Alþýðublaðið - 24.04.1976, Page 5

Alþýðublaðið - 24.04.1976, Page 5
bH&w' Laugardagur 24. aprtl 1976 5 Alþýðusam- bandið lýsir sök á hendur ríkis- stjórninni! „Af 7.3% verðhækkun frá 1. febriiar-1. april má rekja 6% til á- kvarðanna stjórnvalda, en ein- ungis um 1.3% til nýafstaðinna kjarasamninga.” Þetta kemur fram i upplýsingabæklingi sem prentaður hefir verið á vegum Al- þýðusambands Islands og gefinn út i 20.000 eintökum. í bæklingnum kemur einnig fram að við kjarasamningana ný- afstöðnu reyndu starfsmenn Hag- stofu og þjóðhagsstofnunar að meta hvaða verðhækkanir væru fyrirsjáanlegar og þær tölur lagð- ar til grundvallar við gerð samn- inganna. En nú er ljóst að verðhækkanir verða mun meiri en gert var ráð fyrir og er rikisstjórnin borin þeim sökum að hafa gefið starfs- mönnum sfnum rangar forsend- ur, og þannig komið aftan að samtökum launþega. „Ástæðan til þess að við förum úti upplýsingamiðlun, sem þessa, er sá órökstuddi og falski áróður sem Alþýðusambandið hefir legið undir að undanförnu”. Þetta sagði Björn Jónsson, for- seti ASt, á fundi með fréttamönn- um. Björn sagði, að reynt hefði verið að koma þvi inn hjá al- menningi að verðhækkanaskrið- an sem nú riði yfir landslýö væri afleiðing nýafstaðinna kjara- samninga. Þetta vildi Alþýðu- sambandið leiðrétta og þvi hefði verið ráðist i útgáfu bæklingsins. Upplýsingar þær, sem þar koma fram eru byggðar á bestu fáanlegum heimildum, tölum gefnum út af Hagstofu tslands. Eins og fyrr segir kemur þar fram að af þeim 7.3% almennu verðhækkunum, sem þegar hafa dunið yfir, megi rekja 6% til beinna pólitiskra ákvarðana stjórnvalda, en einungis um 1.3% til kjarasamninganna nýaf- stöðnu. Falskar forsendur Þegar unnið var að gerð kjara- samninganna gerði Hagstofan spá, þar sem gert var ráö fyrir um 17.3% verðhækkunum, þrátt fyrir að engar kauphækkanir yrðu. Rikisstjórnin taldi þessa spá of háa og var Hagstofunni fal- ið að gera nýja i samráði við Þjóðhagsstofnun. 1 þessari nýju spá sem byggð var á upplýsing- um stjórnvalda var um gert ráð fyrir um 13% verðhækkunum á árinu. Þessispá var lögð til grundvall- ar við samningagerðina. I henni var ekki gert ráð fyrir neinni hækkun á gjaldskrá pósts og sima, einnig að gjald fyrir hita- veitu myndi ekki hækka nema um 15%. En efndirnar urðu þær að Hitaveitan hækkaði um 27% og hækkanir hjá Pósti og sima, sem engar áttu að verða, urðu þegar á reyndi litil 24%. HIN RAUNVERULEGA 0R- SÖK VERÐHÆKKANANNA Verðhækkanir Ríkisstjómin 1. febrúar — 1. apríl brást Verðforsendur við samningagerð VERÐHÆKKUN 1. FEBRÚAR — 1. APRÍL 6.0% AÐEINS 1.3% VEGNA ÁKVARÐANA MÁ REKJA TIL STJÓRNVALDA KAUP- OG SAMNINGUNUM ÓVIÐKOMANDI HÆKKANA 1. MARS 1 2 3 4 5 Kaupmáttur á samningstímanum ákvarðast annars vegar af þeirri kauphækkun, sem fæst, og hins vegar af því hve miklar verð- hækkanir eiga sér stað. Við samningagerð er því nauðsynlegt að meta væntanlegar verðhækkanir. Starfsmenn Hagstofu og Þj«3ðhagsstofnun- ar reyndu að meta, hvaða verðhækkanir væru framundan. Verðhækkanir hafa í reynd orðið mvm meiri en hæstu spár gerðu ráð fyrir. Astaiðan er sú, að ríkisstjómin gaf embætt- ismönnum sínum rangar forsendur. Póstur og sími hefur nú þegar hækkað um 24%, en við samningaborðið