Alþýðublaðið - 26.03.1976, Qupperneq 5
öu-
iö
Föstudagur 26. marz 1976
FRÉTTIR 5
VON UM KARTðFLUR I
MIDRI NÆSTU VIKU
,,Viö gerum okkur vonir um,
aö úr kartöfluskortinum geti
rætzt um miöja næstu viku, ef
þau fyrirheit sem okkur hafa
verið gefin erlendis frá
standast,” sagöi Johann Jonas-
son, forstjóri Grænmetis-
verzlunar landbúnaðarins, i
samtali viö Alþýöublaðið i gær.
„Eins og viðhöfum áður skýrt
frá, þá höfðum við gert samning
við Pólverja um kaup á kart-
öflum. Frost i Póllandi undan-
farna daga hefur dregið út-
skipun á langinn. Við tókum þá
til bragðs, að fá kartöflur frá
Rotterdam, sem hafa þangað
borizt frá Mexico. Þar er þó
ekki um mikiö magn að ræða,
aðeins um 160 tonn, og ætti að
duga i nokkra daga, eða þar til
pólsku kartöfluraar berast til
landsins,” sagði Jóhann enn-
fremur.
Annars sagði Jóhann, að þær
fréttir bærust nú frá Pól-
landi, að frosti þar væri að
linna, og vonir væru til þess, að
útskipun hæfist innan tiðar. Nú
værieitt islenzkt skip i Póllandi
sem biði lestunar, Langá. Þá
væri Lagarfoss væntanlegt
þangað þann 30. þ.m. og tæki
kartöflufarm. Það væri þvi
reiknað með að veður leyföi
útskipun í minnsta kosti annað-
hvort þessara’ skipa.
Heildarmagn það, er um var
samið, frá Póllandi, nam 2500
tonnum.
Þorir vart að slá neinu
föstu
,,Ef allt fer að óskum, ætti
ástandið að skána um miðja
næstu viku”, sagði Jóhann, ,,en
hins vegar er maður orðinn það
svartsýnn eftir undanfarna
erfiðleika, að maður þorir engu
að slá föstu. Um áramótin
vomm við mjög ánægðir með að
hafa tryggt okkur kartöflur, að
minnsta kosti fram i júlf i
sumar.”
„Þá reynist ekki unnt að
framfylgja gerðum samningum
við Hollendinga og siðan setur
vetrarveðrið i Póllandi strik i
reikninginn. Það hefur þvi
gengið erfiðlega að fá umsamd-
ar kartöflusendingar erlendis
frá, hingað til lands.”
Á uppsprengdu verði
Jóhann kvað aðspurður, litlar
sem engar kartöflubirgðir vera
til i landinu þessa dagana. Þó
læki alltaf eitthvað. Hefði hann
heyrt af þvi sögusagnir, að
vissir aðilar hefðu yfir ein-
hverjum birgðum að ráða, og
væru kartöflurnar seldar á upp-
sprengdu verði. „Meginþorri
heimilanna hefur þó ekki yfir
neinum kartöflum að ráða,”
sagði Jóhann Jónasson að
lokum. —GAS
'æ/imtíSKnfc
Hjrttífiíjr
HLEKKTIST Á
Það óhapp varð seint
i gær, að Flugleiðaþotu
hlekktist á er hún miili-
lenti á Keflavikurflug-
velli á ieið sinni frá
Luxemburg til Banda-
rikjanna.
Þegar þotan var lent fékk hún
á sig vindsveip, sem gerði það
að verkum, að hún vaggaði til
og við það snerti ytri hreyfillinn
vinstra megin, flugbrautina.
Um borð I þotunni vom 123
farþegar, en sakaði engan, þrátt
fyrir að hnykkurinn, sem við
þetta varð, væri talsverður.
Komu öryggisbeltin þar til
bjargar.
Ekki var vitað í gærkvöldi,
hvort skemmdir hefðu orðið á
þeim hreyfli þotunnar, sem
snart brautina. Það þótti þó ráð-
legt, að taka hreyfilinn til mjög
nákvæmrar athugunar og þvi
önnur þota fengin til að flytja
farþegana til ákvörðunarstað-
ar, en á meðan hennar var beðið
gistu þeir Hótel Loftleiðir.
Ráðstefna um
íþróttir og
f jölmiðla
Ráöstefna Samtaka
tþróttafréttamanna um íþróttir
og fjölmiðla verður haldin á
morgun, laugardag, f Glæsibæ
og hefst kl. 13.30 stundvfslega.
Óskað er eftir, að þeir sem
eiga eftir að tilkynna þátttöku
geri það nú þegar. Allar upplýs-
ingar gefur ráðstefnustjöri, Jón
Asgeir^son, og skal jafnframt
tilkynna houum þátttöku og/eða
breytingar.
