Alþýðublaðið - 11.06.1976, Blaðsíða 1
FOSTUDAGUR 1 1 JÚNÍ
Áskriftar-
HBHHHHHHHHi
siminn er
14-900
I BLAÐINU I DAG
Aðeins einn kvenmaður
f Vélskólanum
GuðrúnLára Petersen er eina konan i Vé-
skólanum. Ekki virðistþaðhafa háð henni
mikið, því hún varð næst-hæst á lokaprófi.
Að vélskólanámi loknu ætlar hún að
leggja stund á raftækni.
IC=3
acz
ÚTLðND
450 kr. fyrir hverja
veidda slöngu
Fyrir norðan Róm er borgin La Spezia.
Eiturslöngur hafa tröllriðið borginni á
sumrin og bitið fjölda manna. Yfirvöld i
borginni hafa heitið 450 kr. í verðlaun
fyrir hverja slöngu sem veiðist. 13. síðu
icns
o
3C3'
Starfsmenn
hálft sextánda hundrað
Flugleiðir hf. héldu fyrsta aðalfund sinn i
gær. Þar kemur fram, að félagið flutti 682
þúsund farþega á siðasta ári og starfs-
menn Flugleiða eru nú orðnir um 1550.
áacz
3!
Z-hugsjónin mikla
Enn á ný fær Oddur Sigurjónsson kveðju
frá lesanda. Að þessu sinni er það Pálmi
Jósefsson, sem svarar athugasemdum
Odds um z-málið i Alþýðublaðinu þann 30,
mai.
oa
~=>C
Smyglamálin
krabbi í þjóðarlíkama
Smyglmálin, sem upp hafa komið að
undanförnu, eru stórbrotið þjóðfélags-
vandamál, sem hefúr vaxið eins og dulinn
krabbi. Til að bjarga sjálfsvirðingu og
siðferðilegu þreki þjóðarinnar, þarf að
skera þennan krabba burtu, meðan þess
er enn kostur.
Bls. 2
’ C3 CC7 C
=300=3 CZDi
£
HEILDARTEKJUR FLUGLEIÐA
í FYRRA 12,1 MIUJARÐUR
Afgangur til ráðstöfunar 512 milljónir króna
Aðalfundur Flugleiða var
haldinn i gær i Reykjavik. Þetta
var fyrsti aðalfundur félagsins
frá stofnun <þ.e. sameiningu
félaganna).
A fundinum kom fram, að
heildartekjur Flugleiða hf. i
fyrra urðu 12 milljarðar 109
milljónir króna og að hagnaður
af reglulegri starfsemi fyrir-
tækisins varð 205 milljónir
króna. Söluhagnaður og tjóna-
bætur námu 307 milljónum, og
afgangur til ráðstöfunar sam-
kvæmt rekstrarreikningi nam
512 milljónum króna.
Heildareignir Flugleiða i árs-
lok 1975 voru 8339 milljónir
króna, en skuldir námu 6860
milljónum króna. — 1 fyrra
fluttu vélar félagsins liðlega 682
þúsund farþega og starfsmenn i
árslok voru 1550. Sjá frásögn af
fundinum á bls. 4.
— Nei sjáðu þarna
eru bæði pabbi og
mamma komin út að
leita að mér. Þetta er
lika í fyrsta skiptið
sem ég stelst út á
sokkaleistunum.
Tók sér frí
frá búskap
til að syngja
inn á plötu
„Shadow lady” heitir ný
hljómplata sem hljómplötuút-
gáfan Júdas hefur sent frá sér.
A plötunni eru 11 lög eftir Sig-
rúnu Harðardóttur. Hún hefur
einnig sainið textana og syngur
lögin. Margir kunnir
hljómlistarmenn leika undir.
Sigrún er að góðu kunn fyrir
söng sinn, en langt er siðan að
heyrzt hefur til hennar, enda
stundar hún búskap á Barða-
strönd.
Sókninni beint frá
þorskveiðum með 46%
hækkun á karfaverði
Lágmarksverð á karfa 500 gr.
og stærri hefur verið stór-
hækkað eða um 46%. Verð fyrir
hvert kg. skal vera 36krónur
Fram til áramóta. Þessi verð-
hækkun er m.a. gerð til að beina
sókn togskipa frá þorskveiðum
og einnig þar sem nú eru stór-
batnandi horfur á sölu karfa-
flaka til Bandarikjanna.
Sjávarútvegsráðherra beitti
sér fyrir þvi, með samþykki
rikisstjórnarinnar, að stjórn
Verðjöfnunarsjóðs fiskiðnaðar-
ins samþykkti að hækka við-
miðunarverð karfaafurða frá 8.
júni til áramóta. A þessum
grundvelli samþykkti Verðlags-
ráð sjávarútvegsins þessa
miklu hækkun á karfaverðinu.
A það er lögð mikil áherzla af
hálfu sjávarútvegsráðuneytis-
ins i sambandi við þessar
ákvarðanir, að veiðiferðir tog-
skipa á karfaveiðum standi ekki
lengur en 13 daga til að tryggja
gott hráefni i framleiöslu karfa-
flaka fyrir Bandarikjamarkað,
sem skila á miklum verðmætis-
auka.
Rikisstjórnin hefur samþykkt
að ábyrgjast getu Verð-
jöfnunarsjóðs til þess að risa
undir greiðslum úr sjóðn-
um,sem kunna að leiða til af
hækkun viðmiðunarverðsins.
Vonast er til að þessar ráð-
stafanir styrki rekstrarstöðu
togaraútgerðarinnar og auki at-
vinnu og framleiðsluverðmæti i
frystihúsunum.
Fréttir frá Bandarikjunum
herma, að þar sé nú stóraukin
eftirspurn eftir karfaflökum
vegna minna framboðs. Er ekki
óliklegt að verðið þar hækki
talsvert á næstunni og það verði
til þess að draga úr sölu á karfa
héðan til Sovétrikjanna þar sem
likur eru á mun betra veröi fyrir
vestan. —SG
Rítstjórn Sfðumúla II - Símfi 81866