Alþýðublaðið - 26.03.1976, Síða 16

Alþýðublaðið - 26.03.1976, Síða 16
Brotlegir um alvarleg vanskil á orlofsfé Verkamannasamband ís- lands samþykkti i gær tiilögu um vanskil á orlofsgreiðslum. Tiilagan hijóðar svo: Þar eð Verkamannasamband tslands hefur orðið áþreifanlega vart viö að hluti atvinnurekenda er i verulegum vanskilum, að þvi er snertir orlofsgreiðslur til póstgiróstofu orlofsdeildar, vill Verkamannasambandið skora sérstaklega á verkalýðsfélög og verkafólk almennt að kynna sér innborganir atvinnurekenda á orlofi til viðtakandi póststofn- ana. Jafnframt gerir stjórn Verka- mannasambandsins þá ein- dregnu kröfu tii orlofsdeildar Pósts og stma, að hert verði á innheimtuaðgerðum frá þvi sem nú er og telur það ástand óþol- andi, aö hluti atvinnurekenda sé i margra mánaöa vanskilum. Ef ekki verður skjótiega bætt úr þessu ástandi er hætta á, að hluti verkafólks fái ekki orlof greitt á tilskildumtima. Margir hafa gerzt brotlegir bað er almennt vitað, að fjöldinn allur af atvinnufyrir- tækjum notar orlofsfé almenn- ings i daglegri veltu. Einnig er vitað að oriofsfé almennings, svomilljónum skiptir, er notað i rekstur rikisstofnana. Alþýðublaðið hafði samband við Guðmund J. Guðmundsson, formann Verkamannasam- bandsins, vegna þessa vanda- máls. Guðmundur sagði, að mikill hluti atvinnurekenda stæði i skilum. Þrátt fyrir það væru mjög margir, sem hefðu gerzt brotlegir um mjög alvar- ieg vanskil. Sagðist Guðmundur álita, að það stafaði af þvi, að Póstgiróstofan hefði ekki nægi- lega góð tök á málinu. Orlofsréttur fólksins í hættu „Þegar verðhækkanirnar dynja yfir okkur eins og nú hef- ur gerzt.þarf láglaunafólkið svo sannarlega á öllu sinu að halda. Að vissu leyti má segja, að or- lofsréttur fólksins sé i hættu.” Guðmundur sagðistlita svo á, að þetta væri aðvörun til at-. vinnurekenda, ,,og ef ekki verð- ur bætt úr þessu ástandi þá get- ur svo farið, að við neyðumst til að gripa til aivarlegra aðgerða. Það er engum blöðum um að fletta, að ógreitt orlof er sama og ógreidd vinnulaun,” sagði Guðmundur að lokum. Svo bætti hann við, ,,og þessu verður fylgt eftir.” -BJ Flugvélar Air Viking-. SOLUVERO MIDAO VID HAUNHÆFT VERO Dómkvaddir flugvélafræð- ingar, sem framkvæmdu mat á flugvélum þrotabús Air Viking, mátu vélarnar þrjár samtals á 60 miljónir króna. Tilboð Oliu- félagsins h.f. i eina vélina var hins vegar 60 milljónir og Sam- vinnubankinn bauð einnig 60 milljónir fyrirhinar tvær. Þessi munur á matsverði og til- boðunum hefur valdið mönnum nokkrum heilabrotum. Þar sem Flugfélagið Vikingur hefur ákveðið að gera kauptilboð ’ i flugvélarnar hafði Alþýðubl. samband við Arngrim Jóhanns- son stjórnarformann félagsins. Arngrimur sagði, að ekki væri hægt að lita á matið sem raun- hæft. Það mætti likja þessu við það, er skip væri metið á strandstað. Flugvélarnar hefðu verið metnar sem ógangfærar, en raunverulegt verðmæti þeirra væri mun meira. Vikingur hefur kannað verð á þotum eins og þeim sem hér um ræðir og eru til sölu erlendis. Lægsta hugsanlega verð er 300 þúsund doUarar eða um 53 miUjónir islenzkra króna. Ef slik flugvél væri keypt með t.d. fimm ára láni frá seljendum erlendis sæju aUir i hendi sér hvert endanlegt verðið yrði. Hagkvæm kaup Það kom fram i samtalinu við Arngrim i gær, að þá um daginn yrði haldirin fundur Vikings- manna með fulltrúum Oliu- félagsins og Samvinnubankans um kaup á þotunum þremur. Taldi Arngrimur möguleika á að ná góðum lánum með flug- vélunum og á allan hátt hag- kvæmara að fá þessar vélar innanlands en erlendis frá. Varðandi klössun á flug- vélinni, sem er i flughæfu ástandi, sagði Arngrimur, að nokkur tilboð hefðu borizt, m.a. eitt að upphæð um 100 þúsund dollarar. —SG Hvernig er hægt að vera öðruvlsi en fýldur yfir þessu viöur- styggilega veðri, sem aldrei viröist ætla aöfærast tii betri vegar. Þessi unga stúlka varö á vegi Einars Karlssonar, Ijósmyndara I Austurstræti I gærdag. Hann var meö myndavélina viö hendina