Alþýðublaðið - 09.03.1976, Qupperneq 5

Alþýðublaðið - 09.03.1976, Qupperneq 5
alþýðu- fclaðið Þriðjudagur 9. marz 1976 FRÉTTIR 5 Enn reynt að sigla á Baldur Stöðugar ýfingar á miðunum Dráttarbáturinn States- man lagði til atlögu við varðskipið Baldur um há- degisbilið í gær. Gerði dráttarbáturinn ítrekaðar tilraunir til ásiglingar en þær mistókust allar. Fimm freigátur eru nú á miðun- um, en foringjar þeirra virtust ekki hafa mikla löngun til að bekkjast við Baldur. Brezki veiðiflotinn, 31 togari, var 'að veiðum norðaustur af Langanesi í gær. Varðskip trufl- uðu veiðar togaranna eftir mætti og gerðu nokkrar tilraunir til klippingar en engin þeirra heppn- aðist. Sem fyrr segir eru nú fimm freigátur á miðunum, en ein þeirra, Scylla, mun vera á förum heim. Sömuleiðis mun einn drátt- arbátur vera að yfirgefa miðin, en þeir voru þar fjórir i gær. —SG Alþýðuflokkskonur: Senda verk- fallskonum stuðning Siðastliðinn sunnudag héldu Al- þýðuflokksfélögin á Akranesi al- mennan fund i félagsheimilinu Röst. Fundurinn hófst kl. 2 eftir hádegi og voru frummælendur þeir Benedikt Gröndal, formaður Alþýðuflokksins, og Sighvatur Björgvinsson, alþingismaður. Fundarstjóri var Guðmundur Vé- steinsson. Um sama leyti var haldinn á Akranesi fundur á vegum kvennadeildar verkalýðsfélags- ins á Akranesi, en konur þar eiga i verkfalli eins og kunnugt er. Strax i upphafi Alþýðuflokks- fundarins var samþykkt að senda verkalýðsfundinum svohljóðandi kveðju: ..Fundur haldinn að tilhlutan Alþvðunokksfélaganna á Akra- nesi 7. marz 1976 sendir fundi i kvennadeild Verkalýðsfélags Akraness árnaðaróskir og flytur verkakonum beztu baráttukveðj- ur i vfirstandandi vinnudeilu." Þessi ályktun var samþykkt einróma á fundinum og send rak- leiðis til fundar verkakvennanna þar sem hún var lesin upp ásamt fjölmörgum öðrum baráttu- og stuðningskveðjum, sem verka- konurnar fengu. Siðan var gengið til dagskrár og Benedikt Gröndal, fyrri frum- mælandinn á fundinum, tók til máls. 1 upphafi ræðu sinnar fjall- aði Benedikt um stöðu, störf og stefnu Alþýðuflokksins og skýrði frá 60 ára afmæli flokksins, sem verður hátiðlegt haldið n.k. sunnudag. Þá ræddi Benedikt um landhelgismálið og lét þess m.a. getið, að við værum nú búnir að vinna sigur i málinu — við yrðum aðeins að halda út þar til sá sigur hefði verið að fullu staðfestur. Að lokinni framsöguræðu Bene- dikts tók Sighvatur Björgvinsson til máls. Ræddi hann efnahags- málin, stjórnarfarið i landinu og dómsmálin. Að framsöguræðum loknum hófust.frjálsar umræður og fyrir- spurnir. Til máls tóku: Rannveig Edda Hálfdánardóttir, Jóhannes Jónsson, Þorvaldur Þorvaldsson, Rikharður Jónsson, Hallgrimur Arnason, Bragi Nielsson, Kristján Guðmundsson. Fundurinn var ágætlega sóttur og fór mjög vel fram. Viðskipti tíu aðila við Alþýðubankann rannsökuð I dag er búizt við að rannsókn Alþýðubankamálsins ljúki hjá sakadómi Reykjavikur. Eftir er mikil vinna við vélritun, en mál- ið verður sent rikissaksóknara á næstu dögum. í samtali Alþýöu- blaðsins við ’Sverri Einarsson sakadómara i gær kom fram, að rannsókn hefur farið fram á við- skiptum 10 aðila við Alþýðu- bankann. Upphaflega fór rikissaksókn- ari fram á rannsókn á viðskipt- um Guðna Þórðarsonar og fyr- irtækja hans við bankann. Bankaráðsmenn Alþýðubank- ans fóru sömuleiðis fram á þess háttar rannsókn þ.e. viðskiptum bankans við Guðna, Air Viking og Ferðaskrifstofuna Sunnu og hugsanleg viðskipti þessara aðila sin á milli. Rikissaksóknari vildi siðan að viðskipti fleiri aðila við Alþýðu- bankann yrðu tekin til athugun- ar. Málið hefur þvi vaxið mjög að umfangi og sem fyrr segir náði það til 10 aðila. Með vitund bankaráðsmanna ? Það kom fram i samtali við Sverri Einarsson, að banka- ráðsmenn Alþýðubankans héldu þvi fram, að þessi viðsk. hefðu ekki farið fram með vitund þeirra og vilja. Þegar Sverrir var spurður hvort þetta gæti staðizt svaraði hann þvi til, að það væri álitamál. Alþýðublaðið hafði einnig samband við Hermann Guð- mundsson formann bankaráðs Alþýðubankans. Hann sagðist að svo stöddu ekki geta sagt