var tekið trú- anlegt, að engin hækkun yrði. Vænst var 15% hækkunar hitaveitu, en í reynd er hækkun nú þegar orðin 27%. Áfengi og tóbak var hækkað strax. Búvörur hækkuðu helmingi meira en búist var við. Það var ríkisstjómin, sem brást [ Almennt verðlag hefur hækkað um 7,3% frá febrúarbyrjun til fyrsta apríl. ) Einungis 1,3% almenn verðhækkun vcrð- ur rakin til launahækkana 1. mars, þrátt fyrir að launahækkunum hafi af ósvífni verið velt strax út í Verðlagið. | Verðhækkanimar em runnar undan rifjum stjómvalda. Hækkun opinberrar þjónustu veldur samanlagt sem svarar 1,5% almennri verðlagshækkun (hitaveita hækkaði um 27%, hljóðvarp og sjónvarp 31%, póstur og sími 24% og strætisvagnar 25%). 15% hækkun áfengis og tóbaks samsvara 0,8% almennri verðlagshækkim. Búvömr hafa hækkað um 25% og þar sem þær vömr em stór og nauðsynlegur liður í neyslu fólks, veldur sú hækkun miklu eða scm svarar 33% almennri verðlagshækkun. Lækkun niðurgreiðslna olli ^ af búvöm- verðshækkuninni. 4 Framangreind hækkun búvöm, og hækkun vöm og þjónustu opinberra stofnana, hafa samanlagt valdið 5,6% hækkun almenns verðlags. Af öðrum hækkunum má nefna 10% bensínhækktm (jafngildir 0,3% al- mennri verðhækkun), 24% fiskverðshækk- un (0,5%), 25% hækkun dagblaða (0,3%), 20% hækkun á kaffi (0,2%). 5 Þótt engin kauphækkun hefði orðið 1. mars, væri verðlag nú 6% hærra en í febrúarbyrj- un. Aprfl 1976. Otgefandi Alþýðusamband Islands. f 2 3 4 5 6 7 8 Verðbólgan hefur þegar gleypt kauphækk- anir launafólks að mestu leyti. Hjá sumum var kauphækkunin jafnvel alveg horfin áður en hún kom til útborgunar. Verðbólgan á hins vegar ekki rætur að rekja til kauphækkananna, sem urðu 1. mars. Þó kaup hefði ekki hækkað, hefði verðhækkun orðið 6%. Án verkfalls hefði engin kauphækkun feng- ist og þá væri kaupmáttur nú þegar 6% lak- ari en hann var í febrúar. Kaupmáttur hefði um nasstu áramót verið kominn minnst 15% undir það, sem var í febrúar, ef ekki hefði verið gripið til verk- fallsvopnsins, því að verðbólgan hefði geys- að áfram, þótt laun hefðu ekki hækkað. Rauðu strikin veita nokkra vöm gegn svik- um ríkisstjómarinnar, en verkafólk fær það í engu bætt, hve hækkanir koma fijótt .Það skiptir ekki einvörðungu máli, hvað mikið verðið hækkar, heldur og hvenær. Rfldsstjómin sinnti ekki kröfum ASl um breytta efnahagsstefnu. Rfldsstjómin hefur enn ráðist á Ufskjör launafólks. Rfldsstjómin verður dæmd af verkum sinum. Alþýðusambandið und- irbýr málshöfðun vegna hækkunar búvöruverðs. Hsekkanir á verði landbúnaðar- vara urðu helmingi meiri en gert var ráð fyrir í spá Hagstofunnar. Alþýðusambandið hyggst höfða prófmál fyrir dómstólunum vegna þess að hluti þessara hækkana var byggður á grundv. kjarasamninganna. I 9. gr. laga um Framleiðsluráð landbúnaðar- ins er kveðið á um að slik hækkun geti ekki komið til framkvæmda nema kauphækkanir hafi orðið á undangengnu þriggja mánaða timabili. Þegar búvöruverðs- hækkunin kom til framkvæmda var kjarasamningum lokið, ,en launafólk hafði engar kjarabætur hlotið. Þvi telur Alþýðusamband- ið hækkunina ólöglega og mun eins og fyrr greinir höfða mál hennar vegna. Byrjunarkauphækkunin uppétin Björn sagði, að þær byrjunar- kauphækkanir (7,5-10,5%) sem