Alþýðublaðið - 25.02.1976, Síða 12

Alþýðublaðið - 25.02.1976, Síða 12
A Kópavogur - Niðurgreiðsla daggæzlugjalda á einkaheimilum Félagsmálaráð Kópavogskaupstaðar hef- ur ákveðið að greiða niður vistgjöld barna einstæðra foreldra, sem eru i daggæzlu á einkaheimilum. Niðurgreiðslur þessar eru bundnar þvi skilyrði, að viðkomandi heimili hafi til- skilið leyfi frá félagsmálastofnuninni. Niðurgreiðsla þessi verður fyrir hvert barn helmingur vistgjalds kaupstaðarins á hverjum tima eða nú kr. 4.500 á mánuði. Umræddum aðilum er bent á að hafa sam- band við félagsmálastofnunina, Álfhóls- vegi 32, simi 4-15-70. Félagsmálaráð. Eggjaframleiðendur Hinir gömlu, góðu timar eru komnir aftur og Teigur býður aftur upp á landsins beztu hænuunga — nýtt norskt kyn. Aukin framleiðsla. Tryggið ykkur unga " hið allra fyrsta. TEIGUR S.F. Mosfellssveit. Simi 91-66130. Skrifstofustarf Framleiðslueftirlit sjávarafurða, óskar eftir að ráða stúlku til starfa á skrifstofu frá lokum marsmánaðar eða fyrr. Verslunarskóla- eða hliðstæð menntun æskileg. Upplýsingar hjá stofnuninni. Framleiðslueftirlit sjávarafurða, Hamarshúsinu v/Tryggvagötu. Simi 16858. Auglýsing Styrkir tíl að sækja kennaranámskeið í Sam- bandslýðveldinu Þýzkalandi EvrópuráöiA býöur fram styrki til handa kennurum til aö sækja námskeiö i Sambandslýöveldinu Þýzkalandi á timabilinu marz til júli 1976. Námskeiöin standa aö jafnaöi i eina viku og eru ætluð kennurum og öðrum er fást við framhaldsmenntun kennara. Umsækjendur þurfa að hafa gott vald á þýzku. Nánari upplýsingar og umsóknareyöu- blöð fást i menntamálaráöuneytinu, Hverfisgötu 6, Reykjavik. Umsóknum skal skila til ráöuneytisins. Menntamálaráöuneytið 20. febrúar 1976. Auglýsing frá sjávar- útvegsráðuneytinu Rækjuveiðar á Breiðafirði Þeir aðilar, sem ætla að stunda rækjuveiðar á Breiðafirði á komandi ver- tið verð að asækja um veiðileyfi til sjávar- útvegsráðuneytisins fyrir 3. marz nk. Umsóknir, sem berast eftir þann tima verða visast ekki teknar til greina. Sjávarútvegsráðuneytið 23. febrúar 1976. Upp komst um faðernið þegar Per fór að syngja Hæstiréttur i Svíþjóð á nú f yrir höndum að úrskurða um faðerni 13 ára drengs í einu óvenju- legasta barnsfaðernis- máli þar i landi til þessa. Drengurinn heitir Per, og móðir hans haföi verið gift i mörg ár, og á auk hans tvö önnur börn. En það tók hana sjö ár aö komast að þvi hver faðir þessa drengs væri. Þegar hún varð ólétt á sinum tima sagði hún að kærasti hennar væri faðir barnsins. Blóðrannsókn leiddi hins vegar i ljós að svo gat tæpast verið. Þá benti hún á annan mann, sem hún gat sannað að hafði verið með henni á þessum tima. En sá krafðist blóðrannsóknar, og einnig hann var sýknaður. Rómantískar endurminningar Stúlkan giftist nú, timinn leið og Per varð sjö ára gamall og fór að ganga i skóla. Þar kom strax i ljós að piltur var músik- alskur með afbrigðum og hafði hina beztu söngrödd. Og þegar móðirin heyrði son sinn syngja á skólaskemmtun rifjuðust upp fyrir henni hinar rómantiskustu endurminningar. Arið 1962 hafði hún farið i páskafrii sinu heiman frá sér i Stokkhólmi til foreldra sinna i Vastmannland. Hún fór með vinkonu sinni á