neitt um þetta mál enda væri það ekki komið frá sakadómi. —SG. □ Loks gáfu veðurguðirnir snjórallinu grænt Ijós- og áhorfendur létu sig ekki vanta Á þriöja þúsund manns fylgdust með Reykja- vikurmeistaramótinu í vél- sleöaakstri, sem fram fór viö Þingvallaveg á Mos- fellsheiði á laugardag. Um 20 þátttakendur mættu til keppninnar á vélsleðum sinum, en sigurvegari varð Lárus Eiriks- son sem ók 10 kilómetra braut i úrslitariðli á 9 minútum og 12 sekúndum. Var meðalhraði keppenda i úr- slitariðli 60 km/klst. — en þess má geta að allmikið var um erfiða torfærukafla i brautinni. Á næstunni mun verða haldið tslandsmót i rallinu. en það orð er notað fyrir keppni i vélsleða- akstri. —GÁS. Tveir keppenda i úrslitariðli. Sleðinn til vinstri á myndinni erislenzk framleiðsla. NETAVERTIÐIN ER MEÐ ALLRA LÉLEGASTA MÓTI Netavertíðin sem nú er í fullum gangi, hefur verið mjög slæm það sem af er árinu, og hafa gæftir almennt verið slæmar. Blaðið hafði sam- band við vigtarmenn á nokkrum stöðum á suð- vestur horni landsins og innti þá frétta af vertíð- inni. Netavertiðin er nú i fullum gangi um land allt, og stunda hana flest allir minni bátar landsins. Stærri skipin eru flest öll enn á loðnuveiðum, og fara þau ekki á netin fyrr en um mánaðamótin marz — april. Þó er möguleiki á að það verði siðar, þar sem spáð er að loðnuvertið- in verði eitthvað lengur en i fyrra. Vertíðin á Suð-vesturlandi hefur verið með þeim lakari i mörg ár, það sem af er árinu. Er hægt að kenna verkfallinu um það að vissu marki. Blaðið hafði samband við nokkra vikt- armenn i sjávarplássum á suð-vesturströndinni, og spurði þá um gang mála. Dintóttur ufsi Þorsteinn Ingólfsson hjá Fiskifélaginu i Vestmannaeyj- um, tjáði okkur að heildaraflinn fram að 1. marz, hafi verið 2056 tonn, en á sama tima i fyrra hafi hann verið 3095 tonn. „Það má að sjálfsögðu kenna verkfallinu mikið um þessa aflarýrnun, en einnig hafa gæft- ir verið með afbrigöum slæmar i ár. Það er eiginlega aldrei veð- ur til róðra. Bátarnir byrjuðu flestir veiðar fljótt eftir áramdt, og hefur aflinn aðallega verið ufsi. Er hann frekar dyntóttur, það geta komið góðir dagar, en svo á það til að detta algjörlega niður. Aflinn var sæmilegur á sunnudag, og er maður farinn að gera sér vonir um hann fari að glæðast úr þessu.” Góður þorskur i Grindavik ,,í gær lönduðu 29 bátar 190 tonnum, og var það allt mjög góðurþorskur”, sagði Þorsteinn Gislason á hafnarvigtinni i Grindavik. Bætti hann við að þetta hafi verið bezti afladagur- inn á vertiðinni til þessa. I gær var hins vegar bræla á miðun- um, og fóru allir bátarnir fljót- lega i land. Afli var litill sem enginn, enda litið dregið. Daniel sagði að bezti túrinn i fyrradag hafi verið 13,5 tonn, en aflahæsti báturinn i Grindavik væri Þorsteinn Gislason GK. með 150 tonn. „Gæftir hafa verið mjög slæmar i vetur, og hefur litið verið hægt að stunda sjó. Aflinn hefur aðallega verið góður þorskur. Verkfallið hafur einnig sett mikið strik i reikninginn. T.d. fór loðnan alveg fram hjá okkur i verkfallinu, en þá var búið að landa 4000 tonnum. Aflahæsti báturinn „I það heila hefur vertiðin verið mjög slæm vægast sagt, og hafa gæftir verið afleitar,” sagði Jón Júliusson á vigtinni i Sandgerði. ,,Einnig kom verk- fallið sér bölvanlega, þannig að allt hefur stuðlað að þvi að gera þessa vertið lélega. Af þessum 17-18 bátum sem veiðar stunda, er Freyja GK aflahæst, en hún er einn af þeim örfáu bátum sem stunda linuveiðar. Það er mjög óvanalegt að linubátur skjóti netabátum ref fyrir rass.” Frekar tregt i Keflavik Þórhallur Helgason varð fyrir svörum, þegar við hringdum i vigtina i Keflavik. Mátti Þór- hallurtæpastveraað þvi að tala við okkur, þvi vörubilar full- fermdir loðnu biðu afgreiðslu, og á þeim vigstöðvum má ekk- ert tefjast. Þórhallur hafði samt sömu sögu að segja og i hinum pláss- unum, afli frekar tregur hjá þessum 25-30 bátum sem stunda veiðar frá Keflavik. IReykjavik er alveg sömu sögu að segja, gæftir slæmar sem hjá hinum og afli litill. GG.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.