir, sem gætu fyllt skarð Bjarna sem sérfræðings um knattspyrnuna. Allt kjaftæði um það, að hann hagi sér ekki hins- eigin og svona á skjánum, er úti hött. Ekki geta allir verið skemmtilegasti maður þjóðar- innar eins og Ómar Ragnarsson. Það er erfitt að lýsa knattspyrnu- keppni, svo að vel fari. Afram, Bjarni, þú átt leikinn i þessu máli. cy4stareldur* eftir Valerie North. ósanngjarnt af henni. Beveriy var ein af læknunurn við sjúkrahúsið, og þau Vane unnu sarnan. Phillidia vissi það, að Vane leit ekki aðeins á dr. Harr- ington sern einn af rnerkustu sarnstarfsrnönnurn sinurn. Vinátta þeirra náði alveg aftur til bernskunnar. Þau voru frá sarna bænurn i Kanada, og höfðu fyrst verið sarnan i skóla og siðan i háskóla. Það var fyrir tilstilli Vane, að Beverly Harrington var kornin til Sainte Marie. — Þér litið raunar ekki út fyrir það, að hafa of rnikla orku til að eyða, sagði Beverly. — Geturðu ekki fengið konuna þina til að hætta þessu, Vane? Þessi hæð er ekkert garnanrnál... — En rnikil ósköp! Það er ekkert að rnér! Ég er filefld, sagði Phiilidia og settist við hlið Beverly i sófanurn. — Er þetta te drekkanlegt, eða fæ ég nýtt? — Ég er búinn aðhringja á það. Vane horfði á hana. — Ég er búin að borða allar þessar górnsætu brauð- sneiðar! sagði Beverly rneð fallegri, en eilitið drafandi rödd sinni. — Það var ekki fallega gert af rnér! — Það er allt i lagi! Þér hafiö liklega sleppt rnorgun- verði vegna of rnikiliar vinnu.... eins og vanalega...? Phillidia horfðist i augu við hina konuna, og furðaði sig á þvi, að hún gat ekki varizt að láta það fara i taugarnar á sér, hvað Beverly var hér tiður gestur. Það var þrátt fyrir allt betra að hafa einhvern þriðja rnann i húsinu, heidur en að vera ein rneð Vane. Og.... hún ætti að kunna vel við Beverly.... Henni hafði þegar I stað fundizt að þær ættu að geta ver- ið vinkonur, og sarnt... dr. Harrington var vinkona Vane. Þau voru starfsfélagar, þau höfðu bæði áhuga á sarna starfi. Phillidia gerði sér grein fyrir þvi, að Beverly var ó- venju vel gefin. Dr. Charnbers sagði eitt sinn, að ólfkt svo rnörgurn öðrurn konurn rneð heila, hefði Beverly aldrei látið það bitna á útliti sinu. Þegar rnaður sá hana núna, var erfitt að trúa þvi, að hún væri ekki bara snotur tutt- uguogfirnrn ára stúlka. Hún var há og grönn, rneð þykkt bronsgullið hár og kastanijubrún augu. Kannski var hún ekki beinlinis frið, en hún gladdi vissulega augað. Fullkornin eiginkona rnanns, sern hafði sörnu áhugarnál og hún. Ef Vane hefði ekki verið giftúr, hefði hann. þá kannski? Phillidia ýtti þessari hugsun frá sér, steinhissa á þvi að henni hafði dottið þetta i hug, og hún neitaði harðlega rneð sjálfri sér að hafa sviðið svolitið undan henni. I sarna bili opnuðust dyrnar, og Jean korn inn rneð nýtt te. Jean annaðist hússtjórnina ásarnt konu sinni Teresu. Hann sagði: — Það er korninn rnaður, sern spyr eftir Dr. Harrington! — Eftir rnér? sagði Beverly hissa. — Hver i ósköpun- urn...? — Sinclair Arliss.... ef það nafn segir þér þá nokkuð! heyrðist karlrnannsrödd segja i dyragættinni. — Nei, nú er rnér að verða nóg boðið! Sin Arliss.... hvað ert þú að gera hér? Beverly var staðin á fætur og flýtti sér til rnannsins, sern hafði elt Jean inn i stofuna. — Siðast þegar ég vissi af þér, þá varstu að gera eitt- hvað... ég veit ekki hvað, en það var alia vega eitthvað, sern þú hefðir ekki átt að gera, sagði hún og þrýsti hönd hans. — Hvað hefurðu nú fyrir stafni? — Það vill svo til að ég er búinn að kaupa Chateau Rosa- let, sagði gesturinn, — og þá var það litill fugl, sern fræddi rnig á þvi að þú skreyttir hér starfsliðið rneð nærveru þinni. Ég spurði eftir þér við aðalinnganginn, og mér var sagt að þú hefðir farið til dr. Cordreys, og þá... hann horfði brosandi á Vane. — Þá tók ég rnér bessaleyfi að korna hingað æðandi i þeirri von að verða fyrirgefið sern næsta granna yðar. — Gleður rnig að hitta yður, sagði Vane. — Þetta er eig- inkona rnin, herra.... — Sinclair Arliss.... Sin er auðveldara. Arliss leit niður á Phillidiu. Hann hafði ekki kornið auga á hana fyrr, þvi Vanestóð á rnilli þeirra, rétt þegar hann korn inn. ,---_ 9 Alþýðublaðið Miðvikudagur 25. febrúar 1976

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.