popptónlistar- skemmtun þar i nágrenninu. Hljómsveitin, sem þar lék, var þá mjög þekkt og vinsæl meðal unga fólksins. Stúlkurnar féllu i stafi fyrir tónlist þessara ungu kappa, og það endaði með þvi að þær sænguðu með sitt hvorum hljómsveitarmanninum þá nótt. Morguninn eftir fengu þær hvor sina hljómplötuna til minja um nóttina. En um þá nótt hugleiddi stúlkan svo ekki öllu meira fyrr en átta árum siðar. Sagði fyrst já Þegar söngelska drengsins kom i ljós skrifaði stúlkan föður hans, aðalmanni hljómsveitar- innar og sagði honum frá af- sprenginu. Hljómlistar- maðurinn hringdi i hana að bragði og kvaðst myndu gangast við drengnum ef hann slyppi við meðlagsgreiðslur. Siðar dró hann þetta tilboð sitt raunar tilbaka. Lögfræðingur hans hafði varað hann við afleiðingum og vindingum sliks tilboðs. En þá fór stúlkan, móðir Pers, til sakadóms og krafðist úr- skurðar um að hljómsveitar- stjórinn væri faðir drengsins. Hún sagði að það væri ekki fyrst og fremst um peningana að ræða, heldur vildi hún fá úr þvi skorið og staðfest með dómsúr- skurði hver hinn raunverulegi faðir piltsins væri. Rannsóknir hófust, og það voru teknar blóðprufur, sem útilokuðu tónlistarmanninn ekki. En það liðu heil sex ár þar til undirréttur i Mora - úrskurðaði að hann væri faðir Pers. Og þrátt fyrir eindregnar óskir konunnar um að hann sleppi við að borga meðlagið, þá hlifa sænsk lög engum i þeim efnum, og hann verður að punga út með sitt. Og öll árin aftur i timann i þokkabót. En nú hefur hljómsveitarfor- sprakkinn áfrýjað dómi þessum til hæstaréttar. Hann neitar þvi að vera faðir barnsins. Hann kveðst að visu hafa sofið hjá stúlkunni páskanóttina 1962 — en heldur þvi reyndar fram að hún hafisofiðhjá ýmsum öðrum á þessu timabili, sem getnaður kann að hafa orðið á. En Per likist alltaf pabba sinum dag frá degi, segir mamma hans, og hann hefur svo dásamlega rödd! Námsmenn voru á móti frumvarpi um námslán Kjarabaráttunefnd námsmanna hefur lýst yfir eindreginni andstöðu við frumvarp til laga um námslán og námsstyrki sem lagt hefur verið fram á Alþingi. Telur nefndin að þetta frumvarp sé í flestum veigamiklum atriðum í andstöðu við **! Utboð Tilboð óskast i álvir fyrir Kafmagnsveitu Reykjavikur. Tilboöin veröa afhent á skrifstofu vorri Frikirkjuvegi 3 Reykjavik Tilboðin verða opnuö á sama staö miðvikudaginn 7. april 1976 kl. 11 f.h. 4NNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Fríkirkjuvegi 3 -- Sími 25800 vilja námsmanna og í raun ósvífin árás á kjör náms- manna i framhaldsnámi. 1 yfirlýsingu Kjarabaráttunnar segir, aö frumvarpið innihaldi enga tryggingu fyrir því að náms- lánin nægi til lifsviðurværis, en samt sé gert ráð fyrir svo ströngum endurgreiðslum, að þess scu vart nokkur dæmi á vcnjulegum lánamarkaði. Nefndin liefur lagt fyrir þing- menn ýtarlega gagnrýni á frum- varpiö og jafnframt komið á framfæri við þá drögum að frum- varpi, sem er i samræmi við vilja mikils meirihluta námsmanna. Kjarabaráttunefnd gengst fyrir almennum fundi námsmanna um frumvarpið i dag klukkan 17 i stúdentaheimilinu hjá Gamla Garði. —SG Aiþýðublaðið Miðvikudagur 25. febrúar 1976

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.