Alþýðublaðið - 24.04.1976, Blaðsíða 9

Alþýðublaðið - 24.04.1976, Blaðsíða 9
biaSíö Laugardagur 24. aprfl 1976 17 MINNINGARORD___________ Sigurður Agústsson, alþingismaður, Stykkishólmi Snæfellingar kveöja i dag svip-. rikan héraðshöföingja, Sigurð Agústsson, fyrrverandi alþingis- mann. Hann lézt aðfaranótt 19. april siðastliðins, 79 ára að aldri, og verður jarðsunginn i Stykkis- hólmi i dag. iVIunu margir vilja kveðja hann að leiðarlokum, þvi að Sigurður átti að baki athafna- rika ævi og hafði viða komið við sögu atvinnulifs, félags- og stjórnmála, fyrst og fremst á heimaslóðum vestra, en einnig i sölum Alþingis, og margra stór- fyrirtækja þjóðarinnar. Sigurður var sonur Agústs Þórarinssonar verzlunarstjóra i Stykkishólmi og konu hans, As- gerðar Arnfinnsdóttur, og þurfa þær ættir ekki frekari kynningar. Lagði Sigurður fyrir sig verzlun- arnám, lauk prófi i Danmörku 1917., en hóf siðan störf við Verzl- un Tang & Riis i Stykkishólmi. Hann átti siðar eftir að kaupa eignir þess fyrirtækis og hefja bæði verzlun, útgerð og fisk- vinnslu i eigin nafni. Varð hann hinn umsvifamesti athafnamaður og reisti m.a. frystihús i Stykkis- hólmi. Naut Sigurður mikils trausts i röðum Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna og gegndi mikilvægum trúnaðarstörfum fyrir þau samtök svo og fyrir Samlag skreiðarframleiðenda og fleiri. Sigurður var kjörinn alþingis- maður Snæfellinga 1949 og varð siðar, er kjördæmi hans varð hluti hins nýja Vesturlandskjör- dæmis, forustumaður Sjálf- stæðisflokksins á sameiginlegum lista þar, allt til 1967. Það var ánægjulegt að kynnast Sigurði, bæði i pólitiskri sam- keppniog margvislegu samstarfi. Oft fór svo, að stjórnmálaand- stæður bráðnuðu i einskærri góð- vild hans i garð alls og allra, og löngun hans til að leysa hvers manns vanda. Að leiðarlokum sendi ég konu Sigurðar, Ingibjörgu Helgadótt- ur, og fjölskyldu allri innilegustu samúðarkveðjur. Benedikt Gröndal Tryggvi Kristjánsson, ÍBÚÐAVINNINGAR A 2'/j MILLJÓN OG 5 MILLJÓNIR 100 BÍLAVINNINGAR. 9 Á 1 V: MILLJ. 24 Á 1 MILLJ. 64 Á 'h MILLJ. 3 VALDIR BÍLAR. 5688 HÚSBÚNAÐARVINNINGAR: Á 10 ÞÚSÚND Á 25 ÞÚSUND Á 50 ÞÚSUND SALA Á NÝJUM MIÐUM ER HAFIN, EINNIG ENDURNÝJÚN ÁRS MIÐAOG FLOKKSMIÐA MÁNAÐARVERÐ MIÐA KR. 400.00 ADALVINNINGÚR EINBÝLISHÚS AÐ HRAUNBERGSVEGI 9, AÐ VERÐMÆTI NÚ 22 MILLJ. MAl-BÍLL AUDI 100 LS ÁGÚST-BÍLL OPEL ASCONA OKTÓBER-BÍLL BLAZER 200 ÚTANLANDSFERÐIR: A 100 ÞUSÚND A 1 50 ÞÚSUND Á 250 ÞÚSUND trésmíðameistari, Keflavík Fæddur 4. mal 1917 Dáinn 13. april 1976. A Landsspi'talanum andaðist 13. þ.m. Tryggvi Kristjánsson, trésmiðameistari, Sólvallagötu 30, Keflavik. Hann var fæddur á Borgargarði I Stöövarfiröi 4. mai 1917. For- eldrar hans voru Kristján Magnússon, skipstjóri og útvegs- bóndi Stöðvarfirði