um hefði verið samið væru nú þegar uppétnar þó einungis væru 2 mánuðir liðnir af samnings- timabilinu. Enn væru um tveir mánuðir þar til ákvæðin um rauðu strikin kæmu til fram- kvæmda og mætti launafólk þvi búastvið enn frekari kjararýrnun á því timabili. Til dæmis hefði se- menthækkað um hvorki meira né minna en 38% eftir að upplýs- ingabæklingur ASl fór i prentun. Falskur áróður Björnsagði, að gremja og reiði rikti meðal almennings vegna undangenginna verðhækkanna. Þvihefði verið gripiðtil þess ráðs að reyna að koma sökinni á Al- þýðusambandið. Gefið heföi ver- ið í skyn að meginhluta verð- hækkananna mætti rekja til kjarasamninganna. En eins og Iram hefði komið væri raunin allt önnur. Ef ekki hefðu verið gerðir nýir samningar væri kaupmáttur nú um 6% lægri en raun bæri vitni og kaupmáttarrýrnun hefði sam- kvæmt spá Þjóðhagsstofnunar orðið um 15% á árinu. Bann við auglýsingum ASÍ i sjónvarpi „1. febrúar til 1. april varð 7.3% almenn verðlagshækkun. Aðeins 1.3% má rekja til kjara- samninganna 1. marz. 6% stafar af ákvörðunum stjórnvalda.” Þetta er texti sjónvarpsauglýs- ingar sem Alþýðusambandið lét birta að kvöldi 21. marz. Daginn eftir var tilkynnt að bann væri lagt við frekari birtingu auglýs- ingarinnar, að minnsta kosti þar til útvarpsráð hefði um • hana fjallað. Björn Jónsson kvað þetta ekki vera i fyrsta sinn sem rikisút- varpið fjandskapaðist við verka- lýðshreyfinguna, skemmst væri að minnast banns sem lagt var við auglýsingu um útifund um landhelgismálið i vetur er leið. Ástæður þær sem upp voru -gefnar fyrir banninu voru þær ,,að hæpið væri að hún samrýmd- ist þeim reglum sem sjónvarpið hefði sett sér i þessum efnum”. Bjöm sagði að þó strangar reglur giltu um auglýsingar i sjónvarpi virtist sem litið væri eftir þeim farið. Hætt væri við að næsta fáir auglýsendur gætu staðið viðallar þær skrumkenndu lullyrðingar sem þeir bæru á borð fyrir al- menning. En svo þegar Alþýðu- sambandið kæmi með auglýsingu sem einungis væri byggð upp á bestu fáanlegum upplýsingum okkar hæfustu manna i efnahags- málum, þá væri sagt Nei! Finnig neitun hja útvarpi Alþýðusambandið freistaði þess að fá sama texta lesinn i auglýsingatima útvarpsins, en svarið þar var einnig nei. Þá var lögð inn auglýsing þar sem frá auglýsingabanninu var sagt, og verkafólk hvatt lil þess að dreifa upplýsingabæklingi ASl. Einnig þessari auglýsingu var hafnað. Björn kvað það ljóst að ein- hverjum sem þætti nærri sér höggvið hefði kippt i spottana bak viö tjöldin. —ES Félag járniðnaðarmanna Félagsfundur verður haldinn þriðjudaginn 27. april 1976 kl. 8.30 e.h. i Félagsheimili Kópavogs, niðri. Dagskrá: 1. Félagsmál 2. önnur mál 3. Erindi: „Lifeyrissjóðsmálin” Hrafn Magnússon framkv.stjóri Sambands almennra lifeyrissjóða flytur. Mætið vel og stundvislega. St jórn Félags járniðnaðarmanna Frá barnaskólum Reykjavikur INNRITUN 6 ára barna (þ.e. barna sem fædd eru á árinu 1970), fer fram i barnaskólum borgarinnar mánudaginn 26. og þriðju- daginn 27. april n.k. kl. 17—18 báða dagana. A sama tima þriðjudaginn 27. april fer einnig fram i skólunum innritun þeirra barna og unglinga, sem flytjast milli . Fræðslustjóri

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.