áfengis-
lil bóta”
„Bann við
veitingum
- segir Áfengisvarnarráð
1 fréttírtilkynningu frá
Afengisvarnarráði er borið lof á
dómsmálaráðlterra, Ólaf Jó-
hannesson, fyrir lokun sölubúða
ATVR og bann við vinveitingum
á meðan á verkfallinu stóð.
Bent er á að annir lögreglu
hafi minnkað mjög og fanga-
geymslur hafi verið tómar að
mestu. Þá mun ástandið á
Slysavarðstofu Borgarspitalans
ekki hafa verið jafn gott árum
saman. Af þessu dregur
Afengisvarnarráð þá ályktun,
að ekki sé jafn mikið um smygl
ogbrugg ílandinu og ýmsir vilji
vera láta.
Bann við vinveitingum var
afnumið áður en áfengisútsölur
opnuðu, og var það nóg til þess
aö fangageymslur fylltust og
ölvaðir menn flykktust á Slysa-
varðstofuna og gerðu starfsfólki
þar og sjúklingum lifið leitt.
Þá er vakin athygli á þvi að
ekki voru það drykkjusjúk-
lingar og ofdrykkiumenn, sem
ráku upp ramakvein vegna
lokunarinnar, heldur þeir sem
áttu mestra f jarhagslegra hags-
muna að gæta, vinveitingamenn
og þjónar.
Þó það sé álitamál, hvort
algjört bann við áfengissölu og
neyzlu myndi þjóna þeim til-
gangi sem til væri ætlazt þegar
til lengdar léti, verður þvi ekki
móti mælt, að allur bæjar-
bragur var ólikt viðkunnanlegri
meðan á „verkfallsbanninu”
stóð en bæði fyrir og eftir.
ES
LÆKNANEMAR MÓTMÆLA
Læknanemar hafa sent frá sér
ályktun, þar sem segir að þeir
mótmæli harðlega framkomnu
lagafrumvarpi um námslán og
námsstyrki. Er i ályktuninni
visað til bréfs frá kjarabaráttu-
nefnd námsmanna sem sent var
alþingismönnum, en þar koma
fram öll helztu sjónarmið
læknanema.
Ennfremur segir i ályktun-
inni, að læknanemar leggi á-
herzlu á, að námsmenn njóti
ekki óhagstæðari lánakjara en
aðrir lánþegar i landinu.
Er skorað á alþingismenn að
fella þetta frumvarp í núver-
andi mynd.
JSS
lönminjasýning í
Þjóðminjasafninu
Samtök iðnaðarmanna
hafa um nokkurt árabil
unnið að því að safna
ýmsum minjum frá hinum
eldri iðngreinum hér á
landi, og var ætlunin að
koma á fót sérstöku iðn-
minjasafni/ þar sem sýna
mætti þróun iðnaðar frá
heimilisiðju til nútíma
verkstæðisiðju.
Var einkum lagt kapp á söfnun
sveinsstykkja og vandaðra gripa,
svo og söfnun smiðaáhalda, verk-
færa, skjala og alls þess sem
varpað gat ljósi á iðngreinar hér
á landi.
Það hefur nú orðið úr, að Þjóð-
minjasafn Islands hefur tekið
safn þetta til varðveizlu og
eignar, með það fyrir augum að
safnið i heild, eða helzta úrval
þess, verði sýnt meðal safngripa
Þjóðminjasafnsins þegar
aðstæður leyfa.
Úrvali úr Iðnminjasafninu
hefur nú verið komið fyrir til
sýningar i Bogasal Þjóðminja-
safnsins og verður það sýnt þar
ásamt nokkrum hliðstæðum
gripum úr Þjóðminjasafninu
fram til 4. april, og er aðgangur
ókeypis.
Sýningin er opin á sama tima
og safnið sjálft, sunnudaga
þriðjudaga, fimmtudaga og
laugardaga kl. 13.30 — 16.00.-JSS
ÍSOLF er með framhjóladrif og
sterka, endingargóða og líflega 50
eða 75 ha, vatnskælda vél, sem er
óvenju sparneytin. Benzíneyðsla
7—8 I á 100 km. Uppherzla einu
sinni á ári eða eftir 15 þús km
akstur. Ársábyrgð, óháð akstri.
OOLF er rúmgóður 5 manna bíll
með stórt farangursrými (allt að
1000 I). Stórar lúgudyr að aftan,
sem auðvelda hleðslu.
OOLF er fallegur og hagkvæmur
fjölskyldubíll.
Komið, skoðið og kynnist OOLF
Sýningarbílar á staðnum.
GOLF®
HEKLAhf
Laugavegi 170—172 — Simi 21240