og kona hans Þóra Þorvarðardóttir. Kynni okkar Tryggva Kristjánssonar hófustfyrir nær 40 árum þegar ég kom fyrst til Stöðvarfjarðar og varö starfs- maður hjá Kaupfélagi Stöðfirð- inga. Um það leyti var tiltölulega margt af ungu tápmiklu fólki heima á Stöövarfirði, sem setti svip sinn á atvinnu- og félagslíf byggðarinnar með þrótti stoum og lifsgleöi. Var unga fólkið sér- staklega samrýmt i leikjum og störfum, og lagði þá meðal ann- ars fram mikla sjálfboðaliös- vinnu á vegum ungmennafélags- ins við að koma upp myndarlegu samkomuhúsi. Tryggvi á Borgar- garði eins og hann var oftast nefiidur fyrir austan var einn af þessum glæsilegu ungmennum. Hann var þá um tvitugt, hraustur fallegur piltur, glaövær, dreng- lundaður og vinfastur. A þessum árum bjó Sigur- bergur Oddsson á Eyri við Fá- skrúðsfjörð, en hann er nú nýlát- inn. Kona hans var Oddný Þor- steinsdóttir, föðursystur mín. Þessi heiðurshjón áttu mörg mannvænleg börn. Guðlaug. Sig- urbergsdóttir á Eyri og Tryggvi Kristjánsson kynntust um þessar mundir og felldu hugi saman. Man ég aö fyrsta árið, sem ég var á Stöðvarfirði, gengu fallegar gamansögur um elskendurna á Eyriog Borgargarði, sem áttu oft að hittast eða mætast á fjallinu, sem aðskildi Stöðvarfjörö og Fá- skrúðsfjörð. En Tryggva var aö sjálfsögðu stundum saknað úr hópi félaganna, þegar hann um helgar eða ef hlé varð á sjósókn — hvarf í skyndi til fundar við elskuna sina. En vinir hans, sem til þekktu — munu þó hafa sam- glaöst honum því öllum geðjaðist vel aðungu lifsglöðu stúlkunni frá Eyri, sem þá og alltaf siðan átti hug Tryggva allan. Tryggvi og Guðlaug giftust árið 1938 og stofnuðu heimili að Borg- argarði i Stöövarfiröi. Stundaði Tryggvi sjó frá Stöðvarfiröi á þessum árum — eins og flestir þeir, sem eitthvað dugðu. Var hann lengst á opnum vélbát með Magnúsi bróður sinum. Sóttu þeir bræður sjóinn fast, enda hraust- menni báöir. 1 lok striösins fór saman að fiskafli brást mjög á Austfjörö- um- og um sama leyti varð mun meira um vinnu i Reykjavlk og nágrenni. Fór á þeim árum margt af ungu fólki að austan suður á land til margskonar starfa. Var það mikið áfall fyrir Stöðvarfjörð, aðmissa á þeim ár- um margt af ágætu ungu fólki suöur á land og sem ekki kom aft- ur. Og árið 1947 fluttu þau hjónin Tryggvi og Guölaug suður til Keflavlkur. Haföi Tryggvi, þá á- kveðið að hefja smiðanám, sem hugur hans mun lengi hafa staðið til. Lauk hann iðnnámi i skipa- smiði ogvann i Slippnum I Kefla- vik nokkurt árabil. En siðar bætti hann við sig tilskyldu aukanámi til aðhljóta réttindi tilhúsasmíöi. Og sem meistari við húsbygging- ar vann Tryggvi mörg siðustu ár- in eða allt til siðustu áramóta, að hann kenndi þess alvarlega sjúk- dóms, sem ekki varö bættur. Erfiður hlýtur baráttutiminn