og gat ekki stillt sig um aö smella af einni mynd. SPARIFEÐ SEM VILLTIST INN í FRYSTIKISTU PÓSTS & Svo viröist sem talsverö peningaupphæð hafi villzt inn í eitthvert öngstræti f jármálakerfis pósts og sima — og dvalið þar mán- uðum saman án þess að finnast. Þarna er um að ræða skyldu- sparnað borgarstarfsmanna — og ef til vill starfsfólks fleiri stofn- ana — en hingað til hefur þetta fé verið greitt til sparimerkjadeild- ar pósthússins i Reykjavik i skiptum fyrir sparimerki, sem lögð hafa verið i launaumslög fólks undir 26 ára aldri. Pósthúsið hefur siðan staðið skil á þessu fé til veðdeildar Landsbanka íslands, þar sem það er lagt inn á reikning viðkomandi launþega jafnskjótt og þeir fram- visa bókum sinum með innlögð- um sparimerkjum. Nú hefur hins vegar verið gerð sú breyting, að stofnunum er gert að greiða þessa upphæð beint til veðdeildarinnar, a.m.k. þar sem faunaávisanir eru tölvuútskrifað- ar. Eftir að þessi breyting var á- kveðin, sendi Reykjavikurborg á- fram um hrið greiðslur til spari- merkjadeildar pósthússins. Þessi upphæð hefur siðan nán- ast týnzt hjá pósti og sima — og ekki verið lögð inn á reikning við- komandi hjá veðdeildinni — og SÍMA kemur það sér bagalega fyrir það fólk, sem undanþegið er skyldu- sparnaði, en 15% af launum þeirra eru samt dregin af og greidd til pósthússins. Þetta fólk hefur ekki getað fengið sina lög- mætu endurgreiðslu, þrátt fyrir að launadeild borgarinnar hefur itrekað reynt að fá pósthúsið til að standa skil á þessum upphæðum. ónæði hlýzt af Hjá veðdeild Landsbankans hefur þetta valdið talsverðum vanda, þvi fólk, sem áður leysti sin sparimerki út á pósthúsinu getur það ekki lengur, —• og veð- deildin greiðir ekki út fé, sem ekki hefur verið greitt til deildar- innar. En að sögn starfsfólks þar, hefur verið mikið um að fólk hringi vegna þess arna og vilji að vonum fá peninga sina greidda. 1 gær hafði hins vegar verið greiddur hluti af launagreiðslum fyrir marzmánuð, en ekkert af launum fyrir þær vikur fyrir þann tima, eftir að breyting var gerð á formi greiðslna. Að sögn talsmanna launadeild- ar borgarinnar er nú verið að endurskoða þetta mál hjá póst- húsinu og er vonast til að það hafi gertfullnaðarskil á þessum týndu peningum einhvern tima i næstu viku. —BS FÖSTUDAGUR 26. MARZ 1976 týðu iðið FRÉTT: Að þeir hjá KRON hafi ekki látið hug- fallast þótt borgarstjórn Reykjavikur hafi komið i veg fyrir áætlanir KRON um stórmarkað i Reykja- vik með þvi að neita fyrir- tækinu um leyfi til þess að setja markaðinn upp i stór- hýsi Sambandsins við Sundahöfn. KRON er nú á höttunum eftir verzlunar- húsi til leigu eða kaups undir stórmarkað — þótt sú verzlun verði e.t.v. ekki eins risavaxin og sú, sem fyrirhugað var að setja upp I SlS-skemmunni. HEYRT: Að með hverju árinu vaxi þeirri skoðun fylgi meðal ráðamanna Háskóla íslands, að Háskólinn neiti að taka mark á stúdentsprófum en fari að krefjast sérstakra inntökuprófa i allar deUdir skólans. Astæðan er að sjálfsögðu sú að með þvi að veita fleiri og fleiri skólum leyfi til þess að útskrifa stúdenta hefur vegur stúdentsprófsins sifellt verið að minnka og er nú svo komið, að ráðamenn Háskóla íslands telja marga þá, sem lokið hafa stúdentsprófi, alls ekki færa um að stunda há- skólanám. TEKIÐ EFTIR: 1 Tim- anum i fyrradag, að augl- ýsing um viðtalstima Kristins Finnbogasonar, formanns Fulltrúaráös Frafnsóknarfélaganna i Reykjavik er birt undir fyrirsögninni „Viðtalstim- ar þingmanna og borgar- fuUtrúa Framsóknarflokk- sins i Reykjavik”. Kristinn er hvorugt^en sagður hafa áhuga á hvoru tveggja. 1 Timanum i gær hefúr þetta veriö snarlega leiðrétt og britist nú auglýsing undir fyrirsögninni „Viötalstimi formanns Fulltrúaráðs Framsóknarfélaganna I Reykjavik.” í sama blaði er tilkynnt, að Helgi H. Jónsson, fréttastjóri Tim- ans, hafi látið af störfum við blaðið, en hann mun hefja störf á fréttastofu út- varpsins.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.