á sjúkrahúsinu aö hafa veriö þessu hraustmenni, sem aldrei vildi gefast upp. En áreiöanlega hefir honum verið það meiri huggun og styrkur en orð fá lýst, að Guö- laug, konan hans elskulega dvaldi nær alltaf við sjúkrahvilu hans á spitalanum þar til yfir lauk. Þegar vinir og samferðamenn hverfa sjónum okkar — verður ó- sjálfrátt hugsað til baka. Mér eru ljúfar minningarnar um vin minn Tryggva Kristjánsson, þvi þær eru allar á einn veg. Engan skugga ber á samskipti okkar, þvi frá honum einkenndust þau af góðvild hans og sérstakri tryggð til alls og allra, sem hann einu sinni batt vináttu við. Auk þess, sem við Tryggvi átt- um samleið á Stöðvarfiröi .1 9 ár þá kom ég oft á heimili þeirra hjónanna i Keflavlk. Alltaf var mér tekiö af þeirri einlægu gleði, sem einkennir sanna gestrisni. Og það var ótrúlega notalegt að finna á þessum timum, þegar manni finnst stundum enginn megi vera að þvl að lifa hér i þétt- býlinu —aö Tryggvigaf sér alltaf góðan tima til að sinna gestinum. Stundum kom ég I mat til þeirra hjónanna á vinnudögum — og þegar timinn leið I spjalli fram yfir eitt —fór ég að hafa áhyggjur að ég væri að valda óþægindum. En þá kom gjarnan fallega brosið hans Tryggva og hann bað mig ekki hafa áhyggjur, þvi þó hann kæmi máske aðeins of seint i vinnuna, þá hlyti hann að hafa möguleika á að bæta það upp. Þó að karlmennska Tryggva og raunsæi sætti hann viö búsetuna I Keflavik — þar sem þeim hjónum vegnaði vel — þá var auðfundiö að hugur hans leitaði oft austur og tilfinningalega var hann bundinn æskustöðvunum. Þegar fundum okkar bar saman, var oftast minnst á Stöðvarfjörð — og ég fannað hann bar mjög hag og veg þess byggöarlags fyrir brjósti — og setti sig ekki úr færi að veita málefnum Stöðvarfjarðar stuðn- ing þegar tækifæri gáfust. Mér finnst því eðlilegt, aö æskubyggðin Stöðvarfjörður skuli eiga að geyma ! faðmi sér jarö- nedcar leyfar Tryggva Kristjáns- sonar nú að leiðarlokum. Guðlaugu og mannvænlegum sonum þeirra hjónanna svo og öðrum vandamönnum vottum viö hjónin innilegustu samúð okkar. Blessuð sé minning Tryggva Kristjánssonar. Björn Stefánsson. r ’sparið' ^ J þúsundir kaupið L Sumar dekk Nokkur verðsýnishorn af fjölmörgum stærðum okkar af sumarhjólbörðum: STÆRÐ VERÐFRAKR: 5.60-15 5.680 - 5.0 -15 5.210- 155-14 5.600 - 590-13 5.550 - 560-13 5.950- 645/165-13 7.050- 550 -12 4.700 - RADIAL: 165SR15 8.150- 185 SR14 9.980- 155 SR14 6.370 - 155 SR13 6.260 - 145 SR13 6.230 - Öll verð eru miðuð við skráð gengi U.S.S: 178.80 TÉKKNESKA BIFREIÐA UMBOÐIÐ Á ÍSLAND/ H/F AUÐBREKKU 44-46 KOPAVOGI SIMI 42606 AKUREYRI: SKODA VERKSTÆOIÐ A AKUREYRI H ■'F OSEYRI 6 EGILSTAÐIR: VARAHLUTAVERSLUN GUNNARS GUNNARSSONAR GARÐABÆR: NVBARÐI H/F GAROABÆ J

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.